Tíminn - 23.12.1977, Blaðsíða 21

Tíminn - 23.12.1977, Blaðsíða 21
Föstudagur 23. desember 1977 21 Nálægur grööur loftsins: myndir llfs I skýjaklæöum. Gult syngjandi djiip lárétt viö húsin iengra og neöar grænka hafsins, úfiö sjávarskeggiö. Eldurinn logar og harpan ymur þeim sem vilja brenna og hlusta I fyrstu kuldum haustsins og þeim sem eru framandi á sinni eigin jörö og eiga sér heftasta ósk aö gera myndir af skýjum óteljandi skýjum og sólum þess himins sem er þeirra löngun og eina athvarf.” Hvorki staður né stund Hér er hvorki staður né stund þess að rekja þessa ágætu bók alla. Frá þvi var skýrt i formála að ævisögu Eldeyjar-Hjalta, að dr. Sigurður Nordal leiddi þá Guð- mund Hagalin og Hjalta saman og beið siðan spenntur eftir þvi hvort það „brynni saman” með þeim. Það hefur brunnið saman með Matthlasi Johannessen og Vetur f Svfnahrauni. Sverri Haraldssyni. Svo mikið getum við fullyrt. Gaman hefði verið að gera ofurlitla grein fyrir köflunum um Rembrandt, Vermeer og Salvador Dali, en allir þessir menn hafa spilað inn i málarann sem kyngt hefur meisturum sin- um og orðið gott af. Aftast er skrá yfir myndir sem valdar voru i bókina og sumsstaðar eru skýringar við myndirnar hæfilega miklar og ekki svo itarlegar að þær séu ekki auðskildar. Myndlistin og Sverrir og bókin Hlutur Sverris Haraldssonar I þessari miklu bók er auðvitað stærstur. Hann segir fyrir um textann, leggur til gullið og leir- inn. Matthias mótar hið talaða orð. Það er enginn efi á þvi( að Sverrir Haraldsson hefur um langt skeið verið á sérstöku plani i myndlistinni, og það staf- ar meöal annars af geysilegri tækni og óvenju þroskuðu myndskyni sem kemur fram strax á æskuárunum. Hann er fæddur meistari alveg eins og Picasso var á sinum tima. Samt er það ekki nóg. Við get- um nafngreint fleiri innlenda menn sem máluðu stórvel sem unglingar heima hjá sér, en fór siðan stöðugt aftur alla ævi. Urðu svo sem ekki neitt, og náðargáfan varö þeim aðallega böl. Sem fram kemur þá rekur Matthias Johannessen æviferil- inn náið fram á unglingsárin en textinn verður siðar viðskila við lifshlaupið og byrjað er að tala um annað^ enda er þetta ekki ævisaga heldur umgjörð um myndir i bók. Myndirnar i bókinni rekja þennan þátt á dálitið annan og venjulegri hátt. Æskuverkin eru fremst og maöur fellur i stafi. Svona mála aðeins snillingar. Siðan koma skólaárin og fyrstu sporin út I lifið, sýningin 1952 og myndirnar hafa breytzt. Það voru erfiðir tlmar og málarinn segir: ,,Ég hef áður sagt aö það hafi verið bannað að hlæja þegar geómetrian var að byrja og ég hló ekki frá þvi ég var 18 ára og fram undir miðjan aldur. Þá gætti maður þess að ganga álútur með hendur I vösum. Það skyldi ekki fara fram hjá nein- um að við vorum að leysa lifs- gátuna. Nú er ég búinn að læra að hlæja aftur enda nóg tilefni eins og ástandið er. f blaðasamtali komst ég svo að orði á sínum tima — um upp- gjör mitt við flatlistina — það var ekki löngu eftir endanlegt uppgjör og þvi nokkuð nærri lagi: „Þegar ég reyni að gera mér grein fyrir þessu nú sé ég að meðan ég var dýpst sokkinn I þessa geometriu hef ég verið orðinn hálfblindur maður það er að segja ég sá en sá þó ekki. Ég sá ekki náttúruna