Tíminn - 02.09.1977, Blaðsíða 3

Tíminn - 02.09.1977, Blaðsíða 3
Föstudagur 2. september 1977 3 Stórtjón af eldi í Bolungavík tugmilljóna virði, eyðilagðist — skreið, sem var KEJ-Reykjavik— Húsiðerónýtt, 400 fermetra geymsluhús, og all- ur fiskurinn sem i þvf var, sagöi Guöfinnur Einarsson, forstjóri á Boiungarvik i samtali viö Timann igær. Siödegis á miövikudag kom upp eidur i mannlausu skreiöar- geymsiuhúsi ishússfélags Bol- ungarvikur, en i þvi voru geymd 60 tonn af skreiö tilbúinni til út- flutnings. Eldsins varö vart milli kl. 5 og 6 þegar reykur kom upp úr þaki hússins. Hófst slökkvi- starf fljótlega og tókst aö verja áfasta timburgeymslu fyrir ágangi eldsins, en eins og fyrr segir er sjálft skreiöargeymslu- húsiö og fiskurinn í þvi ónýtt meö öllu. Sagöi Guöfinnur, aö þetta væri tugmilljónatjón, en eftir er aö meta þaö nákvæmlega af trygg- ingaraöilum og i þvi sambandi gæti oröið erfitt aö ákveöa verö skreiðarinnar. Hins vegar hefur þetta ekki áhrif á annan rekstur fyrirtækisins sagöi Guöfinnur. Upptök eru enn óljós. Aö sögn fréttaritara Timans á Bolungarvik, Benjamins Eiriks- sonar, var strekkingsvindur af norðaustri, þegar eldurinn kom upp, og geröi þaö allt slökkvistarf erfitt. Þá magnaöist og eldurinn, þegar húsiö var opnaö, og þrátt fyrir aöstoö slökkviliösbila frá Isafiröi, var mjögerfittum vik aö ráöa niöurlögum eldsins. Aö sögn Benjamíns varö einnig eldinum aö bráö sildarnót, rækjupillunar- vél og varahlutir i togarann Dag- rúnu. Bolungavík er einn mesti fiskimannabær landsins, enda liggur hann vel viö gjöfulum miöum. LÉTTIR Á ÞORSKINUM Norðmenn og Færeyingar hætta KEJ-Reykjavik — Nú hafa fariö fram viöræöur milli Einars Karlsberg frá landstjórninni færeysku og sjávarútvegsráöu- neytisins um framkvæmd gild- andi samkomulags um veiöar Færeyinga hér viö land. Aö 'sögnJóns B. Jónssonar, fulltrúa hjá sjávarútvegsráöuneytinu, varö niöurstaöan sú aö Færey- ingar hætti beinum þorskveiö- um hér viö land. Þá hafa og öll leyfi Norömanna til fiskveiöa I Islenzkri fiskveiöilandhelgi á þessu ári veriö afturkölluö frá og meö 16. september. Sagöi Jón B. Jónsson, aöþetta samkomulag viö Færeyinga þýddi, aö handfæraveiöar þeirra hér við land legöust af, en linuveiöar héldu áfram meö þeim takmörkunum, aö hlutur þorsks i afla bátanna má ekki fara upp fyrir 10%. Gildandi samningar viö Færeyinga kveöa á um 8000lesta þorskafla frá 1. april á þessu ári til 31. marz á ári komandi. Færeying- ar eru þegar búnir aö veiöa 5000 lestir, og i fyrra fylltu þeir kvóta sinn fyrir áramótin en að þessu sinni hefur samkomulag náöst um jafnari veiöi samkvæmt ofansögöu. Þá hafa og ,eins og áður greinir, veriö afturkölluö öll leyfi Norömanna til fiskveiöa hér viö land. Viö Norömenn er ekki kvótabundinn samningur i gildi, heldur hljóöar samningur- inn upp á aö islenzk stjórnvöld geti stöövaö veiöi þeirra meö ákveönum fyrirvara. Slikt hefur nú verið gert og renna leyfi Norömanna út 16. sept. n.k. Forsenda þessarar ákvöröunar er sú, sagöi Jón, aö Norömenn hafa nú þegar veitt jafnmikiö og þeir geröu á sl. ári, þ.e.a.s. ca. 2600 lestir. Þar af voru i fyrra rúmar 2000 lestir langa og keila og ekki tiltakanlegt magn af þorski. Aðrar þjóöir, sem leyfi hafa til veiða hér viö land, sagöi Jón B. Jónsson eru V-Þjóöverjar og Belgar. Rennur samningur V-Þjóöverja út i lok nóvember, en samningur Belga er upp- segjanlegur. Þá sagöi Jón aö óhætt væri aö segja, aö þorsk- veiöar útlendinga hér viö land væruóverulegar á þessu ári, og taldi liklegt aö heildarmagniö yröi rétt um 8000 lestir. 