Tíminn - 08.11.1977, Blaðsíða 5
ÞriOjudagur 8. nóvember 1977
5
reglu” sem kveöur á um aö 2/3
hreinna tekna samvinnufélags
skuli teljast til komnar vegna
félagsmannaviðskipta en
þetta skiptir að sjálfsögðu
máli við úthlutun afslátta.
Telur Geir að hér sé ekki um
að ræða óeðlilegan hag sam-
vinnufélaganna þar sem ,,viöa
um landið eiga allt að 80-90%
heimila á viðkomandi félags-
svæði aöild að kaupfélaginu.”
t grein sinni vikur Geir
Geirsson m.a. að þeim sér-
ákvæðum sem gilda um sam-
vinnufélögin og binda fjár-
magn þeirra við viðkomandi
félagssvæöi og jafnvel svo að
þótt samvinnufélag leggist
niður skal geyma sameignar-
sjóði þeirra unz nýtt sam-
vinnufélag verður stofnað á
sama starfssvæði og með
sama markmiði og hið fyrra.
A móti þessu er einkafram-
takinu frjálst sem kunnugt er
að flytja fjármagn sittog um-
svif millihéraða að vild og oft
meö illum afleiðingum fyrir
atvinnuöryggi og afkomu
fólksins.
Aö lokum segir Geir Geirs-
son I grein sinni:
,,Að lokum vil ég itreka að
skattar samvinnufélaga eru
reiknaöir eftir nákvæmlega
sömu lögum og sömu
álagningaraðferðum og fyrir
annan atvinnurekstur. Sam-
vinnufélög njóta þvi slður en
svo neinna skattfriðinda um
fram önnur félagsform.”
JS
sjálfa, þvi að útreikningur á
söluhagnaði bréfanna miðast
við hið upphækkaða verö
þeirra. Annars er allur sölu-
hagnaður hlutabréfa í hendi
seljanda skattfrjáls eftir 4 ára
eignarhaldstfma. Enginn sllk-
ur verðbólguhagnaður stendur
félagsmönnum samvinnu-
félaganna til boða.”
2/3 hluta
reglan
Siðan vikur Geir Geirsson
aö hinni svo nefndu „2/3 hluta
á víðavangi
Samvinnufélög njóta
ekki skattfríðinda
Andstæðingar samvinnu-
félaganna hafa gert mikið
veður af þvi að samvinnu-
félögin búi við hlunnindi i
skattamálum um fram önnur
rekstrarform. 1 siöasta hefti
Samvinnunnar gerir Geir
Geirsson endurskoðandi
skattamál samvinnufélag-
anna að umræðuefni og skýr
ir þá staöreynd að um slika
mismunun er ekki að ræða.
Geir Geirsson segir m.a. i
upphafi greinar sinnar:
„Þaö vill jafnvel gleymast
að skattar samvinnufélaga
eru reiknaðir eftir nákvæm-
lega sömu lögum og sömu
álagningaraöferðum og fyrir
annan atvinnurekstur. Aðeins
Itekjuskattslögunum er greint
á milli lögaðila eftir félags-
formum í örfáum atriðum sem
snerta sjálfan tilgang og eðli
félagsformanna.
Þessi sérákvæði hafa ekki
aðeins að geyma hagræði fyrir
samvinnufélögin. t þeim er
t.d. einnig að finna ákvæði
sem fela i sér mikilsverð sér-
réttindi fyrir hlutafélögin, t.d.
varðandi skattfrjálsa Utgáfu
jöfnunarhlutabréfa og arð-
greiðslur af þeim.”
Geir Geirsson tekur það
fram að á siðari árum hafa
skattaákvæði um atvinnu-
reksturbreytzt talsvert. Hann
segir um það:
„Mest af skattbyröi þessara
aðila hefur færzt yfir á skatta
sem ekki taka mið af tekjum.
Má þar nefna aðstööugjöld og
fasteignaskatta til sveitar-
félaganna og til rlkisins má
nefna gjöld eins og eignaskatt,
launaskatt og tryggingargjöld
til almannatrygginga og at-
vinnuleysistrygginga.”
t framhaldi af þessu getur
Geir þess að t.d. launaskattur-
inn muni að likindum verða
meira en tvöfalt hærri en
tekjuskattur allra félaga I
landinu nú á þessu ári.