og varð ekki fyrir neinum áhrifum frá henni. Ég var hættur að reagera gegn henni og jafnvel gegn sjálfu lif- inu. Ég sá ekki lengur litina. Þetta var óhugnanlegt og ég þykist vita að margir sitji enn i þessu ” Spra ututí ma bi lið og afturhvarfið Allmargar myndir eru i bók- inni frá „spraututimabilinu” sem margir nefna svo. Allt er við það sama myndirnar eru fyrst og fremst óaðfinnanlegar tæknilega séð linurnar eru djarfar og við greinum þær enn t.d. i konumyndunum en svo koma moldarböröin og gera Sverri Haraldsson frægan og eftirsóttan I bönkum og flnum húsum. Það er ekki svo auðvelt að skilja hvað I raun og veru gerðist. Ég hefi heyrt Guðrúnu Á. Simonar syngja dægurlög hún gerir það að sjálfsögðu bet- ur en aðrir sem ég hefi heyrt syngja þau lög. Það kemur þvi i rauninni ekki svo á óvart að Sverrir skyldi geta málað landslag með nýju ivafi, en það er þarna sem það brennur saman með honum og þjóðinni og hann verður hennar maður sem er grundvöllur þessarar dýru bókar. Margir hafa áfellzt Sverri fyrir að snúa sér að moldar- barðinu i Sogamýrinni i staö þess að taka viö forskrift úr Paris eða frá félögum sinum sem sátu uppi meö hina endan- legu lausn lifsgátunnar, mynd- listarlega séð a.m.k. Aðrir telja,að tækni málarans hefði átt að beina honum inn i pop heiminn en þangaö lá straumurinn. Tækni hans hefði notazt betur og hún hefði lika notazt I surrealisma enda nefnir Sverrir Dali oft i þessu samtali við skáldið. En þetta eru aöeins vangaveltur og koma bókinni ekkertvið. Þó voga lesendur sér að álita að eitthvert samræmi eigi að vera milli myndanna og aðdáunar á Rembrandt gamla og honum Vermeer. Sverrir lýsir viðhorfi sinu til myndlistarinnar dálitiö kaldranalega og segir: Nú er lagt mikið upp úr þvi, hvað er málað, t.d. getur komiö tizkualda með plastpoka beygl- aðri fötu eða öskutunnu, og sá, sem málar þetta, fær uppáskrift hjá listfræðingum og gagnrýn- endum um að hann sé hin eina sanna tólg, sem Kjarval minnist einhvers staðar á. Þetta er út af fyrir sig I lagi en þaö skiptir I rauninni engu, hvaö menn mála: uppeldi, umhvefi, áhrif áhugamál o. s. frv. kalla á við- fangsefnið. 1 minum augum er fáránlegt að segja, að fyrir- myndir skipti máli, heldur ein- ungis hvernig unnið er úr þess- um fyrirmyndum. A sama hátt skiptir ekki máli, úr hvaða við er smiðað, heldur hvernig menn vinna úr efnivið sinum. For- múlan skiptir engu enda er hún ekki til. Menn geta málað ösku- tunnu eða beyglaða föru fyrir mér, en þær eru ekkert merki- legri en hver önnur hundaþúfa og siður en svo nýtizkulegri, þó reynt sé að gefa þessu nöfn eins og nýraunsæisstefna. Það, sem máli skiptir, er skáldið i lista- manninum: hvernig hann sér fyrirmyndina og hvernig honum tekst að vinna úr henni nota hana sem hráefni i nýjan skáld- skap, þ.e. sina eigin myndlist. Nýraunsæisstefnan gengur yfir sem andsvar við öörum nýjum stefnum og er einna helzt fólgin i þvl, að reynt er að likja eins vel eftir fyrirmyndinni og unnt er. En þá stöndum við andspænis þvi sem ljósmyndavélin getur gert betur en nokkur listmálari. Hitt er svo annað mál að ljós- myndari getur unnið listavel. En ég er ekki nógu vel að mér i þeirri kúnst að geta skýrt hvernig það má