Tíminn - 20.12.1977, Qupperneq 24
* 18-300
Auglýsingadeild
Tímans.
HREVFIL/.
Sfmi 8 55 22
HUfc&QCitl
TRÉSMIOJAN MEIDUR
SÍÐUMÚLA 30 • SIMI: 86822
Sýrð éik
er sigild
eign
Upp komast svik um síðir:
Tvö þriggja ára
innbrot upplýst
áþ — För tveggja rannsóknarlög-
reglumanna til Stykkishólms
varð til þess að tvö innbrot frá ár-
inu 1974 upplýstust. En mál það
sem lögreglumennirnir fóru til
þess að rannsaka er á lokastigi.
Njörður Snæhólm, deildarstjóri
hjá Rannsóknarlögreglunni sagði
sýslumanninn á Snæfellsnesi hafa
óskað eftir aðstoð vegna inn-
brotafaraldurs. Þá upplýstu þeir
innbrot i Kaupfélag Borgfirðinga
á Hellissandi, en það var framið i
september 1974. Þá var stolið 400
þúsundum króna. Þrir piltar,
tuttugu ára gamlir, reyndust vera
sökudólgarnir. Hitt innbrotið var
i Hafnarbúðina á Rifi 20. desem-
ber sama ár. Njörður sagði að
þar hefði verið skemmt mjög
mikið af innanstokksmunum.
Einnig var stolið skiptimynt og
nokkru af sælgæti. Þar voru að
verki tveir þeirra er brutust inn
hjá kaupfélaginu og tveir til við-
bótar.
Töluverð vinna lá að baki þess
að upplýsa fyrra innbrotið, m.a.
fóru rannsóknarlögreglumenn-
irnir norður i land, þar sem einn
aðilinn hafði flutzt þangað.
Komið
til
móts
við
sjónar-
mið
lífeyris-
sjóða
MÓ — i gær lagði forsætisráð-
herra fram breytingartillögu
við frumvarp til laga um
heimild til erlendrar lántöku,
ábyrgðarheimildir og aðrar
ráðstafanir f rikisfjármálum.
Breytingartillagan felur það I
sér, að ef sérstakar fjárhagsá-
stæður einstakra lifeyrissjóða
krefjast, getur fjánnálaráð-
herra lcyft lifeyrissjóðunum
aö kaupa verðbréf rikissjóðs
fyrir minna en 40% af ráðstöf-
unarfé sinu.
Sem kunnugt er hafa lifeyr-
issjóðirnir haft uppi mikil
mótmæli gegn því ákvæði I
frumvarpinu að skylda llfeyr-
issjóðina að kaupa verðbréf
fyrir 40% af ráðstöfunarfé
sinu. í ræðu ráðherra, þegar
hann mælti fyrir þessari til-
lögu, kom fram, að með þessu
vildi rikisstjórnin koma til
móts við sjónarmið lifeyris-
sjóðanna sérstaklega þeirra
sem minna mættu sin. Þá
rakti ráðherra i ræðu sinni á
hvern hátt ákvæðiö um verð-
bréfakaupin kæmu lifeyris-
sjóðunum til góða og stuöluðu
að ávöxtun fjár sjóöfélaga á
hagkvæman hátt.
Blaðburðar
Jólk óskast
Timann vantar fólk til
blaðburðar i eftirtalin
hverfi:
Austurbrún
Kambsvegur
Skjólin
Háteigsvegur
Laugavegur
Hverfisgata
Skúlagata.
fjf
SIMI 86-300
„Þyrlan kom okkur á óvart”
GV —Við hjá Landhelgisgæzlunni
erum alltaf opnir fyrir nýjungum
I þyrluframleiöslu, en það er
feikilega ör framþróun I þessu
flugi, sagði Björn Jónsson, flug-
maður Landhelgisgæzlunnar, en
hann er nú nýkominn úr kynnis-
ferö til Messerschmidt-verk-
smiðjanna I Þýzkalandi. 1 för með
honum voru þeir Þröstur Sig-
tryggsson, Berghreinn Þorsteins-
son og Hannes Hafstein, fram-
kvæmdastjóri SVFl.
Þar kynntu þeir sér aðallega
eina tegund af þyrlu, BO 105, og
að sögn Björns komu flughæfi-
leikar vélarinnarinnar honum á
óvart. Þyrlan er byggð sem
stuttflugsvél og er hún sam-
bærileg við Hughesvél þá,
sem nú er i eigu Landhelgis-
gæzlunnar. — En hún er ekki
á milli mála, að viö þurfum ntl
fyrst og fremst langdræga þyrlu,
Tveir menn fórust er
rækjubátur sökk
AÞ — Siöastliðinn laugardag fórst
rækjubáturinn Pólstjarnan ST 33
frá Drangsnesi og með henni
tvcir menn. Þeir hétu Jóhann
Snæfeld Pálsson, skipstjóri,
Hamarsbæli, 58 ára og Loftur
Ingimundarson, Drangsnesi, 23
ára. Jóhann lætur eftir sig eigin-
konu og fjögur uppkomin börn.
Loftur lætur eftir sig eiginkonu og
tvö ung börn.
Sfðast sást til Pólstjörnunnar
siðari hluta laugardagsins i
_mynni Steingrimsf jarðar,________
Nokkru áöur höfðu skipverjar
hafttalstöðvarviðskipti viö annan
rækjubát. Þá munu þeirhafa ver-
iðað taka inn slðasta togiö. Þegar
Pólstjarnan kom ekki að landi um
kvöldiö var hafin leit, bæöi á sjó
og landi, en það bar ekki árangur
fyrr en liöa tók á nóttina.
