Tíminn - 20.12.1977, Síða 10
10
Þriðjudagur 20. desember 1977
Ellert B.
þarf að leita
álits margra
— en Sighvatur getur samþykkt einfalt mál
þegar í dag
— baðsitur sizt á þessum þing-
manni annars stjórnarflokksins
að vera að tala um að frumvörp
séu lögð fram hér á Alþingi og
ætlast til þess að þau séu afgreidd
á einum eða tveimur dögum,
sagði Ólafur Jóhannesson dóms-
málaráðherra á Alþingi i gær,
vegna þeirra ummæla Ellerts B.
Jólafrí
á morgun
Stefnt er að þvi að alþing-
ismenn fari í jólafrf á morg-
un. Þá verða fjárlög væntan-
lega afgreidd, en I gær lagði
fjárveitinganefnd frani
nokkrar bre.vtingatillögur
við frumvarpið. Einnig
komu nokkrar breytingatil-
lögur frá einstökum þing-
mönnum.
Schram, að ekki væri unnt að af-
greiða frumvarp til laga um
breytingará lögum um rannsókn-
arlögreglu rikisins á þeim dög-
um, sem eftir eru fram að jóla-
leyfi þingmanna.
Dómsmálaráðherra mælti fyrir
þessum breytingum á fundi neðri
deildar i gær, en áður hefur málið
verið afgreitt frá efri deild.
Breytingin, sem hér um ræðir er
annars vegar sú, að burt verði
fellt það ákvæði að rannsóknar-
lögreglan skuli hafa aðsetur i
Reykjavik og hins vegar að heim-
ilt sé að skipa vararannsóknar-
lögreglustjóra.
Ellert B. Schram (S) talaði að
lokinni ræðu dómsmálaráðherra
og taldi marga annmarka á að
flytja lögregluna i Kópavog og
setja hana niður i hálfgerðu
iðnaðarhverfi eins og þingmaður-
inn komst að orði. Taldi hann ó-
fært að afgreiða þetta mál fyrir
jólaleyfi, þvi allsherjarnefnd
þyrfti aðleita álits á þessari laga-
breytingu hjá mörgum aðilum en
Ólafur Ellert
alþingi
A löngum þingfundum eru
mál smám saman afgreidd og á
fundum Alþingis á föstudag og
laugardag urðu tvö frumvörp að
lögum. Annars vegar var það
frumvarp um breytingu á lög-
um um lifeyrissjóð bænda, en
það frumvarp var flutt til þess
aö samræma lög lifeyrissjóðs
bænda lögum um lifeyrissjóði
verkafólks. Þá var samþykkt
sem lög að innlieimta nokkur
gjöld með gjaldaviöauka.
A fundum Alþingis fyrir kaffi-
hlé i gær voru tvenn önnur lög
samþykkt. Frumvarp um
breytingu á lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga varð að
lögum, en frumvarpið var flutt
vegna þess, að ljóst var að ann-
ars myndi álagöur fasteigna-
skattur i nokkrum sveitarfélög-
um hækka töluvert umfram al-
mennar hækkanir á næsta ári.
Þá varö frumvarp til laga um
verðjöfnunargjald af raforku
afgrcitt sem lög frá Alþingi.
Búizt var við kvöidfundum á
Alþingi i gær og væntanlega
hafa þá nokkur mál til viðbótar
verið afgreidd.
Ellert er formaður allsherjar-
nefndar og fær sú nefnd málið til
meðferðar.
ólafur Jóhannesson tók fram,
að hann væri þakklátur nefndinni,
ef hún gæti afgreitt málið fyrir
jólaleyfi, þótt venja hans væri að
leyfa þingnefndum að fá þann
tima til þess að afgreiöa mál, sem
þær óskuðu eftir.
Ráðherra vfsaði á bug þeim
umrhælum Ellerts, að það væri i
hálfgerðu iðnaðarhverfi sem
fyrirhugað væri að fá húsnæði
fyrir rannsóknarlögregluna. I
næsta húsi væri bæjarfógetinn i
Kópavogi.
I ræðu ráðherra kom fram að
reglan i húsakaupum ríkisins
væri sú, að viðkomandi ráðuneyti
legði tillögur sinar um húsakaup
fyrir fjárlaga- og hagsýslu-
stofnunina og ef hún samþykkti
tillöguna, færi málið fyrir fjár-
veitinganefnd og Alþingi. I sam-
bandi við 'húsakaup fyrir Rann-
sóknarlögreglu rikisins, tók ráð-
herra fram, að það hefði i raun
verið fjárlaga- og hagsýslustofn-
unin, sem benti dómsmálaráðu-
neytinu á umrætt hús og þau kaup
hefðu verið samþykkt af fjárveit-
inganefnd. — Það var hins vegar
áður en háttvirtur þingmaður,
Ellert B. Schram tók sæti i nefnd-
inni, sagði ráðherra.
Umrætt hús er sem kunnugt er i
Kópavogi, og i fjárlagafrumvarp-
inu, sem nú liggur fyrir Alþingi,
og væntanlega verður samþykkt
á morgun, er ákvæði um heimild
fyrir rikisstjórnina að ganga frá
kaupum á þessu húsi.
Sighvatur Björgvinsson (A) tók
fram að hér væri um mjög einfalt
mál að ræða og ákvæði þess skýr
og ljós. Ekki ætti þvi lengi að
vefjast fyrir mönnum að taka af-
stöðu til þess. Kvaðst hann tilbú-
inn að standa að samþykkt þessa
frumvarps þegar i' dag.
