Tíminn - 10.02.1978, Blaðsíða 6

Tíminn - 10.02.1978, Blaðsíða 6
SAiilliÍi Föstudagur 10. febrúar 1978 Pj óðleikhúslög: Fela í sér möguleika á aukinni starfsemi — sagði menntamálaráðherra í framsöguræðu A fundi efri deildar Alþingis i gærdag mælti Vilh-jálmur Hjálmarsson menntamálaráö- hcrra fyrir frumvarpi til laga um Þjóðleikhús. Frumvarp þetta var lagt fyrir 97. og 98. löggjafarþing en varð eigi útrætt. Fer hér á eftir framsöguræða ráðherra á þing- fundi i gær: „Þetta frumvarp, það er frum- varp til laga um Þjóðleikhús, er gamall kunningi. Þaö er flutt I sömu mynd og áöur og ég vil nú mega vænta þess, að hæstvirtir þingmenn sjái sér fært að taka málið til efnislegrár meðferðar og ljúka afgreiðslu þess á þessu þingi. Þar sem ég hef itrekað mælt fyrir þessu frumvarpi hér i hátt- virtri efri deild, þá get ég stytt mál mitt og visað til fyrri fram- söguræða og til þeirra athuga- semda, sem frumvarpinu fylgja. Aö nokkru leyti eru þau atriði, sem i frumvarpinu felast, stað- festing á þeim starfsháttum, sem þegar hafa verið upp teknir elleg- ar aö hliöstæð ákvæði eru i' þeim lögum, sem nú gilda. En aöhluta erhér gert ráðfyrir nýjum þáttum i starfsemi Þjóð- leikhússins ellegar aukinni áherzlu á einstaka starfsþætti, sem þegar eru upp teknir. Nokkur atriði i' frumvarpinu hafa aukinn kostnaði för meðsér. . En þess ber aö gæta, að i 18. gr. frumvarpsins segir svo: „Eigi skal ráða i nýjar stöður samkvæmt lögum þessum fyrr en Vilhjálmur Hjálmarsson fé er veitttil þessá fjárlögum.” — Þetta ákvæði er raunar óþarft, þvi að þessi er hin löglega með- ferðmála. En það er eigi að siður sett hér inn til þess að árétta skilning höfunda frumvarpsins og löggjafans á þessu atriði. Þaö er skoðun min og ég hygg allirgeti verið sammála um það, að ný löggjöf um stofnun eins og Þjóðleikhúsið hlýtur að fela i sér möguleika til aukinnar starfsemi, til nokkurrar þróunar og hún hlýtur þvi alltaf að hafa einhvern mögulegan kostnaðarauka i för með sér. En ég tel, að i þessu frumvarpi sé það hóflega i sakir farið, að ekki þurfi að hika við af- greiðslu þess af ótta við óhæfilega aukningu tilkostnaðar. Breytingar þær, sem gerðar hafa verið á frumvarpinu frá þvi að það var lagt fyrir á siðasta þingi, varða einvörðungu fyrir- komulag lifeyrisgreiöslna. Þótti rétt við nánari athugun og að höfðu samráði við fjármálaráðu- neytið og stjórn Lifeyrissjóðs opinberra starfsmanna að gera þessar breytingar. Er þá tekið til- lit til þeirrar þróunar i lifeyris- málum, sem orðið hefur frá þvi að frumvarp þetta var i letur fært i fyrstunni. Ég vil geta þess, að mennta- málanefnd deildarinnar voru i fyrra sendar upplýsingar um fjárhagslegu hliðina. Þær upp- lýsingar má að nokkru fram- reikna með tilliti til verðhækk- ana, en allar nánari upplýsingar, sem óskað kann að vera af nefndarinnar hálfu verða að sjálfsögðu i té látnar. £g árétta svo tilmæli min til háttvirtra þingmanna að taka þetta mál til efnislegrar meðferð- ar og afgreiöslu, ef unnt reynist og legg til, aö frumvarpinu verði aðlokinni þessari 1. umræðuvis- að til menntamálanefndar.” Að lokinni ræöu menntamála- ráðherra talaði Helgi Seljan (Aþbl) og lagði m.a. áherzlu á að Þjóðleikhúsið yrði að vera frum- kvöðull aö nánu sambandi og samstarfi við