13.800 Islending- ar „áður giftir” 378 komnir yfir nírætt og sex yfir tírætt FRÆÐSLURÁÐS AÐ VELJA EÐA HAFNA — segir Kristján Gunnarsson fræðslustjóri „Fyrir fræösluráöi Reykjavikur liggja nú umsóknir um kennarastöður frá fólki, sem ekki hefur kennararéttindi. Af- greiösia á þessum umsóknum er fólgin I þvl aö fræðsluráðsmenn veröa aö velja milli þeirra tveggja kosta.hvortþeir vilja — eöa vilja ekki — leggja til viö menntamálaráöuneytiö, aö réttindalausir kennarar veröi settir viö barnadeildir grunna- skóla Reykjavíkur”. Þetta er kafli úr bréfi , sem Kristján Gunnarsson, fræöslu- stjóri I Reykjavik, hefur skrifað vegna viöbragöa stjórnar og fulltrúaráös Stéttarfélags barnakennara I Reykjavik viö fréttaviðtali þvi sem sjónvarps menn áttu viö Kristján á þriöju- dagskvöldið þar sem meðal annars bar á góma, hvort ráða ætti réttindalaust til kennslu- starfa vegna ónógs framboðs á kennurum með fullgilt próf. Kristján Gunnarsson segir enn fremur, aö hann fái ekki séð, „aö skólayfirvöld komist hjá þvi aö taka afstööu til þess, hvort þau vilja setja réttinda- lausa kennara i þær stööur viö grunnskóla Reykjavikur, sem ef til vill fást ekki skipaöar fólki með kennararéttindi”. Sjálfur lætur fræöslustjóri ekki uppi, hvaö hann telur helzt til ráöa, og þaö geröi hann ekki heldur I sjónvarpsviðtalinu. „1 fréttaviðtalinu skýröi ég aöeins efnisatriöi málsins”, segir hann, ,,en tók þar enga af- stöðu til, hvaöa kosti ætti aö velja viö afgreiöslu þess, hvorki beint né óbeint”. Afturá móti viröist auöséö, aö hér sé hitamál í uppsiglingu, og i tilkynningunni frá stjórn og fulltrúaráöi Stéttarfélags barnakennara i Reykjavik var fólgin hótun um harkaleg viö- brögö, ef fólk án kennararétt- inda yröi fengiö til þess aö fylla i sköröin i barnaskólunum, þvi að á annan hátt væri þaö vart skil- iö,er barnakennararnir tala um „ófyrirsjáanlegar afleiðingar” þess, komi réttindalaust fólk til starfa I neyöartilviki viö hliö þeirra. VS-Reykjavik Hagstofa tsiands hefursent frá sér Hagtiöindi fyrir ágústmánuö 1977. Þar eins og jafnan er margvislegan l'róöleik aö finna um út- og innflutning, mannfjölda o.fl. Mannfjöldinn er miðaður viö 31. des. 1976, og þar er flokkað eftir kyni, aldri og hjúskaparstétt. Þar kemur fram, að heildartala landsmanna hefur i árslok 1976 veriö 221.046. Ef hjúksparstéttin er athuguö sést, að af þessum fjölda eru 118.566, ógiftir, 88.680 giftir og 13.800 „áður giftir.” Og eru þá bæði kyn meðtalin i þessum þrem flokkum „hjúksparstéttar.” Sé hins vegar gripiö niöur i aldursflokkana, kemur i ljós aö 21.465 Islendingar eru á aldrinum 0 til fjögurra ára. Fimm til niu ára eru 20.366. Islendingar, og 22.861 eru á aldrinum tiu til fjórtán ára. Næsti aldursflokkur þ.e. fólk á aldrinum 15-19 ára er álfka fjölmennur, þvi aö þar er talan 22.563. Næsti flokkur, fólk 20-24 ára er 20.277, og úr þvi fer aö fækka i aldursflokkunum. Þeir sem eru 25-29 ára eru ekki nema 17.586 og enn fara tölurnar lækk- andi. Þeir sem eru 50-54 ára eru 10.274 og 55-59 ára eru aðeins 9.184. Eins og að likum lætur þynnast raðirnar enn meira, þegar kemur i hin efstu þrep mannsævinnar. Þeir sem eru á aldrinum 80-84 ára eru 2.803, menn á aldrinum 85-89 ára eru 1265, menn 90-94 ára eru 316, þeir sem orðnir eru 95-99 ára eru aðeins 56, og 100-104 ára eru ekki nema 6 manneskjur. Fróðlegt er aö athuga hjú- skaparstétt hinna ýmsu aldurs- flokka en hér verður látiö nægja að lita á „endapunktana,” þaö