Tíminn - 08.11.1977, Page 21
Þriöjudagur 8. nóvember 1977
21
líþróttir
íslenzkur handknattleikur verður fyrir áfalli
Ég gef ekki kost á
mér í landsliðið
Celtic náði
góðum leik
Celtic liðið náði nú góðum leik
eftir slæmt tap fyrir austurrisku
meisturunum i vikunni. Celtic
keppti nú við Motherwell á Fir
Park i Motherwell á laugardag-
inn og eftir markalausan fyrri
hálfleik tóku hlutirnir að gerast
með auknum hraða i seinni hálf-
leik. Craig náði forystunni fyrir
Celtic, McAdam jafnar og
O’Rourke náði siðan forystunni
fyrir Motherwell. Craig skorar
aftur fyrir Celtic og staðan var
jöfn 2-2. Þegar kortér var til
leiksloka tókst McDonald að
skora með góðum skalla eftir
hornspyrnu og Celtic náði þarna
mikilvægum sigri.
Rangers lenti i hörkubasli
með lið Partick á Ibrox Partick
náði þegar i upphafi tveggja
marka forystu með mörkum frá
Somner og Melrose, en Derek
Parlane tókst að jafna metin i
upphafi seinni hálfleiks. En að-
eins fimm minútum siðar náði
Partick aftur forystunni með
marki frá Gibson, og sigurinn
virtist vera að falla þeim i
skaut, þegar McDonald tókst að
jafna metin fyrir Rangers á
lokaminútu leiksins.
Clydebank vann athyglisverð-
an sigur á Hibernian, með
marki frá McCall, og Aberdeen
stal báðum stigunum úr viður-
eigninni við Dundee Utd. á sið-
ustu minútu með marki frá
Fleming. ó.O.
SPORT-
blaðið
— komiö á
markaðinn
SPORT-blaðið — 9. tölublað er
nú komið á markaðinn. 1 blað-
inu eru mjög fróðleg viðtöl við
Einar Boilason, körfuknatt-
leiksmann úr KR og Guðmund
Þórarinsson, frjálsiþróttaþjálf-
ara hjá ÍR.
Þá er viðtal við unglinga-
landsliðsmanninn i knatt-
spyrnu, Arnór Guðjohnsen, sem
er iþróttamaður mánaðarins.
Sagt er frá knattspyrnusnill-
ingnum Pele — hinu frækilega
markameti hans. Tommy Doch-
erty.fyrrum framkvæmdastjóri
Mandiester United, kynnir leik-
menn Uniteddiðsins. Litmyndir
eru frá kveðjuhófi Tony
Knapps. Þá er fyrsta greinin um
knattspyrnukappann Albert
Guðmúndsson — og keppnisfer-
il hans, i blaðinu. Ýmislegt
fleira má finna i blaðinu.
— segir Ólafur H. Jónsson
í viðtali við Tímann
SOS-Reykjavík — Ég hef
ákveðið að gefa ekki kost á
mér í landsliðið sem leikur
í HM-keppninni í Dan-
mörku sagði Ólafur H.
Jónsson, hinn snjalli leik-
maður Dankersen sem
hefur leikið 101 landsleik
fyrir Island í handknatt-
leik.
Landsliðsnefndarmennirnir
Birgir Björnsson, formaður
nefndarinnar, og Karl Benedikts-
son ræddu við Ólaf á laugardag-
inn i V-Þýzkalandi, og eftir þær
samræður ákvað Ólafur, að gefa
ekki kost á sér i landsliðið. — Ég
gef ekki kost á mér vegna per-
sónulegra ástæðna, og þá hef ég
allt aðrar skoöanir á undirbúningi
landsliðsins fyrir HM-keppnina
heldur en landsliösnefndin. Eftir
að ég hafði rætt við þá Birgi og
Karlsá ég að skoðanir minar og
þeirra á landsliðsmálunum áttu
ekki samleið — og þvi ákvað ég að
gefa ekki kost á mér i landsliöið,
sagði Ólafur.
— Hvað kom fram i viðræðum
þinum við Birgi og Karl?