önnur leikhús og leikfélög i landinu. Miðar 0 með ákvæði um lágmarksverð- bætur i 2. gr., að þessi frádráttur komi ekki fram með fullum þunga gagnvart hinum tekjulægri i hópi launþega. Hér eru einkum þeir hafðir i huga, sem hafa tekjur af reglulegri dagvinnu einni”. ,,Það er ótviræöur galli á nú- gildandi verðbótakerfi, að breyt- ingar á óbeinum sköttum — öðr- um en þeim sem fólgnir eru i veröi áfengis og tóbaks — valda breytingu á kaupgreiðslum en breytingar á beinum sköttum ekki. Hér er lagt til að frá og með 1. janúar 1979 skuli breytingar á óbeinum sköttum ekki valda breytingu á verðbötum. Rökin fyrir þessu eru vel kunn. 1 fyrsta lagi eru beinir skattar ekki með- taldir i verðbótavisitölu, eins og að framan var getið. Þaö veldur þvi, aðval löggjafans millibeinna og óbeinna skatta er ekki óbundið að þessu leyti, sem hlýtur að telj- ast óæskilegt. 1 öðru lagi stendur ómæld opinber þjónusta á móti óbeinum sköttum, sem ekki er metin til kjarabóta. 1 þriðja lagi geta stjórnvöld ekki með sama árangri og ella beittbreytingum á óbeinum sköttum til hagstjórnar vegna þess að þeir eru i grunni verðbótavisitölu. í frv. er gert ráö fyrir að Kauplagsnefnd meti hvaða skattarskuli teljast óbeinir i þessu sambandi.” Með þeim breyt- ingum á verðbótaákvæðum kjarasamninga, sem hér er gerö um tillaga, er búizt við að unnt reynist að koma verðbólguvextin- um allt árið niður undir 30% og meðalverðbreytingum á árinu i um 36-37%. Kauptaxtar myndu skv. þessu hækka um rúmlega 20% frá upphafi til loka ársins en um rúmlega 40% að meðaltali á árinu. Til að vega að nokkru leyti upp kaupmáttaráhrif þessara að- gerða hyggst rikisstjórnin beita margvislegum fjármálaaðgerð- um, sem að hluta felast i þessu frumvarpi. 1 frumvarpi þessu er gert ráð fyrir tvenns konar ráðstöfunum til að styrkja kaupmátt ráðstöf- unartekna heimilanna. Annars vegar eru barnabætur hækkaðar um 5%, en það léttir nokkuð skattbyrði barnmargra fjölskyldna. Hins vegar er gert ráð fyrir lækkun sérstaks vöru- gjalds úr 18% i 16%. Þessar ráð- stafanir valda rikissjóði u.þ.b. 1000 milljón króna tekjumissi á ári. Þá er gert ráö fyrir, að bætur almannatrygginga hækki með launum, og á sömu dögum, og auk þess er gert ráð fyrir sér- stakri hækkun tekjutryggingar og heimilisuppbótar umfram launa- hækkun hinn 1. marz n.k. Loks hyggst rikisstjórnin auka niður- greiðslu vöruverðs um 1300 m.kr. á ári, en það jafngildir 1% i kaup- mætti ráðstöfunartekna. Kaupmáttaráhrif þeirra ráð- stafana, sem hér hafa verið nefndar, jafngilda þegar allt er talið saman tæplega 1 1/2% aukn- ingu kaupmáttar ráðstöfunar- tekna frá þvi sem ella hefði orðið. Með þessu gæti kaupmáttur ráð- stöfunartekna á mann árið 1978 orðið nálægt þvi sá sami og á ár- inu 1977, en þá var hann nær þvi jafnmikill og hann hefur mestur orðið áður, á árinu 1974”. 