Fréttablaðið - 18.06.2006, Page 13
Félagið Framtíðarlandið var stofn-
að í gær. Það er félag áhugafólks
um framtíð Íslands, og þar með
tekið fyrsta skrefið í átt að betra
landi, Framtíðarlandinu. Þetta
félag er stofnað af fólki úr öllum
hópum þjóðfélagsins, fræðimönn-
um, listamönnum, tónlistarfólki,
frumkvöðlum, fólki eins mér og
fólki eins og ykkur.
Við eigum það öll sameiginlegt
að þykja vænt um landið okkar,
okkur hefur liðið vel hér. Við
eigum það líka sameiginlegt að
finnast vera nóg komið. Nú er
komin þörf fyrir afl sem upplýsir,
gagnrýnir og leggur til hugmynd-
ir að nýrri framtíðarsýn á Íslandi.
Það er nauðsynlegt að efla lýðræð-
ið, umræðu – og grundvallarþætti
samfélagsins: réttlæti, menntun,
umhyggju um fyrir náunganum
og skapandi atvinnustefnu. Við
þurfum saman að styðja stjórn-
völd til góðra verka, leiðbeinum
þeim. Látum í okkur heyra og
sýnum þeim hvernig Framtíðar-
landið Ísland á að vera.
Það er ekki hlutverk stjórn-
valda að búa til land handa okkur.
Á síðustu árum hefur það sýnt sig
að hugmyndirnar frá valdhöfum
eru fátæklegar. Ég held að far-
sælla sé að stjórnvöld skaffi frjó-
an jarðveg, menntun og jákvætt
lagaumhverfi þar sem skapandi
kraftur Íslendinga getur sprottið.
Við megum ekki vera hrædd, við
verðum að trúa á eigin getu. Sagan
sýnir að fólk er ótrúlega klárt að
bjarga sér þegar það fær tækifæri
til þess. Þegar því er gefinn laus
taumurinn.
Ísland er á teikniborðinu. Við
verðum að taka það af teikniborð-
inu, fá að tjá okkur sjálf um hvern-
ig landið okkar á vera í framtíð-
inni. Rísum upp og höfnum úreltri
atvinnustefnu þar sem höfuðá-
hersla er lögð á stóriðju með til-
heyrandi vatnsaflsvirkjunum og
stórfelldri og óafturkræfri eyði-
leggingu náttúru. Nú er komið að
ögurstund. Mikilvægustu mánuðir
í sögu þjóðarinnar eru framundan.
Mánuðir sem skipta sköpum um
hvernig framtíðarlandið mun líta
út.
Nálægðin við þessa mögnuðu
náttúru gerir okkur að sérstakri
þjóð. Við erum dugleg og skapandi
og framkvæmum hluti sem stund-
um virðast ómögulegir. Héðan
kemur listafólk sem skarar fram-
úr á sínum sviðum og leiðandi fyr-
irtæki á heimsvísu. Fyrir aðeins
10 ¿ 20 árum átti enginn von á því.
Við eigum náttúru landsins þetta
mikið til að þakka. Hún hefur
kennt að okkur ber að sýna fólki
virðingu og umhyggju. Þessi harða
og ósnortna náttúra er okkar orku-
ver. Hún gefur okkur kraft til þess
að fá hugmyndir, grípa þær og
hrinda í framkvæmd. Okkur ber
að virða hana. Látum ekki taka
hana frá okkur og þar með frjóan
jarðveg atvinnutækifæra, við-
skiptahugmynda, menningar og
lista.
Kæru Íslendingar. Ég vill þakka
þeim sem komu í Austurbæ í gær
til þess að taka þátt í stofnun
Framtíðarlandsins. Ég skora á
ykkur hin að fara á vefsíðuna
okkar framtidarlandid.is og skrá
ykkur. Hjálpumst að við að hjálpa
stjórnvöldum að skapa drauma-
landið Ísland, landið okkar.
Ísland er Framtíðarlandið
Samtök atvinnulífsins hafa sent
verkalýðsfélögunum tilboð um
hækkanir á launum á almennum
vinnumarkaði. Þau segjast vera
tilbúin til að semja um sérstakan
taxtaviðauka, kr. 12.000, sem
bætist við alla mánaðarlauna-
taxta gildandi kjarasamninga og
sérkjarasamninga aðila frá 1. júlí
2006 og kr. 2.000 til viðbótar 1.
janúar 2007.
Einnig er í tilboðinu sérstakt
ákvæði um ca. 2 prósenta launa-
hækkun starfsmanna, sem fengið
hafa greitt umfram umsamið
taxtakaup.
Skattleysismörk hækki
Tilboðið er áhugavert en ekki
nógu gott. 12 þúsund króna hækk-
un lægstu launa er of lág, þar
verður að bæta við ca. 50 pró-
sentum. Og það verður að vera
algjört skilyrði að launataxtar
ræstingafólks fylgi með. Þeir
mega ekki fá minni hækkun en
aðrir taxtar. Ég segi þetta vegna
þess að stundum hefur það átt
sér stað að þeir hafi verið látnir
sitja eftir.
Þá verður ríkið að koma að
málinu með verulega hækkun
skattleysismarka, helst það mikla
að lágmarkslaunin verði ekki
skattlögð. Háu launin í þjóðfélag-
inu hafa fengið umtalsverðar
skattalækkanir, nú hlýtur að vera
komið að því létta skattbyrðarn-
ar af lágu laununum. Matarskatt-
slækkun er góðra gjalda verð en
fyrst og fremst verður að hækka
skattleysismörkin.
Lægstu laun-
in hækki
UMRÆÐAN
KJÖR LAUNA-
FÓLKS
SIGURÐUR T. SIGURÐSSON
FYRRVERANDI FORMAÐUR HLÍFAR
UMRÆÐAN
FRAMTÍÐAR-
LANDIÐ
BIRKIR BJÖRNSSON
GAGNAGRUNNSSÉRFRÆÐINGUR
SUNNUDAGUR 18. júní 2006 13
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
Sögurnar,
tölurnar,
fólki›.
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU
ALLA MI‹VIKUDAGA