Tíminn - 26.02.1978, Qupperneq 2
2
Sunnudagur 26. febrúar 1978
Margrét Gubmundsdóttir og Bessi Bjarnason i hlutverkum sfnum.
Þjóðleikhúsið frum
sýnir á Húsavík
Sú nýbreytni ver&ur nú hjá
Þjóöleikhúsinu aö það frumsýn-
ir leikrit á Húsavik á fimmtu-
daginn 2. marz. Er hér um að
ræöa bandariskan gamanleik A
sama tíma aö ári eftir Bernard
Slade. Höfundur kallar verkið
rómantiskan gamanleik. Það
var frumsýnt á Broadway fyrir
tveim árum og hefur siöan farið
sigurför viöa um lönd.
Persónur leiksins eru aðeins
tvær,karl og kona sem hittast á
sveitahóteli og eiga ánægjulega
helgi. Þar sem þau eru bæði gift
stendur þetta gaman stutt, en
þau ákveða að hittast þessa
sömu helgi á hverju ári. Leik-
ritið spannar siöan 25 ár i lifi
þeirra frá 1951 til 1975 og sjáum
við þau á fimm ára fresti.
Með aðalhlutverk fara Bessi
Bjarnason og Margrét Guð-
mundsdóttir. Þýðandi leiksins
er Stefán Baldursson^leikmynd
er eftir Birgi Engilberts og leik-
stjóri er Gisli Alfreðsson.
Nokkrar sýningar verða á
Húsavik. Þá kemur leikflokkur-
inn aftur til Reykjavikur en
ráðgert er að sýna verkið i vor
og sumar viða um land.
Barnakennar
ar mótmæla
Fulltrúaráðsfundur Sambands
islenzkra barnakennara haldinn
föstudaginn 24. febrúar 1978 mót-
mælir harðlega þvi gerræði
stjórnvalda að ógilda nýgerða
kjarasamninga rikisins og BSRB.
Fulltrúaráðið minnir á, að það
eru aðeins tæpir fjórir mánuðir
frá þviað fjármálaráðherra fyrir
hönd rikisstjórnarinnar sam-
þykkti og undirritaði ákveðið
samkomulag um kaup og kjör
starfsmanna rikisins, þeirra á
meðal kennara. Þetta samkomu-
lag áttiað ná til 30. júni 1979. Ekk-
ert óvænt hefur gerzt i efnahags-
málum þjóðarinnar á þeim tima
sem liðinn er frá undirskrift
samninganna sem réttlætt getur
riftun þeirra.
Að ógilda undirskrift fjármála-
ráðherra nú er þvi algert siðleysi
til þess fallið að grafa undan þvi
trausti sem nauðsynlegt er að riki
á milli rikisvaldsins og starfs-
manna þess. Takist ekki að
hrinda þessari árás er sjálf til-
vera stéttarsamtaka okkar i húfi.
Fundurinn skorar þvi á alla
launþega og launþegasamtök i
landinu að taka höndum saman i
baráttunni sem framundan er og
væntir þess að stjórn BSRB og öll
aðildarfélög þess standi fast með
Alþýðusambandi Islands og öðr-
um launþegasamtökum, hvort
heldur er i vinnustöðvun eða öðr-
um aðgerðum,sem vænlegar
verða taldar tij þess að fylgja
fram til sigurs kröfunni: Samn-
ingana i giidi.
Fulltrúaráð Sambands is-
lenzkra barnakennara lýsir þvi
jafnframt yfir, að það telur eitt
brýnasta hagsmunamál islenzku
þjóðarinnar að vinna bug á verð-
bólgunni og er fyrir sitt leyti
reiðubúið til samstarfs um ýmsar
aðgerðir aðrar en þær sem brjóta
skýlaust i bága við gerða samn-
inga.
Höfn Hornafirði:
Prófkjör
Kjörstjórn vill hér með
koma þvi á framfæri við alla
stuðningsmenn er hyggja á
framboð i komandi prófkjöri,
að þeir hafi nú þegar samband
við einhvcrn kjörstjórnar-
mann.
Ennfremur eru menn hvattir
til að koma á framfæri tillög-
um um framboð.
Kjörstjórn skipa: Friðrik
Kristjánsson, Björn Axelsson,
Ingólfur Arnarson, Friðjón
Guðröðarson og Kristbjörg
Guðmundsdóttir.
Framboðsfrestur rennur út í
dag, sunnudaginn 26. febrúar.
Styrkir
frá
NATO
Atlantshafsbandalagið (NATO)
mun á árinu 1978 veita nokkra
styrki til fræðirannsókna á
vandamálum er snerta opinbera
stefnumótun á sviði umhverfis-
mála. Styrkirnir eru veittir á
vegum nefndar bandalagsins,
sem fjallar um vandamál
nútimaþjóðfélags.
Eftirfarandi fjögur verkefni
hafa verið valin til samkeppni að
þessu sinni:
a) Alþjóöasamvinna til þess að
hindra að mengun berist milli
landa.
b) Vandamál er snerta orku-
þarfir nú og i framtiðinni, val
orkugjafa og umhverf issjónar-
miö I iönvæddum lönt’um.
c) Val framtiðarflutningakerfa i
borgum og umhverfissjónar-
mið.
d) Aætlanir um nýtingu lands
meö tilliti til verndunar land-
búnaðarsvæða.
Styrkirnir eru ætlaðir til rann-
sóknarstarfa i 6-12 mánuði.
Hámarksupphæð hvers styrks
getur að jafnaði oröið 220.000
belgískir frankar, eða rösklega
1.700.000 krónur.
Gert er ráð fyrir, að umsækj-
endur hafi lokið háskólaprófi.
Umsóknum skal skilað til utan-
rikisráðuneytisins fyrir 31. marz
1978 — og lætur ráðuneytið i té
nánari upplýsingar um styrkina.
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiösla
Auglýsingadeild TímanS