Tíminn - 01.03.1978, Side 11

Tíminn - 01.03.1978, Side 11
Miðvikudagur 1. marz 1978 n Póroddur Jóhannsson Þóroddur Jóhannsson, starfs- maður Almennu tollvöru- geymslunnar er 45 ára, kvæntur Margréti Magnúsdóttur og eiga þau þrjú börn. Hann var nem- andi i Iþróttaskóla Sigurðar Greipssonar. Þóroddur hetur unnið við landbúnaðarstörf, bif- reiðaakstur, bifreiðakennslu og Hún hefur slðustu fimm árin verið i stjórn Félags verzlunar- og skrifstofufólks á Akureyri. Meðal áhugamála hennar eru dagvistunarmál barna og vel- ferð aldraðra. Þá hefur hún brennandi áhuga á húsbygging- armálum Sjálfsbjargar. Sigurður Óli Brynjólfsson Sigurður Óli Brynjólfsson, kennari, er 48 ára. Kona hans er Hólmfriður Kristjansdóttir og eiga þau fimm börn. Sigurður lauk B.A.-prófi frá Háskóla íslands 1954 og hefur siðan verið kennari við Gagn- fræðaskólann og ennfremur Iðnskólann, að einu ári und- anskildu. Bæjarfulltrúi á Akureyri hefur hann verið frá 1962, for- maður fræðsluráðs i Norður- landskjördæmi eystra, varafor- maður i stjórn Kaupfélags Ey- firðinga, i blaðstjórn Dags og var lengi i stjórn Framsóknar- félags Akureyrar. Hann er for- maður Sögufélags Eyfirðinga. Sigurður Jóhannesson Sigurður Jóhannesson er 46 ára, kvæntur Laufeyju Garö- arsdóttur og eiga þau fjögur börn^ Prof úr Samvinnuskólanum 1953, starfaði hjáKEA 1953-1968, sem fulltrúi innkaupastjóra, en framkvæmdastjóri Þórshamars siðan. Sigurður var bæjarfull- trúi árin 1970-1974, varð stjórn- arformaður Rafveitu Akureyr- ar 1974 og stjórnar Tónlistar- skólans 1973. Hann er I stjórnum Hitaveitu Akureyrar og Fjórð- ungssjúkrahússins. Hann sat á þingi sem vafámaðúr voríð 1965, svo eitthvað sé upptalið af margþættum félagsmála- störfum. AhugmálSigurðar er að vmna að þvi, að gera Akureyri enn betri bæ en nú fyrir þá sem þar búa. Tryggvi Gíslason Tryggvi Gislason skólameist- ari er fæddur á Norðfirði 1938 sonur hjónanna Fanneyjar Ing- varsdóttur og Gisla Kristjáns- sonar útgerðarmanns. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1958 og meistaraprófi i islenzku við H1 1968. Blaðamaður við Tim- ann og erindreki Framsóknar- flokksins 1958 til 1960 og i stjórn FUF I Reykjavik. Fréttamaður við Rikisútvarpið 1962 til 1968, kennari við MR 1963 til 1968 og lektorvið Háskólann i Björgvin 1968 til 1972 og skólameistari á Akureyri frá 1972. Tryggvi er kvæntur Margréti Eggertsdótt- ur og eiga þau 6 börn. Geir A. Guðsteinsson Geir A. Guðsteinsson er full- trúi verðlagsstjóra með aðsetri á Akureyri. Hann er 31 árs stú- dent frá Menntaskóíanum i Reykjavik, en er einnig loft- skeytamaður. Hann var áður gjaldkeri hjá Kaupfélagi Isfirð- inga og var i framboði við bæj- arstjórnarkosningar þar. Kvæntur er hann Ragnheiði Friðgeirsdóttur og eiga þau þrjú börn. Geir A. Guðsteinsson tek- ur þátt i margvislegum félags- málum, stundar iþróttir og syngur i karlakór. 