verða. Ef menn mála beyglaða fötu nákvæm- lega eins og hún er og bæta engu við frá sjálfum sér, tel ég það ekki list heldur handverk. Hitt er svo annað mál, að þaö má fara ýmsar leiöir I listinni og Svavar Guðnason hefur sagt okkur frá þvi, aö þeir i Grönn- ingen noti ýmsar tækninýjungar svo sem að leggja kvenfólk á gólfið I listsköpun sinni og leggj- ast ofan á það án þess að gera neitt ljótt, ,,en það er þeirra for- retning”. Það er ekki I tizku lengur að misþyrma fólki og raunar bannað, en þá þarf auð- vitað að fara út i hinar öfgarnar og leyfa mönnum að gera allt sem þeir vilja, eins klaúfalega og þeir hafa hæfileika til. Þegar ég kom i listaháskólann I Berlin var kennslan fólgin i þvi, að heimsfrægir prófessorar ráfuðu milli okkar nemendanna og sögðu: Gerið það sem þið viljið (!). Þetta frelsi hefur þaö til sins ágætis að maður þarf hvorki aö kunna né geta nokk- urn skapaðan hlut. Maður þarf ekki einu sinni að hafa hæfileika til að teikna — og þaö er dálitið slæmt. En hugmynd min um þetta frelsi er sú, að þá fyrst er lista- maður algjörlega frjáls þegar hann hefur náð fullkomnu valdi á þvi efni sem hann vinnur með. Þá getur hann gert hvað sem hann vill. Hann getur gert allt, hann getur teiknað, málað þaö, sem honum dettur i hug — jafn- vel ferninga. Hann er frjáls. Hann getur tjáð sig eins og hug- ur hans stendur til. Hann hefur ekki einungis vængi, heldur kann að beita þeim hvernig sem viörar. Þegar menn hafa þetta full- komna frelsi, sem kunnátta og tækni veita — og við skulum ekki gera of litið úr þvi, sem unnt er að læra — þá getur mál- arinn fyrst unnið aö listsköpun sinni áreynslulaust eins og fleygur fugl og nýtt allan þann skáldskap, sem I honum býr. Að öðrum kosti fer mest af orku hans I að glima við hindranir og yfirvinna tæknileg atriði, skáld- skapurinn kemst ekki að. Niður- staðan verður aumkunarveröur klaufaskapur, eins og þegar lundapysjurnar reyndu aö fljúga úr hreiðrunum til sjávar, en flugu á glugga eða hús heima i Vestmannaeyjum eða duttu til jarðar inni i miðjum bæ. Þá vor- kenndi ég mæðrunum að horfa upp á þessi ósköp. En við krakk- arnir höfðum þann starfa að tlna lundaungana upp, gefa þeim að borða og fara svo næsta morgun með þá niður I fjöru og sleppa þeim þar.” Prentlistin og bókin Þriðji þáttur þessarar bókar er prentverkið, sem mun vera örðugasta og umfangsmesta viðfangsefni prentlistarinnar frá þvi að Guðbrandsbiblia kom út. Stærri verkefni eru aðeins I fiskumbúðum og dagatali Eim- skipafélagsins. Þó er að hinu að gæta, að lit- greining og prentgerð verkanna er undir smásjá kröfuharðs málara. Hann hefur ekki búið til ísland, en hann veit allt um myndirnar. Þegar litaðar ljósmyndir eru prentaðar, er vinna prentsmiðj- unnar sjálfstæð útfærsla á myndinni, hér er hún fjölföldun á ákveðnu verki. A þessu er dá- litill munur. Fljótt á litið virðist litgreining málverka hafa tekizt afbragðs vel. Þó kemur fram dálitið „súr” blanda, t.d. i myndinni af dr. Bjarna Jónssyni en súr litur er yfirleitt ekki i þeim verkum Sverris sem ég hefi séð. Dálitið er lika um skugga i jöðrum (blindrammi kemur fram) og maður hefur það stöku sinnum á tilfinningunni að myndatakan hefði mátt vera betri, þótt