Tíminn - 24.01.1978, Blaðsíða 16

Tíminn - 24.01.1978, Blaðsíða 16
16 Þriðjudagur 24. janúar 1978. David Graham Phillips: j 121 SUSANNA LENOX C Jón Helgason ^0. kytru Súsönnu. ,,Þetta er ekki boðlegur bústaður handa stúlku eins og þér", hrópaði hún. ,,En þú þarft ekki að vera hér lengi — ekki nema í dag, ef þú ferð ekki hreint og beint að eins og kjáni". — Ég er fyllilega ánægð, sagði Súsanna, — ef ég get bara lafað á þessu herbergi. Hún var alveg skeytingarlaus um útlit sitt, þar til María lagði kjólinn og hattinn á rúmið hennar. Þá f jörguðust augun, og það kom í þau grár glampi. Ellen, vinnukonan, hafði átt leiðframhjá dyrunum og séð, hvað var á seyði. Hún kom inn til þess að dást að skrúðinu með hinum. Svo flýtti hún sér niður til þess að sækja frú Tucker, sem aldrei á ævi sinni hafði séð annað eins og það, sem nú gat að líta í þessu fátæklega herbergi. Sú- sanna fór nú í kjólinn með aðstoð þeirra þriggja, sem a11- ar voru jaf n hátíðlegar og lotningarf ullar og þær væru að klæða drottningu á krýningardegi hennar. Ellen sótti heitt vatn og stærri þvottaskál. Frú Tucker vildi endilega láta hana fá ilmandi sápu, sem hún var vön að þvo sér úr, þegar hún fór í samkvæmi. En Súsanna fékkst ekki til að nota aðra sápu en sápuna sína. Þær voru henni aII- ar til liðs við þvottinn, og þær aðstoðuðu hana við að vel ja skástu nærfötin, sem hún átti, Súsanna vildi færa sig sjálf í sokkana, en Ellen tók samt að sér annan fótinn, en frú Rucker hinn.,, Eru þeir ekki yndislegir", sagði Ellen við frú Tucker, þar sem þær krupu hlið við hlið. ,,Ég hef aldrei sé svona fætur — nema á myndum". Frú Tucker tók hattinn af rúminu, og Súsanna lét hann á sig sjálf. Þetta var stór, svartur stráhattur með tveim- ur snjóhvítum f jöðrum, sem hringuðu sig yf ir kollinn, og þeirri þriðju ofurlitið styttri, sem hreykti sér yf ir stórri spennu, þar sem f jaðurleggirnir þrír mættust. Og nú var að því komið, að hún færi í kjólinn. AAaría og frú Tucker héldu honum á milli sín eins og hann væri dýrmætt og brothætt ker, svo að Súsanna gæti komizt í hann. Ellen hélt pilsinu uppi, meðan þær hinar hjálpuðu henni i upp- hlutinn. Loks lét hún á sig hanzkana, og svo var ofurlitlum klútbleðli stungið niður í hanzkann á vinstri hendi. — Hvernig er ég núna? spurði Súsanna. — Yndisleg — dásamleg — hrífandi, hrópuðu þær allar þrjár. — AAér líður hræðilega í þessu öllu, sagði hún. — Og svo er þetta svo heitt. — Þú verður að fara niður, svo að ekki svífi að þér. Það er svalara þar, sagði f rú Tucker. — Haltu pilsinu vel að þér á leiðinni niður. Stigarnir eru ekki rétt hreinir. I baðherberginu niðri var langur spegill felldur inn i vegginn — eins og til vitnisburðar um forna f rægð þessa húss. Þar gat Súsanna horft á sjálfa sig. Hún vissi, að hún var falleg. En nú varð hún þó forviða. Hún þekkti sjálfa sig varla — svona hávaxna, fallega og vel búna. Var þetta í raun og veru hárið á henni — þetta augun í henni — og munnurinn og nefið? Var þessi háa, granna stúlka í raun og veru hún? Hvílíkur regin munur hver fötin voru! Súsanna hafði aldrei fyrr verið svona vel bú- in. — Svona ætti ég alltaf að vera, hugsaði hún. — Og svona vil ég vera. Og þó mátti gera betur — miklu betur. Glögg augu hennar sáu strax ágallana, sem bæta þurfi úr—hvernig laga þurfti hattinn og skreyta hann dálítið öðru vísi, svo að hann samsvaraði betur andiitsfalli hennar, hvernig breyta þurfti kjólnum til þess að hann