Páll Pétursson (F) benti á, að
fyrirhuguð staðsetning rannsókn-
arlögreglunnar i Kópavogi væri á
miðju höfuðborgarsvæðinu og þvi
ekki ástæða til að standa gegn
samþykkt þessa frumvarps.
Tónias Arnason (F) og Svava
Jakobsdóttir (Ab) tóku einnig
undir þá skoðun, að ekkert væri
þvi til fyrirstöðu að afgreiða
frumvarpið.
Sjónvarp:
Nýja litkvik-
myndavélin enn
ókomin
— en væntanleg
KEJ — „Við höfðuin gert okkur
vonir um að ta-ki til að sjónvarpa
litkvíkmyndum yrði komið i
gagniö um jólin og nttum von á
þvi tii landsins á fimmtudaginn
var", sagði Pétur Guðfinnsson
framkvæmdastjóri Sjónvarpsins I
samtali við Timann I gær. Þetta
stóðstlhins vegar ekki bætti hann
við og kvaðst vonlftill um aö unnt
verði að sjónvarpa litkvikmynd-
um í lit fyrr en eftir áramót úr
þessu. Tækið væri ekki enn komiö
til landsins og i þeirri annatið sem
nú væri hjá sjönvarpinu væri ill-
gerlegt að taka kvikmyndasýn-
ingavél úr sambandi til aö koma
nýrri fyrir, enda væri það tölu-
vert verk. Ekki kvaðst Pétur vilja
segja neitt ákveðið um hvenær
sjónvarpsáhorfendur mættu eiga
von á iitkvikinyndum á skjáinn,
en þó væri það ekki langt undan.
Fulltrúar S.H. á fundi meö Geir Hallgrimssyni forsætisráöherra og Matthiasi Bjarnasyni sjávarútvegs-
ráðherra á fundisl. laugardag. Timamynd Róbert.
Frystihúsin:
Kostnaðarhækkanir
Umboðsmenn
Tímans
Áríðandi er að allir umboðsmenn
Tímans sendi uppgjör til
nóvemberloka fyrir 20.
desember n. k.
VMehh
Til sölu
'f'.l
Jörðin Þormóðsstaðir, Saurbæjarhreppi,
Eyjafirði er til sölu og ábúðar.
Góð fjárjörð ræktað land 30 ha. rafmagn
frá heimarafstöð.
Upplýsingar i sima (91) 3-44-63.
margfaldar miðað við
tekj uaukningu
KEJ — A aukafundi Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna á
föstudag, var samþykkt ályktun
þessefnis, aö rikisstjórnin beitti
sér nú þegar fyrir lausn þess
vanda sem blasir nú við sjávar-
útveginum. Segir I ályktuninni,
að þeim kostnaðarhækkunum,
sem orðið hafi á árinu. verði að-
eins mætt af hálfu frystihús-
anna með sambærilegri hækkun
markaðsverðs á erlendum
mörkuðum og gengissigi, sem
hvorugt er I þeirra valdi að
framkvæma eða ákveöa.
Þá segir: „Sem dæmi um
kostnaðarhækkanir á þessu ári
má nefna að hráefni til vinnsl-
unnar hefur hækkað um 32%.
Vinnulaun við fiskvinnsluna
hafa hækkað ábilinu 60% til 65%
frá 1. janúar til þessa dags.
Samtals nema þessir tveir
kostnaöarliöir nú um 83% af
heildartekjum. Vextir af rekstr-
arlánum frystihúsanna hafa
hækkað um 87% á árinu og raf-
magnsverð hefur hækkað um
36,5% til 39% á sama tima.
Til að mæta þessum hækkun-
um og svipuðum hækkunum
annarra kostnaðarliða hefur
orðiö hækkun á markaösverði
frá 1. janúar sem nemur um
12% og þvi til viöbótar hefur
orðiö gengissig á árinu sem
einnig skilar um 12%. Þegar
þessar gjaldhækkanir annars
vegar og tekjuhækkun iiins veg-
ar er höfð i huga, þá er ekki að
undra þótt afkoma frystihús-
anna sé slæm”.
Þá segir, að við upphaf nýs
árs þegar ákveða á nýtt fisk-
verð, sé staðið frammi fyrir
heildartapi sem nemur á bilinu
4,5 til 5 milljörðum króna á ári,
og verður þá að hafa i huga að
hvert 1% sem fiskverö hækkar
um þýðir 200 milljón króna
útgjaldaaukningu fyrir frysti-
húsin.
Að lokum er skorað á rikis-
stjórnina að tryggja rekstrar-
grundvöll frystihúsanna, skapa
meginþorra þeirra afkomu til
að endurnýja og endurbafeta
framleiðslutækin og taka
rekstrarlán útflutningsfram-
leiðslunnar til endurskoðunar
með það fyrir augum að fyrir-
byggja að fyrirtæki hætti fram-
leiðslu vegna rekstrarf jár-
skorts. Þá var samþykkt tillaga
þess efnis að hækka skuli af-
urðalán Seðlabankans upp i 80%
af útborgunarverði framleiðslu,
miðað við að viðbótarlán við-
skip.tabankanna haldist óbreytt.
Einnig telur aukafundur SH að
lækka verði vexti af afurðalán-
um.