Tíminn - 01.04.1978, Síða 7
Laugardagur 1. aprll 1978
7
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein-
grimur Glslason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda-
stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300.
Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Verð i lausasölu kr. 90.00 Áskriftargjald kr. 1700 á
mánuði. ... . ...
Blaðaprent h.f.
Stefna Framsóknar-
flokksins i mennta-
og menningarmálum
Á nýloknu flokksþingi Framsóknarflokksins var
samþykkt sérstök ályktun, sem ber nafnið Fram-
sóknarstefnan. 1 ályktun þessari eru dregin saman
i stuttu máli höfuðatriðin i ályktunum þingsins um
einstaka málaflokka, og þannig reynt að sýna
heildarmynd af stefnu flokksins. I þessari ályktun
er sérstakur kafli um mennta- og menningarmál,
sem hljóðar á þessa leið:
„Framsóknarflokkurinn vill að lögð verði rækt
við varðveizlu menningararfs Islendinga og telur
að þjóð, sem glatar menningararfi sinum, glati um
leið metnaðinum til að standa á eigin fótum.
Framsóknarflokkurinn telur kristin lifsviðhorf
undirstöðuatriði islenzkrar menningar og þjóðlifs
og vill hlúa að kristilegu og kirkjulegu starfi.
Framsóknarflokkurinn vill jafnrétti til náms án
tillits til búsetu, efnahags, kyns eða aldurs. Flokk-
urinn telur að grunnskólinn eigi að veita öllum
börnum og unglingum staðgóða, almenna undir-
stöðumenntun er hafi það að markmiði, að gera
þau hæf til þátttöku i margbrotnu þjóðlifi. Skóla-
kerfið verði i vaxandi mæli við það miðað að laða
fram breytilegan áhuga og hæfileika nemenda, og
unglingum gefinn kostur á verk- og tækniþjálfun
með þátttöku i atvinnulifinu.
Stefna Framsóknarflokksins er, að allir sem
stunda framhaldsnám eigi kost á opinberri náms-
aðstoð. Flokkurinn telur sérstakar fjöldatak-
markanir i skólum og námsbrautum óæskilegar,
en telur eðlilegt að óbein áhrif séu höfð á námsval
nemenda með öflugri námskynningu og starfs-
fræðslu.
Framsóknarflokkurinn vill að möguleikar
þeirra, sem eldri eru og vilja afla sér frekari
menntunar verði sem mestir og að þeir eigi ekki
siður kost á námsaðstoð i einhverri mynd en þeir
sem yngri eru.
Framsóknarflokkurinn vekur athygli á þvi, hve
mikil áhrif fjölmiðlar hafa á islenzka tungu og
menningu. Á miklu veltur þvi, að þeir menn, sem
stjórna fjölmiðluninni geri sér þess ljósa grein, að
á störfum þeirra getur oltið hvern menningararf
komandi kynslóðir hljóta. Efla ber rikisútvarpið
og gæta þess, að það rofni ekki úr tengslum við
fólkið i landinu. Hið sama gildir um Þjóðleikhúsið,
en einnig ber að hlúa sem bezt að starfi annarra
leikhúsa og áhugamannafélaga um land allt.
Rikisvaldið á að stuðla að sem blómlegastri útgáfu
prentaðs máls á vegum einstaklinga og félaga-
samtaka. Einnig þarf það að vera reiðubúið til að
fylla þær eyður, sem kunna að myndast i útgáfu-
málum, ýmist með þvi, að standa sjálft að útgáfu-
starfsemi eða með þvi, að styrkja framtak ann-
arra. Það er stefna flokksins, að listgreinum verði
veitt viðunandi starfskilyrði, sem örvi listsköpun
og aðra menningarstarfsemi.
Framsóknarflokkurinn vill efla visindarann-
sóknir og vill að þær verði grundvöllur að framför-
um i helztu atvinnugreinum og jafnframt forsenda
réttrar nýtingar auðlindanna.”
Sá kafli úr ályktuninni um framsóknarstefnuna,
sem birtur er hér að framan, er aðeins útdráttur
úr lengri ályktun um mennta- og menningarmálin,
þar sem getið er mun fleiri atriða og ýmsum
framangreindum atriðum gerð frekari skil. Hér er
það hins vegar dregið fram, sem þykir mestu
skipta. þþ,
ERLENT YFIRLIT
Castro nýtur vaxandi
virðingar í Afriku
En Kinverjar telja hann verkfæri Rússa
SA af fréttaskýrendum The
Christian Science Monitor,
sem fjallar um málefni latn-
esku Ameriku, James Nelson
Goodsell, hefur nýlega birt
grein i blaði sinu. þar sem
hann skýrir frá þvi. að Fidel
Castro eigi vaxandi fylgi að
fagna hjá þjóðum þriðja
heimsins. Meðal þeirra sé nú
litið á Kúbu sem eitt helzta
forusturiki i þessum hluta
heimsins. Einkum sé þetta þó
áberandi i Afriku. þar sem
kúbanskir hermenn og sér-
fræðingar séu til aðstoðar og
ráðuneytis i ekki færri en 14
löndum. t þróunarrikjunum
sætti menn sig betur við að-
stoð frá Kúbu en kommúnista-
rikjunum i Austur-Evrópu.
Strax i upphafi valdaferils
sins ól Castro stóra drauma
um byltingu i Suður-Ameriku
undir forustu Kúbumanna. Þá
var það trú hans og Guevara,
að hægt yrði að brjóta bylting-
unni braut i Suður-Ameriku
með skæruhernaði, likt og
hefði gerzt á Kúbu. Reynslan
sýndi fljótt, að þetta var fals-
trú. örlög Guevara, sem var
felldur sem skæruliði i
Bóliviu, sýndu það bezt.
