Tíminn - 04.02.1978, Blaðsíða 13

Tíminn - 04.02.1978, Blaðsíða 13
Laugardagur 4. febrúar 1978 13 Árnað heilla Laugardaginn 10. desember voru gefin saman i hjónaband Sigríður Jónsdóttir og Sigurbjörn R. Guðmundsson. Þau voru gefin saman af séra Guömundi Þor- steinssyni i Arbæjarkirkju. Heimili ungu hjónanna er aö Engihjalla 1, Kópavogi. Laugardaginn 10. desember voru gefin saman i hjónaband Aðalbjörg Haraldsdóttir og Þröstur Björgvinsson. Þau voru gefin saman af séra Guðmundi Þorsteinssyni i Arbæjarkirkju. Heimili ungu hjónanna er aö Hraunbæ 12 A, Reykjavik. Kirkjan Dómkirkjan: Laugardag. Barnasamkoma kl. 10.30 i Vesturbæjarskóla við öldu- götu. Séra Hjalti Guðmunds- son. Arbæjarprestakall: Barna- samkoma i Arbæjarskóla kl. 10.30 árd. Guösþjónusta í skól- anum kl. 2. Séra Guðmundur Þorsteinsson. Neskirkja: Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Messa kl. 2. e.h. Séra Frank M. Halldórsson. Bænaguðsþjónusta kl. 5 s.d. Séra Guðmundur Öskar Ólafs- son. Hallgrimskirkja: Messa kl. 11. Altarisganga. Lesmessa næstkomandi þriðjudag kl. 10.30. Beðiö fyrir sjúkum. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Landspitaliim: Messa kl. 10 árd. Séra Ragnar Fjalar Lár- usson. Keflavikurkirkja: Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11 árd. Þess er vænst að sunnudagaskóla- og fermingarbörn sæki guös- þjónustuna ásamt foreldrum. Sóknarprestur. Frikirkjan Reykjavlk: Barna- samkoma kl. 10.30. Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2. Séra Þorsteinn Björnsson. Dómkirkjan: Sunnudag kl. 11. altarisganga. Séra Óskar J. Þorláksson fyrrverandi dóm- prófastur. Messa kl. 2. Ferm- ingarbörn eru beðin aö koma til messunnar. Séra Þórir Stephensen. Landakotsspltali: Messa kl. 10 árd. sunnudag. Fella- og Hólasókn: Barna- samkoma i Fellaskóla kl. 11 árd. Guðsþjónusta i Safnaðar- heimilinu að Keilufelli l,kl. 2 s.d. Séra Hreinn Hjartarson. Langholtsprestakall: Barna- samkoma kl. 10.30. Guðsþjón- usta kl. 2. Séra Arelius Niels- son. Kársnesprestakall: Barna- samkoma i Kársnesskóla kl. 11 árd. Messa i Kópavogs- kirkju kl. 2. Altarisganga. Séra Arni Pálsson. Digranesprestakall: Barna- samkoma i Safnaðarheimilinu við Bjarnhólastig kl. 11. Guðs- þjónusta i Kópavogskirkju kl. 11. Altarisganga. Séra Þór- bergur Kristjánsson. Laugarneskirkja: Barnaguös- þjónusta kl. 11. Messa kl. 2. Margrét Hróbjartsdóttir safn- aðarsystir predikar. Kirkju- kaffi i safnaðarsal kirkjunnar eftir messu. Tónleikar kl. 5. GUstaf Jóhannesson organisti leikur verk eftir Jóh. S. Bach. Sóknarprestur. Breiðholtsprestakall. Sunnu- dagsskólikl. 11 árd. Messa kl. 2 e.h. i Breiðholtsskóla. Séra Lárus Halldórsson. Asprestakall: Messa kl. 2 að Norðurbrún 1. Eftir messu: aðalfundur i safnaðarfélagi Asprestakalls. Kaffi. Osta- kynning. Séra Grimur Grims- son. Eyrarbakkakirkja: Barna- guðsþjónusta kl. 10.30 árd. Sóknarprestur. Stokkseyrarkirkja: Almenn guðsþjónusta kl. 2 s.d. Altaris- ganga. Sóknarprestur. Aðventukirkjan I Reykjavlk: Bibliukynning sunnudag kl. 5. Sigurður Bjarnason. Háteigskirkja: Barnaguðs- þjónusta kl. 11 árd. Séra Tóm- as Sveinsson.Messakl. 2. Séra Arngrimur Jónsson. Siðdegis- guðsþjónusta kl. 5. Séra Tóm- as Sveinsson. Seltjarnarnessókn: Barna- samkoma kl. 11 árd. i félags- heimilinu. Sr. Guðmundur Óskar ölafsson. Bústaðakirkja: Barnasam- koma kl. 11. Guösþjónusta kl. 2. Barnagæzla. Séra Ólafur Skúlason. Frikirkjan i Hafnarfirði: Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd. Safnaðarprestur. Hafnarfjarðarkirkja: Barna- samkoma kl. 11. Séra Gunnþór Ingason. Guösþjónusta kl. 2. Séra Sigurður H. Guðmunds- son. Bænastund á þriðjudags- kvöldið kl. 8. Safnaðarprestur. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúö og vinarhug við andlát og útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa Magnúsar Guðfinnssonar frá Seyöisfiröi, til heimilis Hátúni 10. Júlianna Guömundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Þökkum af alhug auðsýnda samúð við andlát og útför Gunnars Waage skipstjóra, Alftamýri 48. Jón Kr. Waage, Bergljót Haraldsdóttir, Jón Waage, Edda Garðarsdóttir, Erla'Waage, Kristinn A. Gústafsson, Auður Waage, Kjartan Lárusson, Baldur Waage, Asdis Guöjónsdóttir og barnabörn. Nýja skipiö viö bryggju á Akranesi ' Nýr Bjarni Ólafsson AK 70 kom inn til Akraness og á loðnuveiðar SJ — Niunda janúar sl. kom nýtt skip til Akraness, Bjarni Ólafsson AK 70, sem er eign Runólfs Hall- freðssonar skipstjóra og útgerð- armanns þar i bæ, Skipið tekur við af öðru minna með sama nafni og er 556 tn stál- skip, 54 m á lengd og tæpir 10 m á breidd. Þaðer smiðað i Sviþjóð og Danmörku. Kaupverð var 730 milljónir. Skipið er búið fullkomnum tækjum. Kælikerfi þess rúmar 30 tn. Ganghraði var 14 milur i reynslusiglingu. Nýja skipið er útbúið fyrir nóta og togveiðar. Það er nú á loðnu- veiðum en ætlunin er að það verði á kolmunnaveiðum með flotvörpu i sumar. Gamli Bjarni Ólafsson var met- inn á 270 milljónir og ætlunin var að taka hann upp i nýja skipið. Úr þvi varð þó ekki,heldur var hann seldur til Hafnarfjarðar og tók þar við af Arnarnesinu og ber nú nafn þess. Mynd af finnskum tréskuröarmyndum sem Markus Leppo hefur tekiö. Finnsk vika í Norræna húsinu FINNSKUR LJÓSMYNDARI MEÐ SÝNINGU Finnskar kvikmyndir og skyggnur sýndar JB- Dagana 2.-12.febrúar n.k. verður I bókasafni og anddyri Norræna hússins ljósmyndasýn- ing eftir finnska ljósmyndarann Markus Leppo. A sýningunni eru eingöngu myndir af finnskum tré- skurðarmyndum. Norræna húsið hefur sent frá sér fréttatilkynn- ingu i tilefni sýningarinnar og þar segir: Finnsku tréskurðarmyndirnar „Fattiggubbarna”, sem mætti þýða með ölmusumenn eða fá- tæklingar, eiga sér enga hlið- stæöu i alþýðulistasögunni. Þetta eru tréskurðarmyndir, sem hafa haft þvi hlutverki að gegna að safna peningum fyrir fátæka og sjúka. Uppruna þeirra má rekja til kaþólsku Guðskistunnar eða ölmusustokkanna, sem voru bannaöir þar i landi við siöa- skiptin. En á 17. öld var siðurinn tekinn upp að nýju: Kristln drottningfyrirskipaðiárið 1649 að söfnunarbaukar skyldu settir upp á opinberum stöðum, en nú án helgimynda, og var mönnum gert að gefa i þá til fátækra og sjúkra. Með tímanum tók stokkurinn á sig mannsmynd, sem oftast stóð með útrétta hönd við kirkjudyr. Tréskurðarmyndirnar voru oftast málaðar. Heimildir greina frá að minnsta kosti 130 slikum tré- skurðarmyndum. Nokkrar hafa glatazt á siðustu áratugum en nú munu vera til 118 slikar styttur við finnskar kirkjur. Finnski ljósmyndarinn og rit- höfundurinn Markus Leppo hefur ljósmyndaö allar stytturnar og safnaö um þær heimildum. Hann gaf út bók um þær 1967, sýndi hluta af myndunum á listahátið i Helsinki 1973, og bjó út lit- skyggnusýningu i Amos Ander- sons-listasafninu 1975. Norræna sýningarráðið hefur beitt sér fyr- ir þvi að þessi ljósmyndasýning veröi sett upp alls staðar á Norð- urlöndunum og hefur fengið til þess styrk frá Norræna menn- ingarsjóðnum. Norræna húsið i Reykjavik er fyrsti staöurinn sem hýsir sýninguna, Markus Leppo setur sýninguna sjálfur upp og kynnir hana. Jafnframt þessari ljósmynda- sýningu verða sýndar finnskar kvikmyndir og litskyggnur 1 sam- komusal Norræna hússins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.