Tíminn - 10.02.1978, Page 10
10
Föstudagur 10. febrúar 1978
Kynning á ungum framsóknarmönnum
Vaxandi starf
Framsóknarfélags
V opnafj ar ðar
— Málefnastaða Framsóknarflokksins mjög sterk,
segir Jón Þór Guðmundsson á Vopnafirði
Jón Þór Guömundsson er
fæddur á Hauksstöðum i Vopna-
firði og ólst þar upp. Hann vann
við bústörf jafnframt þvi sem
hann stundaði nám. Hann lauk
prófi frá bændaskólanum að
Hólum i Hjaltadal, en siðan lá
leiðin til Danmerkur, þar sem
hann lagði stund á mjólkur-
fræði. bvi námi lauk hann sið-
astliðiö vor og hefur siðan starf-
að sem mjólkurfræðingur i
Mjólkurstöðinni i Vopnafirði.
Jón er formaður Framsóknar-
félags Vopnafjarðar, og á ferð
um Vopnafjörð nýlega tókum
viö hann tali, og spurðum fyrst
um starfsemina i Mjólkurstöð-
inni.
—Á siöasta ári tókum við við
637 þúsund litrum af mjólk, og
er það aðeins minna en árið
1976, en þá var mjólkurfram-
leiðsla hér i Vopnafiröi það
mesta, sem hún hefur nokkru
sinni orðið.
— Eru allir bændur hér um
slóöir ineð einhverja mjólkur-
framleiöslu?
—- Nei, ekki eru allir bændur
hér i Vopnafirði með mjólkur-
framleiðslu og aðeins er einn
sem hefur eingöngu kýr. All-
margir eru hins vegar eingöngu
með sauðfjárbúskap.
Innleggjendur eru alls um 20,
og hefur þeim fremur fækkað á
siðari árum, en framleiðslan
hjá hverjum hefur hins vegar
aukizt.
— Hvernig vinniö þið mjólk-
ina?
— Megnið af framleiðslunni
fer til neyzlu hér i Vopnafirði og
er mjólkinþviunnin i samræmi
við það. Stor nluti er seldur sem
neyzlumjólk en einnig er hér
nokkur smjörgerð og svo búum
við til skyr, kasein o. fl.
— Eru einhverjar ráöagerðir
urn aö taka mjólkurtanka I
notkun?
— Já, tankvæðing er á döfinni
og er byrjað að undirbúa hana.
Ráðgert er að kaupa tankbil á
þessu ári til að sækja mjókina til
bænda, og sumir bændur hafa
þegar aflað sér mjólkurtanka.
Jafnframt eru bændur aö fá sér
rörmjaltakerfi.
En samhliða þessu verður að
leggja mikla áherzlu á að fá
vegakerfið stórbætt. Hér eru'
vegir viða lágir og verða oft ó-
færir, þótt ekki höfum viö haft
af þvi að segja i vetur. En svo
hefur verið snjólétt nú að fært
hefur verið flesta daga til Þórs-
hafnar og er það sjaldgæft.
— Er starfsemi Framsóknar-
félagsins gróskumikil?
— Ég held það megi fullyrða
að starfssemi Framsóknarfé-
lagsins sé mjög vaxandi um
þessar mundir. Við vinnum nú
af kappi að þvi að undirbúa
tvennar kosningar, og sitthvað
fleira er á döfinni hjá okkur. T.d
höfum við ákveðið að halda árs-
hátið i marz.
— Hefur félögum fjölgaö upp
á siökastiö?
— Já margir hafa gengið i fé-
lagið, og mikill hugur er i mönn-
um að gera stóra hluti. Það er
þegar ákveðið að framsóknar-
menn beri fram hreinan flokks-
lista við sveitarstjórnarkosn-
ingarnar i vor, en siðast var
samstarf milli framsóknar-
manna og óháðra borgara um
framboð.
Aðalfundur félagsins veröur
haldinn nú bráðlega og verður
þá rætt um á hvern hátt staðið
verður að framboði. Framsókn-
armenn hafa nú fjóra af sjö
hreppsnefndarmönnum og
stefnum við markvisst að þvi að
halda þeirri tölu að loknum
næstu kosningum.
—Hafa framsóknarmenn
komiö miklu góðu til leiðar i
sveitarstjórnarmálunum?
— Málefnastaða flokksins er
hér mjög góð. Hér hefur verið
unnið að f jölmörgum framfara-
málum siöasta kjörtimabil og
mikil uppbygging átt sér stað.
Sem dæmi má nefna að stórátak
hefur verið gert i gatnagerð, og
miklar umbætur i hafnarmálun-
um. Þá hefur gjörbylting verið
gerð i samgöngumálum með
endurbótum á flugvellinum, og
hreppsnefndin hefur stuðlað
að uppbyggingu ibúöarhúsnæðis
með byggingu leigu- og sölu-
ibúða. Þá miðar heilsugæzlu-
stöðinni vel áfram og fjölmargt
fleira mætti nefna.
Við öll þessi framfaramál
hafa framsóknarmenn staðið i
fylkingarbrjósti, og ef á annað
borð er nokkru sinni unnt að
þakka hreppsnefndarmönnum
S| |> VX
Umsjónarmenn: Magnús Ólafsson
Ómar Kristjánsson
Jón Þór Guömundsson.
og sveitarstjóra nokkuð ætti það
að vera auðvelt hér. En við
þessi verk hafa sveitarstjórnar-
menn notið stuðnings þing-
manna kjördæmisins og þá sér-
staklega hinna þriggja þing-
manna Framsóknflokksins.
