Tíminn - 10.03.1978, Side 16

Tíminn - 10.03.1978, Side 16
u n ;i ;l1 il !i;i« Föstudagur 10. marz 1978 r í dag Föstudagur 10. marz 1978 Lögregla og slökkvilíð X----- ------< Reykjavlk: Lögreglan slmi1 11166, slökkviliðið og sjúkra- bifreið, slmi 11100. Kópavogur: Lögreglan slmi 41200, slökkviliðið og sjúkra- bifreið simi 11100. Rafnarfjörður: Lögreglan slmi 51166, slökkvilið sfmi 51100, sjúkrabifreiðslmi 51100. • ------—....... v Heilsugæzla v , - -/ Slysavaröstofan: Slmi 81200,' eftir skiptiborðslokun 81212. Sjúkrabifreiö: Reykjavlk og Köpavogur, simi 11100, Hafnarfjörður, simi 51100. Hafnarfjöröur — Garðabær: Nætur- og helgidagagæzla: Upplýsingar á Slökkvistöö- inni, simi 51100. Læknar: Reykjavik — Kópavogur. Dagvakt: Kl. 08:00-17:00 mánud.-föstudags, ef ekki næst i heimilislækni, slmi 11510. Kvöld-, nætur- og helgidaga- varzla apóteka i Reykjavik vikuna 10. til 16. marz er i Holts Apóteki og Laugavegs Apóteki. Það apótek sem fyrr er nefnt, annast eitt vörzluna á sunnudögum, helgidögum og almennum fridögum. "Ilafnarbúðir. Heimsóknartimi kl. 14-17 og 19-20. Heimsóknartimar á Landa- kotsspitala: Mánudaga til föstud. kl. 18.30 til 19.30. I.augardag og sunnudag kl. 15 til 16. Barnadeild alla daga frá kl. 15 til 17. Kópavogs Apótek er opið öll kvöld til kl. 7 nema laugar- daga er opið kl. 9-12 og sunnu- vdaga er ldcaö. ---------—~ rrrtp Bilanatilkynningar __________________________J Rafmagn: i Reykjavik og Kópavogi i sima 18230. 1 Hafnarfirði i sima 51336. Hitaveitubilanir: kvörtunum verður veitt móttaka i sim- svaraþjónustu borgarstarfs- manna 27311. Vatnsveitubilanir simi ‘86577. . Simabilanir simi 05. Bflanavakt borgarstofnana. Sfmi 27311 svarar alla virka Lárétt.c 1) Gosefni 6) Lærdómur 8) Stuldur 9) Verkfæri 10) Veð- hjól 11) Akur 12) Slit 13) Bára 15) Litlar. Lóðrétt: 2) Samanvið 3) Stafur 4) Bylta 5) Krassa 7) Ok 14) Komast. Ráðning á gátu No. 2717 Lárétt: 1) Agnes 6) Ann 8) 111 9) Góm 10) Dul 11) Rór 12) Agn 13) Ann 15) Brodd. daga frá kl. 17 siðdegis til kl. 8 árdegis og á helgidögum er svarað allan sólarhringinn. Félagslíf ■- ' ^ / Kvenfélag Langholtssóknar minnist 25 ára afmælis sins með kvöldfagnaði að Hótel Esju sunnudaginn 12 marz n.k. kl. 18.00. Upplýsingar hjá stjórnarkonum. Stjórnin. Kvenfélag Lágafellssóknar.. Fundi i félaginu sem vera átti 6. marz er frestað vegna kirkjuviku til 13. marz n.k. i Hlégarði kl. 20,30. Guðriður Halldórsdóttir húsmæðra- kennari sýnir gerð smárétta og séra Birgir Ásgeirsson ræð- ir um æskulýðsmál. Mætið vel og stundvislega. Stjórnin. HLUTAVELTA Samtaka Svarfdælinga verður haldin i félagsheimili Langhoitssafnaðar sunnudag- inn 12. þ.m. og hefst kl. 3.15. Allt mjög góðir vinningar engin núll Agóði rennur til Dvalarheimilis aldraðra Dal- vik. Basarnefndin. Kvennadeild Eyfirðinga- félagsins minnir á kökubasar- inn á Hallveigarstöðum, laug- ardaginn 11. marz kl. 2. Kirkjudagurinn verð- ur sunnudaginn 12. marz næst- komandi og hefst með messu að Norðurbrún 1. kl. 14. Kirkjukór Hvalsneskirkju kemur i heimsókn. Kaffisala, veizlukaffi. Kökum veitt mót- taka frá kl. 11 á sunnudags morgun. Sálarrannsóknarfélagið i Hafnarfirði heldur fund fimmtudaginn 9.marz i Iðnaðarmannahúsinu i Hafn- arfirði og hefst kl. 20,30. Dag- skrá : Zóphónias Pétursson flytur erindi og Gunnar Dal les úr verkum sinum. Stjórn- in. Kvenfélag Óháðasafnaðar- ins. Aðalfundurinn er næst- komandi laugardag kl. 3 i Kikjubæ . Intervac gerir þér fært að dveljast ódýrt erlendis með ibúðaskiptum. Upplýsingar gefnar á Kópavogsbraut 98. simi 4-00-22. Lóðrétt: 2) Galdrar 3) NN 4) England 5) Vitra 7) Smána 14) No. Sunnudaginn 12. marz Kl. 10. 