Tíminn - 04.02.1978, Page 20
Laugardagur
4. febrúar 1978
18-300
Auglýsingadeild
Tímans.
Sýrð éik
er sigild
eign
HU&CiQGH
TRÉSMIDJAN MEIDUR
\\ SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822
Ragnar Kjartans-
son gerir minnis-
varða um drukkn-
aða sjómenn
//.
SJ — Grindvikingar hafa bundizt
samtökum um aðreisa minnis-
varða um drukknaða sjómenn i
Grindavik. Þeir hafa fengið
Ragnar Kjartansson myndhöggv-
ara til að gera listaverkiö og á
það að vera tílbúið til afsteypu i
bronz um áramótin 1978-79. Ekki
hefur enn verið ákveðið hvar i
Grindavik listaverkið hlýtur stað.
Mynd Ragnars er af sjómanns-
ekkjunni með börnin sin, þar sem
hún er ein eftir á ströndinni og
heldur á reknum bjarghring.
Ijanúar 1952 stofnaði kvenfélag
Grindavik-ur ,,M inningarsjóð
drukknaðra sjómanna frá
Grindavik”. Tekjur sjóðsins voru
ágóði af sölu minningakorta.
Vegna verðbólgunnar varð
sjóðurinn aldrei það afl, sem hon-
um hafði veriö ætlað að veröa,
þ.e. að standa undir kostnaði við
gerð minnisvarða.
A 25 ára afmæli sjóðsins, I janú-
ar 1977, var samþykkt aö óska
eftir samstarfi við bæjarfélagið
og sjómannafélagið um að hrinda
málinu i framkvæmd. Fékk málið
góðar undirtektir og var skipuð 8
manna nefndjUndirbúningsnefnd
með þátttöku fyrrgreindra aðila
og útvegsbændafélags Grinda-
víkur, sem óskaöi eftir aðild að
málinu.
Nefndina skipa: Sæunn Krist-
jánsdóttir, formaður, og Ólina
Ragnarsdóttir, ritari, frá kvenfé-
laginu, Helga Emilsdóttir, gjald-
keri, og Sigurpáll Einarsson frá
bæjarstjórn, Kjartan Kristófers-
son og Haraldur Tómasson frá
sjómannafélaginu ogTómas Þor-
valdsson og Einar Simonarson
frá Útvegsbændafélaginu.
Akveðið var aö reisa minnis-
varða eftir verki Ragnars Kjart-
anssonar myndhöggvara og voru
3 tillögumyndir eftir hann sýndar
i Félagsheimilinu Festi á sjó-
mannadaginn 1977. Var siðan ein
þeirra mynda valin sem fyrir-
mynd varðans, og undirbúnings-
nefndinni falið hlutverk fram-
kvæmdanefndar.
Gerð þessa minnisvaröa er
nefndarmönnum sem og Grind-
vikingum öllum mikið metnaðar-
mál, en vist er, að hún mun kosta
mikið fé. Fyrsta fjáröflun nefnd-
arinnar fórfram i Festi 3. desem-
ber s.l. og vill nefndin þakka þeim
mörgu.sem studdu þetta malefni
þá. Margir einstaklingar hafa
gefið fé til minningar um látna
ástvini. Verkalýðsfélag Grinda-
vikur gaf 500.000 kr. og Skip-
stjóra- og stýrimannafélagiö Vis-
ir í Keflavík 300.000 kr. Ýmsir
aðrir, félög og einstaklingar, hafa
lofað fjárframlögum, og þakkar
nefndin öllum þessum aðilum
höfðinglegar gjafir og góðar und-
irtektir.
Ragnar Kjartansson ásamt fyrirmynd sinni að minnisvarða drukkn-
aðra sjómanna, sem reistur vcrður I Grindavik. Timamynd: Gunnar.
Krafla:
Hefst rafmagnsframleiðsla
fyrir mánaðamót?
SSt — 1 gær átti að reyna að
gangsetja tvær túrbinur við
Kröfluvirkjun og er það liður i
prófunum, sem verða að fram-
kvæmast áður en allar vélar þar
verða gangsettar til rafmagns-
framleiðslu.
Að sögn Einars Tjörva Elias-
sonar verkfræðings við Kröflu
fór fyrri túrbinan i gang laust
fyrir hádegi i gær og var hún i
stakasta lagi. Ekki tókst að
koma stærri ttírbinunni i gang i
gær, þótt reynt væri fram eítir
degi, þar sem sérstakur örygg-
isloki virkaði ekki. Sagði Einar
Tjörvi, að reynt yrði að koma
henni i gang i dag, og ef það
tækist, yrðu báðar túrbinurnar
látnar ganga fram á mánudag.
