Tíminn - 10.03.1978, Qupperneq 9
Föstudagur 10. marz 1978
UÍ'Iíl'Ii
9
á víðavangi
Varnaðarorð
Valur Arnþórsson, kaupfé-
lagsstjóri KEA, flutti hinn 1.
marzs.l. athyglisveröa ræðu á
félagsráðsfundi kaupféiagsins
ogræddiþarýmisþau málefni
sem heitast brenna á sam-
vinnumönnum og reyndar
landsmönnum öllum.
t ræðu sinni fjallaði Vaiur
m.a. um aðstöðu og hlutverk
samvinnuhreyfingarinnar, og
sagði m,a.:
„Til samvinnuhreyfingar-
innar eru gerðar miklar kröf-
ur af almenningi. Hún á jafn-
an að vera með lægsta vöru-
verð i landinu. Hún á ekki að
greiða lægri laun en aðrir,
helst hærri. Hún á jafnan
að hafa á boðstólum hið fjöi-
breyttasta úrval vöru og þjón-
ustu, jafnvel þá vöru og þjón-
ustu, sem enginn einkaaðili
kærir sig um að hafa með
höndum. Samvinnuhreyfingin
á að byggja upp af myndar-
skap. Samvinnuhreyfingin á
að haida uppi atvinnulifi þar
sem einkaaðilar kæra sig ekki
um að leggja hönd á pióginn.
Samvinnuhreyfingin á að geta
lánað félagsmönnum sfnum til
fjármögnunar ýmsum rekstri
og uppbyggingu og þannig
mætti lengi telja. Sannleikur-
innerhins vegar sá, að meðá-
framhaldandi verðbólguþróun
verður samvinnuhreyfingin
sifelit vanmegnugri að mæta
óskum félagsmanna sinna.”
Eins og fram kemur i orðum
Vals Arnþórssonarhefur sam-
vinnuhreyfingin af ýmsum á-
stæðum verri aðstöðu til að
halda sinu i óöaverðbólgu-
þjóðfélagi en einkaframtakið.
Veldur þar mestu um félags-
legt hlutverk samvinnufélag-
anna, þær eðlilegu kröfur i
sæmilegu efnahagsástandi
sem til þeirra eru gerðar um
vöruverð og þjónustu og loks
staða samvinnufélaganna sem
hornsteinar byggðarinnar.
Valurræddi vandann sem af
verðbólgunni hlýzt frekar i
ræðu sinni og sagði m.a.:
„Haldi verðbólguþróunin á-
Verksmiðjuútsala —
Verksmiðjuútsala
Seljum i dag og næstu daga litið gölluð
eldhúsborð og stóla, barnastóla og borð i
barnaherbergi. Einnig gallon- og draloná-
klæði.
Verulegur afsláttur. Opið laugardag.
Vm STÁLHÚSGAGNAGERÐ
STEINARS HF.
Skeifan 8, Rvik.
Til sölu
Land Rover diesel árgerð 1974.
Nýr girkassi — ný dekk.
Mjög hagstætt verð. Skipti möguleg.
Upplýsingar i sima 99-5942.
Aðalfundur
Verzlunarbanka Islands hf. verður hald-
inn i Súlnasal Hótel Sögu, laugardaginn
18. marz 1978 kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 18. grein
samþykktar fyrir bankann.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa
og aukningu hlutafjár.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fund-
arins verða afhentir i afgreiðslu aðal-
bankans, Bankastræti 5, miðvikudaginn
15. marz, fimmtudaginn 16. marz og föstu-
daginn 17. marz 1978'kl. 9.30-16.00.
Bankaráð Verzlunarbanka íslands hf.
Þorvaldur Guðmundsson, formaður
fram jafn hröðum skrefum á
næstu árum og veriö hefur á
siðustu fimm árum, verður
ekki annað séð en að rekstur
atvinnulifsins lendi i hreinum
ógöngum og jafnvel traustustu
fyrirtæki geti lent i alvarlegri
hættu. Þegar rætt er um verð-
bólguna, segja menn gjarnan,
að það hafi lengi verið verð-
bólga á islandi og allt hafi
þetta einhvern veginn bjarg-
ast og þannig hljóti það að
geta gengiö til, einnig i fram-
tiöinni. Hér er örugglega
háskalegur misskilningur á
ferðinni. Á árunum 1950—1962
var verðbólgan á islandi að
meðaltali 9.3%, á árunum
1963—1972 að meðaltali 12% og
má senniiegt teljast, að efna-
hagskerfi islendinga þoli
nokkurn veginn verðbólgu
sem þá, er rikti á framan-
greindum timabilum. En eft-
ir 1972 koma risastökkin.”