1. Gönguferð um Svina- skarð. Fararstjóri: Finnur Jóhannesson. 2. Gönguferð á sklðum. Fararstjóri: Þorsteinn Bjarn- ar. Kl. 131. Gönguferð á Meðal- fell. Fararstjóri: Þórunn Þórðardóttir. 2. Fjöruganga i Hvalfirði. Fararstjóri: Sig- urður Kristinsson. — Verð kr. 1500iallarferðirnar. Farið frá Umferðarmiðstöðinni að aust- anverðu. — Ferðafélag tslands. Ferðir um páskana 23.—27. marz: Þórsmörk: 5 dagar og 3 dag- ar, 23. marz og 25. marz kl. 08. Gist i húsi. Snæfellsnes: 5 dagar, gist i húsi. Auk þess dagsferðir alla dagana. Nánar auglýst siðar. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofunni, öldugötu 3. — Ferðafélag íslands. Ferðafélag íslands heldur kvöldvöku I Tjarnarbúð 16. marz. kl. 20.30. Agnar Ingólfs- son flytur erindi með myndum um lifrfki fjörunnar. Aðgang- ur ókeypis, en kaffi selt að er- indi loknu. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. — Ferðafélag íslands. Frá Náttúrulækningafélagi Reykjavikur. Fræðslufundur verður mánu- daginn 13. marz n.k. kl. 20.30 i Matstofunni að Laugavegi 20b. Erindi Manneldismál. Snorri Páll Snorrason yfir- læknir flytur. Allir eru vel- komnir. Skiðamót Reykjavikur i barnaflokkum 12 ára og yngri verður haldið i Skálafelli um helgina 11.—12. marz. Mótið hefst kl. 13 báða dag- ana. Skiðadeild KR. ' . --------------. Minningarkort >■ ~ ' ~ - ‘Minningarkort sjúkrasjóðs' Iðnaðarmannafélagsins Sel- fossi fást á eftirtöldum stöfV um: t Reykjavik, verzlunin Perlon, Dunhaga 18, Bilasölu Guðmundar, Bergþórugötu 3. Á Selfossi, Kaupfélagi Árnes- inga, Kaupfélaginu Höfn og á simstöðinni i Hveragerði. Blómaskála Páls Michelsen. Hrunamannahr., simstöðinni- Galtafelli. A Rangárvöllum, Kaupfélaginu Þór, Hellu. Minningakort Styrktarfélags vangefinna fást I bókabúð Braga, Verzlanahöllinni, bókaverzlun Snæbjarnar, Hafnarstræti og i skrifstofu félagsins. Skrifstofan tekur á móti samúðarkveðjum i sima 15941 og getur þá innheimt upphæðina I giró. krossgáta dagsins 2718. [ David Graham PhiUips: ) 152 SÚSANNA LENOX ( Ján Helgason __ Súsanna. „Ég er orðin fullsödd á þvl, að fólk trúi mér fyrir leyndar- málum”. „Það er dálitið um þig sjálfa”, sagði Maud. „En ef það vitnast, að ég hafi sagt þér það, lætur Kobbi drepa mig. Já — drepa mig”. Súsanna fór að hlæja. „Hvaða þvættingur er þetta?” sagði hún. „Það er ekki neinn þvættingur”, sagði Maud. „Þegar þú kynnist þessari borg betur, munt þú komast að raun um, að það er jafn auð- velt að láta myrða mann og kaupa eitt glas af whiskýi. Hvaða áhætta er það að láta okkur hverfa? Alls engin. Mér finnst alltaf ein- hvern veginn, að Kobbi muni einhvern tima láta drepa mig — nema þá ég verði sjálf vitlaus og drepi hann. Hann er ástfanginn af mér — eða að minnsta kosti afbrýðisamur — og ef hann grunaði einhvern tima, að ég ætti elskhuga — einhvern — einhvern, sem ekki borgaði — þá væri úti um mig. Maud litla væri ofurseld dauðanum”. Hún bað um meira whiský, og þegar hún hafði dreypt á þvi, datt henni aftur i hug, hvað hún hafði