Tíminn - 25.11.1977, Blaðsíða 1

Tíminn - 25.11.1977, Blaðsíða 1
t GIST1NG MORGUNVERÐUR . RAUDARÁRSTÍG 18 SÍMI 2 88 66 263. tölublað —Föstudagur 25. nóvember—61. árgangur Fyrir vörubila Sturtu- grindur Sturtu dælur Sturtu- dri Ný þyrla GV-ReykjavIk. Starfsmannafélag Landhelgisgæzlunnar hyggzt nú byggja sér fjögur orlofsheimili á jörð, sem félagið á I Austur-Barðastrandasýslu. Til að fjármagna þessar framkvæmdir, sem hefjast á vori komanda, hefur verið gripiö til ýmissa ráða, s.s. frjálsra framlaga félaga I sjóð, loforð hefur fengizt fyrir lánveitingum til þess arna og nU hyggst felagið selja happdrættis- myða þessu til fjármögnunar. Abalsöludagurinn verður 28. nóv., og að sögn Höskulds Skarphéöis- sonar, sem er I stjórn orlofs- nefndar Landhelgisgæzlunnar, varð sá dagur fyrir valinu, þar eð þá fæst fullnaðarsigur yfir land- grunninu, þvl þá sigla Þjóðverjar út með flota sinn. Höskuldur sagöi að félagsllf starfsmanna Landhelgisgæzlunn- ar hefði aukizt mikið við þaö að álag á starfsmennina minnkaöi og auknar voru inniverur manna, og að starfsmenn Landhelgis- Framhald á bls. 23 í smíðum Landhelgisgæzlan: Nauösynlegt er að skapa fleiri atvinnufyrirtæki á Norðurlandi, og er það vilji Sauðkræklinga að f myndinni má sjá vestari kvislina. Rís steinullar- verksmiðja í Skagafirði? áþ — Frumathugunum á stein- efnasýnum Ur Skagafirði er lokið og innan fárra daga á að senda sýnishorn utan til frekari rann- sókna. Hér er um að ræða fyrsta skrefiö f áttina til steinullarverk- smiðju, sem Sauðkræklingar hafa mikinn áhuga á að risi I nágrenni við kaupstaöinn. Þær athuganir sem gerðar hafa veriö, Iofa góðu, en f Ijós kom að nægar námur eru rétt við bæjardyrnar, eða við ósa Héraðsvatna. Fulltrúar frá er- lendu fyrirtæki voru hér á landi fyrir skömmu og vildu þeir tryggja sölu á 11 til 13 þúsund tonnum af steinull á ári, gegn þvi aö vélar yrðu keyptar frá þeim. — Sú náma sem fannst er ein af þremur, sem á að kanna nánar, sagði Þórir Hilmarsson bæjar- stjóri á Sauðárkróki, en þessi er viö ósa Héraðsvatna. Hún viröist vera næstum óþrjótandi og hægt yrði að staösetja verksmiðjuna þannig, að óþarft væri aö flytja efnið að langar leiöir. Nú á að senda út sýni til frekari rann- sókna, og þegar nægar niðurstöð- ur liggja fyrir, þarf að senda út a.m.k. fimmtán tonn til vinnslu. 1 þvi sambandi hefur verið rætt um Ameriku. Eins og kom fram I upphafi voru hér fulltrúar erlendrar steinullarverksmiðju. Þeir könn- uðu aöstöðu, til framleiöslu á steinull og höfðu I huga verk- smiðju sem gæti framleitt 15 þús- und tonn á ári. Ef Islendingar keyptu allar vélar og tæki frá er- lenda fyrirtækinu, væri það tilbú- ið að tryggja sölu á 11 til 13 þús- und tonnum á ári, næstu fimm ár- Rannsóknir lofa góðu in að sögn fulltrúa þess. Einkum mun erlenda verksmiðjan hafa á- huga á að fá þungar steinullar- mottur, sem notaöar yröu til ein- angrunar I veggjum og þökum. Mikill skortur er á vöru af þessu tagi á erlendum mörkuðum og taldi Þórir litinn vafa á að hægt yrði aö starfrækja fleiri en eina verksmiöju hér á landi. Stofnkostnaöur viö verksmiðju, sem gæti framleitt 15 þúsund tonn af steinull á ári, er talinn vera um 2,5 milljarðar króna. Hún getur veitt liðlega 50 manns atvinnu við framleiðslustörf, en fjöldinn yrði mun meiri séu hafðar I huga þær þjónustugreinar sem myndu spretta upp. — Við munum vinna áfram I málinu.sagöi Þórir. -^Um það er samstaöa i bæjarstjórn og meðal bæjarbúa. Ian Smith: Reiðubúinn að samþykkja atkvæðisrétt blökkumanna Bulawayo, Ródesiu-Reuter. Ian Smith forsætisráðherra sagði I dag að hann væri reiðubúinn til að samþykkja að hver og einn af 6,5 milljónum blökkumanna og 268 þúsundum hvitra I landinu fengju jafnan atkvæðisrétt, ef það yrði til þess að koma á árangursrikum viöræðum við þeldökka þjóð- ernissinna i landinu. Smith sagði fréttamönnum, að eftir að siöasta Ensk-Ameriska frumkvæöið til friðarviöræðna hefði brugðist hefði hann boöiö leiðtogum stjórnmálaflokka blökkumanna I Ródesiu til við- ræöna við hvltu minnihlutastjórn- ina. „Svörtu leiötogarnir hafa án undantekningar lagt rika áherzlu á, að eina leiðin til að hægt verði að koma á árangursrfkum við- ræðum, væri að stjórnin viður- kenni aö stjórna bæri af meiri- hluta, sem kosinn væri af öllum fullorðnum”. Smith sagði, aö fyrirhugað væri að viðræöur við þrjá flokka leiö- toganna Muzorewa, Sithole og Chirau hefjist I næstu viku. „Vandamálið er ekki þess eölis, aö takast megi að leysa það á nokkrum vikum, en við vonum að á næstu mánuðum fari árangur- inn aö sýna sig” sagði Smith. Þorskstofninn: Veiðibann fyrir áramót JS-Reykjavik. A rikisstjórn- arfundi I gær var fjallað um þörfina fyrir frekari friðunar- aðgerðir vegna þorskstofns- ins en þegar hafaverið fram- kvæmdar á þessu ári. Eins og kunnugt er, hefur þorskaflinn á þessu ári þegar komizt langt upp fyrir þaö mark, sem fiskifræðingar telja skynsamlegt. Matthias Bjarnason, sjá- varútvegsráðherra, sagði I gær, að gripið yröi til banns á þorskveiöum, fyrir áramótin. Sagöi hann að reglugerðar um þetta efni væri að vænta I næstu viku. Fram hafa komið hugmyndir um að banna þorskveiðarnar um hálfs mán- aöar skeiö frá hátiðum og fram i fyrstu viku janúarmán- aðar. 1 dag ávarpar sjávarútvegs- ráðherra aðalfund L.l.tJ. i Grindavík, og er gert ráö fyrir þvi, að hann muni gera þessi mál að umræöuefni sérstak- lega i ræðu sinni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.