Tíminn - 02.09.1977, Blaðsíða 13
Föstudagur 2. september 1977
13
Staðhættir i Dritvik
Dritvik er i djúpri kvos, um-
girt hraunjöðrum á þrjá vegu,
utarlega á Snæfellsnesi sunnan-
verðu. Suðurbarði er á milli
Djúpalónssands og Dritvikur.
En að utanverðri Vikinni er
Vesturbarði, miklu hærri og
hrikalegri. Eggsléttur sandur
liggur eftir Vikinni, og nefnist
Mariusandur. Smáklettar eru
utan i miðri Vikinni og kallast
þeir Bárðarskip og Bárðar-
trúss, og eru kenndir við Bárð
Snæfellsás. Beint á móti
Bárðarskipi, nokkru utar, er
Dritvikurklettur. Niður af
Suðurbarða er Kattarhryggur,
örlitið utar er stór stakur
klettur, sem nefnist Trölla-
kirkja.
Vermenn i Dritvik
Um aldaraðir var Dritvik
verstöð manna hvaðanæfa af
Vesturlandi. Snemma á út-
mánuðum komu þeir til að afla
sér fanga úr þessari stærstu
verstöð Snæfellsness. Sumir
komu á bátum sinum, átt-
æringum og sexæringum, aðrir
fóru landleiðina. Þegar mest
var voru þarna 300-400 menn á
60 til 70 bátum. Oll aðkoma i
verið hefur verið hráslagaleg,
búðartóftirnar fullar af fönn og
vikin klökug og óvistleg. Þarna
hafa þeir hreiðrað um sig i búð-
unum,sótt sjóinn þegar vel gaf,
annars unnið við lyngtinslu til
eldsneytis, sjóföt voru stöguð og
bætt og margt fleira gert, sem
kallaði að. Ef tómstundir gáfust
iðkuðu vermenn glimu þar sem
heitir Glimustofa, sunnarlega á
Mariusandi, eða að hópast var
vfð steintökin fjögur á Djúpa-
lónssandi og reynt afl sitt. Stein-
tök þessi heita amlóði, hálf-
drættingur, halfsterkur og full-
sterkur. Enginn þótt sjófær
nema hann hefði hafið hálf-
drætting a' stall. A Suðurbarða
er völundarhús úr tiu hringjum,
gert úr torfi, sem vermenn hafa
byggt sér. Drissarar skemmtu
sér við að ganga um völundar-
húsið og komast klakklaust út
án þess að villast. Margs konar
fróðleik munu vermenn hafa
skemmt sér við i búðunum, svo
sem eins og rimnakveðskap og
sögusagnir. Þannig hafa ver-
menn átt mikinn þátt i þvi að
ýmiss konar alþýðufróðleikur
fluttist milli landshluta. Mesta
rimnaskáld Islendinga,
Sigurður Breiðfjörð, var i Drit-
vik 17 ára gamall og hefur þá
unnist timi til að yrkja far-
mannsvisur um farmenn er
réru þá frá Dritvik.
Þarna stunduðu menn róðra
við slæman aðbúnað fram á
Jónsmessu ár hvert, en upp úr
þvi hvarf hver maður i sina
heimasveit með björg i búið.
Nú er fátt til minja um þessa
vermenn fyrri alda, annað en
fáeinar tóftir, fiskreitirnir upp i
hrauninu og fiskgarðar, en
sagan um þetta verbúðafólk
magnar andrúmslofið i Dritvik.
Nú er saga Dritvikur ekki
annað en kafli i atvinnusögu
Snæfellsness. En Dritvik verður
sakir náttúrufegurðar eftir-
sóknarverður viðkomustaður
ferðalanga Snæfellsnesi.
(HEimild: Vermennska i Drit-
vik eftir Lúðvik Kristjánsson
Blanda VI)
G V
Séð suður yfir víkina. Fyrir miðri mynd fjærst er Tröllakirkja,
þar fyrir sunnan sést í Sævardranga og þá Suöurbaröi. Klettur
inn í Vikinni miðri nefnist Bárðarskip og beint á móti honum er
Dritvikurkiettur. Gömlu fiskgaröarnir biða þess eins að hafið mái
þá algjörlega Ut.
Kanada
Þrjá kanadiska háskólastúdenta vantar
tvö herbergi með eldhúsi i tvo mánuði.
Upplýsingar gefur Margrét i sima 7-36-60.
Frá Kvennaskólanum
í Reykjavík
Uppeldisbraut verður starfrækt við skól-
ann næsta vetur. Hægt er að bæta við
nokkrum nemendum.
Upplýsingar veittar i sima 13819.
Skólastjóri
Stikan i vörðunni á að visa skipbrotsmonnum teio upp ur vikiiiiu.
Enn brotna öldur á Mariusandi. Ekki eru sjáanleg nein merki um hina fornu verstöð. Skipbrots-
skýlið er eina mannvirkið. Pollurinn þar sem lending var bezt og öruggust.
A/Klæðning er fáanleg í mörgum fallegum litum sem eru innbrenndir
og þarf því aldrei að mála.
A/Klæðning er úr áli sem má beygja án þess það brotni og ef það verður
fyrir miklu höggi tognar á því en það rifnar ekki.
Annars er álið í A/Klæðningu svo þykkt að það þolir töluvert högg án þess
að á því sjáist. Fáanlegir eru ýmsir fylgihlutir með A/Klæðningu sem
hefur þurft að sérsmíða fyrir aðrar klæðningar. jRSPHHHMIHRa
A/Klæðning er auðveld í uppsetningu og
hefur reynst vel í íslenskri veðráttu. _____________________
Sendið teikningar og við munum reikna
ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SÍMI 22000 - PÓSTHÓLF 1012
TELEX 2025 - SÖLUSTJÓRI: HEIMASÍMI 71400.
KLÆÐNING