Tíminn - 20.12.1977, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 20. desember 1977
13
Verðlagningu land-
búnaðarvara harðlega
mótmælt
— á bændafundi í Húnaveri
FI. — Á fundi, sem haldinn var i
Húnaveri 11. des. s.l., mútmæltu
brúnaöarfélög Bólstaöarhllftar-
hrepps og Svinavatnshrepps
harölega ákvöröun yfirdóms,
sem birtur var 5. des. s.i. um
verölagningu landbúnaðarvara
og telur hann beina árás á kjör
bændastéttarinnar miöaö viö
aöra launaþróun í landinu aö
undanförnu. Sérstaka áherzlu
lagöi fundurinn á óheyriiega
meöferö á fjármagnshlið verö-
lagsgrundvallarbúsins, þar sem
ekkert tiilit var tekiö til þeirra
gagna, sem fyrir iágu um raun-
verulegan fjármagnskostnaö.
Þá lýsir fundurinn mikilli undr-
un yfir úrskuröi yfirdóms, þar
sem húsfreyjum eru reiknuö
lægri laun en bændum fyrir
sömu vinnu og álítur aö þar sé
um lagabrot aö ræöa.
Gerö var á fundinum sú krafa
til rikisstjórnarinnar, aö sölu-
skattur veröi nú þegar felldur
niöur af kjöti og kjötvörum.
Rætt var um sölutregöu land-
búnaöarvara, og taldi fundurinn
hana stafa m.a. af óeölilegum
og órökstuddum áróöri gegn
neyzlu þeirra. Fordæmdi
fundurinn og þær árásir, sem
gerðar hafa verið á bændastétt-
ina i ýmsum fjölmiölum og kall-
aöi þær beinan atvinnuróg.
Fundinum er ekki ijóst hvar
bændur eiga aö taka fjármagn
til aö mæta auknum álögum,
svo sem fóðurbætisskatti. Þó
telur fundurinn eölilegt aö
leggja aukagjald á fóöurbæti,
sem notaö yröi til verðjöfnunar,
þannig að kjarnfóöur yrði selt á
sama veröi alls staöar i landinu.
Fundurinn skorar á Alþingi og
rikisstjórn, aö auka niöur-
greiöslur á landbúnaöarvörum,
enda mundu slikar aögerðir
lækka visitölu framfærslu-
kostnaöar og auka innanlands-
neyzlu og spara útflutningsbæt-
ur. Jafnframt sé athugaö vand-
lega hvort niöurgreiðsla væri
ekki heppilegri á frumstigi
framleiöslunnar.
Þá skorar fundurinn á Alþingi
og rikisstjórn aö taka fyrir sér-
staklega og án tafar lánamál
bænda. Bent er sérstaklega á
Framhald á bls. 23
HIM BO-veggsamstæður
fyrir hljómflutningstæki
Húsgögn og
innréttingar
Suöurlandsbraut 18
Sími 86-900
Bang&Olufsen
ö HLJOMTÆKI
ai
mna
iBBissss^aaassöísaB
BUeiN
A HORNI SKIPHOLTS
OG NÓATÚNS
SÍMI 29800 ( 5 LÍNUR)
26 ÁR í FARAR8RODDI