Þá tækju við prófanir á hinum
ýmsa útbúnaði, sem ganga
verður úr skugga um, að sé I
lagi áður en rafmagnsfram-
leiðsla hefst. Það er þéttikerfi,
undirþrýstingskerfi öryggisút-
sláttur og fl. — Frost hefur
nokkuð hamlað gangsetningu
hér, sagði Einar Tjörvi, og þessi
árstími er raunar ekki sá heppi-
legasti til prófana. Þessar próf-
anir standa yfir allt til 20. þ.m.
og ef sýnt er að allar vélar og
búnaður er i lagi, ætti raf;-
magnsframleiðsla við Kröflu að
geta hafizt fljótlega upp úr þvi,
sagði Einar Tjörvi Eliasson að
lokum.
Lausn á sorpvandamálum
Suðurnesja á næsta leiti
— Vatnsból á Suðurnesjum í hættu
ESE — Nú á siöustu árum, hafa
sorpvandamál á Suðurnesjum
aukizt til muna. Allt sorp, sem til
hefur fallið hefur verið grafið i
jörð, og nú er svo komið að það
er aðeins spurning um tima hven-
ær þessi sifelldi sorpgröftur nær
að menga vatnsból á Suðurnesj-
um. Enn sem komið er hefur eng-
in mengun orðið að ráði, en með
hverjum mánuðinum sem llður
eykst hættan á að svo verði.
Vegna þessa máls hafði Timinn
samband við Harald Gislason
sveitarstjóra i Garðinum, en
hann er formaður nefndar sem
vinnur að þvi að kanna leiðir til
Urbóta og hvaða tilhögun á sorp-
eyöingu myndi henta Suðurnesja-
búum bezt.
Haraldur sagði, að nefndin
hefði fljótlega komizt að þvi, að
heppilegasta leiðin til sorpeyð-
ingar væri brennsla og hefðu
Flugfélag Norðurlands:
Enn fjölgar farþegum
— áform um aö kaupa nýja flugvél í vor
AIls fóru 12.449 farþegar meö
Flugfélagi Norðurlands i áætlun-
arflugi á siðasta ári, og er það
nokkur aukning frá næsta ári á
undan. Félagið á nú þrjár vélar,
eina sem tekur 19 farþega eina
fyrir 9 farþega og eina fyrir fimm
farþega. Nú eru uppi ráðagerðir
um að kaupa eina flugvél til við-
bótar, og verður það 19 farþega
flugvél af Twin Otter gerð, eins og
stærsta vél félagsins er.
Flugfélag Norðurlands hefur
fastar áætlunarferðir til 8 staða,
en bækistöð félagsins er á Akur-
eyri. Fimm sinnum i viku er flog-
ið til Þórshafnar og Vopnafjarðar
fjórum sinnum til Raufarhafnar,
þrisvar til Egilsstaða og Kópa-
skers og tvisvar til Grímseyjar og
Isafjarðar. Auk þessa hefur fé-
lagið póstflug tvisvar i viku til
Húsavikur.
Þá er hægt að fá leiguvélar hjá
félaginu, og er alltaf nokkuð um
að fólk notfæri sér þá þjónustu.
Við störf hjá félaginu eru nú
fjórir fastráðnir flugmenn og auk
þeirra eru tveir menn, sem eru
lausráðnir og gripa I aö fljúga
þegar mikið er um að vera, eða
einhverjir fastráðnu flugmann-
anna eru i frii. Þá starfa tveir
flugvirkjar hjá félaginu og einn
skrifstofumaður er þar i fullu
starfi. Starfsfólk Flugfélags ís-
lands annast afgreiðslu vélanna
og farþegaskráningu.
Allt flug félagsins austur á bóg-
inn frá Akureyri er skipulagt I
tengslum við flug Flugfélags ís-
lands tii Akureyrar. Þannig teta
farþegar úr Reykjavik komizt
samdægurs til áætlunarstaða fé-
lagsins og eins geta farþegar frá_
hinum ýmsu stöðum komizt sam-
dægurs til Reykjavikur.
