Fréttablaðið - 18.06.2006, Side 18
18. júní 2006 SUNNUDAGUR18
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og
jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigurlaug Kristjánsdóttir
Tjaldanesi 3, Garðabæ,
sem lést fimmtudaginn 8. júní sl. verður jarðsungin
þriðjudaginn 20. júní kl. 13.00 frá Vídalínskirkju í
Garðabæ. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vildu minnast hennar er bent á hjúkrunar-
heimilið Holtsbúð í Garðabæ í síma 5352220.
Jón Kr. Sveinsson
Kristján Þ. Jónsson Sveinbjörg Guðmarsdóttir
Inga Sveinbjörg Jónsdóttir
Jóna F. Jónsdóttir Þorsteinn Ingi Jónsson
Sigurður M. Jónsson
Svala Rún Jónsdóttir Guðmundur Óli Reynisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Magnús Kristjánsson
vélstjóri, Heiðvangi 48, Hafnarfirði,
lést á Landsspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 11. júní.
Útförin fer fram frá Garðakirkju, föstudaginn 23. júní
kl. 13.00.
Karin Gústavsdóttir
Claus Hermann Magnússon Ásdís Elín Guðmundsdóttir
Gunnar Geir Magnússon
Garðar Þór Magnússon Elínrós Erlingsdóttir
Pálmey Magnúsdóttir Bjarni Knútsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við fráfall ástkærrar eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
Unnar Agnarsdóttir
Sóltúni 5, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni fyrir frábæra umönnun og umhyggju.
Óskar H. Gunnarsson
Gunnhildur Óskarsdóttir Arnór Þ. Sigfússon
Agnar Óskarsson Margrét Ásgeirsdóttir
og barnabörn.
MERKISATBURÐIR
1000 Kristniboðarnir Gissur hvíti
Teitsson og Hjalti Skeggja-
son taka land í Heimaey og
skipa upp viði í kirkju sem
Ólafur konungur boðaði
að reist skyldi þar sem þeir
kæmu fyrst í land.
1815 Napóleon er gersigraður við
Waterloo.
1940 Hitler og Mussolini funda í
München.
1955 Þrír bræður frá Hvítárbakka
í Biskupstungum kvænast
þremur systrum úr Austur-
hlíð í sömu sveit.
1980 Fokkerflugvél nauðlendir á
Keflavíkurflugvelli, enginn
slasast.
1983 Fyrsta bandaríska konan
flýgur út í geim tuttugu
árum síðar en fyrsta rúss-
neska konan fór út í geim.
JOHN CHEEVER (1912-1982),
LÉST ÞENNAN DAG.
„Heimþrá er ekkert.
Helmingur jarðarbúa
er alltaf með
heimþrá.“
Bandaríski rithöfundurinn John
Cheever ferðaðist meðal
annars um Evrópu og fékk þar
innblástur í ýmis skrif sín.
Á þessum degi hélt Charles de
Gaulle fræga ræðu sem af mörgum
er talin ein sú merkasta í sögu
Frakklands. De Gaulle talaði til
frönsku þjóðarinnar frá London eftir
að Frakkland hafði fallið í hendur
Þjóðverja, og lýsti því yfir að stríð-
inu væri ekki lokið. Nú væri tími
andspyrnunnar sem hann hygðist
leiða og bað Frakka um að sýna sér
stuðning.
Ræðunni var útvarpað af breska
ríkisútvarpinu, BBC, með sérstöku
leyfi frá Winston Churchill. Reyndar
höfðu bresk stjórnvöld gert tilraun
til að setja de Gaulle stólinn fyrir
dyrnar og varna því að útsendingin yrði gerð. Hún
hófst eftir sem áður klukkan sjö síðdegis og endaði
með orðunum: „Á morgun, líkt og í dag, tala ég í
Útvarpi London.“ De
Gaulle minnti þjóð
sína líka á að Bretar
og Bandaríkjamenn
myndu standa við
bakið á Frökkum í
baráttunni við að ná
aftur þeim svæðum
sem af þeim höfðu
verið tekin. Frægasta
setning ræðunnar er
að öllum líkindum
þegar de Gaulle segir:
„Frakkar er ekki einir!
Við erum ekki einir!
