Tíminn - 01.04.1978, Side 10
10
Laugardagur 1. april 1978
t Kaffibiennslu Akureyrar
hittum vio aö máli Þröst Sig-
urösson, framkvæmdastjóra, en
hann hefur stjórnaö kaffi-
brennslunni undanfarin ár af
miklum dugnaöi. Hann haföi
þetta aö segja:
Aukið geymsiuþol
á kaffi
— Framleiösla á kaffi hefur
gengiö vel, enda hefur véla-
kostur kaffibrennslunnar veriö
endurnýjaður aö mestu leyti.
Segja má aö endurnýjunin
hafi verið gerð i áföngum.
Miklar framfarir hafa orðið i
kaffibrennslu á siöari árum og
Kaffibrennslan hefur reynt að
færa sér þær i nyt, eftir þvi sem
tækifærin gefast. Aöstæöur hafa
breytzt þannig, aö með betri
tækni hefur geymsluþol aukizt á
kaffi, og munar þar að sjálf-
sögöu mest um nýjar loftþéttar
pakkningar, en viö fengum nýja
pökkunarvél á árinu 1976.
— Aðferðir almennings hafa
lika breytzt talsvert á undan-
förnum árum. Kaffipokinn
gamli er á undanhaldi og fólk
notar kaffivélar, og eöa
pappirspoka -I 'auknum mæli.
Þaö sem skiptir máli er ótal
margt, og viö teljum hér að ís-
lendingar geri nú auknar kröfur
til gæöanna, þvi þaö var mikiö
drukkiö af vondu kaffi hér i ára-
tugi.
— Þetta er sérstaklega
merkjanlegt á veitingahúsum,
þar sem betri vélar hafa aukiö
gæöin stórlega.
— Þegar vélakostur Kaffi-
brennslunnar haföi veriö endur-
nýjaður. var hafin söluherferö
til þess aö kynna framleiösluna,
og jafnframt var sölustarfsemin
aukin og endurskipulögö. Meö
Þegar blaöamaöur Timans var nýveriö á ferö noröur á Akureyri,
var tækifæriö notaö tii þess aö heimsækja ýmsa staöi, þar sem
fregna og fróöleiks var von, og meöal annars litum viö inn i Kaffi-
brennslu Akureyrar, þar sem Bragakaffiö veröur til, en ástæöan er
sú, aö Bragakaffi hefur nú náö meiri útbreiöslu en dæmi eru tii áö-
ur.
Annarhver
bolli
sem
drukkinn
er í
landinu
er Bragakaffi
segir Þröstur Sigurðsson,framkvæmdastjóri
Kaffibrennslu Akureyrar
Þröstur Sigurösson.
bættum umbúöum og stórauknu
geymsluþoli hlaut markaös-
svæöi okkar aö stækka, og meö
auknum gæðum hlaut fram-
leiöslan aö aukast, enda stóö
ekki á viðbrögðum almennings,
salan á Bragakaffi jókst mikiö.
Þaö er öröugt að segja um þaö
I smáatriðum, hvers vegna
Kaffibrennsla Akureyrar fékk
nú svo stóran hlut af innan-
landsmarkaönum, en veiga-
mestu atriöin eru þó liklega
betri framleiösla og aukiö
geymsluþol, — og svo hitt að
kynningarstarfsemi haföi ekki
verið mikil.
Má nú segja aö annar hver
kaffibolli, sem drukkinn er i
landinu, sé Bragakaffi.
— Kaffibrennsla Akur-
eyrar er sameign Sam-
bandsins og Kaupfélags Eyfirö-
inga. An þess að ég viti það þyk-
ir mér liklegt, aö fyrirtækið hafi
verið sett stofn til þess að
tryggja kaupfélögunum gott
kaffi á sannviröi, en samvinnu-
menn vildu búa sem mest aö
sinu.