auð- vitað sé ekki unnt aö ræða þessi mál virðulega nema hafa bæöi bókina og myndlistarverkið fyr- ir framan sig samtimis. Þó eru þessar aðfinnslur aðeins smám- unir. Otgefendur, þeir Páll Vig- konarson og Gunnar Þorleifsson eru þekktir bókagerðarmenn, listrænir og áhugamenn um fagra hluti. Það sést hvarvetna á þessari bók að þarna hafa allir lagt sig fram, skáldið, málarinn, prent- arar og hönnuöir, og útkoman er ein glæsilegasta bók, sem ég hefi séð. — Jónas Guðmundsson 70 ára Þorlákur Jónsson rafvirki Það bar til tiðinda á Þorláks- messu á vetri 1907, að hjónum á Suðureyri I Súgandafirði, Jóni formanni Einarssyni og Kristinu Kristjánsdóttur, fæddist sonur. Var sá sveinn vatni ausinn og gefið nafn hins blessaöa Þorláks biskups. Raunar heitir hann fullu nafni Þorlákur Jón, en ekki veit ég hvaðan Jónsnafnið er fengiö, en vel mætti þaö vera frá öðrum heilögum biskupi. Þorlákur er af vestfirzkum ættum og hygg ég að næstu ættlið irnir hafi allir veriö I Súganda- firði og næstu fjörðum og vikum og verði litt rakiö i önnur héruð fyrr en kemur aö séra Eiriki á Stað, sem fæddur var I Borgar- firði 1764, en Þorlákur er fimmti liður frá honum. Frændlið Þor- láks hefur mjög komið við sögu vestra. Fjögur eru systkini hans: Þóra, kona Friðriks Hjartar, sem lengi var skólastjóri á Suðureyri, Sturla hreppstjóri á Suöureyri, Kristjana, húsfreyja I Botni,kona Friðberts Péturssonar og Jó- hannes, sem lengi var kaupfé- lagsstjóri á Suðureyri. Ekki þarf að kynna þetta fólk fyrir Vestfirð- ingum. Áriö 1929 hóf Þorlákur raf- virkjanám hjá Eiriki Hjartarsyni I Reykjavik og á því sviði varð lifsstarf hans. Hann vann hjá fyrirtæki Eiriks, varð meðeigandi og siöan eigandi, en það rak verzlun auk verktöku. Segir Gunnar M. i Súgfirðingabók, að það væri þá eitt af stærstu raf- virkjafyrirtækjum landsins og Þorlákur hafi haft umsvif mikil, bæði I Reykjavik og úti á lands- byggðinni, tekiö að sér stórvirki og haft tugi manns i vinnu. Þorlákur giftist 1933 Kristjönu ömólfsdóttur, frænku sinni úr Súgandafirði, ágætri konu. Þau voru þremenningar, þvi að Kristin móðir Þorláks og ömólf- ur tengdafaðir hans voru bræðra- börn. Konu sina missti Þorlákur 1969. Þetta sem nú er sagt er al- mennur sögulegur fróöleikur, sem Vestur-Isfiröingar almennt vita skil á. Ég sá Þorlák aö visu vesturáSúgandafirði 1931, enátti ekki viö hann oraðstaö. Hins vegar hefi ég lært að þekkja manninn á siðustu árum og stafa þau kynni frá stúkufundum og stúkustarfi. Þorlákur lætur sig aldrei vanta á fund og tekur mik- inn þátt I starfi templara þess ut- an. Hann er ágætur félagi og jafn- an boðinn og búinn til hvers sem erog fneð þarf, hvort heldur er að ganga um beina og vinna eldhús- störf, eöa bregða sér i önnur gervi. Maðurinn er góður þegn og leikfullur, enda á fólk á hans aldri að geta látið eftir sér að leika sér dálitið. Þorlákur er enn i fullu starfi sem rafvirki, i félagi við Pál son sinn. Matthildur Guðmundsdótt- ir, frá Bæ i Steingrimsfirði er ráðskonaá heimilihans, myndar- leg kona. Hún var ekkja eftir Halldór Magnússon, frá Gauts- hamri i Steingrimsfirði, en þau áttu lengi heima á Akranesi. Framhald á bls. 23

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.