Tíminn - 10.03.1978, Síða 7

Tíminn - 10.03.1978, Síða 7
Föstudagur 10. marz 1978 7 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Kvöldsímar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 90.00 Askriftargjald kr. 1700 á mánuði. ____ ... Blaöaprent h.f. Olíkar í forustugrein Morgunblaðsins sl. miðvikudag var lýst atvinnuástandinu, sem var hérlendis á ár- unum 1968-1969. Þá var erfitt viðskiptaárferði likt og var hér fyrstu stjórnarár núverandi rikisstjórn- ar. Það er þvi ekki ófróðlegt að bera saman at- vinnuástandið undir svipuðum kringumstæðum hjá viðreisnarstjórninni og núverandi ríkisstjórn. Af þvi má margt læra um vinnubrögð og stefnur st jór nmálaf lokkanna. í lýsingu Mbl. á atvinnuástandinu 1968 og 1969 segir á þessa leið: „Fyrstu merki versnandi atvinnuástands komu fram sumarið 1967 i styttingu vinnutima og erfið- leikum skólafólks við að fá sumarvinnu. 1 febrúar 1968 kom til atvinnuleysis i raun. Þann mánuð voru 1500 manns skráðir atvinnulausir og var það um 2% af mannafla. Um vorið og sumarið batnaði atvinnuástand nokkuð en versnaði á ný, þegar liða tók á árið og i árslok 1968 nam atvinnuleysi um 3% af mannafla. í lok janúarmánaðar 1969 varð at- vinnuleysið mest, en þá voru um 5500 manns at- vinnulausir eða um 7% af mannafla. Þá gætti að visu áhrifa sjómannaverkfalls en eftir að það leystist minnkaði atvinnuleysi niður i 1-1 1/2% af mannafla. Siðari hluta ársins jókst atvinnuleysi enn og í desemberlok það ár voru um 2500 manns atvinnulausir eða um 3,2% af mannafla. Meðal- fjöldi skráðra atvinnuleysingja á árinu 1969 nam um 2,5% af mannafla eða um tvöfalt fleiri atvinnu- lausir á þvi ári en 1968. Til þess að gefa skýra mynd af atvinnuástandinu á þessum tima ber að geta þess, að um 250-300 manns fóru til starfa erlendis aðallega byggingar- menn, en samdráttur i byggingariðnaði á milli ár- anna 1967-1969 nam um 20%. Á þessum tima jókst greiðsla atvinnuleysisbóta stórlega. í tölum þeirra tima voru greiddar 1967 um 7,8 milljónir i atvinnuleysisbætur. Ári siðar var sú upphæð komin i 28 milljónir og 1969 i 124,3 milljónir. Þessar tölur má a.m.k. tifalda, ef ekki tólffalda, til þess að fá hugmynd um núgildi þeirra, og verður þá ljóst, að á árinu 1969 hafa verið greiddar i atvinnuleysisbætur i núgildandi verðmæti peninganna, um 1200-1500 milljónir króna.” Við þessa lýsingu Mbl. má bæta þvi að lifskjör al- mennings fóru mjög versnandi á þessum árum og voru háð mikil stórverkföll bæði árin til þess að reyna að fá þau bætt. Verðbólga var um þrefalt til fjórfalt meiri hérlendis á þessum árum en i ná- grannalöndunum. Meginorsök þessa ömurlega ástands i efnahagsmálunum var sú, að viðreisnar- stjórnin fylgdi samdráttarstefnu. M.a. var van- rækt að efla undirstöðuatvinnuvegina, eins og ráða má af þvi, að nær ekkert var gert i valdatið hennar til að endurnýja togaraflotann. Tilfinnanlegast var aðgerðaleysið i dreifbýlinu og lá þvi mikill fólksflótti þaðan til þéttbýlisins. Sú mynd, sem blasir við frá stjórnartið núv. rikisstjórnar er sannarlega önnur, þótt viðskipta- árferðið hafi ekki verið hagstæðara. Atvinna hefur verð næg. Framkvæmdir hafa verið miklar um allt land og fólksflóttinn úr dreifbýlinu hefur stöðvazt. Þetta hefur tekizt sökum þess, að haldið hefur verið uppi öflugri framfarastefnu i stað samdráttarstefnunnar i tið viðreisnarstjórnarinn- ar. Þessi samanburður er vissulega lærdómsrikur og sýnir m.a. muninn á þvi, hvort Framsóknar- flokkurinn er innan eða utan rikisstjórnar. ERLENT YFIRLIT Ola Ullsten tekur við af Fer Ahlmark Erfitt að vera „næstbezti flokkurinn” ÞAÐ kom flestum Svlum á óvart, þegar Per Ahlmark, formaður Frjálslynda flokks- ins og einn þriggja mestu á- hrifamanna rikisstjórnarinn- ar, tilkynnti á blaðamanna- fundi 31. janúar, að hann myndi fljóúega láta af for- mennsku flokksins og ráð- herrastörfum og ekki gefa kost á sér til framboðs við þingkosningarnar á næsta ári. Hann tók það skýrt