Tíminn - 01.11.1977, Síða 18
18
Þriðjudagur 1. nóvember 1977
íþróttir
„Það var sí'
aö tapa nið
hinu góða
forskoti”...
— sagði Birgir Björnsson, eftir
landsleik íslands og Danmerkur,
sem lauk mð með jafntefli - 25:25.
Um tima hafði íslenzka liðið 5
marka forskot
— Það var sárt að tapa hinu góða
forskoti niður, sagði Birgir
Björnsson, formaður landsliðs-
nefndarinnar I handknattleik, eft-
ir að tslendingar og Danir höfðu
gert jafntefli (25:25) á Noröur-
landamótinu I handknattleik. —
Þetta féll allt saman hjá okkur I
byrjun og náðum við þá fimm
marka forskoti sem við urðum
siðan að sjá á eftir. Aðalástæðan
fyrir þvf tel ég að sé sú, aö leik-
mennirnir eru ekki komnir I
nægilega úthaldsþjálfun og þá
hefur það llka mikið að segja að
við höfum ekkert getað æft saman
fyrir mótið, sagði Birgir.
Birgir sagöi, aö islenzka liöiö
hafi búiö sig undir þaö aö Danir
tækju Geir Hallsteinsson úr um-
ferö. Viö fórum yfir mótleik viö
þvikvöldiöáöur,og heppnaöist sá
mótleikur okkar fullkomlega —
Danir hættu strax aö reyna aö
taka Geir úr umferö.
Landsliöiö, meö Geir
Hallsteinsson i fararbroddi,
mætti ákveöiö til leiks gegn Dön-
um og var þaö nú mun samstillt-
ara heldur en gegn Norömönnum
Danir byrjuöu á þvl aö taka Geir
Góð
nýting
Dönum
úr umferö, en þeir hættu því, eftir
aö hann var tvisvar sinnum búinn
aö leika á þá og skora glæsileg
mörk eftir gegnumbrot. Geir var
svo sannarlega I essinu sinu —
hann var potturinn og pannan i
leik islenzka liösins og hann dreif
strákana áfram meö krafti sin-
um. — Þaö er langt siöan aö Geir
hefur sýnt eins góöan leik og nú
gegn Dönum.
KrafturGeirs smitaöi Ut frá sér
og islenzka liöiö náöi fimm marka
forskoti (10:5) og stefndi allt aö
stórsigri — en þegar staöan var
13:8, náöu Danir aö saxa á for-
skotiö og minnkuöu þeir muninn i
tvö mörk (15:13) fyrir leikshlé.
Islenzka liöiö hélt þessum
tveggja marka mun fyrstu 9 min.
siðari hálfleiksins, en þegar staö-
an var 19:18 var allt I einu allur
vindurinn úr islenzku leikmönn-
unum — þeir skoruöu ekki mark i
næstu 9 mín., á sama tima og
Danir jöfnuöu 19:19og komust yf-
ir 22:19, og siöan 25:21 þegar 8
min voru til leiksloka. Þá vökn-
uöu Islenzku leikmennirnir aftur
til lifsins og náöu aö jafna 25:25
þegar leiktiminn var útrunninn —
þaö var Ólafur Einarsson, sem
skoraöi jöfnunarmarkiö úr auka-
kasti.
Geir Hallsteinsson átti mjög
góöan leik, og einnig ólafur
Einarsson. Þá léku þeir Jón H.
Karlsson, Arni Indriöason,
Þorbjörn Guömundsson og Bjarni
Framhald á bls. 23
Þorbjörn Guðmundsson sést hér skora mark I leiknum gegn Danmörku.
„Berlinar-múr” Dana
var ekki hindrun
fyrir Ólaf og Geir
Ólafur Einarsson skoraði jöfnunarmark íslands
(25:25) úr aukakasti,eftir að leiktíminn var útrunninn
— ,,Við hina snöggu hreyfingu
Geirs, opnaðist glufa I varnar-
vegg Dananna. Ég var fljótur að
nýta hana ogsendi knöttinnl gegn
— það var stórkostlegt að horfa á
eftir honum, þar sem hann hafn-
aði upp undir samskeytunum á
marki Dananna”, sagði Ólafur
Einarsson, sem færði tslending-
um jafntefli (25:25) á æfintýra-
legan hátt, eftir aö leiktlminn var
útrunninn.
Þegar tímavöröurinn haföi gef-
iö merki um, aö leiktimanum
væri lokiö, mátti sjá 25:24 á raf-
magnstöflunni — Dönum I hag.
Islendingar áttu þá einn leik eftir
i stööunni — mjög veikan, þar
sem aukakast var út á hægri
kantinum. Sex Danir stilltu sér
upp og mynduöu „Berlinarmúr”
fyrir framan þá ólaf Einarsson
og Geir Hallsteinsson, sem sneru
bakinu I „múrinn”. Þeir félagar
virtust hafa 1 möguleika gegn
1000 aö skora. En þaö ótrúlega
geröist — Geir kastaöi sér til hliö-
ar. án knattar, þannig aö Danirn-
ir beindu athygli sinni aö honum.