Kröfur geröar
til félaganna
Um sérstöðu samvinnu-
félaganna segir Geir Geirsson
i sambandi við skattalagn-
ingu:
„Tilsamvinnufélaganna eru
oft gerðar þær kröfur aö þau
veiti félagsmönnum sinum og
byggðarlögunum marg-
háttaða þjónustu sem full þörf
er á að veita en ekki er alltaf
að sama skapi arðvænleg.
Rekstur félaganna verður þó
gjarnan umf angsm ikill og
margbrotinn sem aftur hefur
þaö I för með sér að þau opin-
beru gjöld sem miðast við um-
fang svo sem eins og aðstöðu-
gjöld, hvila þungt á samvinnu-
félögunum.”
t umræðunum sem and-
stæðingar samvinnustarfsins
hafa gengizt fyrir er þvf oft
veifaö að „forréttindi” þeirra
komi fram i ákvæðum um
skattmeðferð þeirra afslátta
sem samvinnufélög veita
félagsmönnum sinum. Um
þetta segir Geir Geirsson
m.a.:
„Sú aðferð að endurgreiða
ágóða i formi afsláttar á við-
skiptum er að sjálfsögðu ekki
bundin viö samvinnufélögin
ein. Hér er um að ræða al-
menna reglu, sem gildir jafnt
fyrir öll félög og einstaklinga
sem vilja skila gróða sinum
aftur til viðskiptamanna i
hlutfalli við viðskipti og veita
þeim þannig sannvirði. Einka-
fyrirtæki og hlutafélög veita
oft afslætti i stórum stil, enda
þótt slikt sé yf irleitt ekki mjög
almennt og oft farið með slika
afslætti af leynd, gagnstætt
þvi sem á sér staö I samvinnu-
félögunum.”
Siðan rekur Geir Geirsson
nánar hversu heimildir hluta-
félaga eru hinar sömu og sam-
vinnufélaganna I þessu efni.
Frelsi einkaframtaksins
S tofnsj óðirnir
Andstæöingar samvinnu-
félaganna hafa talið að stofn-
sjóðir samvinnufélaga gæfu
þeim hlunnindi um fram
einkareksturinn. Hafa þeir
m.a. haldið þvi fram að hér
séu kaupfélögin að safna eigin
fjármagni sem sleppi undan
skatti. Um þetta segir Geir
Geirsson:
„Þetta er ekki rétt. Stofn-
sjóðurinn er séreignasjóður,
þar sem hver félagsmaður á
sina innstæöu sem félagiö
skuldar honum og kemur að
lokum til meöaö endurgreiöa
honum. Stofnsjóðurinn er þvi
skuld félagsins en ekki eigin
fjárreikningur.”
Munurinn á stofnsjóðunum
og hlutafjáreign kemur ekki
sizt fram i þvi að engin sér-
réttindi fylgja innstæðum
félagsmanna, eins og er um
hlutaféð. Um þetta segir Geir:
„Af hlutaf járeign greiðist
aröur eftir afkomu félagsins
og atkvæðisréttur er miðaður
við hlutareign. Hlutabréf geta
gengib kaupum og sölum og er
veröþeirra íhendi seljanda þá
gjarnan miöað viö heildar-
eignir félagsins. Hækki sjóðir
félagsins gefst hluthöfum
kostur á þvl að gefa út fri-
hlutabréf án þess að sllkt verði
skattskylt en heimildir til arð-
greiðslu miðast siöan við hiö
hækkaöa nafnverö bréfanna.
Þessi heimild til hlutafélag-
anna til þess að gefa út skatt-
frjáls jöfnunarhlutabréf i
samræmi við visitölu al-
mennrar verðhækkunar er
þessum félögum ákaflega
mikilvæg, þvl að meö þvi að
notfæra sérþessa heimild geta
þau oft á tiðum margfaldað
frádráttarbærar arðgreiðsiur
sinar.
Þá er þetta einnig mjög
mikilvægt fyrir hluthafana
Viljugur þjónn
sem hentar þínum bíH
Á bifreiðum nútímans eru
þurrkuarmarnir af mörgum
mismunandi stærðum og gerðum.
Samt sem áður hentar TRIDON þeim
öllum.
Vegna frábærrar hönnunar eru
þær einfaldar í ásetningu og viðhaldi.
Með aðeins einu handtaki
öðlast þú TRIDON öryggi og endingu.
i TRIDON \yþurrkur-
1 tímabær tækninýjung Svona einfalt er það.
Fæst á ölluml£5fSOJ bensínstöðvum og flestum varahlutaverslunum.