16 verksmiðjur af 47 með fullt starfsleyfi Matthias Bjarnason heil- brigðismálaráðherra svaraði fyrr I þessari viku fyrirspurn frá Benedikt Gröndal (A) um hollustuhætti i sildar- og fiski- mjölsverksmiðjum. Fyrsti liður fyrirspurnar Benedikts hljóðaði svo: ,,Hafa verið gerðar full- nægjandi rannsóknir á hollustu- háttum i sildar- og fiskimjöls- verksmiðjum, svo sem hættum starfsliös af hávaða, rykmynd- un og varhugaverðum efnasam- böndum, almennum óþrifnaöi og ólykt?” Þessum liö fyrirspurnarinnar svaraði ráðherra á þá lund að starfsmenn Heilbrigðiseftirlits rikisins færu eftirlitsferðir i all- ar sildar- og fiskimjölsverk- smiðjur landsins i tengslum við veitingu starfsleyfa. Ljóst væri að við rotvörn loðnu væru notuð hættuleg efni sem talin væru geta valdið krabbameini. Full- komnar rannsóknir í þessum efnum hefðu hvorki verið gerð- ar hér né í nágrannalöndunum. Þá sagði ráðherra að þegar á heildina væri litið yrði aö telja hávaða, óþrif og óþef vera meginvandamál vinnuum- hverfis fiskimjölsverksmiðj- anna. Annar liður fyrirspurnar Benedikts hljóðar svo: „Hefur Heilbrigðisráðuneytið sett regl- ur um mengunarmörk og önnur atriði sem þessar verksmiðjur verða að uppfylla til þess að fá starfsleyfi?” 1 svari sínu viö þessum lið sagði ráöherra m.a.: „Almenn- ar reglur hafa ekki verið settar um mengunarmörk, heldur hef- ur málefni hverrar verksmiðju verið metið sérstaklega m.t.t. aðstæðna. Mjög erfitt er enn- fremurað setja mengunarmörk fyrir ólykt vegna skorts á ná- kvæmum og áreiðanlegum mæliaðferðum, og hafa yfirvöld á hinum Noröurlöndunum ekki farið slika leiö, enn sem komið er, að minnsta kosti. Við afgreiðslu fyrrnefndra umsókna á árunum 1972-74, var yfirleitt gerö krafa um aö reistir yrðu reykháfar á þeim stööum, þar sem óþægindi vegna ólyktar þóttu mest og þar sem talið var, að slik lausn mætti verða að gagni. Hvað frárennsli snerti var gerð krafa um að það væri leitt niður fyrir stórstraums- fjöruborð i samræmi við 61. gr. Heilbrigðisreglugerðar fyrir ís- land nr. 45/1972. Þriðji liður fyrirspurnarinnar hljóðar svo: „Hafa allar þær verksmiðjur sem starfað hafa siðustu ár og nú starfa m.a. að loðnubræðslu, uppfyllt þau skil- yrði og fengið starfsleyfi með eðhlegum hætti?” Svar ráðherra við þessum lið fer að meginhluta hér á eftir: „Alls munu nú vera starfandi á landinu 47 fiskimjölsverk- smiðjur, þar af 24 sem vinna úr loðnu. Af þessum 47 síldar- og Matthias Bjarnason fiskimjölsverksmiðjum eru i dag 16 verksmiðjur með fullt starfsleyfi og 20 með skilyrt starfsleyfi en 11 hafa ýmist ekki fengið starfsleyfi eða eru með skilyrt starfsleyfi frá Heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu skv. reglugerð nr. 164/1972, sem ekki hefur verið uppfyllt að fullu. Eftirtaldar verksmiðjur hafa ekki fengið starfsleyfi: 1. Fiskimjölsverksmiðjur i Reykjavik, þ.e. Faxi og Stjörnumjöl i örfirisey og Klettur við Laugames. 2. Fiskimjölsverksmiðjurnar i Vestmannaeyjum, (tvær tals- ins). 3. Verksmiðja Sildarverk- smiðja rikisins á Siglufirði. 4. Tvær minniháttar beina- mjölsverksmiðjur á Snæfells- nesi. Aðallega hefur verksmiðjun- um gengið treglega að uppfylla skilyrði starfsleyfis um varnir gegn óþægindum af völdum ólyktar, og hefur fjárskorti mest veriö borið við.” alþingi „Bladamannastétt íslandsverst menntaða stétt þj óðf élagsins ’ ’ sagði Sverrir Hermannsson við umræður á þingi um þingfararkaup alþingismanna Ellert B. Scliram og Gylfi Þ. Gislason mæltu i gær á fundi neðri deildar Alþingis fyrir eig- in frumvarpi til laga um breyt- ing á lögutn um þingfararkaup a Iþingism ann a . Meginefni frumvarpsins er, að launakjör alþingismanna skuli framvegis ákveðin af