Tíminn - 13.12.1977, Blaðsíða 1
SÍMI 2 88 66
-
Fyrir Cst
vörubila ‘•'V
Sturtu-
gríndur
Sturtu
dælur
Sturtu- —
dri
"" ■---------------------------------------------------------s
« 278. tölublað—Þriðjudagur 13. desember —61. árgangur
- ----------
Jólapósturinn:
Hver að
verða
síðastur
-að koma pósti
til útlanda i
tæka tið
SSt — „Viö erum nú á kafi aB
afgreiöa jólabögglapóst til út-
landa,” sagði einn starfs-
manna á bögglastofunni hjá
Póstinum i samtali viB Tim-
ann i gær. „Eiginlega átti af-
greiBslu á jólapóstbögglum til
útlanda aö ljúka nú um helg-
ina, en hann veröur aö sjálf-
sögöu afgreiddur fram aö jól-
um. Hann kemur þvi bara
seinna til viötakenda, sem nær
dregur jólum. Þaö er þvi
ástæöa til aö minna fólk á, aö
drifa sig meö varning I póst, ef
þaö vili tryggja sér aö hann
komisttii réttra aöila fyrir jól.
Þetta er mjög svipaö magn
núna og i fyrra og viö höfum
þann háttinn á, aö bögglapóst-
ur sjóleiöis er afgreiddur
fyrst, þá póstur i flug og siöast
póstur innanlands.
Þessi vinna er öll unnin i
kvöldvinnu og þaö eru af-
greidd svona 2-3 tonn á hverju
kvöldi, en þrengslin hérna há
starfsemi okkar mikiö.
Um jólakveðjur er þaö aö
segja, aö jólakveöjur til Ut-
landa veröa aö hafa borizt fyr-
ir þann 15., en jólakveðjur
innanlands veröa aö berast
fyrir þann 16. eigi þær á annaö
borö aö komast til réttra viö-
takenda fyrir jól.
Samkomulagiö, bókunina og yfirlýsinguna undirrituöu af tslands hálfu Einar Ágústsson utanrikisráöherra og Matthias Bjarnason
sjávarútvegsráöherra, og af Færeyja hálfu Atli Dam lögmaöur og Pétur Reinert sjávarútvegsráöherra. Tfmamynd: Róbert.
SAMIÐVIÐ
FÆREYINGA
áþ — í gær var gengið frá samkomulagi um réttindi Færeyinga til loðnuveiða við ísland og réttindi
íslendinga til kolmunnaveiða við Færeyjar. íslendingar mega veiða 35000 smálestir af kolmunna inn-
an færeysku fiskveiðitakmarkanna á næsta ári, og Færeyingar 35000 smálestir af loðnu á tslandsmið-
um. Auk þess minnkar þorskveiðikvóti Færeyinga á miðunum hér við land um 1000 tonn, og verður þvi
7000 tonn á næsta ári. Samkomulagið er háð samþykki Alþingis og Lögþings Færeyja.
Gj aldeyr iseigendur
seinir til svara
SKJ — Von er á meiri upplýsing-
um frá danska rfkisskattstjóra-
embættinu um inneignir Is-
lendinga i Danmörku. Upp-
lýsingarnar, sem bárust á dögun-
um, komu aðeins frá einum
banka, en ekki er ósennilegt aö
íslendingar eigi fé I fleiri bönk-
um.
Garðar Valdimarsson skatt-
rannsóknarstjóri sagöi i samtali
viö Timann, aö komin væru svör
frá nokkrum eigendum, af þeim
áttatiu sem eiga reikninga I
Finansbanken. Svörin, sem borizt
hafa, eru enn fá, en reikningseig-
endur hafa frest til 20. desember
Geirfinnsmálið:
,,Aldrei neitt að
marka fram-
burð vitnisins'*
SJ — í gær var fram haldiö mái-
flutningi i Geirfinnsmálinu meö
tiliiti til breytts framburöar eins
aöalvitnisins í málinu, Sigurðar
Óttars Hreinssonar, sem fullyrti
nú sföast, aö hann heföi ekki veriö
I Dráttarbrautinni í Keflavik
kvöldiö, sem Geirfinnur Einars-
son á aö hafa dáiö. Bragi
Steinarsson saksóknari breytti I
engu fyrri máiflutningi sinum og
taldi aö fyrri framburöur Sigurð-
ar Hreinssonar héldi fullu gildi.
Telur saksóknari enn sem fyrr, aö
Geirfinnur hafi veriö veginn um-
rætt kvöld.
Verjendur Sævars Ciesielskis
og Kristjáns Viöars Viðarssonar
þeir Jón Oddsson og Páll A. Páls-
son töldu aö breyttur framburöur
Siguröar Óttars Hreinssonar
styddi þaö sem þeir Sævar og
Kristján Viöar héldu fram, aö
þeir heföu ekki veriö í dráttar-
brautinni umrætt kvöld og at-
buröurinn heföi ekki átt sér staö.