fram, að ákvörðun hans stafaði hvorki af ágreiningi innan fbkksins eöa rikisstjórnarinnar heldur eingöngu af persónulegum á- stæðum. Blöðin skýrðu siðar frá þvi, að hin raunverulega á- stæða væri sú, að fráfall vin- konu hans, Maude Adelsons leikkonu, sem lézt Ur blóð- krabba siðastliðiö vor, hefði haft mikil áhrif á hann og gert hann fráhverfan stjórnmál- um. Fram að þeim tima hafði Ahlmark helgað stjórnmálum allt starf sitt. Fráfall Maude Adelsons er talið hafa beint hug hans að öðrum og minna veraldlegum hugðarefnum. Ahlmark er ekki nema 39 ára gamall, en á samt orðið meira en 20 ára stjórnmála- feril að baki. Hann byrjaði ungur að starfa innan æsku- lýðssamtaka Frjálslynda flokksins og valdist þar fljótt til formennsku. Hann vakti þá strax á sér athygli sem óvenjulega einbeittur og að- sópsmikill forustumaður. Þvi var leitað til hans eftir mikla ósigra Frjálslynda flokksins i kosningunum 1970 og 1973 og honum falin forusta flokksins haustið 1975, þá 36 ára göml- um. Undir forustu hans vann flokkurinn verulega á i þing- kosningunum 1976 og átti það mestan þátt i sigri borg- aralegu flokkanna þá. Eftir kosningarnar mynduðu þeir stjórn saman undir forustu Falldinsjeiötoga Miðflokksins, en Ahlmark varð varaforsætisráðherra og fékk jafnframt i sinn hlut að sjá um málefni vinnumarkaöarins, en þau hafa verið með vanda- samara móti að undanförnu. FRJALSLYNDI FLOKK- URINN átti mikið blómaskeið Per Ahlmark Ola Ullsten undir forustu Bertils Ohlin fyrst eftir siðari heimsstyrj- öldina. 1 kosningunum 1948 varð hann annar stærsti flokk- ur landsins og fékk þá um 28% greiddra atkvæða. Bertil Ohlin varformaður flokksins i meira en tvo áratugi eða frá 1944-1967. Fylgi flokksins minnkaöi talsvert siðustu for- mannsár hans, en tap flokks- ins byrjaði þó ekki að ráði fyrr en hann lét af forustunni. í kosningunum 1970 fékk hann 16% greiddra atkvæða, en tap- aði svo miklu fylgi i kosning- unum 1973. Arið 1975 sýndu skoöanakannaniraö fylgi hans væri um 7%. Það var þá, sem flokkurinn leitaöi til Ahlmarks og fól honum forustuna. 1 þingkosningunum 1976 fékk flokkurinn 11.7% greiddra at- kvæöa og þótti þaö góður ár- angur, eins og á stóö. Bertil Ohlin Frjálslyndi flokkurinn hefur erfiðari stöðu en áður sökum þess, að siðan Bændaflokkur- inn breytti um vinnuaðferðir og tók sér nafnið Miðflokkur, hefur hann keppt við Frjáls- lynda flokkinn um fylgi i borg- unum, og orðiö vel ágengt. Flokkunum ber I raun ekki mikið á milli og um skeið var rætt um aö sameina þá. 1 skoöanakönnunum hefur Frjálslyndi flokkurinn fengið flest atkvæði sem næstbezti flokkurinn. Bæði sósialdemó- kratar og ihaldsmenn hafa til- hneigingu til að telja hann næstbezta flokkinn. 1 kosning- um nægir það hins vegar ekki að vera talirin næstbeztur. OLA ULLSTEN hefur nú verið kjörinn eftirmaður Ahl- marks sem formaður Frjáls- lynda flokksins, og jafnframt skipaður varaforsætisráö- herra. Hann er nokkru eldri en Ahlmark, fæddur 1931 í Umeá, og veröur þvi 47 ára á þessu ári. Þeir Ullsten og Ahlmark eru gamlir vopnabræður og tók Ullsten við formennskunni i æskulýðssamtökum Frjáls- lynda flokksins, þegar Ahl- marklétaf henni. Ullsten lauk námi sem félagsfræðingur 1956 og réðist ári siöar i þjón- ustu þingflokks Frjálslynda flokksins. Hann hefur átt sæti á þingi siðan 1964. Þegar Falldin myndaði stjórn sina 1976, gerði hann Ullsten að ráðherra þeirrar stjórnar- deildar, sem sér um aöstoö viö þróunarlöndin, en Sviar hafa verið flestum örlátari i þeim efnum. Ullsten er ekki sagður eins mikill bardagamaöur og Ahlmark, en meiri samninga- maður. Stundum hefur hann verið talinn standa nálægt sósialdemókrötum. Hann hef- ur lýst yfir þvi, eftir að hann tók við flokksforustunni, að hannleggi kapp á aö halda nú- verandi stjórnarsamstarfi á- fram bæði fram aö kosningun- um 1979 og eftir þær, ef stjórn- arflokkarnir halda meirihluta sinum á þingi. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.