er að segja neðstu og efstu aldurs- flokkana, þar sem hjúskapur kemur til greina. Þar kemur á daginn aö af fólki á aldrinum 15-19 ára eru 417 i hjónabandi og niu manneskjur „áður giftar” það er aö segja fráskildar eöa hafa misst maka sina. Sé, á hinn bóginn, litið á efsta aldursflokk- inn 100-104 ára manneskjur eru þar 6á lifi, þar af tvær ógiftar og fjórar „áður giftar,” en enginn i hjónabandi. Við sliku er auövitaö Framhald á bls. 23 Miðstjórn ASI, um vandræði hraðfrystihúsanna: Orsök vandans vanhæfni stjórnenda en ekki kjarabætur verkafólks Stöðugir fundir BSRB og ríkisins SJ-Reykjavik Stöðugir sátta- fundir hafa verið með BSRB og samninganefnd rikisins i tæpar tvær vikur utan þess að gert var hlé um sfðustu helgi. 1 gær var rætt um sérmál kennara og i fyrradag var fundur meö fulltrúum sveitar- félaga. Enn hefur ekkert nýtt tilboð komiö frá samninga- nefnd rfkisins. Eftir helgina koma stjórn og samninga- nefnd BSRB saman til aö ræða stöðuna I samningamálunum. og afstaöa tekin til verkfalls- aðgeröa. Til verkfalla kemur þó ekki fyrr en sáttasemjari rikisins hefur lagt fram sátta- tillögu og greidd hafaveriö at- kvæði um hana i allsherjarat- kvæöagreiðslu. Sé hún felld getur verkfall komiö til fram- kvæmda. áþ-Reykjavik. Miöstjórn ASÍ hef- ur sent fjölmiölum fréttatilkynn- ingu, þar sem harölega er deilt á þá aöila, sem hafa tengt lokun frystihúsa á suö-vesturhorni landsins viö launahækkanirnar. Þaö var I fyrradag, aö Morgun- biaöiö réöst I leiöara harkalega aö verkalýöshreyfingunni og ber henni á brýn aö vera valda aö at- vinnumissi verkafólks í frystihús- unum. 1 Þjóöviljanum I gær segir Björn Jónsson forseti ASt m.a., aö rekstrarerfiöleikar frystihús- anna séu af allt öörum toga spunnir. Þá má minna á, aö I Timanum fyrir skömmu var frá þvi greint, aö Bæjarútgerö Reykjavikur greiddi á s.i. ári munhærra verö fyrir hvert kiló af fiski, en (Jtgeröarfélag Akureyr- inga. Orsökin fyrir þvi var m.a. sú, aö hagræöingarmái Búr geta vart talizt á háu stigi. Mun þaö einnig eiga viö fleiri útgeröarfyr- irtæki og hraöfrystihús á þessu svæöi. En þannig hljóöar frétta- tilkynningin: Miöstjórn Alþýöusam- bands Islands mótmælir harö- lega þeim fullyröingum, sem einstök pólitisk málgögn hafa við- haft I þá átt aö stöðvun nokkurra frystihúsa sé sök verkalýössam- takanna, sem knúiö hafi fram óbærilegar launahækkanir i sið- ustu kjarasamningum. Hið rétta er, aö laun þess fólks sem i fisk- iönaði vinnur eru enn ein hin lægstu I landinu og miklum mun lægrien laun í fiskiönaöi t.d. Fær- eyinga, Dana og Norðmanna, en þessar þjóöir selja fiskafurðir sinar aö verulegu leyti á sama markaöi og íslendingar og ótrú- lega á hærra veröi. Væru of há laun orsök vanda fiskiðnaðarins hlyti fiskiönaöur þessara þjóöa þvi aö hafa stöövazt fyrir löngu, en reyndin er sú, að hann virðist ganga á fullum afköstum þrátt fyrirmiklu hærrilaun en hér tiök- ast. Aö svo miklu leyti, sem rekstrarvandamál frystiiönaöar- ins eru raunveruleg, er þeirra al- veg vafalaust aö leita i margvis- legri vanhæfni stjórna fyrirtækj anna, sem hlut eiga að máli og i þeim rekstrarskilyröum, sem stjórnvöld skapa atvinnugrein- inni meö margvislegum hætti. Miðstjórnin telur aö i þessu sam- bandiberiskilyröislaustaö kanna eftirfarandi: 1. Hvort eölilegrar hagræöingar sé gætt I rekstri fyrirtækjanna. 2. Hvort fjármagn sé eöa hafi verið dregiö úr rekstri fyrir- tækjanna til annarrar starf- Framhald á bls. 23

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.