Við erum ekki einir!“
Hann hélt áfram að tala til þjóðar sinnar úr
útlegðinni á meðan á stríðinu stóð, fyrst frá London,
en flutti sig síðar meir til Alsír.
ÞETTA GERÐIST: 18. JÚNÍ 1940
Charles de Gaulle ákallar þjóð sína
DE GAULLE TALAR FRÁ LONDON
Már Vilhjálmsson, rektor Menntaskól-
ans við Sund, er vanur að halda upp á
afmælið sitt. Í dag ætlar hann ekki að
bregða út af venjunni og býður vinum
sínum í veislu í tilefni fimmtugsaf-
mælisins.
„Mér þykir alltaf gaman að hafa
boð. Maður á ekki mörg stórafmæli,
ekki af þessari stærðargráðu,“ segir
Már. Honum líður vel með tímamótin
og bendir á að þegar aldurinn er ann-
arsvegar sé ekkert öruggt. „Ég er nú
voðalega þakklátur að ná því að verða
fimmtugur. Í raun er ekki sjálfgefið að
maður nái þeim aldri, svo þetta er bara
gleðitilfinning,“ segir Már. „Lífið verð-
ur sífellt betra,“ bætir hann svo við.
Aðspurður segist hann eiga margar
góðar minningar frá fyrri afmælisdög-
um sínum. Sérstaklega eru Má eftir-
minnilegir afmælisdagarnir þegar
hann var yngri því afmæli föður hans
bar upp á sama dag. „Faðir minn dó
þegar ég var ungur þannig að ég reyni
að halda í minninguna frá þeim tíma.“
Önnur afmæli á fullorðinsárum eru
Má föst í minni. „Þegar ég varð fertug-
ur var haldin veisla sem ég vissi ekk-
ert af. Konan mín undirbjó hana og
kom mér verulega mikið á óvart með
tónlist og fullu húsi af fólki.“ Einnig er
Má eftirminnilegur afmælisdagurinn
árið 1985. „Þá varði ég lokaritgerð
mína við Hafnarháskóla og það féll
saman, afmæli og ritgerðarvörnin. Það
var var mjög skemmtilegur tími en
samt skrítið því í aðdragandanum
mundi ég ekkert eftir afmælisdegin-
um, enda upptekinn af öðru,“ segir
Már.
„Annars hafa allir afmælisdagar
mínir verið góðir. Á sumum hefur ekk-
ert tilstand verið en bara notalegt að
halda upp á daginn með ástvinum
sínum.“ Már segir þó að sumir haldi
því fram að átjándi júní sé versti
afmælisdagur ársins því þá liggi þjóð-
in öll í timburmönnum. „Það hefur þó
aldrei háð mér,“ bætir hann svo við.
Sumarafmælin sem slík hafa einnig
bæði kosti og galla. „Fólk er mikið á
ferðalögum á þessum tíma og getur
stundum verið erfitt að hóa fólki saman
vegna árstímans.“
MÁR VILHJÁLMSSON: FIMMTUGUR Í DAG
Lífið verður sífellt betra
MÁR VILHJÁLMSSON REKTOR MENNTASKÓLANS VIÐ SUND Sumir hafa haldið því fram við Má að átjándi júní sé versti afmælisdagur ársins enda liggi öll
þjóðin þá í timburmönnum. Það hefur þó ekki háð Má sem segir að allir afmælisdagar hans hafi verið góðir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Elskulegur faðir okkar,
Pétur Þorbjörnsson
skipstjóri, Skúlagötu 20, Reykjavík,
sem lést 8. júní sl. á Landspítalanum við
Hringbraut verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði mánudaginn 19. júní kl. 15.00. Þeim sem
vildu minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélagið.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg frænka okkar,
Sigríður Lárusdóttir
hattagerðar- og kaupkona,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
lést þriðjudaginn 13. júní. Útförin fer fram frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 21. júní kl. 13.00. Blóm og
kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en bent er á
Styrktarsjóð Sigríðar Lárusdóttur sem er í umsjá
Styrktarsjóða Háskóla Íslands.
Sigrún Magnúsdóttir Declan Kelleher
Gunnar Þorvaldsson Katrín Pálsdóttir
Birkir Baldvinsson Guðfinna Guðnadóttir