Tíminn - 01.03.1978, Síða 5
Miövikudagur 1. marz 1978
!í.l).ÍSií'
5
skipta um
sölustjóra
Um þessar mundir verða
breytingar og tilflutninear sölu-
svæðastjóra og skrifstofustjóra
yiugleiða í þrem borgum Evrópu.
Gérard Alant sölusvæðisstjóri
félagsins i Frakklandi sem jafn-
framt stjórnar skrifstofu Flug-
leiða i Rris hefur sagtstarfii sinu
lausu og hættir störfum 1. april.
Hann hefur undanfarið undirbúið
stofnun eigin fyrirtækis, ferða-
skrifstofunnar Alantour sem
verður opnuð i vor. Við störfum
Alant i Paris tekur Antoine
Quitard svæðisstjóri i Belgiu sem
jafnframt hefur veitt skrifstofu
félagsins i Brussel forstöðu. Við
sölustjórn og skrifstofustjórn i
Brussel tekur Yves Bertino sem
undanfarin ár hefur vérið skrif-
stofustjóri félagsins i Nissa.
Gerard Alant er f jölmörgum ts-
lendingum að góðu kunnur. Hann
lætur sem fyrr segir af störfum 1.
april og opnar þá eigin ferðaskrif-
stofu, Alantour i Paris. Gérard
Alant hyggst leggja sérstaka
áherzlu á kynningu tslands og
skipulagningu ferða hingað og til
Bahamaeyja. Jafnframt hyggst
hann skipuleggja ferðir fyrir ts-
lendinga um Frakkland á sumri
komandi. Gérard Alant var
starfsmaður fyrirtækisins Lloyd
Otremer sem árið 1959 tók við
aðalumboði fyrir Loftleiðir i
Frakklandi. Hinn 1. nóvember
1964 opnaði félagið eigin skrif-
stofu i Paris og varð Gérard Alant
þá forstöðumaður hennar og
svæðisstjóri i Frakklandi. Skrif-
stofuna og sölustarfið allt hefur
hann rekið með sérstökum
myndarbrag og hefur ferðamönn-
um frá Frakklandi til tslands
stórfjölgað siðan skrifstofan var
Gérard Alant
opnuð. Þess má geta að Gérard
Alant er mikill áhugamaður um
tsland og islenzk málefni og nem-
ur m.a. islenzku við Sorbonne há-
skóla.
Antoine Quitard sem nú flyzt
frá Brussel og tekur við starfi
Gérard Alant i Paris starfaði
einnig á skrifstofu þeirri sem
hafði aðalumboð fyrir Loftleiðir i
Frakklandi. Eftir stofnun eigin
skrifstofu i Paris varð hann sölu-
stjóri i Frakklandi en tók við
starfi svæðisstjóra i Belgiu fyrir
fjórum árum.
Yves Bertino sem nú flyzt frá
Nissa til Brussel og tekur við
starfi Antoine Quitard starfaði
einnig áður hjá umboðsmönnum
Loftleiða i Paris en gerðist starfs-
maður félagsins við opnun eigin
skrifstofu 1964. Yves Bertino var
um sjónarma ður söluskrif-
stofunnar i Paris unz hann tók við
skrifstofustjórn í Nissa fyrir
tveim árum.
Kvennakór
Suðurnesja 10 ára
Þann 22. febrúar s.l. varð
Kvennakór Suðurnesja 10 ára.
Kórinn hefur haldið árlega vor-
tónleika i Keflavik I þessi 10 ár
auk þess sem hann hefur sungið
víða um land og tekíð þátt i al-
þjóðlegri söngkeppni á Irlandi, og
s.l. sumar var kórnum boðið að
syngja á Islendingadeginum að
Gimli i Manitoba. A þeirri ferð
söng kórinn viða I Kanada og I
Seattle i Bandarikjunum.
Söngstjóri kórsins frá upphafí
hefur verið Herbert H. Ágústsson,
en undirleikari lengst af verið frú
Ragnheiður Skúladóttir. Kórinn
hefur notið leiðsagnar þekktra
söngkennara, svo sem Snæbjarg-
ar Snæbjarnardóttur og Elisabet-
ar Erlingsdóttur, núverandi
raddþjálfari er Hreinn Lindal.
Norrænn
Byggingardagur
JB — Nýlega var haldinn aðal-
fundur íslandsdeildar N.B.D.
(Nordisk Byggedag). Stjórn til
næstu þriggja ára skipa: Hörður
Bjarnason húsameistari rikisins,
formaður, — Guðmundur Þór
Pálsson arkitekt, aðalritari, —
Ólafur Jensson framkvæmda-
stjóri, gjaldkeri, er kom i stað
Áxels Kristjánssonar fram-
kvæmdastj. sem gaf ekki kost á
sér til endurkjörs, en Axel hafði
gegnt störfum gjaldkera frá byrj-
un. Aðrir i stjórn eru: prófessor
dr. Óttar P. Halldórsson, Hjörtur
H jartarson stórkaupmaður,
Sigurður Kristinsson forseti
Landssambands iðnaðarmanna
og Zophonias Pálsson skipulags-
stjóri rikisins.
