Fréttablaðið - 18.06.2006, Side 82
18. júní 2006 SUNNUDAGUR38
LANGAR ÞIG Í EINTAK?
Sendu SMS skeytið BTC KEF á númerið 1900
Þú gætir unnið!
Vinningar eru:
• Keane - Under The Iron Sea
• Keane - Live Recordings 2004 EP
• Keane - Strangers DVD
• Pepsi kippur • DVD myndir
• Fullt af öðrum geisladiskum og margt fleira
SM
S
LE
IKU
R
V
in
ni
ng
ar
v
er
ða
a
fh
en
d
ir
hj
á
B
T
S
m
ár
al
in
d
. K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t
er
tu
k
om
in
n
í S
M
S
k
lú
b
b
. 1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
10. hver vinnur!
HANDBOLTI Það ríkti sannkölluð
þjóðhátíðarstemning í Laugar-
dalshöllinni og íslenskir áhorfend-
ur sýndu að þeir geta staðið vel
við bakið á sínu liði allan leikinn.
Strákarnir eru ekki vanir slíkri
umgjörð og látum á Íslandi og var
ekki laust við að smá skrekkur
væri í þeim.
Leikurinn byrjaði nákvæmlega
eins og fyrri leikur liðanna í Sví-
þjóð. Eini munurinn var sá að það
var Tomas Svensson sem varði öll
skot íslenska liðsins en síðast var
það Peter Gentzel og rétt eins og í
fyrri leiknum komst Svíþjóð í 3-0
áður en Ísland komst á blað. Það
mark kom úr vítakasti frá Snorra
Steini Guðjónssyni þegar tæpar
sjö mínútur voru búnar af leikn-
um. Íslenska liðið tók við sér í
kjölfarið og komst yfir, 4-3, en
Svíar tóku fljótt frumkvæðið aftur
og héldu því út hálfleikinn.
Það gátu þeir þakkað Svensson
og íslensku markvörðunum sem
vörðu ekki skot fyrr en eftir rúmar
18 mínútur. Varnarleikurinn var
rétt eins og í fyrri leiknum mjög
góður og hefði markvarslan fylgt
með hefði liðið leitt leikinn.
Sóknarleikurinn í fyrri hálfleik
var þó áhyggjuefni en Arnór Atla-
son var fjarri sínu besta og ógnaði
lítið, Snorri fékk of lítinn tíma til
þess að komast í takt við leikinn,
Ólafur var seinheppinn í leik-
stjórnandahlutverkinu og skot
Einars gengu ekki líkt og í fyrri
hálfleik. Strákarnir voru þar að
auki ekki nógu þolinmóðir og
völdu ekki nógu góð skot. Það var
bót í máli að Svíar leiddu aðeins
með tveimur mörkum í leikhléi,
12-10, og mikið taugastríð fram-
undan í síðari hálfleiknum.
Hann byrjaði alveg skelfilega
hjá íslenska liðinu. Gentzel kom í
markið, byrjaði að verja eins og
brjálaður maður. Eftir aðeins átta
mínútur í síðari hálfleik náðu
Svíar fimm marka forystu, 12-17,
og fór þá um áhorfendur í Höll-
inni.
Strákarnir rönkuðu þá við sér
og fóru að taka almennilega á hlut-
unum eftir nokkuð hálfkák þar á
undan. Um leið vann liðið sig inn í
leikinn en taugastríðið hélt áfram
enda munurinn 2-4 mörk og lítið
sem mátti út af bregða. Vörn
Íslands hélt áfram að spila vel og
litlir þrír boltar varðir hjá Birki
Ívari hjálpaði mikið. Ísland saxaði
smám saman á forskotið og allt
ætlaði um koll að keyra þegar
Ólafur Stefánsson jafnaði metin,
22-22, sjö mínútum fyrir leikslok.
Þegar íslenska þjóðin var
eflaust byrjuð að skoða flugtilboð
til Þýskalands dundi yfir enn eitt
áfallið. Staðan var þá 23-23 og
fimm mínútur eftir. Þá missti
íslenska liðið þrjá leikmenn af
velli á svo gott sem einu bretti og
vonarglæta fyrir Svía eftir allt. Þá
steig Birkir Ívar Guðmundsson
upp, varði skot frá Lindahl og í
raun tók hann tvö skot á þessum
kafla þar sem Ísland fékk aðeins
eitt mark á sig og staðan 23-24.
Þar með var björninn unninn.
Ísland reyndi að „stela“ sigrinum
undir lokin en það gekk ekki og
skipti engu máli því strákarnir
voru búnir að tryggja sig inn á
HM.
Frammistaða liðsins í þessu
einvígi var mögnuð og Ísland er
vel að sigrinum komið. Alfreð
hefur tekist að gera ótrúlega hluti
með varnarleikinn á stuttum tíma
og hann er grunnurinn að þessum
árangri. Alexander, Sigfús og
Sverrir voru ótrúlega sterkir í
vörninni og Guðjón Valur var dug-
legur að trufla þar fyrir framan.
Markvarslan var ekki viðunandi
en mönnum fyrirgefst ansi mikið
þegar þeir taka bolta eins og Birk-
ir gerði undir lokin. Sóknarleikur-
inn var óvenju slakur en strákarn-
ir í þessu liði sýndu enn og aftur
gríðarlega karakter og rifu sig
upp þegar þeir voru komnir í öng-
stræti.