yrði smekklegri og dyldi ekki fallegan vöxt hennar. — Hvað haldið þér, að kjóllinn kosti, ungfrú Hinkle, spurði Ellen. — Hann kostar f immtíu dali í heildsölu, sagði AAaria. — AAeð öðrum orðum hundrað tuttugu og fimm, ef til vill hundrað og fimmtíu, ef hann væri keyptur í búð. Og hatturinn — ja, þeir myndu f lestir heimta f immtíu eða sextíu dali fyrir hann án þess að roðna. — Hamingjan hjálpi mér! hrópaði Ellen. — Hafið þið nokkurn tímann heyrt annað eins! — AAig undrar það ekki, sagði frú Tucker, sem samt var alveg forviða. — Já, þessi kjóll er sannarlega þess virði fyrir þá, sem hafa efni á að kaupa svona flíkur. Guð hefur þó skapað allt, sem til er, i þeim tilgangi að það sé notað. Og þér, ungfrú Sackville, eruð einmitt sköpuð til þess að vera vel klædd. Dyrabjöllunni var hring. Súsanna hrökk við, andlit hennar varð fölt og kalt. Ellen gægðist f ram f yrir, og f rú Tucker og AAaría hlustuðu með öndina í hálsinum. — Það hljóðvarp 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05: Valdimar Ornólfsson leikfimikennari og Magnús Pétursson pianóleikari. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. landsmálabl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn 7.50: Séra Ingólfur Astmarsson flytur (a.v.d.v.). Morgun- stund barnanna kl. 9.15: Guöribur Guöbjörnsdóttir lýkur lestri sögunnar af Gosa eftir Carlo Collodi i þýðingu Gisla Asmundsson- ar(7). Morgun- tónleikar kl. 10.45. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miödegissagan: ,,A skönsunum” eftir Pál Hall- biörnsson Höfundur les (18). 15.00 Miðdcgistónleikar a. 16.0Ö Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir). 16.20 Popphorn Þorgeir Ast- valdsson kynnir. 17.30 Tónlistartimi barnanna Egill Friöleifsson sér um timann. 17.45 Ungir pennar Guörún Stephensen les bréf og rit- geröir frá börnum. 18.05 Tónleikar. Tilkynning- 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Daglegt málGisli Jóns- son flytur þáttinn. 19.40 Um daginn og veginn Þáttur eftir Oddnýju Guð- mundsdóttur rithöfund. Gunnar Valdimarsson les. 20.05 Lög unga fóiksins Asta R. Jóhannesdóttir kynnir. 20.55 Gögn og gæöi Magnús Bj arnfreðsson stjórnar þætti um atvinnumál. 21.55 Kvöldsagan: „Sagan af Dibs litla” eftir Virginiu M. Alexine Þórir S. Guðbergs- son les þýðingu sina (3). 22.20 Lestur Passiusálma hefst Kristinn Agúst Frið- finnsson stud. theol. les. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. 22.45 Frá tónlistariðjuhátið norræns æskufólks I Reykjavlk I júni sl. Fjórði ogsföasti þáttur. Guðmund- ur Hafsteinsson kynnir. 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. sjonvarp 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 tþróttir. Umsjónarmað- ur Bjarni Felixson. 21.00 Athafnamaðurinn (L) Danskt sjónvarpsleikrit eft- ir Erik Tygesen. Leikstjóri Gert Frédholm. Aðaihlut- verk Christoffer Bro. Bæjarstarfsmaðurinn og þingmannsefnið Bent Knytter er hamhleypa til allra verka. Hann hefur unnið að þvi að fá ýmis fyr- irtæki til að flytjast til heimabæjar sins. Þýðandi Vilborg Sigurðardóttir (Nordvision — Danska sjón- varpið) 22.00 Undur mannslikamans. Bandarisk fræðslumynd, þar sem starfsemi manns- likamans og einstakra lif- færa er sýnd m.a. með röntgen- og smásjármynd- um. Myndin er að nokkru leyti tekin inni i likamanum. Þýðandi Jón O. Edwald. Aö- ur á dagskrá 21. september 1977. 22.50 Dagskrárlok

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.