Tíminn - 06.01.1978, Síða 9

Tíminn - 06.01.1978, Síða 9
Föstudagur 6. janúar 1978 9 WtMWW Ctgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Kvöldsimar bíaðamanna: 86562, 86495. Eftij- kl. 20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 80.00. Askriftargjald kr. 1.500 & mánuði. Blaðaprent h.f. „Þá upphófst fj árf es tingaræði’ ’ Á miðvikudaginn var forystugrein i Visi um villur á vegi stjórnlistarinnar. Þótt enginn hörgull sé á slikum dæmum i islenzkri stjórnmálasögu, fer Visi likt og kerlingunni i sögu Halldórs Laxness, er villt- ist á bæjarhlaðinu heima hjá sér og kom fram i ann- arri sveit. Það er vinstristjórnin sem gerir Visishöfundinum þessa ofbirtu i augu. Hann færir það til ódæma, að á fyrsta valdaári hennar jókst fjárfesting um 42% — „þá upphófst hér eins konar fjárfestingaræði, sem staðið hefur nær óslitið siðan”, segir Visir. Þvi er bætt við, að á þessum árum hafi mest munað um at- vinnuvega- og ibúðafjárfestingu. Skárri var það villan, að afla atvinnutækja, svo að fólk ætti þess kost að vinna nytsöm störf, og stuðla að þvi, að unga kynslóðin og þeir, sem bjuggu i gömlu og úr sér gengnu húsnæði, gætu komið sér upp iveruhúsum, sem til frambúðar eru. Það er von að haft sé orð á sliku, þegar villur eru tiundaðar. öllum er enn i fersku minni, hvernig viðreisnar- stjórnin stýrði landinu. Hún vanrækti atvinnuveg- ina og horfði sljóum augum á atvinnuleysið, sem þjakaði samfélagið. Hún hirti ekki um að nýta vinnuaflið i landinu. Hún lét sig einu gilda, þótt fjöldamörg byggðarlög um land allt væru svo að- þrengd, að fólk gekk frá öllu sinu, og sums staðar væri vonleysið komið á það stig, að enginn áræddi að grafa fyrir nýjum húsgrunni á annan tug ára. Hún skellti skollaeyrum við þvi, þótt fólk streymdi unnvörpum úr landi i atvinnuleit og blómi þjóðar- innar, fólk á bezta aldri, hefðist árum saman við i útlegð og léti öðrum þjóðum i té starfsorku sina og starfsþekkingu. En það er villa, sem Visir hefur ekki orð á. Verk vinstristjórnarinnar var að höggva þennan herfjötur dauðans og dofans af þjóðinni. Hún beitti sér fyrir öflun nýrra og góðra atvinnutækja og bættri aðstöðu til vinnslu á hráefnum. Hún rétti hlut þeirra byggðarlaga hringinn i kring um landið, er lengi höfðu verið látin lönd og leið, og glæddi á ný trú fólks á heimahagana og möguleikana til þess að lifa þar farsælu lifi. Og við tilkomu hennar fóru út- lagarnir — fólkið, sem flúið hafði undan regimenti viðreisnarstjómarinnar — að snúa heim aftur. Alla stund siðanhefur þjóðin búið að þvi, sem gert var á hinum fáu vinstristjórnarárum, þegar horfið var frá atvinnuleysisstefnu viðreisnarstjórnarinnar svonefndu til fullrar nýtingar á vinnuaflinu, og alla stund siðan hefur það verið eitt meginmarkmið- anna, að allar hendur i landinu hefðu vinnu og eng- inn þyrfti nauðugur að hrekjast brott af þeim slóð- um, er hann kýs að vera á. Þetta er sá arfur, sem vinstristjórnin lét eftir sig, grundvallaðar á ,,fjár- festingaræðinu”, sem upphófst „strax árið 1971” eins og Visir kemst að orði. Hversu margt, sem úr- skeiðis kannað hafafariðá liðnum árum, og hversu margt, sem nú kann að ama að, þá stendur það eigi að siður fast, að þá fyrst værum við nú hörðum veðrum skekin, ef þessi umskipti árið 1971 hefðu ekki komið til. Það verður ekki að fullu metið, að þrátt fyrir allt, sem á bjátar og við er að kljást,að full atvinna er þó i landinu og hefur verið. Likt og það þykir mikils virði, til dæmis hjá flugfélagi, að sætanýting sé góð, skiptir það þjóðfélag meginmáli, að nýting starfs- orkunnar i landinu sé i lagi. Vissulega „upphófst” mikil fjárfesting árið 1971, en það skipti öllu máli, að það var að meginhluta fjárfesting, sem gagn var að — fjárfesting, sem við höfum síðan haft af arð, allt annars eðlis en eyðsla fjármuna, er engan stað sér." JH ERLENT YFIRLIT Rússar vilja vingast við Vestur-Pjóðverja Brésnjev ætlar að heimsækja Schmidt Brésnjev I RÚSSNESKUM fjölmiöl- um er nú mikið rætt um fyrir- hugað ferðalag Brésnjevs for- seta til Vestur-Þýzkalands, þar sem hann mun ræða við HelmutSchmidtkanslara. Svo mjög ræða rússneskir fjöl- miðlar þetta ferðalag, að margir erlendir fréttaskýr- endur eru farnir að stinga saman nefjum um, að eitthvað sérstakt búi á bak við. Sumir telja.að valdamenn Sovétrikj- anna séu óánægðir yfir því að ekki hafi miðað neitt til aukins samkomulags milli Sovétrikj- anna og Bandarikjanna síðan Carter kom til valda.og telji rétta svarið við þvi að bæta sambúðina við Vest- ur-Evrópuþjóðirnar. Aðrir telja aö þetta geti verið hugs- að sem svar við Evrópu- kommúnismanum. Leiðtogar Sovétrikjanna þurfi ekki neitt að halda á leiðtogum kommúnista i Vestur-Evrópu. Hagsmuna Sovétrikjanna verði ekki sfður gætt með snurðulausri sambúö viö and- stæðinga kommúnista þar eins og Helmut Schmidt og Giscard forsetaJKInverskir fréttamenn hafa hins vegar á þessu aðra skýringu. Hún er sú.að Rússar séu með vinsamlegri fram-. komu sinni að auka andvara- leysi þjóðanna i Vest- ur-Evrópu og fá þær þannig til að draga úr viðbúnaöi sinum. Einn af helztu fréttaskýr- endum APN, Vladimir Lomeiko, hefur nýlega ritað grein um væntanlega Þýzka- landsför Brésnjevs. Lomeiko var I fylgdarliði Brésnjevs, þegar hann heimsótti Vest- ur-Þýzkaland 1973 og hefur svo nýlega verið á ferðalagi I Vestur-Þýzkalandi. Hann ritaði áðurnefnda grein sina eftir heimkomuna. Þar ræðir hann ekki atvinnuleysi og hryðjuverk I Þýzkalandi, heldur ber Þjóðverjum góða sögu, sérstaklega þó Schmidt og Genscher utanrikisráð- herra. Þar sem grein þessi mun sýna allvel.hvernig rúss- neskir fjölmiðlar ræða um sambúð Rússa og Vest- ur-Þjóðverja um þessar mundir, þykir rétt að birta hér kafla úr henni: „NAFN Brésnjevs er tengt hinu algerlega nýja þróunar- stigi tvihliðasamskipta land- anna tveggja sem losuð voru úr sjálfheldu og breytt I varanlegan og áhrifarikan þátt jákvæðra áhrifa á mál- efni Evrópu. Alþjóðlegir fréttaskýrendur hafa oftar en einu sinni bent réttilega á þann mikla skilning sem skapazt hafi á fundum Leonid Brésnjevs meö Willy Brandt og Helmut Schmidt. Þetta hef- ur gert þaö auöveldara aö finna sameiginlega afstöðu þegar fjallað er um flókin vándamál samtimans. Þessi andi gagnkvæms skilnings er einnig einkennandi fyrir fundi Gromikos og Genschers og hans hefur gætt á öllum stig- um samvinnu landanna. Fundir stjórnmálamanna og stjórnarerindreka landanna hafa orðið tiðari og árangurs- rikari. Vert er að leggja áherzlu á eitt atriöi þegar mat er lagt á þýðingu þessara breytinga: Löndin, sem eitt sinn börðust hvort við annað senda nú fulltrúa sina til þess að fylgjast með heræfingum hvors annars t.d. fylgdust full- trúar vestur-þýzkra hersins með Karpataheræfingunúm sl. sumar. Stjórnvöld i Moskvu hafa áhuga á að samræma viðleitni sina og Bonnstjórnarinnar og vissulega einnig annarra landa til þess að draga úr vig- búnaðarka pphlaupinu og koma I veg fyrir hættu á kjarnorkustyrjöld. Skoðana- skipti milli Brésnjevs og Sch- midts varðandi afvopnunar- mál.m.a. Vinarviðræðurnar geta stuðlað að framgangi mála á þvi sviði. Vestur-Þjóö- verjar, sem greiddu þátttöku sina i siðari heimsstyrjöldinni dýru verði, gætu orðiö hinir fyrstu til þess að styðja tillögu Brésnjevs um gagnkvæma höfnun framleiöslu nifteinda- vopna, þvi meö tilliti til hlut- fallslegs þéttbýlis landanna er hættan af nifteindasprengj- unni 21 sinnum meiri fyrir V-Þýzkaland heldur en Sovét- rikin. ÞAÐ vita ekki allir, að V-Þýzkaland er orðinn stærsti vestræni viðskiptavinur Sovétrikjanna siðan undirrit- un Moskvusáttmálans fór fram. Viðskipti landanna tveggja fimmfölduðust á ár- unum 1970-1976 og komust upp í 11.000 milljón mörk. Ein- kennist efnahagssamvinna þeirra af langtima viöskiptum og stórverkefnum. Sovézkir sérfræðingar álita að heim- sókn Brésnjevs muni veröa frekari efnahagslegri sam- vinnu hvati, og leiða til þess að gerðir verði fleiri slfkir samningar. Þetta er þeim mun llklegra,sem vlðtæk upp- bygging Síberiu og þá einkan- lega hagnýting Tjumen olíu- og gaslindanna skapar mögu- leika fyrir enn meiri sam- vinnu báðum aðilum til hags- bóta.” LOMEIKO heldur áfram I þessum dúr og segir: „I Moskvu má sjá næg vitni um vaxandi samvinnu landanna tveggja, m.a. má nefna nýjar skrifstofur fulltrúa vest- ur-þýzkra fyrirtækja, bygg- ingu nýrrar flughafnar á Sjeremetjavoflugvelli utan við Moskvu, sem Turrerbaufyrir- tækið stendur að og tugi nýrra bóka vestur-þýzkra höfunda sem árlega kom út I Sovét- rlkjunum. Þegar Klaus von Donany, ráðherra .talaði á sovézk -vestur-þýzkum um- ræðufundi I vináttuhúsinu I Moskvu I júnl 1977, benti hann á, að báðir aðilar væru vel I stakk búnir til þess að gánga braut samvinnu og spennu- slökunar.” Lomeiko sleppir að sjálf- sögðu ekki að minnast á Strauss og fylgismenn hans sem vilja nú sem fyrr spilla sambúðinni milli Rússa og Vestur-Þjóðverja. En síðan segir hann: ,,En þaö eru þó ekki þessi öfl sem hafa ákvörðunarvald um mótun núverandi samskipta Sovét- ríkjanna og Vestur-Þýzka- lands. Hver sem heimsækir Vestur-Þýzkaland getur sjálf- ur séð,að íbúar þess fagna aukinni samvinnu, sem er báðum aðilum til hagsbóta. Oftar en einu sinni hef ég heyrt spurt af greinilegum áhuga: „Hvenær mun Brésnjev heimsækja Bonn?” Margir Vestur-Þjóöverjar blða heimsóknarinnar I þeirri von, að hún muni enn valda breytingum til batnaðar á sambúð landanna tveggja. Og það sama vona allir I Moskvu.” Vissulega mætti vænta af þessu.að Brésnjev hafi eitt- hvað nýtt I pokahorninu þegar hann kemur til Bonn og Rúss- ar vænta árangurs af því. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.