Það er óhætt að óska þjóðinni
til hamingju því við erum loksins
komin með betra handboltalands-
lið en Svíar. Það var viðeigandi að
holgdgervingur Svíagrýlunnar,
Staffan „Faxi“ Olsson, væri við-
staddur jarðarför grýlunnar. Hann
kaus að tjá sig ekki við Fréttablað-
ið eftir leikinn enda hundfúll.
Landslið Íslands í dag er klár-
lega eitt það besta sem Ísland
hefur átt fyrr og síðar. Hvort því
tekst að skrá nafn sitt rækilega í
sögubækurnar kemur í ljós í
Þýskalandi í janúar en efniviður-
inn er svo sannarlega fyrir hendi
og með Alfreð Gíslason við stjórn-
völinn er í lagi að vera bjartsýnn á
HM í Þýskalandi og framtíð
íslensks handbolta.
henry@frettabladid.is
Eftirminnileg jarðarför Svíagrýlunnar
Svíagrýlan var endanlega kveðin í kútinn í gær. Íslendingar eru loksins orðnir betri en Svíar í handbolta.
Strákarnir okkar tryggðu sér farseðil á HM í Þýskalandi í janúar í gær þrátt fyrir eins marks tap, 25-26, gegn
Svíum í mögnuðum leik þar sem taugar leikmanna og frábærra áhorfenda voru þandar til hins ítrasta.
LITADÝRÐ Umgjörðin á leiknum í gær var
stórkostleg. FRÉTTABLAÐIÐVILHELM
VIÐ ERUM Á LEIÐ Á HM Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, faðmar hér dauðþreytt-
an Guðjón Val Sigurðsson á gólfi Laugardalshallarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI Markvörðurinn Birkir
Ívar Guðmundsson steig upp svo
um munaði undir lok leiksins
þegar Ísland missti þrjá leikmenn
af velli í stöðunni 23-23. Birkir
varði tvo bolta og fékk eitt mark á
sig á þeim tíma og eftir það var
aldrei spurning hvernig einvígið
endaði.
„Þetta er klárlega með mikil-
vægustu boltum sem ég hef varið
á ævinni. Ég var mjög sigurviss á
þessari stundu sem við misstum
mennina út af og ég vissi að ég
myndi verja næsta skot. Var alveg
klár á því. Sá sem fór inn er ekki
mjög leikreyndur og ég náði að
veiða hann í að skjóta á nærstöng-
ina. Þetta var verulega ljúft og
ótrúlegt að leggja þetta sænska
lið,“ sagði Birkir Ívar. - hbg
Birkir Ívar Guðmundsson:
Vissi ég myndi
verja
ÞAÐ VAR LAGIÐ Birkir fagnar hér eftir að
hann varði skot Lindahls er Ísland var þrem
mönnum færri. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI „Þetta er ótrúlega ljúft
og mikill léttir. Það er yndislegt að
hafa geta orðið að liði og hjálpað
strákunum, mér sjálfum og hand-
boltanum gangangi. Þetta verður
fyrsta almennilega Heimsmeist-
aramótið í handbolta sem haldið
verður núna í Þýskalandi og það
er algjör klassi að ná að komast
þangað,“ sagði vígreifur Ólafur
Stefánsson eftir leikinn.
„Leikur okkar var ekki sá besti
í dag en svona er þetta oft þegar
mikil spenna er í kringum leikina.
Það var mjög mikið í húfi en við
sýndum mikinn karakter í því að
klára þetta þrátt fyrir að á móti
hafi blásið undir lokin,“ bætti
kampakátur Ólafur við. - hþh
Ólafur Stefánsson:
Ótrúlega ljúft
LEIÐTOGI Ólafur Stefánsson skipaði félög-
um sínum látlaust fyrir í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI „Þetta er alveg stór-
kostlegt. Ég hélt að ég væri að
fara með þetta þegar ég hélt áfram
að klikka og klikka enda sá ég að
munurinn var alltaf það sem ég
klúðraði. Sem betur fer er ég með
frábæra liðsfélaga sem geta leyft
manni að eiga ömurlegan dag en
ná samt að njóta þessa yndislega
augnabliks,“ sagði Róbert Gunn-
arsson en hann skoraði fjögur
mörk úr sjö skotum og var langt
frá því að vera slakur í leiknum.
„Við vorum í miklu stressi en
þeir áttu engin svör við þessu hjá
okkur. Ég vona að þetta lyfti hand-
boltanum í heild sinni hér á Íslandi
og að handboltinn verði aftur
númer eitt. Stemningin í höllinni
var stórkostleg og ég hef aldrei
upplifað svona áður, vona á þetta
alltaf að vera,“ sagði Róbert. - hþh
Línumaðurinn Róbert Gunnarsson var í skýjunum eftir leikinn:
Svíarnir áttu engin svör
FÖLSKVALAUS GLEÐI Hornamennirnir Guðjón Valur og Alexander Petersson töpuðu sér í
fagnaðarlátunum eftir leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI „Það var ólýsanleg upp-
lifun að taka þátt í þessum leik og
ég hef aldrei lent í öðru eins,“
sagði varnartröllið Sverrir Björns-
son sem átti frábæran leik í
íslensku vörninni.
„Þetta var ævintýri og erfiður
leikur fyrir okkur. Við höfðum
trúna og ég held að ekki nokkur
maður hafi efast um að við mynd-
um ekki klára dæmið. Við höfðum
gríðarlega trú á okkar og börð-
umst fyrir þessu. Það hefði verið
gaman að vinna en við sættum
okkur við HM í staðinn,“ sagði
Sverrir og hló. - hbg
Sverrir Björnsson:
Við höfðum
trúna
SVEITTUR OG GLAÐUR Sverrir Björnsson
stóð sig vel. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL