Tíminn - 10.02.1978, Page 24

Tíminn - 10.02.1978, Page 24
* 18-300 [Auglýsingadeild Tímans. ,,Gráa skýrslan”: Sterkir árgangar bætast við hrygningarstofn síldarinnar Hafrannsókn leggnr til að hámarksafli 1978 verði 35 þús. tn, UREVnii fgn9"" ’ : HÚ&GiÖGill Sfmi 8 55 22 TRÉSMIDJAN MEIDUR SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822 SJ — Rannsóknir á sildarstofnin- um, sem gerðar voru 1977, gefa til kynna að árgangurinn frá 1974 sé meðalstór ntiðað við timabilið 1955-63 og sennilega talsvert sterkari en árgangurinn frá 1971, sein talinn hefur veriö tiltölulega góður. Fyrstu athuganir á 1975 árganginum benda tit, að hann sé af svipaðri stærð og 1974 ár- gangurinn, en þessir árgangar bætast við hrygningarstofninn á þessu ári og þvi næsta. Athyglisvert er að meðallengd sildar af 1974 árganginum er nærri 2 sm lægri en verið hefur um margra ára skeið. Slik breyt- ing á vaxtarhraöa rennir stoöum undir þá skoöun, að þessi árgang- ur sé mun sterkari en fyrir- rennarar hans. Hafrannsóknastofnunin hefur Sild háfuð úr móti. gert tillögur um aö hámarksafli á sildveiðum veröi 35.000 tn á þessu ári og er þaö 6 þús. tonna hækkun frá veiðinni á siöasta ári. Veiöinni veröi hagaö svo að aflanum veröi skipt milli hring- nótar og reknetabáta, en þar sem 3-4 ára sild (26-30 sm) veröur i miklum meirihluta á miöunum á hausti komanda, er eindregiö lagt til aö sú aflaaukning, sem gert er ráð fyrir frá fyrra ári veröi fyrst ogfremst tekin meö reknetum og hringnótaveiöar ekki auknar frá þvi sem var 1977. Hringnótaveiðar veröi leyföar 20. sept. — 20. nóv.,en rekneta- veiðar frá 20. ág. — 20. nóv. Reglugerð um bann við veiði smásíldar verði breytt þannig að 27 sm sild og minni megi ekki vera meira en 25% i afla i staö 50% (eftir fjölda). Stærð hrygningarstofnsins (4 ára sild og eldri) hefur verið endurreiknuö fyrir árin 1975-77 og spá gerö fyrir 1978-79. Niöurstöð- ur sem hér segir: Hrygningarstofn sumargots- sildar i þús. tonna 1975 1976 1977 1978 1979 85 95 105 (155) (200) Samkvæmt fyrri spá fyrir 1977 átti hrygningarstofninn þá aö vera I20þús. tonn. Þessi mismun- ur er fyrst og fremst vegna þess að 1973 árgangurinn hefur reynzt mun lélegri en búizt haföi veriö við. Hrygningarstofninn var um 350 þús. tonn áöur en honum tók að hnigna upp úr 1964. Stefnt er að því aö stofninn nái aftur þessari stærð innan fárra ára. Getum tvöfald- að karfaaflann Rýrnun gotstofns gefur þó ástæðu til varúöar SJ — Áætlað er að karfaafli okkar árið 1977 hafi verið um 28 þús. tonn. og að heildarkarfaaflinn á tslandsmiðum hafi verið um 62 þús. tonn. Hafrannsóknastofnun leggur til að leyfilegur hámarks- af li við island verði 60 þús. tonn á þessu ári. Miðað við karfaaflann á sl. ári getum við aukið afla okk- aru 100% á árinu. Þessari aukn- ingu verður þó þvi aðeins náð með þvi að beina fiskisókninni mun meira að karfaveiðum, en gert var i fyrra. A sl. ári var i fyrsta skipti reynt aö gera heildarúttekt á karfa- stofnunum i' Norður-Atlantshafi á vegum Alþjóðahafrannsókna- ráösins. Heildarkarfaaflinn á þessusvæði minnkaði úr 156 þús. tonnumáriðl965 i 88þús. tonn áriö 1973, en hefur aukizt siðan, eink- um árið 1976 og varð þá 189 þús. tonn. Þessi aukning stafar af stórfelldri smákarfaveiði Sovét- manna við Austur-Grænland aö- allega á árinu 1976 (101 þús. tonn). Vinnunefndin komst aö eftir- farandi niðurstöðum: Karfa- stofnarnir á svæðinu voru full- nýttir timabilið 1965—1974. Got- stofninn hefur minnkað um 30—40% allra siöustu árin miðað við meðalstærð hans á timabilinu 1965—1974. Slik minnkun got- stofnsins gefur ástæður til fyllstu varúðar. Hin mikla sókn i smá- karfa við