Tíminn - 01.03.1978, Page 15

Tíminn - 01.03.1978, Page 15
Miðvikudagur 1. marz 1978 liiMiíli ..... ASGEIR SIGURVINSSON.... hefur ákveðið að fara frá Standard Liege eftir þetta keppnistimabil. (Timamynd: Gunnar). SOS — Belgíska knattspyrnuliðið Standard Liege er ákveðið að halda i Ásgeir Sigurvinsson, knattspyrnu- kappa frá Vestmannaeyjum, og grípur Standard Liege til ýmissa ráða til að halda honum hjá félaginu. Forráða- menn félagsins tilkynntu í sl. viku, að þeir vildu fá 20 milljónir belgískra franka fyrir Ásgeir, ef hann færi frá Liege — þetta er um 160 milljónir íslenzkra króna, og fær Standard Liege þessa upphæð i sinn kassa. Þetta vakti mikla athygli i Bel- giu, þvi að þetta er mesta upphæð sem belgiskt félag hefur viljað fá fyrir leikmann — fyrr og siðar. Þessi upphæð er um 330 þús. pund og til gamans má geta þess, að Everton keypti Duncan McKenzie frá belgiska liðinu Anderlecht á 200 þús. pund. Á þessu sést hversu géður Asgeir er talinn — hann er aðeins 22 ára. Mörg félög eru nú á höttunum eftir Ásgeiri. Eins og menn muna sóttist hollenzka liðið Ajax eftir að fá hann i herbúðir sinar fyrir stuttu. Samningur Asgeirs við Standard Liege rennur út i vor, og er það þá undir Asgeiri komið hvort hann skrifar undir nýjan samning, eða ekki. Standard Liege getur haldið honum — þó getur félagið ekki haldið honum nema i eitt ár eftir að samningur rennur út. Timinn sló á þráðinn til 'Ásgeirs i gær og spurði hann tlðinda. Ás- geir sagði, að hann væri nú end- anlega búinn að ákveða að fara frá Standard Liege i vor, hvað sem það kostaði. — Ég hef kannað allar leiðir til að losna frá félag- inu og hef þegar fundið sterk vopn sem ég get notað i baráttunni við forráðamenn félag_sins sem greinilega eru að reyna að halda mér hjá félaginu, með þvi að segja að ég sé ekki til sölu, nema fyrir svimandi háar upphæðir, sem eru alltaf að hækka, sagði Asgeir. ARNAR GUÐLAUGSSON. Arnar þjálfar Ármann Arnar Guðlaugsson, fyrirlið Fram I handknattleik hefui verið ráðinn þjálfari 2. deild arliðs Ármanns i knattspyrm og mun hann byrja að þjálfí Ármenninga um næstu helgi Arnar er ekki ókunnugui knattspyrnumaður, þvl ai hann lék með Fram-liðinu uir nokkurra ára skeið og þá lél hann einnig með Völsungi frí Húsavik. -»-SOS • ••• Bikar- slagur — I Höllinni i kvöld Tveir leikir verða leiknir I bik- arkeppni karla i handknattleik i Laugardalshöllinni i kvöld — þá mætir KR Fram kl. 8 og siðan leikur Ármann gegn Víkingi. Annað kvöld verður leikinn einn leikur i keppninni i Hafnarfirði — FH mætir þá iR kl. 20.30. Á fimmtudags- kvöldið leikur Valur gegn Fylki kl. 21.45 i Laugardals- höllinni. Q,.P.R. gaf ekkert Ai • Forest — þótt Lundúnaliöið hafi leikið með 10 menn í fram- lengingu og tryggt sér jafntefli 1:1 í ensku bikar- keppninni Toshack til Swansea Nottingham Forest náði ekki að knýja fram sigur gegn Lundúna- liðinu Q.P.R. á heimavelli sinum City Ground þegar liðin léku að nýju I 16-Iiða úrslitum ensku bik- arkepninnar. Forest varð að láta sér nægja jafntefli (1:1) eftir framlengdan leik, þrátt fyrir að leikmenn Q.P.R. hefðu aðeins leikið 10 i framlengingunni, þar sem bakvörðurinn Dave Clement var rekinn af velli. John Robertson skoraði mark Forest úr vitaspyrnu, en bak- vörðurinn Don Shanks náði að jafna fyrir Lundúnaliðið. Liðin verða þvi að mætast i þriöja sinn — á hlutlausum velli. Úrslit i ensku bikarkeppninni urðu þessi á mánudagskvöldið: Nott. For. — Q.P.R..........1:1 Wrexham — Blyth..............2:1 Middlesb. — Bolton...........2:0 Chelsea — Orient.............1:2 Utandeildarliðið Blyth lék gegn Wrexham á St. James Park i Newcastle að viðstöddum 42.500 áhorfendum, sem voru á bandi „litla” liðsins. Welska liðiö fékk óskabyrjun, þegar þeir Graham Whittleog Dixie McNeilskofuðu, en Terry Johnson náði að minnka muninn fyrir Blyth. Þeir Bill Ashcroft og Stan Cummins skoruðu mörk Middles- borough. Chelsea fékk skell á heimavelli sinum — Stamford Bridge, þar sem Orient kom i heimsókn. Peter Kitchenskoraði bæði mörk ,,litla”Lundúnaliðsins, en mark Chelsea var sjálfsmark Bill Roffey. Welski landsliðsmaðurinn John Toshack, sem hefur veriö einn mesti markaskorari Liverpool undanfarin ár, hefur ákveðiö að snúa heim til Wales. Toshack hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Swansea og mun þessi kunni leikmaður einnig leika með liðmu, sem leikur i 4. deildinni i Englandi. Enskir punktar JOHN TOSHACK Standard Liege vill fá 160 milljónir íslenzkra króna fyrir hann ir dýrasti knatt- snvrnumaður Belgíu!

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.