Castro lagði þvi drauma um
byltingu i latnesku Ameriku á
hilluna a.m.k. að sinni, enda
fékk hann nóg að sýsla heima
fyrir. Jafnframt hófst hann
handa um að koma á legg öfl-
ugum her á Kúbu, með riflegri
aðstoð Sovétrikjanna. 1 fyrstu
var sagt, að þetta væri gert til
að treysta varnirnar gegn
hugsanlegri innrás frá Banda-
rikjunum. En nú er komið i
ljós, að hernum var ætlað ann-
að og meira verkefni. Ahugi
Castro á eflingu hersins fór
lika slvaxandi. Oftar og oftar
hefur hann i fjölmiðlum verið
titlaður sem æðsti maður
hersins. Castro hefur bersýni-
lega notið þess hlutverks vel.
ÞAÐ kom fyrst fyllilega i
ljós haustið 1975, hvaða hlut-
verk Kúbuher er ætlað, auk
varnaauna heima fyrir. Þá
voru um 10 þús. kúbanskir
hermenn sendir til Angola til
að styðja þá sjálfstæðishreyf-
ingu, sem talin var aðhyllast
sósialisma. fhlutun Kúbu-
manna tryggði henni sigur, en
hún hefur ekki getað haldið
völdunum, nema mað aukinni
aðstoð þeirra. I Angola mun
nú vera um 20 þús. manna
kúbanskt herlið. fhlutun
Kúbumanna i Angola, varð til
þess, að Castro fór að hugsa
sér meira til hreyfings i
Afriku. I marzmánuði 1977 fór
hann i heimsókn til allmargra
landa i Afriku. Meðal þeirra
land'a, sem hann heimsótti,
voru Alsir, Libýa, Sómalia,
Eþiópia, Tanzania,
Mosambik og Angola. f heim-
leiðinni lagði hann lykkju á
leið sina og heimsótti fyrst
Austur-Þýzkaland og að lok-
um Sovétrikin. f Moskvu átti
hann langar viðræður við
Brésnjev og þykir nú liklegt,
að viðræður þeirra hafi ekki
sizt snúizt um væntanlegan
stuðning við hina sósialisku
stjórn Mengistu i Eþiópiu.
Það gerðist a.m.k. rétt á eftir,
að Mengistu rauf tengslin við
Bandarikin og litlu siðar hófu
Sovétrikin og Kúba að veita
Eþiópiu sivaxandi aðstoð.
Talið er að um 12 þús. kúb-
anskir hermenn séu nú i
Eþíópiu og hafi þeir átt sinn
þátt i þvi, að Eþiópiumenn
hafa snúið vörn i sókn i
Ogaden. Auk þess herliðs, sem
Kúbumenn hafa nú i Eþiópiu
og Angola, er talið að um 5000
kúbanskir hermenn og sér-
Castro lætur vel aö vera herstjórnandi
fræðingar skiptist á milli tólf
annarra landa i Afriku.
FLESTIR fréttaskýrendur,
sem hafa gert ihlutun i Afriku
að umtalsefni, telja hana
rekja rætur til frumkvæðis
Rússa. Rússar hafi gert sér
ljóst, að betra væri að tefla
fram i Afriku hermönnum frá
Kúbu en frá Sovétrikjunum
eða öðrum kommúnistarikj-
um i Austur-Evrópu. Afriku-
þjóðir teldu sér auðveldara að
þiggja aðstoð frá Kúbu en
Evrópurikjunum. Kostnaður-
inn við dvöl kúbanskra her-
manna i Afriku, er þó greiddur
af Rússum. Þeir leggja til her-
gögn og vistir, þeir annast um
flutninga og þeir hafa þjálfað
kúbönsku hermennina, sem
hafa barizt i Afriku. Castro
hefur ekki heldur farið dult
með þakklæti sitt. Eftir mikl-
ar heræfingar, sem fóru fram
á Kúbu i desember 1976, lét
Castro svo ummælt, að Kúbu-
menn væru innilega þakklátir
Sovétrikjunum, sem létu
okkur i té þessi frábæru vopn
og kenndu okkur aö nota þau. I
ræðu sem Castro hélt i Austur-
Berlin eftir Afrikuför sina,
fórust honum orð á þá leið, að
hann hefði i ferðalagi sinu
fundið hvarvetna hið mikla
traust, sem þróunarþjóðirnar
bæru til kommúnistarikjanna
og þó einkum til Sovétrikj-
anna. Eftir viðræður þeirra
Castros og Brésnjevs, sem fór
fram i Moskvu nokkru siðar,
lét Castro svo ummælt, að
enginn ágreiningur væri til i
afstööu Kúbu og Sovétrikj-
anna til inálefna Afriku. En
þótt yfirleitt sé talið, að Rúss-
ar hafi upphaflega teflt Kúbu-
mönnum fram i Afriku og geri
það raunar enn, þá liti Castro
ekki á sig sem neinn leikbróðir
þeirra, heldur telji hann sig
vera að gegna mikilvægu bylt-
ingarhlutverki. Kinverskir
kommúnistar eru hér hins
vegar á öðru máli, þvi að þeir
kalla kúbönsku hermennina i
Angola og Eþiópiu rússneska
málaliða og Castro verkfæri
Rússa.
Þ.Þ.