Tíminn - 24.12.1977, Blaðsíða 10
10
Laugardagur 24. desember 1977
Hj á mörgum er j ólahelgin
sem aðrar helgar ársins
ÁÞ — Ágæti lesandi. Þúsundir landsmanna
halda nú jólin hátíðleg í upplýstum og
þrifalegum húsum. Þeir — og eflaust þú
sömuleiðis — geta síðar í kvöld lokað aug-
unum og lagzt á meltuna. Leifarnar af jóla-
matnum liggja frammi í eldhúsi og bíða
ef tir að eigandanum þóknist að f á lystina á
nýjan leik.
En það eru ekki allir jafnheppnir og þú.
Það er opinbert leyndarmál, að margir
hafa varla í sig og á. Hjá mörgum verður
jólahelgin ekki frábrugðin öðrum helgum
ársins. Sérstaklega á þetta við um einstæð-
ar mæður með mörg börn á sínu framfæri,
mæður er eiga óhægt með, eða geta alls
ekki, leitað til skyldmenna — eða þá eru of
stoltar til að leita á náðir Mæðrastyrks-
nef ndar. Barnameðlög og styrkir hins opin-
bera ná ekki langt til lífsframfæris. Mæður
þessar og börn þeirra líða e.t.v. ekki beinan
skort, en samkvæmt upplýsingum Mæðra-
styrksnefndar er ástandið nógu slæmt
samt.
Og það eru f leiri sem mega muna fegurri
jól en þau sem nú eru að fara í hönd. Úti-
göngumenn borgarinnar geta að vísu leitað
til ákveðinna stofnana yfir jólin og fengið
þar betri mat en dags daglega. Þrátt f yrir
að starfsfólk og sjálfboðaliðar leggi sig
óskipta fram til að gera þessum mönnum
dagamun um jólin, þá vantar alltaf feg-
urstu glóðina.
Það er ekki nóg að finna til með þeim,
sem minnst mega sín — í kvöld og á morg-
un. Þjóðfélaginu er lögð sú skylda á herðar
að búa svo um hnútana, að ekki séu til t.d.
bláfátækar einstæðar mæður, gamalt fólk
eða sjúklingar, sem eiga varla til hnifs og
skeiðar. Og þú sjálfur (sjálf) skalt hugleiða
þá staðreynd, að í okkar þjóðfélagi býr stór
hópur fólks, sem vegna ýmissa orsaka á
varla fyrir jólamatnum.
En láttu þér ekki nægja að hugleiða þetta
í kvöld. Reyndu að leggja þitt af mörkum til
þessað um næstu jól verði þeir færri, sem
líða skort. Hvernig? Til eru óteljandi sam-
tök, sem vinna að bættum hag þessa fólks.
Veittu þeim stuðning þinn.
Mæðrastyrks-
nefnd:
Fátæktin
er meiri
ennokkum
grunar
sagði Aldís
Benediktsdóttir
ÁÞ — Það er alveg ótrú-
legt hvað kemur í Ijós
þegar farið er að tala við
þetta fólk. Ykkurer alveg
óhætt að segja það að til
er heilmikil fátækt í
Reykjavík. Hins vegar er
þvi haldið fram af æði
mörgum, að slíkt sé rangt
sagði Aldís Benedikts-
dóttir formaður Mæðra-
styrksnef ndar. — Við
skulum bara taka sem
dæmi einstæða móður
með 4 til 5 börn á fram-
færi. Ef hún á ekki ætt-
ingja sem hún getur
leitað til, þá getur hún
ekki unnið úti þar sem
barnagæzla er rándýr.
I sumum tilfellum er um
að ræða stúlkur með litla
menntun og þar af leið-
andi fá þær lág laun ef
þær sjá sér fært að fara
út á hinn almenna vinnu-
markað.
Aldís minntist einnig á
tryggingar hins opinbera
og sagði það sina skoðun
að þær væru alltof lágar.
Þar fyrir utan verða
sumar konurnar að búa í
lélegu húsnæði með
barnahópinn.
Þegar við ræddum við
Aldísi höfðu tugir kvenna
sótt um aðstoð nefndar-
innar. I fyrra sóttu 280
manns um aðstoð og í ár
verður sú tala ekki lægri.
Bæði er hægt að fá fatnað
hjá nefndinni og eins út-
deilir hún peningum.
Lágmarksupphæðin er
um fimm þúsund krónur.
— Það er óhætt að segja
að það fólk sem við erum
að veita styrki, gæti ann-
ars ekki gert sér daga-
mun yfir jólin, sagði Al-
dís, — Og það er víst að
það eru fjölmargir hér i
Reykjavik, sem við höf-
um ekki hugmynd um en
eru í mikilli þörf fyrir að
þeim sé rétt hjálparhönd.
Tyrfingur Þorsteinsson:
Hjálpræöisherinn mun aö venju standa fyrir mörgum
samkomum um jólin, ekki aöeins fyrir heimilislausa heldur og
alla þá sem vilja heyra fagnaöarboöskapinn. Timamynd:
Róbert.
A aöfangadagskvöld koma heimilislausir saman f Slysavarnar-
félagshúsinu á Grandagaröi. 1 gær var búiö aöskreyta salinn, og
var hann hinn vistlegasti á aö Ifta.
Enginn ætti að þurfa að
liggja uti um þessi jól
Július Snorrason (t.v.) og Tyrfingur Þorsteinsson I setustofu Farsóttarhússins. Timamynd:Hóbert.
AÞ —Vissulega veröa jólin alltaf
öðruvisi hjá þvi fólki, sem hvergi
á höfði sinu að halla en öðrum, á
þvi er enginn vafi, sagði Tyrfing-
ur Þorsteinsson vaktmaður i Far-
sóttarhúsinu. Þar eiga samastað
útigangsmenn borgarinnar. —
Þessi jól höfum við tekið upp þá
nýbreytni, að matur verður fram-
reiddur á jóladag. Yfirleitt er að-
eins boðið upp á kaffi og
morgunmat.
Við litum inn hjá Tyrfingi í gær
og skoðuðum húsnæði það, er
stendur opið þeim samborgurum
okkar er eiga i striði við Bakkus.
Július Snorrason, samstarfsmað-
ur Tyrfings, var i óða önn að
koma upp jólaskreytingum og i
setustofunni gaf að líta skreytt
jólatré. I göngum hússins var
búið að hengja upp margvislegt
skraut.
— Við gerum ráð fyrir að 20 til
25 manns dvelji hjá okkur um jól-
in, sagði Tyrfingur, er við geng-
um um húsið. — Það er ámóta
fjöldi og i fyrra, en þá voru hér 29
manns. Á undanförnum árum
hafa ýmis samtök gert mikið
fyrir þessa menn, og ég held, að
það sé óhætt að fullyrða að enginn
þurfi að liggja úti um þessi jól.
Það eru aðallega karlmenn sem
koma til með að vera i Farsóttar-
húsinu um helgina. Tyrfingur
sagði þá vera þakkláta fyrir það
sem gert er til hátíðarbirgða,
enda væri reynt að gera húsið
eins heimilislegt og nokkur tök
væru á.