Benedikt Blöndal, verjartdi
Guðjóns Skarphéöinssonar, lagöi
áherzlu á, aö aldrei heföi veriö
orð mark takandi á framburði
þeirra ákærðu nema Guöjóns
eins. Guömundur Ir vi Sigurðs-
son, verjandi Erlu Bolladóttur,
sagði, aö aldrei heföi verið neitt
aö marka framburö vitnisins
Sigurðar Óttars Hreinssonar.
I réttarhöldunum kom fram
gagnrýni á mikil skrif I dagblöö-
um um Geirfinns- og Guð-
mundarmálin.
Málflutningur stóö I um tvo
tima og var siðan málið lagt i
dóm á ný.
til að gera grein fyrir sinum mál-
um.
Garðar Valdimarsson sagöi, aö
ekki væri von á svipuöum upp-
lýsingum frá öörum löndum, en
hægt væri aö fá upplýsingar um
gjaldeyriseignir einstaklinga i
Bandarikjunum, Vestur-Þýzka-
landi og á Noröurlöndunum.
Samningur þessi er uppsegjan-
legur meö sex mánaöa fyrirvara,
en hann gildir til eins árs. 1 hon-
um er m.a. ákvæöi þess efnis aö
stjórnvöld skuli halda áfram
samvinnu um rannsóknir á göngu
kolmunna. Einnig er þar yfirlýs-
ing varöandi nánari samvinnu
um sildarrannsóknir.
Loðnuveiöar Færeyinga geta
Framhaldábls.4.
Hlutleysi ríkis-
fj ölmiðlanna
rætt utan dagskrár í báðum deildum alþingis í gær
MÓ-Reykjavik — Fréttaflutn-
ingur rikisfjölmiölanna um
veröhækkanir á landbúnaöar-
vörum varö tilefni umræöna ut-
an dagskrár I báöum deildum
Alþingis i gær. 1 efri deild
kvaddi Ingi Tryggvason sér
hljóös og spuröi menntamála-
ráöherra hvaöa aöili innan
rikisútvarpsins fylgdist meö þvi
aö hlutleysis sé gætt I almenn-
um fréttaflutningi, hvort
ákveönar fréttasendingar hafi
verið ræddar innan stofnunar-
innar og hvort ráöstafanir hafi
veriö gerðar til þess aö frétta-
sendingar af þvi tagi, sem þing-
maöurinn haföi lýst, endurtækju
sig ekki.
Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra vitnaöi I
svari sinu I útvarpslögin og
reglur þær, sem eru i gildi
um fréttaflutning rikisútvarps-
ins. Þar kom fram aö þaö er út-
varpsstjóri, sem setur reglur
um fréttaflutning I útvarpi og
sjónvarpi. Ráðherra sagöi að
nokkrum sinnum i sinni ráö-
herratiö heföi veriö kvartaö til
sin um efnismeðferö I fréttum
og samtalsþáttum, og eins hefði
sér sjálfum stundum sýnzt sem
mistök heföu átt sér staö. Jafn-
an heföi hann komiö þessum
kvörtunum munnlega á fram-
færi við útvarpsstjóra, ellegar
fréttastofuna, án þess aö gefa
nokkur fyrirmæli sem ráöherra.
Rétta boöleiöin- sé þvi aö koma
kvörtunum um fréttaflutning
rikisfjölmiðlanna á framfæri
viö útvarpsstjóra og útvarpsráö
og fullyrti ráöherra aö þar yröu
slikar kvartanir teknar til efnis-
legrar meðferöar og metnar á
hlutlægan hátt.
Stefán Valgeirsson ræddi
máliö utan dagskrár i neöri
deild. Bar hann m.a. saman
umfjöllun rikisf jölmiöla á
hækkunum á landbúnaöarvör-
um annarsvegar og ýmsum öör-
um vörum hins vegar. Kvaöst
hann t.d. ekki hafa heyrt þess
getið I fjölmiölum aö hver litri
af Tropicana heföi hækkaö fylli-
lega jafn mikiö i sumar og
undanrennan og væri nú þrisvar
sinnum dýrari. Einnig spuröi
þingmaðurinn hvort þaö sam-
rýmdist lögum um heilbrigöa
verslunarhætti, aö láta sem
nokkurs konar happdrættis-
vinning 1 milljónustu fernuna af
Tropicana. „Virtist þaö aöeins
hafa veriö gert til þess aö fela
veröhækkunina”, sagöi þing-
maöurinn.
Úrdráttur úr ræöum þessara
alþingismanna er birtur á þing-
siöu Timans i dag, en auk þeirra
töluöu Helgi F. Seljan og Ellert
B. Schram.