Þrettán bátar frá verstöövum
viö Húnaflóa tóku þátt I leitinni,
en leitarsvæðiö var mjög tak-
markað. Um klukkan eitt þrjátiu
á aöfaranótt sunnudags fainnst
brak úr Pólstjömunni, um það bil
4 mflur frá Grimsey, sem er I
mynni Steingrimsf jarðar. Nokkr-
um timum siðar fannst gúm-
björgunarbátur, um þaö bil sex
sjómllur frá Ennishöfða. Bátur-
inn bar þess ekki merki að menn-
irnir hefðu nokkru sinni komizt
dagar til jóla
Vinningur dagsins kom á nr. 2802
og vinningur mánudagsins á nr.
96. Vinninganna má vitja á skrif-
stofu SUF að Rauðarárstíg 18 I
Reykjavik. Simi 24480.
um borö, heldur virðist hann hafa
slitnað frá Pólstjörnunni, er hún
tók að sökkva.
Leit var hætt á sjó snemma á
sunnudagsmorgun. Leitarflokkar
fóru strandlengjuna á laugardag
og eins á sunnudagsmorgun, viö
mjög erfið skilyrði, en ekkert
fannst.
Pólstjaman ST 33 var tólf tonn
að stærð. Hún var byggö 1959 hjá
Bátalóni 1 Hafnarfirði.
sem er útbúin öllum björgunar-
tækjum. Eins og kunnugt er,
stendur jafnvel til aö Landhelgis-
gæzlan fái keypta bandariska 12
sæta þyrlu af Sikorsky-gerö, sem
er m jög langdræg og sagöi Bjöm,
að það væri ekki vafi á þvi, að það
væri engin þyrla I sama verð-
flokki sem hefur getu og mögu-
leika á við hana. — Sikorsky-þyrl-
an og BO 105 ná ekki inn á markað
hvor annarrar og em þvi ekki
sambærilegar, sagöiBjörn. — En
það myndi sannarlega nýta
tækjabúnað varðskipa okkar sem
eru sérhönnuð fyrir þyrluaðstööu
innanborðs, ef fengnar væru litlar
þyrlur á þau. Það hefur fengizt
góð raun i samvinnu þyrla og
skipa i strandgæzlu 1 nágranna-
löndum okkar, sagði Björn að lok-
um.
Þingholtsstræti 27.
Tfmamynd: Róbert.
Lézt í
elds-
voða
AÞ —45 ára maöur Hilmar Sig-
urðsson, til heimilis að Selvogs-
götu 13, Hafnarfiröi, lézt sl. laug-
ardag, er eldur varð laus i Þing-
holtsstræti 27 I Reykjavfk. Elds-
upptök eru talin vera út frá raf-
magnsofni eða sigarettu.
Slökkviliðinu var tilkynnt um
eldinn kl. 18.55 á laugardag. Þá
var eldur á jarðhæðinni, og var
hann einkum I veggfóðri tveggja
herbergja. Myndaöist viö þaö
mikill reykur og hiti.
Húsið hefur staðiö autt I tvö ár,
utan þess að verkstæði var i kjall-
ara. Húsið er þrilyft og fyrir
tveimur árum kom upp eldur á
miðhæðinni Ekki hefur veriö gert
við húsið siðan, og var það orðið
illa farið, enda rúður brotnar og
gat á þakinu. I bigerð var að
flytja það á grunn handan göt-
unnar og gera við það.
Sungið í
Háteigskirkju
AÞ — Kór Gagnfræðaskólans á
Selfossi heldur jólatónleika i Há-
teigskirkju á morgun kl. 21. Kór-
inn syngur islenzk og erlend jóla-
lög. Stjórnandi kórsins er Jón Ingi
Sigurmundsson. Orgelleikari er
Glúmur Gylfason.
V onzku veður
— á suðvesturhorni landsins og
Snæfellsnesi
F.I. — Mikið frost hefur herjað á
landið siðan um helgina og fór
kuldinn viða upp i 22 stig norð-
anlands. 1 gær var vonzkuveður
á suðvesturhorni landsins, sér-
staklega suður meðsjó, þar sem
gekk á með blindbyljum. TIu
vindstig voru I Vestmannaeyj-
um og sex á Eyrarbakka. Sel-
foss, Hveragerði, Hvolsvöllur
og Hella voru ofurseld skaf-
renningi og byljum allt frá kl.
ellefu um morguninn. Hálfgert
óveður var á Hellisheiði og
kyngdi snjó niður.
Yngstu börnin i Barnaskólan-
um á Selfossi þurftu ekki aö
mæta I skólann i gær, en sjald-
gæft er, að þau sit ji heima vegna
veðurs. Að sögn Leifs Eyjólfs-
sonar skólastjóra var alveg
ófært fyrir þau. Annars sagði
hann, að mikil forföll hefðu
verið i skólanum undanfarið,
hettusótt hefði geisað og lagt i
rúmið allt að þriðjungi bekkja-
deilda i einu, Ef veður leyfir
verða „litlu jólin” haldin i
Barnaskólanum á Selfossi I dag.
Illviðriö færðist i gær vestur á
Snæfellsnes og þar er færð tekin
að þyngjast. Spáð er úrkomu og
allhvössu áfram.