Anna Guðmundsdóttir skrif-
stofumaður hjá félaginu sagði i
samtali við Timann að það háði
starfsemi félagsins að yfirleitt
væru ekki upplýstir vellir á þeim
stöðum, sem flogið er til. Þetta
veldur þvi, að aðeins er unnt að
flúga mjög skamman tima á dag I
svartasta skammdeginu einmitt
þegar mikið er um flutninga.
MÓ
nefndarmenn ferðazt um erlendis
og litið á slikar brennslur og gert
fyrirspurnir þar um. Þeir hefðu
svo fengið um 20 tilboð i' gerð
sorpbrennslunnar, en nefndin
hefði siðan valið 3 tilboð úr frum-
tilboðunum og ynnu nú verkfræð-
ingaraðþviað athuga hvert þess-
ara tilboða hentaði þeim bezt.
Haraldur kvaöst vænta þess að
könnun verkfræðinganna yrði
lokið núum miðjan mánuðinn og
myndi þá nefndin taka afstöðu til
þeirrar niðurstöðu og skýra
sveitarstjórnum frá málinu, en
endanleg afstaða færi væntanlega
eftir þvi hver viðbrögð þeirra
yrðu.
Haraldur var spurður að þvi
hve mikið það kostaði á ári aö
grafa sorpiö og hvort einhver
merki mengunar hefðu komiö i
ljós. Hann kvað kostnaö við sorp-
gröft vera eitthvað i kringum 20
milljónir á ári, og kvað mengun
viðvéki þá væru íbúar á Suður-
nesjum mjög uggandi um að á-
stand vatnsbóla færisifellt versn-
andi, þó að enn sem komið væri
væru þau ekki það menguð að til
alvarlegra ráðstafana þyrfti að
gri'pa. Haraldur nefndi sem dæmi
að ef vatnsbólin yrðu ónothæf
sökum mengunar, þá tæki það
10-15 ár fyrir þau að hreinsast að
nýju, en það værisvipaður timi og
talið væri að upphaflega mengun-
in ætti sér stað á.
Að lokum var Haraldur spurður
að þvf hvort varnarliðið á Mið-
nesheiði, en 65% af öllu sorpi á
Suðurnesjum kemur frá þvi, hefði
lýstyfir áhuga á þvi að taka þátt i
kostnaði við byggingu fýrirhug-
aðrar sorpbrennslu. Haraldur
kvað það ekki hafa komið til um-
ræðu að varnarliðið yrði eignar-
aðili, en að sjálfsögðu yrði þvi
boðið upp á þá þjónustu sem sorp-
brennslan veitti. Annars væri það
nokkurt vandamál varðandi sorp
frá varnarliðinu að það innihéldi
það margar hitaeiningar að ekki
væri hagkvæmt fyrir afköst fyrir-
hugaðrar verksmiðju að brenna
það eitt sér, heldur y rði að blanda
þvi saman við blautt sorp til þess
að hagkvæm afköst fengjust.
Mál fyrir
rétti á
næstunni
SSt — Aö sögn Björns Helgason-
ar, hæstaréttarritara, verða þrjú
mál dómtckin fyrir Hæstarétti á
næstunni. Eitt þeirra verður
dómtekið 20. febrúar n.k. svo-
nefntSkotmál.atburðursem varð
á Akureyri fyrir 2-3 árum. Þá
verður dæmt í máli Asgeirs Ing-
ólfssonar og svonefndu Kópa-
vogsmáli, en ekki gat Björn
Helgason sagt fyrir um nákvæm-
ar dagsetningar á þeim að svo
stöddu.
Blaðamenn:
Atkvæði um verkfall
Ekki er mikið sagt þótt fullyrt sé að Flugfélag Noröurlands sé Ilfæð
margra staða þegar snjóar hamla eðlilegum samgöngum á iandi. Hér
eru farþegar til Þórshafnar og Vopnafjarðar aö ganga um borö I vél fé-
lagsins á Akureyrarflugvelli. —Timamynd. MÓ
SJ—I kvöld kl. 6 lýkur atkvæða-
; greiðslu í Blaðamannafélagi Is-
lands um verkfallsheimild til
handa stjórn félagsins. Atkvæða-
greiðslan hófst i gærmorgun.
Næsti samningafundur i kjara-
deilu blaðamanna og blaðaútgef-
enda verður á mánudag kl. 14.
Blaðamenn hafa setið þrjá fundi
með útgefendum og þetta verður
annar fundurinn með deiluaðilum
og Torfa Hjartarsyni, sátta-
semjara rikisins.