Kjaradómi, enn- fremur önnur kjör. 1 greinargerð með frumvarp- inu og efnislega samhljóða ræð- um þeirra Gylfa Þ. Gislasonar og Ellerts B. Schram segir: „Flutningsmenn þessa frum- varps hafa verið þeirrar skoð- unar, að laun alþingismanna skuli ákveðin af Kjaradómi, og fluttu frumvarp þess efnis fyrir fáum árum. Það frumvarp hlaut ekki afgreiðslu. Launakjör alþingismanna hafa nú enn á ný verið i sviös- ljósinu og margvislegur misskilningur skapazt um þau, upphæð þeirra og tilurð, svo og kjör alþingismanna almennt. Þessar umræður hafa sýnt fram á nauðsyn þess, að lagaákvæði hér um valdi ekki ruglingi og þingmenneyði þeirri tortryggni sem rikjandi virðist um kjör þeirra. Skv. lögum nr. 4 frá 1964, um þingfararkaup, 1. gr„ skulu þingmenn njóta launa skv. launaflokki B 3 i kjarasamningi um laun starfsmanna rikisins. 1 8. gr. segir hins vegar að „ef al- mennar breytingar veröa á launum starfsmanna riksins, er þingfararkaupsnefnd heimilt að hækka eða lækka árslaun skv. 1. gr. að sama skapi”. Siðarnefnda ákvæðið hefur i raun litla sem engaþýðingu, þar sem launakjörin eru fastbundin skv. 1. gr. Þingmennsjálfir taka þvi ekki ákvaröanir um laun sin, nema að þvi leyti að Alþingi og alþingismenn hafa löggjafar- valdið i sinum höndum. 8. gr. hefur hins vegar valdið útbreiddum misskilningi og nú, þegar leiðir hafa skilist með BSRB og BHM og launaflokkur B3 er ekki lengur fýrir hendi, teljum viö flutningsmenn frv. timabært að það skref verði stigið, að Kjaradómur taki á- kvörðun um laun þingmanna, einsoghann gerir varðandi kjör ráðherra og hæstaréttardóm- ara, ráðuneytisstjóra o.fl. eftir atvikum. Varðandi önnur kjör þing- manna hefur þingfararkaups- nefnd lögum samkvæmt ákveö- ið þau, svo sem feröa-, dvalar- og fæðiskostnað. Eðlilegt er aö þau kjör hliti sömuleiðis á- kvörðunum Kjaradóms.en gert er ráð fyrir að þingfararkaups- nefnd hafi tillögurétt þar um.” Þá kom fram i ræðum þeirra, að þeir teldu áraéir á þingmenn als óréttmætar i þessum efnum, en rétt væri að færa skipulag þessara mála i það horf að til- efni til gagnrýni gefist siður. Ellert B. Schram lét auk þess þá skoðun sina i ljós, að þingmenn væru fremur vanhaldnir af launum en hitt, og engan þing- mann þekkti hann sem beinlínis hefði efnazt á þingsetu. Þrenn rök færði Ellert fyrir þvi, að laun alþingismanna mættu verða riflegrien nú er. 1 fyrsta lagi ættu launin að stuðla að þvi að góðir og hæfir menn sæktust eftir þingmennsku. I öðru lagi ættu hærri laun að koma i veg fyrir að þingmenn sæktust eftir öðrum störfum Gylfi Þ. Gislason Ellert B. Schram. jafnhhða þingmennskunni. Og i þriðja lagi ætti með hærri laun- um aðkoma i veg fyrir minnstu freistingar þingmanna til mútu- þægni. Sverrir Hermannsson (S) tók til máls að loknum ræöum Gylfa og Ellerts og kvaöst and- vigur frumvarpinu. Hann boö- aði að lagt yrði fram frumvarp sem gengi i þveröfuga átt þ.e.a.s. til eldri laga, þar sem þingmenn ákváöu beint laun sin og önnur kjör. Þá deildi Sverrir mjög á áróður í blöðum gegr þingmönnum i þvi efni að þeir skömmtuðu sér laun sjálfir og væru jafnvel skattsvikarar. Lét hann af þessu tilefni m.a. þat orð falla, að blaðamannastétt Islands væri verst menntaða stétt þjóðfélagsins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.