Tíminn - 01.03.1978, Síða 2

Tíminn - 01.03.1978, Síða 2
2 Miðvikudagur 1. marz 1978 Frjálslyndir sigra í Columbíu Bogotá, 'Columbiu/Reutcr. —I gær var allt útlit fyrir að hinn aldni stjórnmálamaður Julio Cesar Turbay Ayala yrði næsti forseti Suður-Amerflcurikisins Columbiu, en þegar u.þ.b. helm- ingur atkvæða hafði verið talinn var fylgi hans þegar orðið svo mikið að ljóst þótti að hann hefði sigrað andstæðing sinn innan Frjálslynda flokksins, Carlos Lleras, fyrrverandi forseta. Þeir keppinautarnir höfðu fyrir kosningarnar komið sér saman um það að sá þeirra yrði næsti forsetaframbjóðandi flokksins sem meira fylgi hlyti i kosningunum nú, en flokkur þeirra gengur klofinn til kosn- inganna. Kosningarnar styrktu hins vegar enn frekar en áður var forræði Frjálslynda flokksins yfir thaldsflokknum i báðum deildum Þjóðþingsins i Bogotá. Og er staða flokksins nú orðið svo sterk að kunnugir telja nær fullvist að frambjóðandi hans muni auðveldlega sigra i for- • setakosningunum að sumri. Mál Palestínumanna efst á baugi — i viðræðum Kamels og Athertons Kairó/Reuter Aðstoðarutan- rikisráðherra Bandarikjanna Alfred Atherton, lét svo um mælt i Kairó á fundinum með fréttamönnum i gær, eftir eins og hálfs tima fund með Mu- hammed Ibrahim Kamel, ut- anrikisráðherra Egypta, að málefni Palestinumanna stæðu ennþá i vegi fyrir þvi að hægl væri að gefa út sameig- inlega yfirlýsingu varðandi friðartilraunirnar i Mið- austurlöndum, en sagði að það mál væri efst á baugi i viðræð- unum. Kamel sagði eftir fundinn, að það bæri mikið á milli Egypta og tsraelsmanna, en bætti við að samningaumleit- unum væri enn haldið áfram og að reynt yrði að þrengja bilið. Það tæki sinn tima. Kamel gagnrýndi þá ákvörðun ísraelsmanna að breyta ekki afstöðu sinni til búsetu Gyð- inga á herteknu svæðunum og sagði að yfirlýsing israelsku stjórnarinnar væru hættuleg. Bæði Bandarikin og önnur lönd hefðu látið mjög skýrt i ljósi þá skoðun sina að bygg- ing nýrra búsetusvæða þar tálmaði mjög veginn til friðar og það væri mjög undarlegt að rikisstjórn ísraels skyldi velja einmitt þann sama tima til að staðfesta þessar aðgerðir og þeir sætu að samningaborði. il P4; f' EllSS'íí 1 :Íjfrk 1 \ J ltalska lögreglan á við mörg vandamál að strfða, en mannrán, og alls kyns óeirðir eru nokkurs konar þjóðariþrótt þar I landi. Viðtækt svikamál á ítaliu Standa að baki sínum eigin mannránum Milanó/Reuter. Að þvi er heim- ildir frá itölsku lögreglunni segja, leikur grunur á, að að minnsta kosti einn italskur auð- jöfur sem rænt var nýlega, hafi staðið að baki sinu eigin ráni i þvi skyni að svikja fé út úr er- lendum tryggingafélögum. Lögreglan uppgötvaði að af um þrjátiu auðjöfrum, er höfðu tryggt sig gegn mannránum, hafði tiu verið rænt og þeir látn- ir lausir eftir að mannræningj- unum hafði verið greitt hátt lausnargjald. Lögreglan sem 20 manns slasast í j ár nbrautar sly si Arnhem/Hollandi. Aö minnsta kosti tuttugu manns slösuðust þegar hollenzk járnbrautarlest og hraðlest á leið frá Munchen til Amsterdam rákust á nálægt Arnhem i Hollandi i gær. En eftir þvi sem talsmaður frá hol- lenzku járnbrautunum upplýsti munu ekki hafa orðið alvarleg slys á mönnum. telur hér vera afar viðtækt svikamál að ferðinni gerði leit i skrifstofu tryggingaumboðs- manns nokkurs i Milanó, en sá er talinn hafa verið tengiliður á milli fyrrgreindra auðjöfra og tryggingafyrirtækjanna er- lendu. Mannrán eru meðal gróða- vænlegustu atvinnugreina á ttaliu um þessar mundir og stendur i miklum blóma. t húsleitinni, sem gerð var á föstudaginn, komst lögreglan yfir lista með nöfnum viðskipta- vina og á meðal þeirra voru a minnsta kosti þrjátiu með tryggingar gegn mögulegum mannránum fyrir allt að einni milljón dala lausnargjaldi. Greiðslur og væntanlegar Teheran/Reuter. Lögreglan i íran tilkynnti i gær, að þrir hátt- settir yfirmenn hennar yrðu sviptir stöðum sinum, þar sem þeir hefðu verið fundnir sekur um vanrækslu i starfi og ábyrg- ir fyrir óeirðum þeim sem brut- ust út i bænum Tabris i Norður- tran i siðasta manuði. Niu manns létu lifið i þessum óeirð- um. Tilkynningin kom i framhaldi af skipun frá keisaranum um að þessum mönnum skyldi verða greiðslurvorusagðarhafa veriö sendar i gegnum erlendan banka i trássi við itölsk gjald- eyrislög, sem takmarka út- og innflutning á lirum við ákveðna upphæð. Að minnsta kosti sjö af þeim fjörutiu og sex, sem rænt var á