Fréttablaðið - 31.07.2006, Blaðsíða 46
31. júlí 2006 MÁNUDAGUR28
Bessastaðastofa var
byggð á árunum 1761
til 1766. Það var danska
stjórnin sem lét byggja
húsið en kostnaðurinn
nam 4.292 ríkisdölum og 77 skildingum. Engar teikningar hafa fundist af
Bessastaðastofu en talið er að húsameistarinn Jakob Fortling hafi teiknað
hana. Á árunum 1805 til 1846 var Hólavallaskóli til húsa í Bessastaðastofu.
Árið 1867 eignaðist skáldið og þingmaðurinn Grímur Thomsen húsið og bjó
þar í tæp tuttugu ár. Þá fjárfesti Landsbanki Íslands í húsinu og tveimur
árum síðar keypti Skúli Thoroddsen ritstjóri og alþingismaður það. Þar bjó
hann ásamt fjölskyldu sinni í tíu ár. Eftir það bjuggu Jón H. Þorbergsson
bóndi, Björgúlfur Ólafsson læknir og Sigurður Jónasson forstjóri í Bessa-
staðastofu en sá síðarnefndi afhenti ríkinu Bessastaði sem gjöf árið 1941
svo þar mætti verða bústaður ríkisstjóra og síðar forsetasetur.
„Draumahúsið væri í gamla Vesturbænum enda eru það æskuslóðirnar,“ segir
Stefán Hallur en hann er þessa dagana að æfa leikritið „Afgangar“ ásamt Elmu
Lísu Gunnarsdóttur í leikstjórn Agnars Jóns Egilssonar. Hann leikur einnig í
leikritinu „Penetreitor“ ásamt félögum sínum í leikhópnum „Vér morðingjar“,
en það hefur gengið vonum framar og eru fyrirhugaðar að minnsta kosti fjórar
sýningar í ágúst. Það vefst ekki fyrir Stefáni Halli hvernig draumahúsið ætti að
líta út.
„Þetta yrði að vera risíbúð þar sem ég hef búið lengi í kjallara og er kominn
með nóg af því. Útsýni er vanmetinn munaður og helst myndi ég vilja vera
með útsýni yfir hafið enda er það skemmtilegra en að horfa á næsta bíl út um
gluggann sinn. Það væri ekkert verra að það væri leikvöllur fyrir utan húsið til
að strákurinn minn gæti leikið sér og það væri fínt að hafa hann í kallfæri til
að geta fylgst almennilega með honum,“ segir Stefán Hallur.
Stefán Hallur hefur verið gagnrýndur fyrir að vera lélegur að nýta sér
gömlu hlutina í innbúið en hann á það til að missa sig í kaupum á nýjum
hlutum með kreditkortið að vopni. „Ég myndi líklega missa mig í búðum eins
og „Seating concept“ á Laugaveginum og svo myndi ég skella hornbaðkari
með nuddi í baðherbergið þar sem að minnsta kosti þrír myndu komast
fyrir. Svo yrði nuddpottur og gufubað ofan á þakinu á risinu og þar yrði legið
og horft á stjörnurnar þessa tvo daga á ári sem er gott veður,“ segir Stefán
Hallur að lokum.
DRAUMAHÚSIÐ MITT: STEFÁN HALLUR STEFÁNSSON LEIKARI
Nauðsynlegt að hafa hornbaðkar
Stefán Hallur Stefánsson leikari vill búa í Vestur-
bænum.
Vísitala fasteignaverðs hækk-
aði lítillega í júní.
Vísitala fasteignaverðs á höfuð-
borgarsvæðinu mældist 309 stig í
júní og hækkaði um 0,6 prósent
frá fyrra mánuði, að því er grein-
ingardeild Landsbankans greinir
frá. Hækkunin í júní er þó undir
meðaltali hækkana síðustu sex
mánaða því það er eitt prósent.
Því er ljóst að heldur hefur hægt
á hækkunum þó augljóslega sé
fasteignamarkaðurinn líflegur
ennþá. Hjá greiningardeildinni
kemur fram að fasteignaverð
hefur hækkað um 13,1% síðast-
liðna tólf mánuði en 0,6% hækkun
á mánuði samsvarar 7,4% hækk-
un á ársgrundvelli.
Verð á sérbýli hækkaði um
1,3% á milli mánaða í júní en fjöl-
býli hækkaði um 0,4%. Sérbýli
hefur hækkað um 10,2% það sem
af er ári en fjölbýli um 4,5%.
Enn hækkar
verðið
ECC Skúlagötu 63 – Sími 511 1001
GASGRILL smíðað úr ryðfríu stáli • Fjórir massívir brennarar úr pottjárni 18,4KW/h • Grindur yfir
brennurum úr áli • Grillteinn og rafmagnsmótor • Ábreiða • Hágæða elektronískur kveikjari • Tvö sett
af grillgrindum annarsvegar úr krómuðu stáli og hinsvegar úr pottjárni (ein heil plata) • Skápur fyrir
gaskútinn og tvær stórar skúffur • 4 hjól 2 með bremsu • Skúffa í fullri stærð undir brennurum sem
tekur við fitu • Skúffa á hliðarborði til að geyma t.d. krydd og drykki • Hitamælir á loki • Grillflötur 78
x 46cm • Utanmál með lokið niðri H:124cm B:159cm D:59cm • Afhent samsett ef óskað er.
BESSASTAÐA-
STOFA
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
9/6-
15/6
120
16/6-
22/6
202
23/6-
29/6
117
30/6-
6/7
121
7/7-
13/7
116
14/7-
20/7
126