Tíminn - 01.03.1978, Blaðsíða 9

Tíminn - 01.03.1978, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 1. marz 1978 9 á víðavangi Atvinnuöryggið skiptir mestu Vilfijálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra skrifaði um miðjan febrúarmánuð for- ystugrein i Austra þar sem hann gerði efnahagsaðgerðir rikisstjórnarinnar að um- ræðuefni. í upphafi forystu- greinarinnar segir Vilhjálm- ur: „Gera má langa sögu stutta og segja, að á siðustu þremur árum tóku íslendingar sér 200 milna fiskveiðilögsögu og unnu þorskastríð, fram- kvæmdu mikið og forðuðu frá atvinnuleysi, efldu fram- leiðslu og byggðastefnú með augljósum árangri, en náðu ekki tökum á efnahagsmálum sinum. Þegar siðasta ár kvaddi, höfðu laun hækkað um nálægt 70% á 12 mánuðum. Vörusalan í desember fór langt fram úr fyrri metum. í janúar varð svo gífurleg sala á bilum og heimilistæki voru bókstaflega hreinsuð út úr verzlunum i höfuðstaðnum. Og viðskipa- jöfnuður, sem verið hafði óhagstæður versnaði stórum. — Á sama tima og launakostn- aður atvinnuveganna hækkaði um 70% að meðaltali hækkuðu þjóðartekjur aðeins um 7% og kaupmáttur rauntekna jókst um 6%. — Allir sjá að þessi þróun er vonlaus. Ljóster orðið að launahækk- un og einkum leiðréttingar á lægstu launum, sem allir töldu eðlilegt að yrði á árinu sem leið, hefur snúizt i launa- sprengingu.” Um samanburð við aðgerðir fyrri rikisstjórna við sam- bærilegum vanda segir Vil- hjálmur: „Þrásinnis siðan á stríðsár- unum hafa íslendingar staðið andspænis slikum vanda. Ætið hafa viðbrögð i höfuðdráttum orðið hin sömu. Gengislækkun og skerðing visitölubóta að einhverju marki og fleiri svo- nefndar hliðarráðstafanir. Rikisstjórnir og löggjafinn hafa talið sig neydd tii þessa. Allir stjórnmálaf lokkar á islandi hafa tekið þátt i þess konar aðgerðum. Stjórnar- andstaðan hefur ætið haft uppi gagnrýni, ýmist á aðferð eða framkvæmd. Á þessu er engin breyting nú og er vert að hafa það i huga. Það vekur sérstaka athygli, að nir tveir liðsoddar stjórn- andstöðunnar, Gylfi og Lúð- vik, sem að visu bera fram óraunhæfar tillögur um lausn vandans, eru gersamlega ósamlega um ýmis þýðingar- mikil atriði, þar á meðalgeng- islækkunina sjálfa. Þá segir Gylfi, að draga beri stórlega Ur verklegum framkvæmdum og opinberri þjónustu, en Lúð- vik telur það fjarstæðu. En meginkórvillan hjá báðum er að ætla sér að bjarga fram- leiðslunni með álögum á at- vinnureksturinn sjálfan og að stefna rikissjóði i augljósan hallarekstur.” Um aðgerðir rikisstjórnar- innari einstökum meginatrið- um segir Vilhjálmur í grein sinni m.a.: „Frumvarp rikisstjórnar- innar gerir ráð fyrir úrræðum, sem sum eru gamalkunn, en ekki öll. Með gengislækkun- inni og skertum visitölubótum einkum á hærri laun, er fjár- magn flutt til framleiðslunn- ar, einkum þeirra greina, sem selja erlendis, beinlinis til þess að tryggja áframhald- andi rekstur og þar með at- vinnuöryggi. — En það er satt að segja fyrir öllu. Visitöluskerðingin er við það miðuð, að kaupmáttur verði sá sami að meðaftali á þessu ári og hann var á þvi siðasta. Lækkun vörugjalds og auknum niðurgreiðslum er ætlað að stuðla að þessu. Sér- ákvæði um verðbætur gera hlutfall hinna lægstlaunuðu betri en annarra. Auknar niðurgreiðslur og hækkun barnabóta kemur einkum til góða stórum fjölskyldum eða m.