Fréttablaðið - 18.06.2006, Side 86
18. júní 2006 SUNNUDAGUR42
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
FRÉTTIR AF FÓLKI
Athygli vakti þegar hinn ungi Jónas Örn Helgason lýsti því yfir að hann
hygðist gefa hluta verðlaunafjárins
sem hann vann í Meistaranum. Hinn
21 árs gamli verkfræðinemi varð fimm
milljónum krónum ríkari og ætlaði að
eyða stærstum hluta þess í nýja íbúð en
Jónas Örn stóð engu að síður við stóru
orðin og fyrir nokkru afhenti hann Hjálp-
arstofnun kirkjunnar og
Rauða Krossins fimm
hundruð þúsund
krónur sem skiptust
jafnt á milli þeirra.
Afhendingin fór fram í
höfuðstöðvum Glitnis
og veittu þeir Jónas
Þórir Þórisson, fram-
kvæmdastjóri Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar,
og Kristján Sturlu-
son, fram-
kvæmdastjóri
Rauða
krossins,
fénu
viðtöku.
Íslendingar eru mjög spenntir fyrir Hróarskelduhátíðinni enda hafa
aldrei selst jafnmargir miðar á hátíðina
hérlendis. Fjölmargir hafa sótt hátíðina
um árin enda eru margir sem telja hana
eiga engan sinn líka. Íslenskir þátttak-
endur hafa jafnan haldið hópinn og
er ekki ósennilegt að einhverjir verði
með kassagítarinn á lofti í tjöldum á
hátíðarsvæðinu. Reyndar vekur þessi
mikla miðasala athygli og er freistandi
að álykta sem svo að áhuginn á að
sjá hljómsveitir á borð við Sigur Rós
sé ein af aðalástæðunum. Hitt er hins
vegar ennþá forvitnilegra að íslenskum
tónleikahöldurum hefur
ekki tekist að fá sam-
landa sína til að berja
erlendar hljómsveitir
augum því bæði Iggy
Pop og sonur Frank
Zappa neyddust til að
flytja sig í Hafnarhúsið
vegna dræmrar miðasölu.
Þá var Reykjavik Rocks-
hátíðin slegin af og
eini maðurinn
sem hefur fyllt
Laugardalshöll-
ina er sjálfur
kóngurinn,
Bubbi Mort-
hens.
- fgg
HRÓSIÐ FÁ
... aðstandendur sýningarinnar
Pétur Gautur fyrir glæsilega
frammistöðu á Grímunni.
Hvað er að frétta?
Allt gott – hljómsveitin mín
Bermuda er á fullu að semja og
spila út um allt land, við vorum til
dæmis á Hressó 17. júní og það
var heilmikið fjör.
Bermuda var líka að gefa út
lagið „Fegurðargenið er fundið“
og ég hef verið að reyna að finna
Kára Stef síðustu dagana til þess
að fá hann til að leika „brjálaða
vísindamanninn“ í vídeóinu sem
við erum að fara að gera við
lagið, en það er erfitt að finna
karlinn.
Augnlitur?
Blár/brúnn. Hægra augað er brúnt
en það vinstra er blátt.
Starf?
Ég vinn hjá Kreditkortum hf. og
er trommari og umboðsmaður
hljómsveitarinnar Bermuda. Svo
er ég fastamaður í Lúðrasveitinni
Braki og brestum úr Mosfellsdal.
Fjölskylduhagir?
Er í sambúð og á einn fimm mán-
aða strák sem heitir Halldór Ásgeir.
Hvaðan ertu?
Ég er úr Mosfellssveit nánar tiltekið
úr Arkarholti.
Uppáhaldsmatur?
Heilsteikt nautalaund à la ég sjálf-
ur með bernaise à la Daði Georgs
sem er einnig uppáhalds-mixer-
maðurinn minn.
Annars eru kærastan mín, Hjörtur
bróðir, Anna systir og mamma
langbestu kokkarnir á Íslandi. Allur
matur hjá þeim er í uppáhaldi hjá
mér.
Fallegasti staður?
