Tíminn - 01.04.1978, Side 1
*
GISTING
MORGUNVERÐUR
SÍMI 2 86 66
s
DAREIMAR
í METRATALI
LANDVÉLAR HF.
Smiðjuvegi 66. Sími: 76600.
65. tölublað — Laugardagur 1. apríl —62. árgangur
Stefán Reykjalin, forseti bæjarstjórnar Akureyrar opnar hitaveitu
Akureyrar formlega. Timamynd Karl S'teingrímsson
Hitaveitan á Akureyri:
Var formlega
tekin í notkun
Kröfu
BSRB
hafnað
GV — Fyrsti viðræðufundur fjár-
málaráðherra og samninga-
nefndar BSRB var haldinn i gær
vegna kröfu BSRB um endur-
skoðun á kaupliðum kjarasamn-
inga vegna skerðingar á visitölu-
uppbótum.
A þessum fundi afhenti fjár-
málaráðherra skriflegt svar, þar
sem kröfu BSRB er hafnað að svo
stöddu, segir i frétt frá BSRB.
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB sagði i viðtali við Timann i
gær, að hann gæti ekkert sagt um
viðbrögð BSRB við þessu á þessu
stigi.
Stuttur
fundur
aðila vinnumark-
aðarins i gær
JB — Fundur var haldinn með
fulltrúum atvinnurekenda og
undirnefndar 10 manna nefnd-
arinnar i gærmorgun. Stóö
fundurinn skamma hrið eöa aö-
eins i um hálfa klukkustund. A
fundinum kom fram, að atvinnu-
rekendur telja sig ekki reiðubúna
til frekari viðræðna við verka-
lýðshreyfinguna fyrr en þeir hafa
rætt við rikisstjórnina. Mun ætl-
unin að gera það i næstu viku.
Hins vegar var ekki ákveðinn
neinn fundur með aðilum vinnu-
deilunnar.
Að áliti fulltrúa ASl var þessi
funduralgjör erindisleysa sem og
þeir fundir aörir, er haldnir hafa
verið með þessum aðilum i þess-
ari vinnudeilu. En það kom fram i
fréttum i fyrradag, að ef ekkert
raunhæft kæmi fram frá vinnu-
kaupendum á þessum fundi, yrði
tekinn upp annar samnings- eða
viðræðumáti.
Július Valdimarsson, sem sæti
á i samninganefnd VMS, sagði i
gær, að hann áliti að ekki hafi
slitnað upp úr viðræðum, þótt
fundurinn hafi ekki verið lengri
en raun var. Teldu atvinnurek-
endur bara, að þeir þyrftu að
ræða við rikisstjórnina um það
hvort hún hefði einhver ráð sem
gætu orðið til að auka kaup-
máttinn, sem ekki leiddu til auk-
innar verðbólgu og erfiðleika i at-
vinnulifinu.
í gær
ESE—Hitaveitan á Akureyri var
formlega vigð kl. 14 i gærdag
með hátiðlegri athöfn. Vigsluat-
höfnin fór fram i hinu nýja dælu-
húsi hitaveitunnar að Ytra-
Laugalandi i Eyjafirði að við-
stöddum forsvarsmönnum Akur-
eyrarbæjar, bankastjórum og
öðrum gestum, auk iðnaðarráð-
herra, dr. Gunnars Thoroddsen.
Með tilkomu hinnar nýju dælu-
stöövar, nemur virkjanlegt heitt
vatn, sem hitaveitan hefur yfir að
ráða, 200 sekúndulitrum, en
heildarþörf bæjarins er um 300
,sekúndulitrar. Þess má geta að
nú hefur fundizt heitt vatn að
Ytritjörnum i Eyjafirði, sem
nemur um 40-50 sekúndulitrum af
af 70-80 gráðu sjálfrennandi heitu
vatni, en með dælingu mætti fá
þar mun meira vatnsmagn i
framtiðinni, svo að þörfum
bæjarins ætti að vera borgið i
framtiðinni, hvað varðar heitt
vatn til húshitunar.
Nú er búið að tengja 300 hús við
hina nýju hitaveitu, en kostnaður
við hana er áætlaður um 6,3 millj-
arðar, og verður framkvæmdum
við hana að fullu lokið árið 1980.
Utflutningsbanni
beitt í kiara-
baráttunni
JB—Tiu manna nefnd ASl kom
saman til fundar siðdegis i gær til
að ræða ástandið I kjarabarátt-
unni. Var þar ákveðið að undir-
búa ákveðnar aðgerðir og i þvi
sambandi var á þessum fundi
samykkt að mæla með einni
ákveðinni aðgerð öðrum frekar,
sem mælt skuli með við verka-
lýðsfélögin i landinu, að þau beiti.
Er hér átt við útflutningsbann.
Undanfarið hefur verið rætt vitt
og breitt um þessi mál, bæði i mi
stjórn ASl sem og 10 manna
nefndinni, og ýmsar hugmyndir
komið fram. En það hefur ekki
gerzt á&ur, að 10 manna nefnd
ákveði á fundi sinum, að mæla
með ákveðinni aðgerð, i þvi skyni
sem áður greinir. Samkvæmt
þeim heimildum sem blaðið hefur
aflað sér, var talið, að
útflutningsbannið væri heppilegri
og áhrifarikari aðferð i
kjarabaráttunni en aðrar, sem
nefndar hafa verið, s.s. allsherj-
arverkfall eða yfirvinnubann.
