Tíminn - 10.02.1978, Blaðsíða 17

Tíminn - 10.02.1978, Blaðsíða 17
Föstudagur 10. febrúar 1978 17 Arnað heilla 25.9.77. voru gefin saman i gjóna- band af sr. Sigurði Bjarnasyni i Aðventkirkjunni Margrét Theodórsdóttir og Glenn Bruvik Heimili Karlagötu 14, R. (ljósm.st. Gunnars Ingimars. Suðurveri — simi 34852) 24.9.77. voru gefin saman i hjóna- band af sr. 1 Þóri Stephensen Dómkirkjunni Magnea R, Arna- dóttir og Pétur Þ, Þorgrimsson heimili Þrastargötu 8, R. Fyrst um sinn (Ljósm.st. Gunnars Ingi- mars. Suðurveri — Simi 34852) Elsa Gress í Norræna húsinu Danski rithöfundurinn Elsa Gress kemur hingað til lands 1 boði Norræna hússins 11. febriíar, og heldur tvo fyrirlestra i Nor- ræna húsinu. Fyrri fyrirlesturinn verður siðdegis á sunnudaginn kemur, 12. þ.m.kl. 16 og ber heit- ið „Kan vi bruge kunstnerne?” Siðari fyrirlesturinn verður á miðvikudagskvöld 15. þ.m. kl. 20.30 og ber heitið „Indirekte og direkte brug af virkeligheden i Handbók bænda 1978 komin út Hjá Búnaðarfélagi tslands er kominn út 28. árgangur Handbók- ar bænda. Fjölbreytilegt efni er I bókinni. Eins og venjulega þá hefst Handbókin á almanaki siðan eru upplýsingar um félög og stofnanir landbúnaðarins. Allar faggreinar i bókinni eru nýjar, þær eru skrifaðar af 28 manns. Itarlegasti kaflinn að þessu sinni fjallar um alla þætti kartöflu- ræktar. Mjög góöar áburðar- leiðbeiningar eru i bókinni. Þá eru stuttir þættir um garðrækt. Margar gagnlegar leiðbeiningar eru I kaflanum „Byggingar ogbú tækni” en þar er m.a. grein um lýsingu á útihúsum, mjólkurhús- um og byggingarefni. t búfjár- ræktarkafla Handbókarinnar eru gagnlegar leiðbeiningar fyrir ullarframleiðendur, þar eru ábendingar um framleiðslu nautakjöts og margt fleira fróðlegt er að finna í þessum kafla. t kaflanum um búfjársjúkdóma eru greinar um legukýr, krampa- doða bráðadauða og magnesium- skort svo er grein um garnaveiki I sauðfé. Handbók bænda er aö þessu sinni 352 blaösföur. Rit- stjóri er Jónas Jónsson. Bókin var prentuð hjá Gutenberg. Tíminner peningar i Auglýsitf | íTunanumj kunsten”. Elsa Gress (f. 1919) lauk magisterprófi i bókmenntum frá Hafnarháskóla 1944, og ferðaðist eftir það árum saman um Evrópu og Ameriku, en settist að lokum að í Glumsö ásamt manni sinum, bandariska listmálaranum Cliff- ord Wright, og byggði þar upp menningarmiðstöð. Fyrir tveim árum fluttu þau öll þessi umsvif til Marineborg á Mön. — Elsa Gress hefur skrifað margar skáldsögur, (t.d. Mellemspil 1947, Concertino 1955, Salamander 1977), leikhúsverk, sjónvarps- og útvarpsleikrit, og sent frá sér rit- gerðasöfn (m.a. Det uopdagede kön 1964, Engagement 1978) og minningabækur hennar (Mine mange hjem 1965, Fuglefri og fremmed 1971, og Compania I-II 1976) hafa notið mikilla vinsælda. Elsa Gress tekur þátt i umræðu dagsins af lff i og sál, og hefur sett svip sinn á danskt menningarlif, bæði vegna óvenjulega viðs sjóndeildarhrings og eins hins að hún er algjörlega laus við kreddu- festu og hefur með þvi komið illa við margan. Stofnfram- lögin bjarg hringur SAA Samtök áhugafólks um áfengis- vandamálið vilja þakka þeim fjölmörgu stofnfélögum sem greitt hafa stofnframlög sin. Þau hafa verið SAA ómetanlegur stuðningur og má i raunsegja að stofnframlögin hafi verið bjarg- hringur samtakanna til þessa. Þvi miður hefur komið i ljós, að nokkur mistök hafa orðið i tölvu- vinnslufélagaskrárinnar, og þess vegna vill SAA biðja þá sem skrifað hafa sig á stofnfélagalista og enn ekki fengið sendan Giró-seðil fýrir stofnframlagi að hafa samband við skrifstofu SAA og láta vita. Heimilisfangið er Lágmúli 9 og siminn er 82399. Einnig vilja samtökin minna þá sem fengið hafa senda Gíró-seðla á að greiða þá sem fyrst i næsta banka, sparisjóði eða pósthúsi. Giro-reikningur SAA er nr. 300 i Útvegsbanka Islands, Laugavegi 105. (Fréttatilkynning frá SAA) Auglýsing um aðalskoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur í febrúarmánuði 1978 Mánudagur 20. febrúar R-1 til R-400 Þriðjudagur 21. febrúar R-401 til R-800 Miðvikudagur 22. febrúar R-801 til R-1200 Fimmtudagur 23. febrúar R-1201 til R-1600 Föstudagur 24.febrúar R-1601 til R-2000 Mánudagur 27. febrúar R-2001 til R-2400 Þriðjudagur 28. febrúar R-2401 til R-2800 Skoðað verður að Bildshöfða 8, alla virka daga nema laugardaga frá kl. 8.00 til 16.00. Bifreiðaeigendum ber að koma með bif- reiðar sinar til bifreiðaeftirlitsins, Bilds- höfða 8, og verður skoðun framkvæmd þar alla virka daga kl. 08:00-16.00 Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum. Festivagnar, tengivagnar og farþega- byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi, að bifreiðaskattur og vá- trygging fyrir hverja bifreið sé i gildi. Athygli skal vakin á þvi, að skráningar- númer skulu vera læsileg. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tima verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðar- lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn i Reykjavik 7. febrúar 1978 Sigurjón Sigurðsson. g hádegis á morgun! Fjölbreytt úrval af nvium fiski Landeigendur í Selási Aðalfundur Félags landeigenda i Selási verður haldinn að Hótel Esju laugardag- inn 11. febrúar 1978 kl. 14.00 Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf 2) önnur mál. Stjórnin Léttar - meðfærilegar - viðhaldslitlar Góö varahlutaþjónusta. m Þ. ÞORGRIMSSON & CO 'Armúla 16 ■ Reykjavík ■ sími 38640 % þjDPPur vibratorar © sagarbloð steypusagir Þjoppur bmdivirsnjllur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.