Tíminn - 02.09.1977, Síða 11

Tíminn - 02.09.1977, Síða 11
Föstudagur 2. september 1977 11 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þdrarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Jón Sigurösson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og augiýsingar Siöumúla 15. Simi 86300. Verð í lausasölu kr. 70.00. Askriftargjald kr. 1.300 á mánuði. Blaöaprent h.f. i Markaðsmál land- búnaðarins I hinni itarlegu ræðu, sem Halldór E. Sigurðsson landbúnaðarráðherra flutti á aðalfundi Stéttarsam- bands bænda, vék hann sérstaklega að framleiðslu- og markaðsmálunum. Ráðherra sagði m.a.: „Framleiðslu- og markaðsmál eru i dag og um næstu framtið stærstu mál bændastéttarinnar að fást við. í þeim málum ræður innanlandssalan mestu. Áhrifa á söluna innanlands gætir við breyt- ingu á kaupgetu almennings, verðlagi og neyzlu- venjum. Það er þvi þýðingarmikið fyrir landbúnað- inn að taka fullt tillit til óska neytenda um vinnslu og sölumeðferð varanna. Er nú verið að gefa út reglugerð um nýtt kjötmat, sem á að mæta þessum óskum. Á þessu ári hefur orðið allverulegur samdráttur i sölu innanlands á kindakjöti og smjöri. Var það m.a. haft i huga við ákvörðun um auknar niður- greiðslur af hálfu stjórnvalda i tengslum við ný- gerða kjarasamninga. Nú þegar mun vera farið að gæta áhrifa af þessari verðlagsaðgerð. Mikill út- flutningur á landbúnaðarafurðum verður á þessu ári, svo likur eru á, að verðábyrgð rikissjóðs, sem lög heimila, verði ekki nægjanleg. Fyrirheit liggur fyrir um það, að fullnaðargreiðslum útflutnings- bóta, þ.e. miðað við 10% regluna, verði lokið i mánuðunum október til nóvember. Ég geri ráð fyrir, að i fjárlögum 1978 verði veitt fjárhæð, er nemi 10% af heildarverðmætum landbúnaðarvara, og greiðsluáætlun næsta árs muni miðuð við reynslu þessa árs um hraða greiðslu þeirra. Þeir markaðir búvöru, sem við höfum erlendis, verða þvi erfiðari þvi meir sem varan hækkar i framleiðslu hér heima. Einnig hafa efnahagsörðug- leikar i markaðslöndum okkar gert okkur erfiðara um vik með sölu, bæði vegna minni kaupgetu og eins vegna efnahagsráðstafana stjórnvalda, sem gengið hafa i þá átt að færa niður verðlag i þessum löndum með niðurgreiðslum á samkeppnisvörum afurða okkar. Það hefur sjálfkrafa orðið til þess að lækka verðið á þeim vörum. Einnig er það stefna i landbúnaði sumra þessara þjóða, einkum Norð- manna, að verða sjálfum sér nógir um þær land- búnaðarafurðir, sem framleiða má i heimalandinu, með ófyrirsjáanlegun afleiðingum fyrir okkur, ef af verður. Við verðum þvi að halda vöku okkar i markaðsmálum landbúnaðar okkar með leit nýrra markaðaognýjungum i vörufrágangi og vöruvali til útflutnings. Pökkun i neytendaumbúðir er að ryðja sér til rúms i verzlun milli landa með landbúnaðar- afurðir. Ég vænti þess að við munum i framtiðinni finna markaði fyrir okkar ágæta lambakjöt, t.d. sérunnið i hangikjöt, á sama hátt og okkur er nú farið að takast að selja sértegundir osta með góðum árangri. Ég tel, að við eigum að fórna meiri fjár- munum i auglýsingastarfsemi erlendis. Ráðuneytið hefur nýlega skipað nefnd undir for- ystu Sveins Tryggvasonar framkvæmdastjóra til að vinna að sölumálum landbúnaðarins. Til könnunar á þessum málum og pvi, hvort finna megi þeim fjármunum, sem rikið ver til verðlags- málanna, meira notagildi en nú er, t.d. með þvi að greiða niður verð afurða á frumstigi framleiðsl- unnar eða með breyttu verðhlutfalli þeirra, og þá einkum milli vara til úrvinnslu iðnaðar eða neyzlu, er starfandi vinnuhópur á vegum ráðuneytisins undir forystu hagstofustjóra, sem i eru fulltrúar stjórnvalda og bænda”. Framleiðslu- og markaðsmálin voru annað aðal- mál aðalfundarins og verður siðar rætt um hinar merku ályktanir sem fundurinn gerði um þau mál. Þ.