Fjórtánda ráðstefna samtak-
anna verður haldin i Sviþjóð árið
1980. Undirbúningur að þeirri
ráðstefnu er þegar hafinn og mun
þar verða fjallað um bygginga-
mál almennt með fjölbreyttri
byggingarsýningu. Að undirbún-
ingi ráðstefnunnar standa stjórn-
ir allra aðildarlandanna innan
NBD svo sem venja er hverju
sinni milli ráðstefnuára, sem er
þriðja hvert ár. Þarnæst i röðinni
til ráðstefnuhalds er ísland og
verður það árið 1983. Aðeins ein
ráðstefna NBD hefir áður verið
haldin á íslandi frá stofnun sam-
takanna 1928 en það var árið 1968.
tsland hefir átt aðild að N.B.D.
frá árinu 1938, en á styrjaldar-
árunum féll starfsemin niður, og
var formlega tekin upp að nýju
árið 1945 með 25 aðildarfélögum
og stofnunum er méð byggingar-
og skipulagsmál fara hér á landi.
Verzlunarskólablaðið
komið út í 44. skiptið
ESE — Nýlega kom Verzlunar-
skólablaðið út i 44. skipti. Blaðið
mun nú vera stærsta skólablað
landsins en fastir áskrifendur eru
um 3000 talsins.
Efni blaðsins er að venju mjög
fjölbreytt. Blaðið er rúmlega 200
siður að stærð.
Meðal efnis eru viðtöl við fyrr-
verandi formenn málfundafélags
Verzlunarskólans en félagð átti
70 ára afmæli á þessu ári. Einnig
eru greinar um 60 ára afmæli
Verzlunarráðs íslands, grunn-
skólalögin og hið tilbúna tungu-
mál Esperanto.
Allur frágangur blaðsins er
mjög vandaður og aðstandendum
þess til mikils sóma.
Flúortöflur gegn
tannskemmdum
Næstu daga verður á vegum
Heilbrigðismálaráðs Reykja-
vikurborgar farið að afhenda
ókeypis flúortöflur handa börnum
innan 6 ára aldurs sem búsett eru
i Reykjavik.
Töflurnar verða til afhendingar
á barnadeild heilsuverndar-
stöðvarinnar og i heilsugæzlu-
stöðvunum i Árbæ, Breiðholti og
Langh olti.
Flúor hefir reynzt áhrifarfkasta
lyfið gegn tannskemmdum.
Sé það tekið i hæfilegum
skömmtum á myndunarskeiði
tannanna minnkar það tann-
skemmdir um og yfir 50%.
Hæfilegur skammtur er:
0-3 ára 0,25 mg (1 tafla) á dag
3-6 ára 0,50 mg (2 töflur) á dag
6-12 ára 0,75 mg (3 töflur) á dag.
Þessiskammtur er miðaður við
börn búsett i Reykjavik en þar er
flúor i köldu vatni minna en 0,1
mg i litra.
1 hitaveituvatni er hins vegar 1
mg flúor i hverjum litra og skulu
þeir er þess neyta ekki taka flúor-
töflur.
Töflur þessar eru litlar og
bragðdaufar. Þær eru auðleystar
i vatni og blandast auðveldlega
barnamat án þess að spilla
bragði.
Fyrst um sinn verður ókeypis
flúrotöflum eingöngu Uthlutað
börnum yngri en 6 ára og þá
verður jafnframt hætt flúortöflu-
gjöf á dagheimilum og leikskól-
um borgarinnar.
Afgreiddar verða 365 töflur á
einstakling en það er árs-
skammtur handa yngstu börnun-
um.
A það er lögð rik áherzla að
gefa aldrei meira en uppgefinn
dagsskammt og auðvitað skulu
þessar töflur geymast þar sem
börn ná ekki til.
Gerð verður spjaldskrá yfir þá
Okeypis
fluortöflur gegn
tannskemmdum
sem fá flúortöflur og reynt verður
að fylgjast með hvort töflurnar
eru teknar samkvæmt- fyrirmæl-
um eða ekki.
Fólk er eindregið hvatt til að
notfæra sér þessa þjónustu.
Heilbrigði tanna er snar þáttur
i almennu heilbrigði og góö heilsa
er gulli betri.
EEIsEEEEilSSEEEEIaEIaEEEEEIslglslalalalEjlslsla
GOLFDUKUR
Verð pr. ferm.:
1507, 1650, 1872 og 2248
OAMdAIMUIU DYUeilNUAVUnUn
SUDURLANDSBRAUT 32- EINNIG INNAKSTUR FRA ARMULA29