ö.o. þeim sem þyngst um hala veifa. Með þessum aðgerðum vinnst einkum tvennt. Fram- leiðslan getur haldið áfram og yfirvofandi stöðvun er bægt frá. — Og tóm gefst til fram- halds þeirrar vinnu, sem verð- bólgunefndin svokallaða hefur þegar hafið. Sú nefnd hefur skilað áliti, er ósammála, en hefur gert þýðingarmiklar kannanir og aflar traustra gagna i ýmsum greinum. Halda ber áfram og auka sameiginlegt starf rikisvalds og samtaka stéttanna á þessu sviði. Slikt samstarf mun auð- velda samningagerð á vinnu- markaðinum og treysta grundvöll að ákvarðanatöku stjórnvalda.” Um ástæður aðgerðanna rifjar Vilhjálmur Hjálmars- son upp nokkrar af forsendum efnahagsaðgerðanna i grein sinni: ,,Að óbreyttu blasti við hallarekstur og rekstrarstöðv- un i fiskiðnaðinum og öðrum útflutningsiðnaði. Ráðstafan- irnar tryggja viðunandi rekstrargrundvöll allra helztu atvinnuv ega. Að óbreyttu hefði verð- bólguhraðinn á árinu orðið meiri en 40% að meðaltali en 36% frá upphafi árs til loka þess. Ráðstafanir þessar þoka þessari tölu niður i 36-37% að þvi er ársmeðaltalið varðar, en niðurundir 30% frá upphafi til ársloka. Að óbreyttu hefði stefnt í a.m.k. um 4-5 milljarða króna viðskiptahalla á árinu. Ráð- stafanir þessar bæta við- skiptajöfnuð um 6-7%milIj- arða á þessu ári og snúa halla i afgang.” JS. Fyrirlestur um ,,Opna háskól' ann” í London Flugleiðir kynna nýjar leiðir — kynningarmyndir um Flórida og Alpana Föstudaginn 3. marz kl. 5.15 verður við háskólann haldinn opinber fyrirlestur um Opna háskólann i London, The Open University. Háskóli þessi er i þvi frábrugðinn flestum háskólum, að hann hefur ekki yfir neinu kennsluhúsnæði að ráða, heldur fer nær öll kennsla fram með bréfaskiptum, i gegnum Utvarp og sjónvarp. Nú eru um 50.000 nemendur við nám í Opna háskól- anum. Fyrirlesari er Próf. Walter James, en hann er forseti kennaramenntunardeildar Opna háskólans. Próf. James, sem kemur hingað til lands að tilhlut- an British Council, hefur lengi unnið að ýmsum menntunarmál- um i Bretlandi, en hefur þó eink- um fjallað um fullorðinsfræðslu hin siðari ár. En það er einmitt meginmarkmið Opna háskólans að gefa þeim, sem farið hafa á mis við hefðbundið háskólanám, tækifæri til háskólanáms siðar á ævinni. Fyrirlesturinn verður haldinn i Lögbergi, húsi lagadeildar, stofu 101. Ollur er heimill aðgangur. ESE-Flugleiðirkynntu i gær tvær kynningarmyndir, sem félagið hefur látið gera um staði erlendis, sem liklegir eru til þess að laða að ferðamenn og þá jafnt islenzka, sem annarra þjóða. Myndirnar eru hvor af sinum toga. Onnur sýnir baðstrendur Florida og þá skemmtun sem þar er að finna, og nefnist hún „Sól- skinslandið Florida”. Hin myndin er árs gömul og ber heitið ,,A skiðum i hliðum