Mosfellssveitin eins og hún leggur
sig ...en svo er líka gott að búa í
Kópavogi... hmm, jæja, ég myndi
segja að Þingvellir séu með því
fallegasta sem ég hef séð nýlega
en þar fór ég um á hesti fyrir fáum
dögum í úrhellisrigningu, það var
ógleymanleg sjón.
Mestu vonbrigði?
Þau nýjustu eru að fá ekki að
spila á 17. júní á stóra sviðinu.
Annars er lífið bara þannig að það
skiptast á skin og skúrir þannig
að það er engu að kvíða, bara
sætta sig við það.
Hvað fer mest í taugarn-
ar á þér?
Þegar innihaldslausu
kjaftæði í fallegum
umbúðum er haldið
að fólki. Það er allt of
algengt í dag. Menn
eru alltaf að afbaka
raunveruleikann – það
veldur dofa.
Uppáhaldsbók?
The Richest Man In Babylon.
HIN HLIÐIN Á GUNNARI REYNI ÞORSTEINSSYNI TROMMARA Í BERMUDA
Með augun hvort í sínum lit
Hljómsveitin Sniglabandið verður
með vikulega skemmtiþætti eftir
hádegi á sunnudögum á Rás 2 þar
sem sveitin bregður á leik í beinni
útsendingu með alls konar sprelli
undir dyggri stjórn útvarpsmanns-
ins Magnúsar Einarssonar. Þetta
er fimmta sumarið sem hljóm-
sveitin skemmtir hlustendum
stöðvarinnar sem geta hringt inn
og beðið sveitina um óskalög
sem hún svo spilar í beinni.
Auk óskalaganna verða ýmsir
fastir liðir á boðstólum eins
og hljóðfæri dagsins, pistill
vikunnar, útvarpsleikrit og í
lok hvers þáttar geta hlust-
endur komið með uppskrift
að lagi sem hljómsveitin flyt-
ur svo í næsta þætti.
Það er annars nóg um að
vera hjá sveitinni. Innan skamms
kemur út tvöföld geislaplata sem
á eru skemmtileg brot úr þáttum
Sniglabandsins á árunum 2003-
2004 auk sautján nýlegra laga.
Sniglabandið verður einnig
eitthvað á ferð um landið í
sumar og spilaði sveitin á þjóðhá-
tíðarballi á Akureyri á skemmti-
staðnum Rocco, sem gekk áður
undir nafninu Oddvitinn. Í
skemmtiþætti dagsins í dag mun
sveitin senda beint út frá
skemmtistaðnum og Akur-
eyringum gefst kostur á
að mæta á staðinn og biðja
um óskalög og jafnvel
syngja í beinni með
hljómsveitinni. Þáttur-
inn er á dagskrá milli
kl. 14 og 16 svo það er
bara að hrista af sér
þjóðhátíðardagsþynn-
kuna og mæta á svæðið.
Sniglabandið leikur óskalög
fyrir Akureyringa
SNIGLABANDID Ætlar að
skemmta Norðlendingum
með lifandi tónlist á Rás 2.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Nýstofnað vefrit, Orðið á götunni (ordid.blog.is), hefur vakið athygli
fyrir fréttaskýringar og slúður úr heimi
stjórnmálanna. Greinilegt er að ötulir
menn standa á bakvið
vefinn því hann er
uppfærður oft og vel.
Enn sem komið er
hefur enginn gengist
við ritinu opinberlega
en netlöggur þessa
lands þykjast merkja
fingraför ungkratans
Andrésar Jóns-
sonar á vefnum,
en Andrés þykir
búa yfir prýðilegu
tengslaneti.
Sjónvarpsstöðin Sirkus hefur ekki farið troðnar slóðir í dagskrárgerð
sinni en sitt sýnist hverjum um þá þætti
sem hún hefur boðið upp á. Nýlega var
tilkynnt að hún hygðist leita að tveimur
dagskrárgerðarmönnum sem eiga að
kanna hina ýmsu króka og kima íslensks
samfélags. Samkvæmt fréttatilkynningu
frá stöðinni, sem Guðmundur Arnar
Guðmundsson kynningarstjóri Sirkus
sendi út í gær, eiga þættirnir að gefa
áhorfendum kost á því að kynnast
lífi ólíkra hópa í Reykjavík. „Meðal
hlutverka sem þáttastjórnendur fara í
er að vera í einn dag útigangsmaður,
sjómaður, lögga og rappari, svo eitthvað
sé nefnt,” segir í fréttatilkynningunni.