Um áratuga skeið hefur Bragakaffi verið brennt og malað, en það
var þó aðeins notað af tiltölulega takmörkuðum hópi fólks, einkum á
Norðurlandi og i Reykjavik, en nú er Bragakaffi til sölu um allt
land, og vinsældirnar halda stöðugt áfram að aukast.
Braga og
Santos
Núna eru viðhorfin önnur.
Kaffibrennslan sinnir ekki ein-
vöröungu kaupfélagsverzlun-
inni, heldur selur framleiðsluna
Isem flestar verzlanir i landinu,
og auk þess seljum við mikiö til
veitingahúsa, mötuneyta, stofn-
ana og vinnustaða. Sem sagt til
allra, sem hella upp á könnuna
og drekka kaffi.
—■ Hversu mikil var salan á
siöasta ári?
— Ég er nú ekki reiðubúinn til
þess að gefa upp tölur um þaö,
af samkeppnisástæöum, en
þetta hefur aukizt frá þvi að
vera óverulegur hluti af innan-
landsmarkaði á brenndu og
möluðu kaffi I þaö, eins og áður
sagði, aö um það bil annar hver
bolli, sem drukkinn er i landinu,
er Bragakaffi.
Þó vil ég taka þaö fram, aö
Bragakaffi er ekki eina tegund-
in, sem viö bjóöum. Viö fram-
leiðum lika Santoskaffi, sem er
dýrara, en þess er þó að gæta aö
það þarf minna af þvi i könnuna,
þannig að verðið er I raun veru
sambærilegt.
Þá vil ég aö lokum taka það
fram, aö þótt ég hafi veitt kaffi-
brennslunni forstöðu meðan
þessi umskipti uröu, þá á fyrr-
verandi framkvæmdastjóri
Guðmundur Guölaugsson sinn
rika þátt I þeim framförum,
sem hér hafa orðiö, en hann tók
þátt i uppbyggingunni af lifi og
sál.
— A hvað leggið þið mesta á-
herzlu núna?
— A kaffið. Það er kaffið, sem
er drukkið, og þvi byggist öll
okkar tilvera á góðu og vel
varðveittu kaffi, sagði Þröstur
Sigurðsson aö lokum.
JG
Þórir N.Kjartansson, Vik i Mýrdal:
Selur, lax og
sj óbirtingur
A áratugnum milli 1940 og
1950, gekk slik óhemja af sjó-
birtingi I vesturskaftfellskar ár,
aö oft kom fyrir, aö 3-4 menn,
sem fóru I ádráttarveiöi komu
meö hlaöna jeppakerru aö
kvöldi og stangaveiöimenn
veiddu marga tugi sjóbirtinga á
dag.
Eftir 1950 fór aö draga úr
þessari miklu veiöi og hefur hún
áseinni árum veriö frekar litil.
Ekki eru menn á eitt sáttir, af
hver ju þetta stafar. Aö minu viti
kemur einkum þrennt til, og vil
égskýrafrá þeim hugmyndum,
hér á eftir.
Fyrsta atriði, og þaö veiga-
mesta, er þaö, aö á árunum I
kringum 1940, var stunduð ótrú-
lega mikil fiskirækt hér i sýsl-
unni, meb þvi aö klekja út og
sleppa kviöpokaseiöum, jafnvel
svo skipti hundruðum þúsunda á
ári. Mest var þetta á vatnasvæði
Skaftár, en talsvert var lika
flutt af seiöum I vötn á Bruna-
sandi og I Fljótshverfi. A þess-
um árum, voru klakhUs I Mör-
tungu á Siðu, Króki I Meöal-
landi, Seglbúöum i Landbroti,
Hólmi i Landbroti og ef til vilí
viöar, þótt mér sé ekki kunnugt
um þaö. Ekki er minnsti vafi á
þvi, aö þetta átti mestan þátt I
þeirriógengdaf sjóbirtingi, sem
hér var, þvi aö nú er vitaö, aö
sleppingar á kviðpokaseiöum
laxa hafa talsvert aö segja, i
ám, sem hafa góö uppeldisskil-
yröi, en sjóurriöaseiöin eru þó
mun harðgerðari og duglegri aö
bjarga sér. Núeruliöin mörg ár
siöan þessi mikla fiskirækt
lagöist niöuraö mestu leyti, fyrr
en þá núna á allra siöustu árum,
aö menn eru aö fá áhuga á þessu
aö nýju. Aðallega mun þaö þó
vera laxarækt, sem nokkuö hef-
ur veriöreynd.hérisýslunni, aö
undanförnu, meö mjög misjöfn-
um árangri, þótt ef til vill sé of
snemmt aö dæma hana ófram-
kvæmanlega. En laxinná.aöég
held, mjög erfitt uppdráttar i
hinum sendnu og brimasömu
útföllum suðurstrandarinnar,
enda hefur ekki frá ómunatlð,
veriö lax i ám, austan Þjórsár,
en þar byrjar einmitt sand-
ströndin.