Alpanna”. Sýnir hún skiðastaðina St. Anton og Kitzbuhel i Týrol i Austurrisku ölpunum. í baðum þessum mynd- um er brugðið upp svipmyndum GV — Leiðangursmenn á r/s Árna Friðriks.syni fundu loðnu- torfur 12 milur SSA af Stokkanesi aðfaranótt sunnudagins, og urðu leiðangursmenn einnig varir við torfur aðfaranótt mánudagins á sama stað. Að sögn Jakobs Jakobssonar fiskifræðings virðist þetta vera vestasti hluti göngunnar. Ætti Hei —Lögð hefur verið fram til- laga á Búnaðarþingi, um að þing- ið beini þvi til sveitarstjórna, hvort ekki sé unnt að bæta að- stöðu fyrir ferðafólk, t.d. með þvi að gera tjaldstæði við skóla og fé- lagsheimili. Segir i tillögunni að skólahus og félagsheimili séu til staðar i flest- um sveitarfélögum. Nauðsynlegt af li'finu, sem væntanlegir ferða- langar eiga i vændum, auk þess sem ýmsum fróðleik um viðkom- andi staði er komið á framfæri. Báðar þessar kvikmyndir eru með islenzku og ensku tali, og sá Eiður Guðnason um samningu textans og er kynnir með mynd- unum. Kvikmyndun annaðist Jón Þór Hannesson, en um hljóðsetn- ingu sá Sigfús Guðmundsson. Myndir þessar hafa verið sýnd- ar viða og þ.a.m. hefur myndin ,,A skiðum i hliðum Alpafjalla” verið sýnd i Bandarikjunum, þar sem hún vann til viðurkenningar siðastliðið haust. Á næstunni loðnan að ganga grunnt vestur- með, væri þá komið i landvar og þá ætti að veiðast, en sem kunn- ugt er hefur óveður á miðunum aftrað loðnuveiði. R/s Arna Friðriksson er nú kom- inn eitthvað vestur, og er reiknað með að leiðangrinum ljúki á mið- vikudag i Reykjavík. sé að koma upp tjaldstæðum við þessar byggingar, og skapa með þvi möguleika á að nýta þá hrein- lætisaðstöðu, sem skólahúsin og félagsheimilin bjóða upp á. Yfir- leitt eru starfandi húsverðir við þessi hús og mundu þeir geta ann- azt um rekstur tjaldstæðanna sem sett yrðu upp i tengslum við þau. munu myndirnar vera almenn- ingi til sýnis i Ráðstefnusal Hótel Loftleiða og verða sýningartimar auglýstir siðar. Fundur um skólamál á vegum FEF JB — Félag einstæðra foreldra heldur almennan fund um skóla- mál i Tjarnarbúð fimmtudaginn 2. marz n.k., og hefst fundurinn klukkan 21.00. Frummælendur á fundinum eru OlafurProppé og Anna Kristjáns- dóttir, sem bæði starfa hjá Skóla- rannsóknadeild menntamála- ráðuneytisins. Ólafur kallar sitt erindi ,,Til hvers er skóli?”, og fjallar meðal annars um hvort skólinn stuðli að auknum þroska barna og unglinga og hvort allir nemendur hafi sambærileg tæki- færi. Erindi Onnu kallast „Hvaö ger- ist i skólanum?”, og ræöir hún þar m.a. um hvernig hægt er að vinna með og virkja nemendur á mismunandi þroskastigi og með mismunandi áhuga. Kynning á sænskum og finnskum bókum FI— Norrænu sendikennararnir við Háskóla Islands halda kynn- ingu á sænskum og finnskum bókum i Norræna Húsinu n.k. sunnudag 5. marz kl. 16:00. Kynntir verða rithöfundarnir Lennart AAberg og Ros-Mari Rosenberg. Loðna fannst SSA af Stokksnesi Búnaðarþing: Tjaldstæði við skóla og félagsheimili

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.