Þ. t>að styrkir stöðu Verkamannaflokksins HINN 12. og 13. þessa mán- aðar fara fram þingkosningar i Noregi og er kosninga- baráttan nú í algleymingi. Hún hefur verið mjög hörð, enda úrslitin talin óvenjulega tvisýn. Kosningabaráttan snýst fyrst og fremst um það, hvort rikisstjórn Verka- mannaflokksins situr áfram eða hvort sambræðslustjórn Hægri flokksins og miðflokk- anna tveggja, Kristilega flokksins og Miðflokksins, kemur til valda. Rikisstjórn Verkamannaflokksins, er minnihlutastjórn en nýtur hlutleysis Sósialiska vinstri flokksins. Skoðanakannanir benda til, að Verkamanna- flokkurinn muni vinna mikið á, en fyrst og fremst á kostnað Sósialiska vinstri flokksins, sem spáð er miklu fylgistapi. Liklegt þykir að Hægri flokk- urinn bæti við sig verulegu fylgi, en það stafar m.a. af þvi, að hann nær aftur þeim kjósendum, sem kusu flokk hægri sinnaðra öfgamanna (Glistrupista) i siðustu kosn- ingum,en augsýnt þykir, að sá flokkur fær nú engan þing- mann kosinn. Kristilegi flokk- urinn og Miðflokkurinn þykja liklegir til aö halda svipuðu fylgi og i siðustu kosningum. Svo likt er fyígi borgaralegu flokkanna annars vegar og Verkamannaflokksins og Sósialiska vinstri flokksins hins vegar, ef dæmt er eftir skoðanakönnunum, að mjög erfitt er að spá um úrslitin. ÞAÐ er nýjasta herbragðið, sem Verkamannaflokkurinn hefur gripið til, að efna til skoöanakönnunar um, hvort menn hefðu mikla tiltrú eða litla til Odvars Nordlis for- sætisráðherra.Niðurstaða þess arar skoðanakönnunar var sú, að Nordli nyti mjög mikils persónulegs fylgis. Um 69% þeirra kjósenda, sem spurðir voru, sögðust bera mikið traust til forsætisráðherrans, 25% litið traust, en 6% höfðu enga ákveðna afstöðu. Af kjósendum Verkamanna- flokksins báru 93% mikið traust til Nordlis, 59% af kjós- Odvar Nordli endum Sósíaliska vinstri flokksins, 65% af kjósendum Kristilega flokksins, 54% af kjósendum Miðflokksins og 53% af kjósendum Hægri flokksins. Nordli nýtur þannig trausts meirihluta kjósenda i öllum flokkum. Að sjálfsögðu hafa áróðursmenn Verka- mannaflokksins mjög hampað þessari niðurstöðu og tefla nú Nordli fram meira en nokkru sinni fyrr. Svar andstæðing- anna er að benda á, að Nordli sé ekki formaöur flokksins, heldur Reiulf Steen, sem er talinn meira til vinstri en Nordli. Steen er nú i fyrsta sinn I framboði til þingsins og er öruggur um að ná kosningu. Það styrkir aðstöðu Verka- mannaflokksins i þessum efn- um, að ekki er ráðið hver verður forsætisráðherra, ef borgaralegu flokkarnir fá meirihlutann. Um skeið var meira að segja nokkur ágrein- ingur milli þeirra um það eöa eftir að Miðflokkurinn lýsti yfir þvi, að hann myndi ekki sætta sig við, að forsætisráö- herrann yrði úr Hægri flokkn- um, enda þótt hann væri stærsturþessara flokka. Lfk- legt þykir nú að Lars Korvald, einn af leiðtogum Kristilega flokksins, veröi forsætisráðherra, ef borgara- legu flokkarnir sigra. Korvald var forsætisráðherra borgara- legrar stjórnar, sem var mynduð eftir að aðild Noregs að Efnahagsbandalaginu var felld i þjóðaratkvæðagreiðslu, og þótti stjórn hans takast vel að semja við Efnahagsbanda- lagið, án þess að Noregur gerðist aðili að þvi. Korvald er sennilegast sá leiðtogi borg- aralegu flokkanna, sem nýtur almennast álits, og myndi það vafalitið vera styrkur fyrir þá, ef þeir gætu lýst yfir þvi fyrir kosningarnar, aö hann væri forsætisráðherraefni þeirra. Ekki þykir liklegt, að sam- komulag geti orðið um það og verður það vatn á myllu Nordlis Lars Korvald SÓSIALISKI vinstri flokk- urinn berst mjög örvæntingar- fullri baráttu til að halda fylgi sinu. Barátta þeirra hefur ekki sizt verið fólgin i þvi að grafa upp ýmis leyniskjöl eða upplýsingar um utanrikismál, sem áttu að vera leynilegar, og gera þetta opinbert. Siðasta tiltæki flokksins i þessum efn- um er það, að tveir þingmenn hans hafa birt skýrslu rannsóknarnefndar, sem þingmönnum var látin i té sem trúnaðarmál. Skýrsla þessi hafði þó ekki neinar sérstakar upplýsingar að geyma, sem ekki var áður vitað um, en hins vegar snerti hún erlend riki og sagði frá málefnum, sem þau höfðu óskað eftir að ekki yrðu gerð opinber. Aö þvi leyti þykir birting skýrslunnar vera brot á hefðbundinni trún- aðarskyldu, sem þingmenn hafa ekki rofiö til þessa. Birt- ing skýrslunnar hefur þvi ekki mælzt vel fyrir i Noregi og bendir fleira til þess, að hún verði Sósiaiiska vinstri flokknum fremur til óhags en ávinnings. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Nordli nýtur mikils trausts

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.