Annað atriöi af þessum þrem-
ur, erselurinn.Hannerhériöll-
um árósum og meö ströndinni,
svo hundruöum eöa jafnvel þús-
undum skiptir. Nú er þaö sann-
aö mál, aö fullvaxinn selur étur
nokkur tonn af fiski árlega, svo
að augljóst er, hvaöa feikna toll
hann tekur af göngufiski þeim,
sem fer um þetta svæöi. Nú
hugsar vafalaust einhver, sem
þetta les, aö selurinn hafi nú
ekki byrjaö aö éta fisk nú á sið-
ustu árum, heldur hafi hann
gert þaö frá örófi alda og allt
gengiö vel, þ.e. að fullt jafnvægi
hafi haldist á milli þessara
dýrategunda. En nú hefur þessu
jafnvægi veriö raskaö og eins og
fyrri daginn er það maðurinn,
sem þar er aö verki. Ofveiðin á
þorsldnum og fleiri tegundum
sjávarfiska, kemur hér inn i
dæmiö. Fyrir nokkrum áratug-
um var svo mikið af þorski og
öörum fiski hér viö suöurströnd-
ina, aö algengt var, aö hann
ræki á fjörur 1 hundraðatali og
var þaö mikil og árviss búbót á
góöum rekajöröum. Segir þaö
sig sjálft, aö nú, þegar þessi
fiskur er aö mestu horfinn, hlýt-
ur selurinn aö leggjast af aukn-
um þunga á laxa- og sjóbirtings-
göngur, og það svo, að til vand-
ræða horfir. Ég nefni þaö skoö-
un minni til stuðnings, sem
þaulvanur netaveiöimaöur
sagöi mér austan Mýrdals-
sands, aö ekki væri öalgengt, að
einn af hverjum fimm sjó-
birtingum, sem veiddust væru
selbitnir.
í þriðja lagi, vil ég nefna það,
sem hefur eyöilagt margar is-
lenzkar veiöiár, en þaö er hóf-
laus netaveiði. Um þaö ætla ég
ekki aö f jölyrða. en tel aö neta-
veiði að vissu marki sé ekki
hættuleg og hvergi nærri eins
slæm og selurinn.
Aö endingu vil ég geta þess,
aö s.l. haust, fór ég meö veiði-
réttareigendum i Tungufljóö i
Skaftártungu, til aö ná i sjóbirt-
ing til kreistingar. 20 sjóbirting-
ar veiddust og var meðalþungi
þeirra um eöa yfir 10 pund. Það
væri óbætanlegt tjón, ef áhuga-
leysi fyrir ræktun sjóbirtings,.
ásamt selnum, yrði til þess, að
fiskistofn þessi dæi út, þvi aö,
mér vitanlega, á hann ekki sinn
lfika hérlendis hvað stærð snert-
ir.
Ef gera á sjóbirtingsveiöi ná-
lægt þvi jafn verðmæta og lax-
veiði, verður að koma til breyt-
ing álögum.um lax- og silungs-
veiöi, en þaö er önnur saga.
Þórir N. K j artansson
Viic i Mýrdal.