1 bæjarstjórn segist Geir fyrst og fremst beita sér i félags- og iþróttamálum og málefnum aldraðra. Ennfremur vill hann vinna að bættri menntunarað- stöðu, svo sem með stofnun há- skóladeildar á Akureyri. verslunarstörf. Og á annan ára- tug var hann framkvæmdastjóri UMSE. Þöroddur hefur mikinn áhuga á æskulýðs-, iþrótta- og bind- indismálum. En atvinnumálin telur hann þýðingarmest allra bæjarmála og undirstöðu ann- arra velferðamála á Akureyri. £»óra Hjaltadóttir Þóra Hjaltadóttir, húsmóðir, er 26 ára, gift Gunnari Aust- fjörð, og eiga þau eitt barn. Hún er gagnfræöingur frá Reykholtii Borgarfirði, og vinn- ur hjá Birni oe Ara, endurskoð- un sf., með húsmóðurstörfunum Þóra hefur tekið mikinn þátt i störfum Framsóknarflokksins og er auk þess gjaldkeri Kvennadeildar Þórs. Þóra hefur mikinn áhuga á eflingu iðnaðarins, bættri heil- brigðisþjónustu og fleiri mennt- unarmöguleikum i bænum. Ennfremur hefur hún áhuga á bættri aðstöðu til iþróttaiökana og útivistar. Varðveitum gömlu húsin kringum Hallærisplanið — Torfusamtökin og íbúasamtök Vesturbæjar mótmæla skipulagstillögum borgarinnar SKJ — Torfusamtökin og ibúa- samtök Vesturbæjar hafa lagt fram lauslega tillögu að skipu- lagi á Hallærisplaninu og vilja með þvi mótmæla þeim skipu- lagstillögum sem borgarstjórn hefur nú til umræðu. í tillögum samtakanna er gert ráð fyrir að gömlu húsin kringum Hallærisplanið verði varðveitt og nýju húsin sem reist verði á auðum lóðum verði i sem beztu samræmi við þau sem fyrir eru. I skiþulagstillögum, þeim er borgarstjórn fjallar nú um og hefur til afgreiðslu er gert ráð fyrir að nokkur gömul og þekkt timburhús verði rifin og stór- hýsi reist i þeirra stað. Samkvæmt tillögum Torfu- samtakanna og ibúasamtaka Vesturbæjar er gert ráð fyrir að nýju húsin verði lágreist með bröttu þaki svipuð eldri húsun- um að lögun. Þau eru að mestu stakstæðog þarf þvi ekki að byggja þau öll i senn heldur getur hver lóðareigandi nýtt lóð sina eftir efnum og aðstæðum. Milli Austurstrætis og Hafnar- stætis á Steindórsplaninu er gert ráð fyrir tveim samhliða húsum sem eru tvær hæðir sam- tals um 150 gólfflatarmetrar. Þarna er um þrjár lóðir að ræða tvær i einkaeign en ein er i eigu borgarinnar. Nýju húsin eru svipuð að stærð og þau er þarna stóðu fram til u.þ.b. 1960 enda lík Austurstræti 3 og Fálkahús- inu: Þarna eru i dag tvö stein- steypt hús, samtals um 200 gólf- flatarmetrar sem yrðu að vikja. A hallærisplaninu sem er i eigu borgarinnar er sýnt nýtt hús með langhlið að Aðalstræti alls um 475 fermetrar. 1 þvi húsi yrði félagsmiðstöð vel i sveit sett. 1 skipulagstillögum borgar- innar segir að á svæði þvi sem tillagan nær til séu i dag sam- tals 5.000 gólfflatarmetrar i þeim húsum sem á að rifa. 1 þeirra stað á að byggja 11.000 gólfflatarmetra i nýju húsnæði. 1 lauslegri tillögum Torfusam- takanna er reiknað með að af þeim 5000 fermetrum sem nú standa verði rifið sem svarar 400gólfflatarmetrum en i þeirra stað byggðir samtals 2035 fer- metrar. Samtals yrðu húsin þá 6.635 gólfflatarmetrar. Tillagan útilokar ekki byggingu bila- stæða undir öllu planinu. Drögin að skipulagstillögum sem Torfusamtökin og ibúa- samtök Vesturbæjar hafa lagt fram eru fyrst og fremst dæmi sem sýna hvernig nýta má svæðið á skynsamlegan hátt án þessaðfórna mikilvægum svip I borgarmyndinni. Einnig er með tillögunum verið að itreka mót- mæli er gerð hafa verið við skipulagstillögur borgarinnar. Fuiltrúar íbúasamtaka Vesturbæjar og Torfusamtakanna, Pétur Pétursson, Guðrún Auðunsdóttir Þorsteinn Bergsson og Ragnheiður Þorláksdóttir. Tlmamynd: Gunnar

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.