ttaliu á siðasta ári, eru sjö enn- þá ekki komnir fram. Nýlega fundust tveir látnir eftir að fjöl- skyldur þeirra höfðu greitt lausnargjald fyrir þá. Innanrikisráðuneytið, lög- reglan og önnur yfirvöld á ttaliu hafa setið á fundum að undan- förnu til að ákveða hvaða ráð- stöfunum á að beita til þess að vinna bug á mannræningjunum og kveða niður þessa öldu sem gengið hefur yfir Italiu. refsað. Þessir þrir menn eru lög- reglustjórinn i Azerbaijan hér- aðinu, yfirmaður öryggislög- reglunnar i austurhluta héraðs- ins, og yfirmaður lögreglu- stöðvarinnar á staðnum. Kvöldblaðið Keyhan, sem gef- ið er út i höfuðborginni Teheran sagði i dag, að fylkisstjórinn i Azerbaijan, Iskander Azmou- deh hershöfðingi hafi einnig verið kvaddur til borgarinnar til yfirheyrslu. t»r!r háttsettir íranskir lögreglumenn settir af SÍB mótmælir úrskurði kjaranefndar Fulltrúaráðsfundur Sambands islenzkra barnakennara, haldinn 24. febr. sl. fordæmdi harðlega það virðingarleysi valdhafa gagnvart kennarastéttinni, sem felst i úrskurði kjaranefndar frá 24. febr. 1978. Taldi fundurinn það vanmat á störfum kennara og skólastjóra grunnskólans, sem kemur fram i úrskurðinum og geti það haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir skólastarfið i landinu. Þá var sagt að kjaranefnd snið- gengi m.a. algerlega það ákvæði aðalkjarasmnings BSRB, að próf, sem lögum samkvæmd veita sömu starfsréttindi, verði jafngild tfl launa, án tillits til þess á hvaða tima þau hafa verið tek- in. Einnig mótmælti fundurinn þeim drætti er orðið hefði á úr- skurði kjaranefndar. Sömuleiðis sagði að kjaranefnd hefði brotið ákvæði þau er tryggðu samningsrétt félaga um röðun manna og starfsheita i launaflokka. Aðlokum hvatti SIB alla félaga sina til að berjast einhuga gegn slikri litilsvirðingu á hagsmuna- málum kennarastéttarinnar. Jafnframt var sambandsstjórn falið að undirbua harða baráttu fyrir bættum kjörúm kennara og skólastjóra grunnskóla, ásamt fullum samningsog verkfallsrétti um sérkjarasamninga. Veruleg þátttaka í verkf allinu norðanlands Hei —Við reiknum með verulegri þátttöku i verkfallsaðgerðunum 1. og 2. marz, sagði Hákon Hákon- arson, formaður Alþýðusam- bands Norðurlands, er blaðið hafði samband við hann i gær. Hann k vaðst ekki geta sagt hve almenn þátttakan yrði. Verzlun- armannafélagið tæki ekki þátt i verkfallinu, en fólk i öðrum félög- um væri mjög ákveðið og hefði fullan hug á að sýna samstöðu. Hvað gert verður i áframhaldi af þessu er allt öráðið ennþá. Þátttakan nú getur orðið próf- steinn á samstöðu manna til frek- ari aðgerða. Samningum hefur verið sagt upp frá 1. april.en ekki hefur verið ákveðið ennþá hvað þá tekur við. Hákon Hákonarson, formaður Al- þýðusambands Norðurlands. Timamynd: Gunnar. Samnorræn sýning í Norræna húsinu ESE — Um næstu helgi verður opnuð i Norræna húsinu sýning samnorræns sýningarhóps, sem ber heitið „Den Nordiske”. Sýn- ingar af þessu tagi eru haldnar á tveggja ára fresti. Sýning þessi er nýkomin frá Kaupmannahöfn, en þar lauk henni 12. febrúar. Til þessa hóps teljast listamenn frá öllum Norðurlöndunum, og eru tveir Islendingar fastir með- limir. Það eru þau Tryggvi Olafs- son og Ólöf Pálsdóttir en hún á engin verk á sýningunni að þessu sinni. Sýningin fékk mjög góða dóma i Danmörku, og var það nær sam- dóma álit gagnrýnenda að fær- eysku listamennirnir væru þeir sem mest kæmi á óvart. Fulltrúar tslands mega einnig vel við una, þvi að verk þeirra eru talin mjög listræn auk kröftugs tjáningar- máta. Eins og áður segir er Tryggvi ólafsson fastur meðlim- ur sýningarhópsins, en að þessu sinni tekur Óskar Magnússon vef- ari þátt i sýningunni sem gestur. William Heinesen vekur mikla athygli á þessari sýningu, en hann er einn af fimm gestum sýn- ingarinnar. Hann er betur þekkt- ur sem rithöfundur, en á sýning- unni sýnir hann á sér nýja hlið, og sýnir klippimyndir sem hafa hlot- ið mikið lof gagnrýnenda. Tryggvi Ólafsson og danski málarinn Jens V. Rasmussen koma með sýninguna frá Dan- mörku og munu þeir sjá um upp- setningu og hafa umsjón með henni. Dýrasta mynd sýningarinnar er eftir Óskar Magnússon, en hún kostar 1,2 milljónir króna og ber heitið „Þeir komu”. Sýningin verður opnuð kl. 15 á laugardag og stendur fram til 19. marz. Tryggvi ólafsson og Jens V. Rasmussen vinna að uppsetningu sýning- arinnar. Tímamynd: Róbert.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.