Fréttablaðið - 18.06.2006, Blaðsíða 66
Líf, fréttir og viðburðir á ensku
Vefurinn Reykjavik.com og blaðið
Reykjavikmag eru nýjar upplýsinga-
veitur á ensku.
Þær bjóða upp á ferska umfjöllun
og nýjustu upplýsingar um allt sem
heimsborgin Reykjavík státar af á
hverjum tíma; menningarviðburði,
skemmtistaði, veitingastaði, söfn,
gallerí, tísku, verslanir og næturlíf.
Nýjustu fréttir frá Íslandi
Reykjavíkmag blaðið kemur út
hálfsmánaðarlega og verður dreift
um alla borg. Vefurinn Reykjavík.com
flytur alltaf nýjustu fréttir frá Íslandi
og er stöðugt uppfærður í samstarfi
við Fréttablaðið og NFS.
Í Reykjavík er alltaf
eitthvað sem er nýjasta nýtt
Be prepared,
Ingólfsfjall er 551 m hátt móbergsfjall í Ölfusi. Það er
hömrum girt á þrjá vegu og mjög hlíðabratt. Þegar sjávar-
staða var hæst í ísaldarlok hefur það verið sæbrattur höfði
sem brimið braut niður og skapaði þá hinar bröttu hlíðar.
Ingólfsfjall er einkum gert úr móbergi með hraunlögum
inn á milli, einkum að neðan og í kolli. Það hefur orðið til
um miðja ísöld.
Suður úr vesturhorni fjallsins skagar grár klettamúli,
Silfurberg, er það úr móbergi með ljósum holufyllingum
sem aðallega eru geislasteinaútfellingar. Þar suður af er
Kögunarhóll og liggur þjóðvegurinn á milli. Ingólfsfjall er
kennt við landnámsmanninn Ingólf Arnarson. Uppi á fjall-
inu er grágrýtishæð sem heitir Inghóll og segja munnmæli
að þar sé Ingólfur heygður.
Í Landnámabók segir að þar hafi Ingólfur Arnarson
haft vetursetu undir Ingólfsfjalli hinn þriðja vetur sinn hér
á landi. Síðar reis þar stórbýli sem hét Fjall og fór í eyði á
18. öld. Enn sjást leifar fornra mannvirkja á staðnum, sem
nú eru friðlýstar.
FJALLIÐ: INGÓLFSFJALL
...að fyrstu heimildir um sjóræningja
eru frá 13. öld fyrir Krist? Þeir stund-
uðu sjórán við Grikkland.
...að í Miðjarðarhafi voru sjóræningjar
lengi umsvifamiklir, eða allt fram á
tíma Júlíusar Sesars?
...að sagan segir að áður en Sesar
varð keisari hafi hann verið á leið
til Ródos að læra ræðumennsku?
Honum var rænt af sjóræningjum og
neyddist Sesar til að borga fúlgur fjár
fyrir frelsi sitt.
...að um leið og Sesar slapp safnaði
hann saman litlum her, klófesti
sjóræningjana og krossfesti þá?
...að eftir valdatöku Sesars varð
Miðjarðarhafið mun öruggara gegn
sjóræningjum? Ástandið varði þó
ekki lengi.
...að næsta gullöld sjóræningja kom
er víkingar gerðu strandhögg um alla
Evrópu?
...að í okkar augum eru þeir hetjur en
flestir efa að Írar séu á sama máli?
...að gullöld sjórána var á árunum
1640-1680?
...að það var að sjálfsögðu í Karíba-
hafinu?
...að á 7. áratug 15. aldar var Tortuga,
eða Skjaldbökueyja, höfuðvígi
sjóræningja?
...að eftir 1655 tók Port Royale við
þeim titli?
...að oft ríkti ákveðið lýðræði um
borð í sjóræningjaskipum?
...að áhafnir kusu oft leiðtoga sinn og
skiptu svo jafnskjótt um hann aftur?
Ránsfeng var einnig skipt niður eftir
settum reglum sem ákveðnar voru
fyrirfram og skráðar niður.
...að þrátt fyrir að líf sjóræningja
hafi verið erfitt var það betra en líf
breskra sjóliða á sama tíma?
...að þær aðstæður sem sjóliðarnir
bjuggu við eru almennt taldar þær
verstu sem nokkrir hermenn nokkurn
tímann hafa þurft að þola?
...að þeim var reglulega gefinn úldinn
og maðkaður matur?
...að breskir kafteinar voru miskunn-
lausir og afar grimmir við áhöfn sína?
...að í dag er hættulegasta sjósvæðið
milli Kyrrahafs og Indlandshafs?
...að skemmdir og rán sjóræningja
á ári hverju eru metin allt að einum
milljarði?
VISSIR ÞÚ...
������������
��������������
��������������
�������
����������
����
28
Erum umboðsaðilar fyrir LYCON VAX.
Óskum eftir snyrtistofum til að bjóða LYCON VAX.