A-Grænland árið 1975 og 1976 er mjög óæskileg og draga þyrfti stórlega úr henni. Með tilliti til hins hæga vaxtar karfans, hinnar miklu veiöi á smákarfa á uppeldissvæöunum við A-Grænlandá árunum 1975 og 1976 og óvissunnar um áhrif henn- ar svo og hinnar alvarlegu minnkunar gotstofnsins siðustu árin, leggur Hafrannsóknastofn- unin til, að leyfilegur hámarksafli við Island veröi 60 þús. tonn á ár- inu 1978. Vinnunefndin sem gerði úttekt á karfastofnunum viö Færeyjar, tsland og A-Grænland, á fundi i Reykjavik þegar ársfundur Alþjoðahafrann- sóknaráðsins var haldinn hér i september sl. Blaðburðar íólk óskast Timann vantar fólk til blaöburðar i eftirtalin hverfi: Álfheimar Háteigsvegur Suðurlandsbraut Hátún Miðtún SÍMI 86-300 Jón vann Kuzmin — í gærkvöldi SSt — óvæntustu úrslit fimmtu umferðar Reykjavikurskák- mótsins var skák þeirra Jóns L. Arnasonar og Rússans Kuz- mins , en Jón sigraöi i' þeirri viöureign á glæsilegan hátt, yfirspilaði Kuzmin gersamlega og gafst hann upp i 23. leik. A sjötta hundruð manns voru á fimmtu umferöinni og er það mesta aðsókn sem verið hefur til þessa og hafa vafalaust margir komiö til að fylgjast með viðureign þeirra Friðriks og Browne. Þar varð þó ekki um spennandi skák að ræða. Kom fljótlega upp endatafl og virtist sem hvorugur vildi taka neina áhættu og lauk skák þeirra með jafntefli eftir 32 leiki. Onnur úrslit i gærkveldi urðu sem hér segir: Miles — Margeir 1-0 ögaard — Helgi 1/2-1/2 Larsen —Guðmundur 1-0 Polugaessvky — Smejkal 0-] Hort — Lombardy l-o Sjötta umferð á Reykjavikur- skákmótinu verður tefld i kvöld og þá tefla saman Margeir og Polugaevsky, Kuzminog Miles, Friðrik og Jón L. Arnason, Helgi og Browne, Lombardy og ögaard, Larsen ogHort ogGuð- mundur og Smejkal. Humarinn við borðstokk. Draga veröur úr humarveiði SJ — Ilafrannsóknastofnun leggur til, að leyfilegur hámarks- afii af humri árið 1978 veröi 2.500 tonn, en heildarveiðin i fyrra var um 2.800 tonn, eða sú sama og ár- ið 1976. Þessi lækkun á hámarks- afla er gerð til að stuöla að frek- ari uppbyggingu humarstofnsins. Mælt er með þvi að sóknartak- mörkunum verði einkum beint að veiðisvæðunum suðvestanlands, en þar er stofninn verr farinn en viðast annars staðar. Nýir útreikningar byggðir á gögnum frá 1977 gefa til kynna, að þegar humarsto&iinn varsiöast i hámarki 1970, hafi sá hluti hum- arstofnsins sem nær lágmarks stærðtillöndunar (þ.e. 7 sm hala- lengd eða 6 ára og eldri) verið um 18.7 þús. lonn. Vegna alltof mik- illar sóknar á árunum 1970—72 minnkaði stofninn ört og var kominn niður i um 11.2 þús. tonn árið 1974, en þá var gripið til öfl- ugra friðunaraögerða. Taliö er að stofninn hafi verið kominn upp i 13.2 þús. tonn á sl. ári og er aukn- ingin fólgin i nýliöun árganganna 1969—71 i nýtanlegum hluta hum- arstofnsins á árunum 1975—77, fyrst sem smáhumri og siðar millihumri. Hluti stórhumars i aflanum hefur nær sifellt farið minnkandi frá 1969 og veröur á- fram lágur á árinu 1978, þar eð hann flokkast ekki sem stórhum- ar fyrren u.þ.b. 9—10 ára gamall. Astæður fyrir lágu hlutfalli stórhumars i afla undanfarinna ára má að nokkru rekja til heldur lélegra árganga, t.d. 1968, auk mikillar veiði 1970—72. Meðalafli á togtima á allri ver- tiðinni 1977 var 36 kg, 39 kg við Vestmannaeyjar, i Meðallands- bugt, Skeiðarárdjúpi og Breiða- merkurdjúpi, en 28 kg við Suð- vesturland frá Jökuldjúpi að Sel- vogi. Rukkunarheftin Blaðburðarfólk er beðið að sækja rukkunarheftin sem fyrst á afgreiðslu Timans að Siðumúla 15 (2. hæð). Athugið að Timinn er fluttur úr Aðalstræti i Siðu- múla 15. — Simi 86-300.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.