Tíminn - 24.12.1977, Blaðsíða 3

Tíminn - 24.12.1977, Blaðsíða 3
Laugardagur 24. desember 1977 3 Áramótabrennurnar: Ellefu kestir hafa verið samþykktir ÁÞ — Búiö er aÖ sækja um leyfi og fá samþykkt fyrir 11 áramóta- brennum, en í fyrra logaði i 23 bálköstum viðsvegar um borgina. Hins vegar eiga margir eftir aö sækja um formlegt leyfi til lög- reglunnar og eru þeir hvattir til að gera það hið fyrsta. Verði það ekki gert, eiga viðkomandi það á hættu að starfsmenn borgarinnar birtist einn góðan veðurdag og fjariæg! köstinn. Þegar hefur einn köstur veriö fjarlægður, m.a. vegna óþrifnaðar sem hann olii i nágrenninu. — Ég hygg að við náum sömu tölu og I fyrra, sagði Valdimar Sigurðsson lögregluþjónn. — Við erum búnir að sjá bálkesti viða um borgina, sem ekki hefur verið sótt um leyfi fyrir. Ef þeir eru ekki á öruggum stöðum munum við færa kestina til. Hin svokallaða borgarbrenna við Miklubrautina verður ekki i nafni Reykjavikurborgar um þessi áramót, en börn úr ná- grenninu verða aðstoðuð við að hlaða köstinn. Að venju verður þessi brenna sú stærsta i Reykja- vik, en næst að stærð er brenna austan Fellaskóla. Fyrir henni standa Reykjavikurborg og Framfarafélag Breiðholts III. Reykurinn frá Fiskimjöisverksmiðjunni hefur veriö Keflvikingum og Njarövikingum til mikilla óþæg inga. En nú eiga þeir von á betri tima. Tímamynd: G.E. Suðurnes: Peningalyktin er á undanhaldi ÁÞ — Þegar iiöur á næsta ár, þurfa Keflvlkingar ekki að óttast það að peningalyktin fra Fiski- mjölsverksmiðjunni angri þá og plagi. Verið er aö vinna að endur- skipulagningu verksmiöjunnar, og eru mengunarvarnartæki tekin með i áætlunina, öfugt við það, sem flest atvinnufyrirtæki sem stofnsett eru hér á landi, gera. A sl. ári lögðust heilbrigðis- nefndirnar i Njarðvik og Keflavik a móti þvi, að undanþága sú, er verksmiðjan hafði, yrði endur- nýjuð. Hins vegar var ráöuneytið, með hliðsjón af áætlunum verk- smiðjunnar, á öðru máli. —Fiskimjölsverksmiðjan verð- urhinsvegarstarfræktmeð sömu skilyrðum og áður, sagði Ingimar Sigurösson deildarstjóri I heil- brigöisráöuneytinu. — Hér eru mengunartækin liöur i heildar- áætlun, og að okkar mati hefur það skort mjög að þaö væri gert. Ef þau eru liður i stofnkostnaði, getur viðkomandi fengið fyrir- greiðslu úr opinberum sjóðum. 1 samtali við Jóhann Sveinsson, heilbrigðisfulltrúa f Njarðvik, kom fram, að hækkun á skorsteini hefði ekki komið til greina, þar sem reyknum frá verksmiöjunni hefði einfaldlega slegiö niöurofar i bænum. En þvi miður verður hreinisútbúnaðurinn ekki tilbúinn fyrir næstu loönuvertið, þannig aö lögreglustjórinn á eflaust eftirað fetta fingur út i peningalyktina. — Starfsmenn verksmiöjunnar eru nú að undribúa uppsetningu á nýjum soðkjarnatækjum, og eftir tilkomu þeirra dregur nokkuð úr reyknum, sagði Jóhann. — Hrá- efnið nýtist beturog minna ferút i andrúmsloftiö. En þegar til stóö að fara að endurskipuleggja verksmiðjuna, þá var það okkar vilji, að hún færi burtu úr byggð- inni, en þvi miöur varð sú ekki raunin. Sú þjóð, er i myrkri sat, hefur séð mikið ljós, og þeim, er sátu i landi og skugga dauðans, er ljós upp runnið. * Verið miskunnsamir, eins og faðir yðar er miskunnsamur. Og dæmið ekki, þá munuð þér ekki heldur verða dæmdir. Og sakfellið eigi, og þá munuð þér ekki heldur verða sakfelldir. Sýknið, og þá munuð þér sýknaðir verða. Gefið, og þá mun yður gefið verða. Þvi að með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður aftur mælt verða. Allt, sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Nýtt boðorð gef ég yður: Þér skuluð elska hver annan, á sama hátt og ég hefi elskað yður, — að þér einnig elskið hver annan. Af þvi skulu allir þekkja, að þér er- uð minir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til annars. Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir sem sjúkir eru. Ég er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara til iðrunar. En þegar þú gjörir heimboð, þá bjóð þú fátækum, vanheilum, höltum og blindum, og þá munt þú verða sæll, þvi að þeir hafa ekkert að endurgjalda þér með*. En þér mun verða endurgoldið það i upprisu hinna réttlátu. i» Sannlega segi ég yður, svo framarlega sem þér hafið gjört þetta einum þessara minna minnstu bræðra, þá hafið þér gjört mér það. Ég er ljós heimsins, hver sem fylgir mér, mun ekki ganga i myrkrinu, heldur hafa ljós lifsins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.