Fréttablaðið - 31.07.2006, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 31.07.2006, Blaðsíða 54
N-Sync meðlimurinn fyrrverandi, Lance Bass, er kominn út úr skápn- um. „Ég var í þessari rosavinsælu hljómsveit og vissi að frami fjög- urra annarra stráka væri í mínum höndum. Ég vissi að ef ég hegðaði mér einhvern tímann eins og hommi eða ljóstraði því upp að ég væri samkynhneigður myndi það setja allt úr skorðum,“ sagði Lance, sem faldi kynhneigð sína fyrir vinum og vandamönnum þar til nýlega. Söngvarinn er nú 27 ára en N-Sync gerði allt vitlaust fyrir tíu árum og er Justin Timberlake sá hljómsveitarmeðlimur sem hefur náð mestum frama í tónlistar- bransanum. Bass hefur reynt fyrir sér sem leikari, framleiðandi og í geimflugi eftir að N-Sync hætti árið 2002. Bass er nú að vinna að framhaldsþættir með Fatone úr N- Sync en í þeim mun Bass leika homma. Hann er nú með leikaran- um og módelinu Reichen Lehmkuhl sem er þekktur fyrir að hafa sigr- að í Amazing Race raunveruleika- þættinum. „Ég skammast mín ekki, það er það eina sem ég vil segja,“ sagði Bass í viðtali við People. „Ég er frjálsari og ham- ingjusamari en nokkurn tímann. Ég er bara hamingjusamur.“ Lance Bass samkynhneigður LANCE BASS OG JOEY FATONE Félagarnir úr N-Sync vinna nú saman að framhaldsþáttum. Leikkona unga, Scarlett Johans- son, hefur skrifað undir milljóna samning við íþróttavörumerkið Reebok. Johansson mun koma fram í auglýsingum fyrir merkið og einnig hefur hún samþykkt að hanna eigin íþróttavörulínu sem verður byggð á gamaldags íþrótta- fötum. Forsvarsmenn Reebok eru mjög ánægðir með þennan samn- ing og segja að Scarlett sé heims- þekkt fyrir góðan fatasmekk og að hún sé innblástur fyrir ungar konur. Nýja línan hennar Scarlett mun koma í verslanir vorið 2007. Reebok er þar með að feta í fótspor annarra íþróttamerkja á borð við Adidas og Puma sem hafa fengið heimsþekkta ein- staklinga eins og Stellu McCartn- ey og Alexander McQueen til liðs við sig. Scarlett andlit Reebok SCARLETT JOHANSSON Þessi unga leikkona er nýja andlit íþróttavörumerkisins Reebok og mun hún einnig hanna sína eigin línu sem kemur í verslanir í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Spjallþáttastjórnandinn David Letterman hefur boðið þeim stall- systrum Paris Hilton og Nicole Richie að vera gestir í þættinum hans, saman. Stúlkurnar eru búnar að vera óvinkonur í tvö ár og hafa þær báðar neitað að tala um hver var valdurinn að óvinsemd þeirra. Richie og Hilton leika báðar í sjón- varpsþáttunum „Simple Life“ en tökuliðið á fullt í fangi með að láta þær tvær ekki hittast á meðan á tökum stendur. Letterman hefur boðist til þess að vera friðarstillir milli stallanna en þær eiga ennþá eftir að gefa honum svar. Sættast í Letterman Á MEÐAN ALLT LÉK Í LYNDI Paris og Richie voru óaðskiljanlegar en svo kom eitthvað mikið upp á og hafa þær verið óvinkonur í tvö ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES Í Noregi er nú komin á markað ný kaffitegund sem á að virka grenn- andi. Norska þjóðin hefur eins og sú íslenska verið að fitna svo þetta eru gleðitíðindi fyrir þá kaffiunn- endur sem vel mega við því að missa nokkur kíló. Kaffitegund þessi heitir CoffeeSLENDER og segja framleiðendur að í kaffi- bauninni leynist efni sem nýta megi til að stýra blóðsykrinum og minnka líkamsþyngdina. Undra- kaffi þetta er líka selt í töfluformi en mönnum er ráðlagt að drekka þrjá bolla af kaffinu á dag eigi það að gera eitthvað gagn. Norðmenn grenna sig með kaffi MEGRUNARKAFFI Kaffidrykkjumenn geta nú huggað sig við það að kaffið eigi eftir að gera þá léttari. Patti Smith mun halda tónleika á Íslandi 5. september í Háskólabíói og verða þeir með öðru sniði en tónleikar rokkgyðjunnar fyrir ári síðan á Nasa. Tónleikarnir í Háskólabíói verða órafmagnaðir og einnig mun Smith fara með vel valin ljóð en hún hefur vakið mikla athygli erlendis fyrir „spoken word“. Patti Smith er eitt af stóru nöfnunum í rokksögunni og ferill hennar spannar þrjátíu ár, en hún er bæði rokkari, ljóð- skáld, leikari og ljósmyndari. Með Patti kemur tónlistarmaðurinn Lenny Kayei. Miðasala hefst í byrjun ágúst á www.miði.is og í verslunum Skífunnar í Reykjavík og BT á Akureyri, Selfossi og Egilsstöðum. Um 900 miðar verða í boði og selt verður í númeruð sæti á tveimur svæðum. Patti kemur aftur PATTI SMITH Tónleikar söngkonunnar á Íslandi í fyrra fengu frábæra dóma. SILENT HILL kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 8 og 10.40 ULTRAVIOLET kl. 4.50 og 8 B.I. 12 ÁRA OVER THE HEDGE ÍSL. TAL kl. 3 og 5 OVER THE HEDGE ENSKT TAL kl. 3, 5, 7 og 9 SÝND Í LÚXUS ENSKT TAL kl. 3 og 5 STICK IT kl. 3, 5.30, 8 og 10.20 CLICK kl. 10.10 B.I. 10 ÁRA RAUÐHETTA ÍSL. TAL kl. 3 SILENT HILL kl. 5.20, 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA STORMBREAKER kl. 6 og 8 THE BENCHWARMERS kl. 8 og 10 B.I. 10 ÁRA CLICK kl. 5.30, 8 og 10.10 B.I. 10 ÁRA DA VINCI CODE kl. 5 og 10 B.I. 14 ÁRA SILENT HILL kl. 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA STORMBREAKER kl. 6, 8 og 10 STICK IT kl. 6 !óíbí.rk004 Gildir á allar sýnin gar í Regnboganum me rktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 50.000 MANNS BYGGÐ Á VINSÆLUSTU BÓK Í HEIMI! Magnaður Sci-Fi spennutryllir! Blóðstríðið er hafið!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.