ætlað að segja stallsystur sinni. Svo spurði hún, eins og til þess að beina talinu f rétta átt: „Þykir þér vænt um Fridda?” „Ég veit það ekki”, svaraði Súsanna. Og það var satt. Eðlisbund- in trú hennar á einhvers konar forlög olli þvi, að dómar hennar um menn —jafnvel þá, sem áttu sök á þjáningum hennar — voru undar- lega lausir við alla beiskju. Henni fannst Friddi aðeins vera verk- færi — og ekki með öllu sneytt mannlegum tilfinningum. Og að slepptu þvi aðdráttarafli, sem hann var gæddur, var hann búinn fágætu þreki, sem hún gat ekki annað en dáðst að. Hann var að minnsta kosti ekki viljalaust verkfæri. „Ég veit ekki, hvað ég á að segja”, sagði hún. Maud hafði setið hugsi, meðan Súsanna hugleiddi svar sitt og reyndi að gera sér grein fyrir, hvað hún ætti að segja um húsbónda sinn, sem aftur var þræll Finnegans, sem aftur var þræll einhvers annars æðri manns — hún vissi ekki hvers. Loks mælti hún: „Mér er alveg sama. Ég segi þér það, þó að það kosti mig lifið”. „Gerðu það ekki”, sagði Súsanna. „Ég vil ekkert vita”. „En ég verð að segja þér það. Veiztu, hvað Friddi er að hugsa um?” Súsanna brosti háðslega. — Mér er alveg sama. Þú skalt ekki fara að segja mér það, þegar þú ert svona drukkin. — Dómarinn I lögregluréttinum, handbendi Finnegans, heitir Bennett. Þegar Bennett kemur aftur frá Jefferson, ætlar Friddi að láta dæma þig til þriggja mánaða betrunarhúsvistar. Súsanna var að bera glasið upp að vörunum, þegar Maud sagði þetta. Hún lét það aftur að borðið. Gamli drykkjuboltinn, sem húkti við slaghörpuna úti i horninu, var að byrja á eftirlætislaginu sfnu „Ég er höfðingi vfkingahersins”. Súsanna tók undir. — Þetta er dagsatt. hrópaði Maud, sem hélt, að Súsanna tryði henni ekki. — Friddi er undarlegur maður. Það eru allir hræddir við hann, það mætti ætla að hann væri huglaus bleyða eftir þvf, hvernig hann fer með varnarlausar konur. En hann er það ekki — alls ekki. Það eru allir á einu máli um það, að hann verði áður en lýkur vold- ugur maöur i stjórn landsins. Hann gefst aldrei upp. Hann kemur alltaf sinum vilja fram. Og hann álitur að þú sért vanþakklát fyrir allt sem hann hefur gert fyrir þig. — Ef til vill þóekki —eftir hans skoðun, sagöi Súsanna. — Og Kobbi segir, að hann sé frávita af ást, og hann muni þess vegna senda þig þangað, sem aðrir karlmenn ná ekki til þin. Það er ástæðan. Hann er undarlegur maður. En það eru nú allir karlmenn, þó að þeir séu öðru visi en Friddi. — A ég að vera i fangelsi i þrjá manuði? spurði Súsanna hugsandi. — Þú virðist ekki kippa þér upp við það. Það er auðséð að þú hef- ur aldrei verið... Og þangað áttu að fara. Það verður ekki hjá þvi komizt — nema þú flýir burt héðan úr borginni. Og þá ættirðu aldrei afturkvæmt hingað. Friddi mundi sjá til þess, aö þú fengir makleg málagjöld, undir eins og þú kæmir aftur. Elskarðu hann? Súsanna leit framan I Maud sem iðaði I skinninu af forvitni, og brosti tviræðu brosi. — Ég — ástfangin — af manni, sagði hún hægt. Svo byrjaði hún að hlæja. — Hlæðu ekki svona, sagði Maud, — Það fer kuldahrollur um mie þegar þú hlærð svona. Hvað ætlarðu að gera? — Hvað get ég gert? — Ekkert. „Einhvern tima munu þið upp- götva að maöur getur orðið rang- eygur af þvi að sitja alltaf og . stara i sama hornið.” ÐENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.