— En á hvaö telur þú aö
leggja beri áherzlu á næstu ár-
uin i sveitarstjórnarmálum hér
á Vopnafirði?
— Að sjálfsögðu þarf að halda
áfram við að byggja upp at-
vinnutækin, og ýmiss konar
þjónustustarfsenii sem mark-
visst hefur verið unnið að upp-
byggingu á hin siðari ár. Síðan
þarf aö leggja aukna áherzlu á
að byggja upp vegina hér i
sveitinni. Okkur er mikil nauð
syn á betri vegum en við höfum
nú. Bæði er það vegna þess, að
nú er verið að taka mjólkur-
tanka i notkun, og vegna þess að
börnum þarf að aka að og frá
skóla. Það er mikil nauðsyn á
góðum samgöngum i nútima
þjóðfélagi, svo öll mannleg
samskipti geti gengið snuðru
laust fyrir sig.
Annars tel ég að við Vopnfirð-
ingar getum verið mjög kröfu-
harðir með að fá aukið fjár-
magn til vegagerðar. Staöreynd
er aö vegir á Austurlandi eru
þeir verstu á landinu, og vegir i
Vopnafirði eru þeir verstu á
Austfjörðum! Þvi þarf að gera
hér verulegt átak.
— Aö lokum Jón Þór, hvernig
II zt þér á komandi alþingis-
kosningar?
— Við framsóknarmenn erum
staðráðnir i að vinna vel og við
stefnum markvisst að þvi að
halda okkar þremur þingmönn-
um inni á Alþingi að kosningum
loknum. Við gerum okkur ljóst
að jafnvel þótt við aukum fylgi
Framsóknarflokksins nokkuð
hér i kjördæminu'er hugsanlegt
að við töpum manni vegna
skiptingar á atkvæðum milli
hinna flokkanna.
Þvi þarf að gæta þess vel að
hvert einasta atkvæði Fram-
sóknarflokksins skili sér á kjör-
degi. Bæði er það vegna þess, að
hinir áægtu þingmenn Fram-
sóknarflokksins Vilhjálmur
Hjálmarsson, Tómas Arnason
og Halldór Asgrimsson hafa
unnið kjördæminu mjög vel og
munu gera áfram, og einnig
vegna þess, að ef Framsóknar-
flokkurinn tapaði manni til Al-
þýðubandalagsins yrði það til
þess að þingmönnum kjör-
dæmisins fækkaði um einn og
gæti leitt til nýrrar viðreisnar-
stjórnar. Það er staðreynd, að
Helgi Seljan, annar maður á
lista Alþýðubandalagsins er ör-
uggur með að verða kjörinn sem
uppbótarmaður en veröi hann
kjördæmiskjörinn verður það til
þess að okkar ágæti og dugmikli
þingmaður Halldór Asgrimsson
verður ekki á þingi næsta kjör-
timabil, en Halldór er sem
kunnugt er yngsti þingmaður-
inn.
M.Ó.
Laus staða
Hlutastaöa dósents i almennri meinafræöi i tannlækna-
deild Háskóla tslands er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknarfrestur er til 6. mars nk. Umsóknum skulu
fylgja ýtarlegar upplýsingar um ritsmiöar og rannsóknir,
svo og námsferii og störf, og skulu þær sendar mennta-
málaráöuenytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik.
Menntamálaráöuneytiö,
2. febrúar 1978.
Horace Parlam
^ÍXS Orlofshús
Bandalag háskólamanna minnir félags-
menn sina á, að frestur til að sækja um or-
lofsdvöl i orlofshúsum bandalagsins að
Brekku i Biskupstungum rennur út 15.
febrúar n.k.
Bandalag háskólamanna.
Starf dómorganistans
i Reykjavik er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 10. marz 1978 og
skulu umsóknir sendar til Erlings Aspe-
lunds Hótel Loftleiðum, er gefur nánari
upplýsingar i sima 22322.
Sóknarnefnd Dómkirkjunnar.
Glaðningur fyrir
jass-áhugamenn
ESE — Um næstu helgi kemur
jasstrió Horace Parlans hingað til
lands. Trióið mun halda hér
þrenna tónleika, og verða hinir
fyrstu þeirra nk. laugardag i
Menntaskólanum við Hamrahlið
og hefjast þeir kl. 21.
Trio Horace Parlan skipa þeir
Horace Parlan, Doug Raney og
Wilbur Little.
Trio Horace Parlan kemur
hingað til lands á vegum Jass-
vakningar.
Norrænir styrkir til þýðingar og útgáfu
Norðurlandabókmennta.
Fyrri úthlutun 1978 á styrkjum til útgáfu norrænna bók-
mennta i þýðingu á aðrar Norðurlandatungur fer fram á
fundi úthlutunarnefndar 27.-28. april n.k. Frestur til að
skila umsóknum er til 20. mars n.k.Tilskilin umsóknar-
eyðublöð og nánari upplýsingar fást i menntamálaráðu-
nevtinu. Hverfisgötu 6, Reykjavik, en umsóknir ber að
senda til Nabolandslitteraturgruppen, Sekretariatet for
nordisk kulturelt samarbejde, Snaregade 10, DK—1205
Köbenhavn K.
Menntamálaráðuneytið, 7. febrúar 1978.