Um þróunina i launamálum
að undan förnu vakti Valur
Arnþórsson athygli á þeirri
staðreynd að það getur ekki
þjónað hagsmunum launþega
að kauptaxtar þurfí að hækka
um 60% til þess eins að ná
fram 6% aukningu kaupmátt-
arins.
Um framtiðarhorfur, ef
fram fer sem veriö hefur,
sagði Vaiur:
„Það hlýtur hverjum manni
að vera skiljanlegt, að islenskt
atvinnulif hlýtur að enda i
skipbroti, eigi þaö tQ fram-
búðar aö búa við svo miklu ó-
hagstæöari aðstæður en at-
vinnulifið i samkeppnislönd-
unum”.
Hér er um alvarleg varnað-
arorðaöræða af munni manns
sem gjörla þekkir til aðstæðna
og vandamála i atvinnu- og
efnahagslifi landsins. Þeim
ber þvi að gefa fullan gaum.
JS
A t vinnulaus -
um fækkaði
HEI — Atvinnulausir á landinu
öllu voru skráðir 511 i febrúar,
hafði fækkað um 68 frá fyrra
mánuði. Atvinnuleysisdögum
hafðihins vegar fækkað úr 14.799 i
janúar i 9.973 i febrúar, eða um
nær þriðjung, svo ástandið virðist
hafa batnað verulega i mánuðin-
um.
Atvinnulausir i Reykjavik i
febrúar voru 134, hafði fjölgað um
9. Af öðrum stöðum þar sem at-
vinnuleysi er talsvert, má nefna
Sauðárkrók 32, Akureyri 37,
Keflavik 48, Hafnarfjörö 38, Sel-
foss 15, Blönduós 13, Skagaströnd
30, Þórshöfn 26, Bakkagerði 34 og
Rangárvallahrepp 10.
A nokkrum stöðum hefur at-
vinnuástandið stórum batnað, má
þar nefna Siglufjörð, Skaga-
strönd, Þórshöfn, Breiðdalsvik og
Stokkseyri. Aftur á móti hefur at-
vinnulausum fjölgað um þriöjung
á Akureyri og nær helming i
Keflavik og mikill meirihluti þar
á skrá eru verkakonur.
Sendiherra
í Brasilíu
— Hinn annan marz siöastliðinn,
afhenti Hans G. Andersen Ern-
esto Geisel, forseta Brasiliu,
trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
Islands i Brasiliu segir i frétt frá
utanrikisráðuneytinu.
Loðnuleit hætt út
af Vestf jörðum
SSt — Loðnuleit rannsóknar-
skipsins Arna Friörikssonar út af
Vestfjörðum undanfarna daga
hefur litinn sem engan árangur
borið og er ekki talin ástæöa til
frekari leitar þar um slóðir. Litið
fannst af loðnu, og sú loðna sem
vart varð við, reyndist of smá,
samkvæmt upplýsingum Andrés-
ar Finnbogasonar.
Seinni partinn i gær var skipiö
lagt af stað austur með Norður-
landi til frekari leita.
sjálfhleðsluvagn
Nýtt heyvinnutæki hefur innreið sína
til íslenzkra bænda
■Mi
Eins og venjulega fylgist Globus með
þróuninni og nú bjóðum við nýjan hey-
hleðsluvagn frá hinum stóru Carboni
verksmiðjum á Italíu.
Flutt verður inn ein gerð/ sem tekur 26
rúmmetra. Vagninn er mjög sterkbyggð-
ur að gerð og fullkominn að tækni.
Eins og venjulega, með ný tæki, var
vagninn prófaður hjá bútæknideild á
Hvanneyri allt s.l. sumar og reyndust
vinnslugæði vagnsins sambærileg við
beztu fáanlega vagna á markaðinum.
Hversvegna ný gerð af vögnum?
Vegna þess að Carboni-vagnarnir eru um
20% ódýrari en sambærilegar stærðir og
gerðir af vestur-þýzkum vögnum.
Þetta er næg ástæða.
Áætlað verð með fullkomnum útbúnaði
kr. 1.395.000.
Globuse
LAGMOLI 5, SIMI 81555