Það ætti að verða ljóst alveg á
næstu dögum hvernig útflutnings-
banninu verður hagaö og hvenær
það hefst. En stefnt er að þvi, aö
bann þetta nái til sem flestra
greina i útflutningi og má afnvel
búast við að það hefjist fyrr en
varir.
Suðurlandssíldin:
Afkastageta
stofnsins í
fullri stærð 50-
70 þús. lestir
— sjávarútvegsráðuneytið
leyfir veiðar á 35 þús. lestum
GV— Sildarstofninn fyrir Suður-
landi fer nú stækkandi, og þess
vegna höfum við lagt til að leyfð-
ar verði veiðar á 35 þúsund lest-
um á næstkomandi vertið, en þó
ber að hafa i huga að heildarveið-
in á siðustu vertið var tæplega 29
þúsund lestir, svo að þetta er að-
eins rúmlega 6 þúsund lestum
meiri veiði sem við nú mælum
með, sagði Jakob Jakobsson
fiskifræðingur, er blaðið hafði tal
af honum i tilefni af þvi, að sjáv-
arútvegsráðuneytið tilkynnti i
gær, að það hefði að tillögu Haf-
rannsóknastofnunar leyft veiðar
á 35 þúsund lestum af sild á hausti
komanda.
Jakob sagði ennfremur, að þeg-
ar stofninn fyrir Suðurlandi verð-
ur búinn að ná fullri stærð, eigi
' afrakstursgeta hans að verða 50-
70 þúsund lestir. Arsveiðin var 700
þúsund lestir hér á árunum, er
sildveiðarnar voru upp á sitt
bezta og aðalveiðin var á norsk-
islenzka sildarstofninum.
Rannsóknir fiskifræðinga sýna
að nú eru tveir góðir árgangar frá
’73 og ’74, i uppvexti, og við það
eykst hrygningarstofn Suður-
landssildarinnar verulega.
— Þessir góðu árgangar munu
vonandi valda þvi að sildarstofn-
inn aukist verulega, og ég tel að
það eigi fremur að nýta þessa
góðu árganga til að byggja upp
stofninn frekar en að auka veið-
arnar, sagði Jakob að lokum.
Ríkisstjórn
taki við af
Seðlabanka
KEJ — Þrir þingmenn
Framsóknarflokksins, Páll
Pétursson, Þórarinn Þórarinsson
og Þórarinn Sigurjónsson, lögðu i
gær fram á Alþingi þingsálykt-
unartillögu þess efnis, aö tekið
verði af Seðlabankanum vaxta-
ákvörðunarvald og rikisstjórnin
fari framvegis með þaö. Er þessi
breyting aðallega studd þeim
rökum, að hér sé um allt of mikil-
vægan þátt efnahagsmála að
ræða til þess að þar geti veriö um
að ræða sjálfstæða ákvaröana-
töku einnar rikisstofnunar.
Sjá nánar á þingsiðu, bls. 6.
Siglufjörður:
Hús tengd við
hitaveitu á ný
GV— 30 manna lið vann aö þvi ix
fyrradag að móka ofan af húsun-
um i Skútudal og lagfæra þau.
Um fjögurleytið i fyrrinótt var
aftur byrjað að dæla vatni i bæ-
inn, og var ráðgert i gær að lokið
yrði að tengja húsin við hitaveitu
á miðnætti.
— Snjódýptin á þessu svæði var
6-7 metrar, og við vorum að gizka
á, að um 5-600 rúmmetrum hefði
verið mokað burtu með handafli,
sagði Haukur Helgason bæjar-
tæknifræðingur, er Timinn hafði
tal af honum i gær.
Dæluhúsið og spennistöðin fóru
á kaf i snjóflóðinu, en tækin
skemmdust ekkert þó að þakið af
miðlunargeyminum væri farið.
Húsið á varadælunni fór alveg I
burtu og er eftir að kanna
skemmdirnar á varadælunni.
— Það er greinilegt að ekki hef-
ur verið tekið tillit til snjóflóða við
byggingu þessa'ra mannvirkja,
enda var ekki vitað til þess að
snjóflóð hefðu fallið þarna. Það
má búast viö, að húsin i Skútudal
verði endurbyggð i sumar, og að
þá verði þau steinsteypt og graf-
inn jarðvegur upp að þeim, svo að
ekki verði skemmdir á tækjabún-
aði I snjóflóðum, sagði Haukur.
Það varð Siglfiröingum til
happs að þessu sinni, aö ágætis-
veður hefur verið á Siglufirði, og
flýtti það mikið fyrir fram-
kvæmdunum. Þá er það ekki sið-
ur mikilvægt að menn voru
komnir i æfingu við aö aftengja
húsin hitaveitu og koma á oliu-
.kyndingu i þeim flestum og siðan
að tengja þau á ný við hitaveitu.