Athygli vekur að stöðin notar það sem
gul- rót að framleiðendur
þáttanna eru þeir sömu
og gerðu Idol Extra
og Idol Extra Live en
lítið fór fyrir þeim
þegar Idol-æðið gekk
yfir. Áhugasamir, sem
hafa ekki áhuga á að
reyta arfa í sumarblíð-
unni, geta farið
inn á www.
minnsirkus.
is/pipola.
-fgg/bs
„Þetta kom mér mjög á óvart og
mér datt ekki í hug að ég mundi
taka þetta enda fannst mér hinir
sem voru tilnefndir líklegri til
vinnings,“ segir Hugleikur Dags-
son en hann var valinn leikskáld
ársins á uppskeruhátíð leikhúss-
ins, Grímunni, á föstudag fyrir
sýninguna Forðist okkur. Sýningin
var sett upp í samvinnu við leik-
hópinn Common Nonsense og
nemendaleikhúsið í Borgarleik-
húsinu. Verkið vann einnig til
verðlauna danshöfundarverð-
launa ársins, en það var Ólöf Ing-
ólfsdóttir sem sá um dans og
hreyfingar í verkinu.
Hugleikur hefur vakið mikla
athygli fyrir skemmtilegar og
kaldhæðnar myndasögur, en
bækurnar Forðist okkur, sem er
safnrit, og Fermið okkur komu út
hjá JPV útgáfunni og hafa bæk-
urnar slegið í gegn. „Ég er með
eina myndasögu í vinnslu sem
kemur út í ágúst. Hún ber nafnið
Eineyðgi kötturinn Kisi og hnakk-
arnir, og er ég að vinna í henni
núna.“
Hugleikur ætlar að staldra við
innan leikhússins og er þessa dag-
ana að skrifa söngleik sem ber
nafnið Leg og fjallar um unga
ófríska stúlku. Leikritið átti upp-
haflega að vera myndasaga á
ensku með heitinu Abortion en
Hugleikur ákvað að breyta henni
yfir í söngleik. „Þetta var hug-
mynd sem ég og Davíð Þór Jóns-
son, sem sá um tónlistina í Forðist
okkur, vorum búnir að vera með í
maganum lengi og ákváðum láta
slag standa í vor enda vinnum við
vel saman.“ Sýningin verður sett
upp í Þjóðleikhúsinu og er það í
fyrsta sinn sem Hugleikur vinnur
í elsta leikhúsi landsins og líkar
honum það vel.
Þetta snjalla leikskáld ætlar
ekki að leggja land undir fót í
sumar enda hefur hann í mörgu
að snúast og ætlar hann ekki að
halda upp sigurinn eitthvað sér-
staklega. „Ætli ég horfi ekki á
bresku þættina A bit of Fry and
Lorry, snilldarþætti sem mér
voru að áskotnast og kannski ég
fái mér eitthvað kjöt að borða um
helgina,“ segir Hugleikur ánægð-
ur með titilinn leikskáld ársins.
alfrun@frettabladid.is
HUGLEIKUR DAGSSON: VALINN LEIKSKÁLD ÁRSINS Á GRÍMUNNI
Staldrar við innan veggja
leikhússins
FORÐIST OKKUR Sýningin hefur vakið mikla
athygli og vann til tveggja verðlauna á
Grímunni sem haldin var á föstudaginn.
Á FRAMTÍÐINA FYRIR SÉR Hugleikur Dagsson hefur mörg járn í eldinum, meðal annars
myndasögu og söngleik sem settur verður upp í Þjóðleikhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
27.03.
1973
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Pétur Gautur
2 Jaap de Hoop Scheffer
3 Framtíðarlandið