— Það kom ekkert nýtt fram.
Þeir virðast engann áhuga hafa á
að nota okkur strákana i V-
Þýzkalandi — og sögðu þeir að við
myndum ekki koma inn i dæmið
fyrr en eftir 18 desember. Ég tel
að það sé of stuttur timi til stefnu,
til að fá að vita, hvort þeir telji að
landsliðið geti notað krafta mina.
Ég hef allt annað við tima minn
að gera, heldur en að biða i ó-
vissu.
— Hvað með hina leikmennina i
V-Þýzkalandi. Gefa þeir kost á
sér i landsliðið?
— Ég get ekki sagt um það,
hvað þeir gera . Axel og Gunnar
Einarsson komust ekki til Elsen-
feld til að ræða málin. Við Einar
Magnússon ræddum við þá Birgi
og KarL
Þessi ákvörðun Ólafs H. Jóns-
sonar er geysilegt áfall fyrir is-
lenzka landsliðiö, þar sem ólafur
hefur verið einn af lykilmöanum
landsliðsins undanfarin ár — leik-
maður sem hefur stjórnað varn-
arleik liðsins og hefur stappað
ÓLAFUR JÓNSSON.... hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér i HM-
keppnina i Danmörku.
stálinu i aðra leikmenn þegar á
móti hefur blásiö. Og ástæöan
fyrir þessari ákvöröun ólafs, er
duttlungar landsliðsnefndarinnar
— að fara án okkar sterkustu
landsliðsmanna til Danmerkur.
Landsliðsnefndin hefur stigið
skref sem á eftir að veröa örlaga-
rikt fyrir Islenzkan handknatt-
leik.
Kristinn
var óstöðv-
andi...
skorar
— og Standard
Liege á
toppinn
KRISTINN JÖRUNDSSON.
skoraði 32 stig
— skoraði 32 stig
leik með ÍR
KRISTINN Jörundsson,
hinn snjalli körfuknatt-
leiksmaöur úr í R, var
heldur betur í essinu sínu,
þegar hann lék sinn fyrsta
leik með IR-liðinu á keppn-
Nj arð víkingar
lögðu KR-inga
— í sögulegum leik, þar sem KR-ingar fóru fram á
að dómarinn fari í blóðprufu
Njarðvíkingar unnu sigur
(75:71) í mjög sögulegum
leik i 1. deildarkeppninni i
körfuknattleik. Þessi sigur
kom skemmtilega á óvart
og sýnir að Njarðvíkingar
verða sterkir i vetur. Leik-
ur liðanna var mjög sögu-
legur, þar sem KR-ingar
fóru fram á að annar dóm-
ari leiksins — Sigurður
Valur Halldórsson færi i Njarðvikingar eru með mjög
blóðprufu eftir leikinn. — iafnt oe eott lið - Þorsteinn
Það er greinileg vínlykt af
honum, sögðu þeir.
Mikið þras var eftir leikinn og
sýndi Sigurður Valur -þá Einari
Bollasyni rauða spjaldið, en Ein-
ar heimtaði að blóðprufa yrði tek-
in af Sigurði Vali. Það virðist nú
vera komið i tizku hjá iþrótta-
mönnum að heimta að dómarar
fari i blóðprufur en eins og menn
muna heimtuðu leikmenn Þórs-
liðsins i knattspyrnu, að dómari
eins leiks þeirra i sumar færi i
blóðprufu.
En hvað með það, Njarðviking-
ar skelltu KR-ingum. Þeir mættu
mjög ákveðnir til leiks og komust
fljótlega yfir — 21:12 og siðan
héldu þeir forystunni nær allan
leikinn og tryggðu sér sigur
(75:71) eins og áður segir.
jafnt og gott lið
Bjarnason hinn sterki markvörð-
ur Keflvikinga i knattspyrnu, átti
mjög góðan leik og skoraði 23
stig. Stefán Bjarkason sem skor-
aði 22 stig, varveinnig mjög góður.
Jón Sigurðsson var beztur hjá
KR-liðinu — 20 stig, en þá var An-
drew Pizza einnig ágætur. og
skoraði hann 20 stig.
Létt hjá Valsmönnum
Valsmenn sem léku án Torfa
Magnússonar — i leikbanni, unnu
auðveldan sigur (76:72) yfir ný-
liðum Þórs. Valsmenn tóku leik-
inn strax i sinar hendur og höfðu
öruggt forskot fram til leiksloka
— þeir voru búnir að ná 18 stiga
mun (76:58) undir lokin en þá
fengu varamenn Valsliðsins að
spreyta sig. Þeim tókst ekki vel
upp, þvi að Þórsarar skoruðu sið-
ustu 14 stig leiksins og náðu að
minnka muninn i fjögur stig —
76:72.
Rick Hockenos skoraði flest
stig Valsmanna eða 22 en næstir
komu þeir Kristján Agústsson
(19) og Rikharður Hrafnkelsson
(18) stig. Þórsliðið byggist upp i
kringum Bandarikjamanninn
Mark Christenssen (26 stig) og
Jóhannes Magnússon fvrrum
leikmann Valsliðsins sem skoraði
■íO stig.
í sinum fyrsta
istímabilinu — gegn
Ármenningum í 1. deildar-
keppninni i körfuknattleik.
Kristinn kom, sá og sigraði
— hann var óstöðvandi í
leiknum og skoraði alls 32
stig og lagði þannig grunn-
inn að góðum sigri ÍR-Iiðs-
ins — 98:82.
Kristinn lék mjög vel, og er
greinilegt að IR-liðið verður með i
baráttunni um Islandsmeistara-
titilinn eftir endurkomu hans og
Agnars Friðrikssonar, sem lék
einnig sinn fyrsta leik með IR-lið-
inu og skoraði 19 stig. Leikmenn
Armanns réðu ekkert við þessar
gömlu kempur, sem hrelltu þá
með leikni sinni og hittni. Þá voru
ungu leikmennirnir Stefán
Kristjánsson (bróðir Gylfa) og
Erlendur Markússon, einnig
mjög liflegir.
Atli Arason átti beztan leik hjá
Ármenningum — þessi snaggara-
legi leikmaður skoraði alls 28
stig, en Bandarikjamaðurinn
Wood’s skoraði 14 stig.
Stórleikur Jóns
Jón Héðinsson — varnarmaöur-
inn sterki hjá stúdentum, lék
mjög vel þegar stúdentar, sem
léku án Kolbeins Kristinssonar og
Bandarikjamannsins Dunbar’s,
unnu sigur (75:68) yfir Framlið-
inu. Jón átti mjög góðan leik —
bæði i vörn og sókn, og skoraði
hann 23 stig.
Framarar byrjuðu leikinn mjög
vel og náðu 10 stiga forskoti
(16:6) i byrjun, en stúdentar gáf-
ust ekki upp, og undir stjórn Jóns
náðu þeir að taka völdin i sinar
hendur. Bjarni Gunnar skoraði 14
stig fyrir stúdenta, en Ingi
Stefánsson skoraði 13 stig. Simon
Olafsson var bezti maður Fram-
liðsins — hann skoraði 22 stig.
ASGEIR SIGURVINSSON
Asgeir Sigurvinsson og félagar
hans hjá Standard Liegc hafa
verið óstöðvandi að undanförnu
i baráttunni um Belgiumeist-
aratitilinn i knattspyrnu. Þeir
vinna nú hvern ieikinn á fætur
öðruni — siðast unnu þeir stór-
sigur (4:1) yfir La Louviere. As-
geir átti mjög góðan leik og
skoraði hann eitt mark — úr
vitaspyrnu en hin mörkin skor-
aði Riedle.
Standard Liege trónar nú á
toppnum I Belgiu, með 19 stig
eftir 13 umferðir, en FC Brugge,
sem geröi jafntefli (0:0) við
Winterslag, er með 18 stig eins
og Anderlecht.
Liege-liðið fékk tvo mjög góða
markaskorara fyrir keppnis-
timabilið og hafa þeir nú skorað
bróöurpartinn af mörkum
Standard — það eru þeir Riedle
og V-Þjóðverjinn Niclaus