Við þaö myndaöist glufa i varnar-
vegg þeirra — og ólafur Einars-
son var ekki lengi að notfæra sér
þaö og sendi knöttinn meö
þrumuskoti i netamöskva danska
marksins.
Danir gengu vonsviknir af velli
— á sama tima og leikmenn is-
lenzka liösins og nokkrir áhorf-
endur stigu villtan striödans af
fögnuöi á fjölum Laugardals-
hallarinnar.
—SOS
Arangur islenzka landsliðsins
gegn Dönum var mjög góður
— landsliösmenn okkar skor-
uðu 15 mörk i fyrri hálfleik úr
22 sóknarlotum. Skotnýtingin
var mjög góð — 16 skot að
marki, gáfu 15 mörk, en sú
skottilraun, sem misheppnaö-
ist, varvitakast, sem var var-
ið. Aftur á móti urðu Islenzku
leikmönnunum á 6 slæm mis-
tök — feilsendingar. tslenzka
liðið skoraði siöan 10 mörk úr
18 sóknarlotum i siðari hálf-
leik —þá voru engar feilsend-
ingar, en aftur á móti mis-
heppnuðust 7 skot, og einu
sinni voru dæmdar tafir á ts-
land. Árangurinn varð þvi 25
mörk úr 40 sóknarlotum, sem
er mjög góður árangur I sókn.
Árangur einstakra leik-
manna varð þessi gegn Dön-
um — mörk (vitaköst), skot og
knettinum tapað:
JónK...............8(5)—11-1
Ólafur..............7 -9-2
Geir................5 — 9-0
Arni................3 — 3-1
ÞorbjörnG...........2 — 2-1
Mörkin voru skoruö þannig:
13 úr langskotum, 5 úr vita-
köstum, 3 af Hnu, 2 eftir
gegnumbrot og 1 eftir hraö-
upphlaup.
ólafur Einarsson átti tvær
iinusendingar, sem gáfu
mörk. Þorbjörn „fiskaöi” tvö
vltaköst. Þórarinn tvö og Geir
eitt.
Anders Dahl-
Nielsen
lék aðal-
hlutverkið
— þegar Danir tryggðu sér
Norðurlandameistaratitilinn,
með þvi að sigra Svia - 21:20
Andres Dahl-Nielsen lék aðal-
hlutverkiö i sókn og vörn hjá Dön-
um, þegar þeir tryggðu sér
Norðurlandam eistaratitilinn I
handknattieik, meö þvf að vinna
sigur (21:20) yfir Svium i úrslita-
leiknum, sem þurfti að
framlengja, þar sem jafnt var
(17:17) eftir venjulegan leiktlma.
Dahl-Nielsen, sem skoraði 10 (4)
mörk fyrir Dani, skoraði þrjú
mörk i framlengingunni, en
úrslitamark Dana skoraði
Thomas Pazy, félagi ólafs
Benediktssonar hjá Olympia i
Sviþjóð, þegar aðeins 3 sek, voru
eftir að framlengingunni.
Danir sýndu mikla baráttu
gegn Svium, þvi aö þeim tókst aö
vinna upp fimm marka (7:12)
forskot Svianna — jafna 15:15 og
komast yfir 17:16, en síöan skor-
uöu Sviar jöfnunarmark 17:17 og
varö þvi aö framlengja leikinn.
Annars var leikur Dana og
Svia, hálfgert einvigi á milli
Anders Dahl-Nielsen og hins frá-
bæra sænska leikmanns Bo
Anderson, eöa „Bobba” eins og
hann er kallaöur. Dahl-Nielsen
varö sigurvegari aö þessu sinni —
stjórnaöi danska liöinu eins og
hershöföingi, bæöi i sókn og vöm.
„Bobba” átti einnig stórgóðan
leik og var oft stórkostlegt aö sjá
hvernig hann lék á Danina meö
krafti sinum og snerpu — hann
skoraði 4 mörk, auk þess „fisk-
aöi” hann þrjú vitaköst og átti
þrjár linusendingar, sem gáfu
mörk.
ÞRÍR ÞEIR BEZTU... Morgan Juul, Anders Dahl-Nielsan og
Ingimar Andersen, með verðlaun sin.
Dahl-Nielsen
skoraði 20 mörk
—: og var útnefndur bezti
sóknarleikmaður NM
Anders Dahl-Nielsen, hinn
snjalli leikmaður Frederica
KFUM og fyrirliöi danska
landsliösins, skoraði 20 mörk á
Noröurlandamótinu i hand-
knattleik — 3 gegn Norömönn-
um, 7 gegn tslendingum og 10
gegn Svium. Hann var út-
nefndur bezti sóknarleikmað-
ur NM-mótsins, af Samtökum
iþróttafréttamanna, sem gáfu
þrenn verðlaun.
MORGAN JUUL - mark-
vöröur Norömanna úr Refstad
var útnefndur bezti mark-
vöröurinn og Sviinn Ingemar
Anderson úr Heim frá Gauta-
borg, var útnefndur bezti
varnarleikmaöurinn.