Tíminn - 01.04.1978, Page 20
!_
'sífir 18*300
Auglýsingadeild
Tímans.
Gera hrepps-
nefnd og
verkalýðs-
félag i
Borgarnesi
sérsamning?
JB — Á fundi hreppsnefndar
Borgarness fyrir skömmu var
það samþykkt með öllum greidd-
um atkvæðum að hefja viðræður
við verkalýðsfélagið á staðnum á
grundvelli bréfs, sem þeir siðar-
nefndu höfðu sent hreppsnefnd.
En i bréfinu er kjarasamningun-
um sagt upp, þess krafizt að
greidd séu laun miðað við kaup-
gjaldsliði samninganna frá i
fyrra og einnig óskað eftir
viðræðum við hreppsnefndina.
Það eru lægst launuðu starfs-
menn hreppsins, verkamennirn-
ir, sem þarna eiga hlut að máli,
og mun hafa komið fram hjá
nokkrum hreppsnefndarmönnum
fullur stuðningur við kröfur
þeirra. Og að auki kom fram sú
skoðun að minnka bæri launa-
muninn, sem ekki hafi tekizt i
siðustu samningum.
Jón Eggertsson formaður
Verkalýðsfélags Borgarness
sagði Timanum, að þetta væri já-
kvætt skref, og væru þeir von-
góðir um að einhver árangur yrði
af viðræðunum.
Selfoss:
um vegamál
FIB fundar
Félag islenzkra bifreiðaeig-
enda heldur almennan fund um
vegamál og skattlangingu um-
ferðarinnar i Selfossbiói i dag,
laugardag 1. april og hefst
fundurinn kl. 15.
Framsögumenn verða Jón
Helgason alþingismaður og Þór
Hagalin sveitarstjóri, en að fram-
söguræðum loknum verða al-
mennar umræður. Bifreiðaeig-
endur og aðrir áhugamenn eru
hvattir til að mæta.
Okukennsla
Greiðslukjör
Gunnar
Jónasson
Sími
TRÉSMIDJAN MEIDUR
. SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822
Sýrð eik
er sígild
,eign
/"■..
fliimiw
Laugardagur 1. april 1978
■■
Hin nýja og fullkomna breiöþota Flugleiða á flugi yfir Reykjavik I gser. Timamynd A.G.
Flugleiðir kaupa breiðþotu
— nýir markaðir að opnast i Austurlöndum
ESE — Samkvæmt nokkuð
öruggum heimildum sem blaðið
hefur aflað sér, munu Flugleiðir
hf. vera búnar að festa kaup á
notaðri breiðþotu frá Banda-
rikjunum. Þotan, sem er af
gerðinni Boeing 747, var áður i
eigu bandariska flugfélagsins
Pan American. Kaupverð þot-
unnar hefur ekki verið gefið upp
enn þá, en það mun hafa verið
þó nokkuð hátt miðað við aðrar
þotur af þessari gerð, þar sem
þotan er búin ýmsum þægind-
um, sem ekki hafa tiðkazt i þot-
um af þessari gerð, m.a. eruall-
ar innréttingar mjög fullkomn-
ar, og eru þær sérstaklega
hannaðar fyrir fólk með sér-
þarfir s.s. oliufursta og aðra
auðkýfinga.
Hin nýja þota kom til landsins
i gær, og munu höfuðborgarbú-
ar hafa orðið all óþægilega varir
við komu vélarinnar, þar sem
henni var flogið yfir höfuðborg-
ina, á leið sinni til Keflavikur-
flugvallar með þeim hávaða
sem slikum þotum fylgir.
Ástæðan fyrir þvi, að Flug-
leiðir ráðast i slikt stórvirki sem
kaup á þotu af þessari gerð, er
sú, að á undanförnum árum
hefur pilagrimaflug Flugleiða
aukizt gifurlega, og hefur fé-
lagið ekki getað annað fluginu,
nema með þvi að taka fjölda
flugvéla á leigu ár hvert, en
slikt fyrirtæki er mjög dýrt og
þvi fýllilega réttlætanlegt að
ráðast i kaup á breiðþotu nú.
önnur ástæða fyrir þvi, að Flug-
leiöir ráðast i þessi kaup nú er
sú, aö félagið mun hafa náð
mjög hagstæðum samningum
um flug á milli Vesturlanda og
Filippseyja með sjúklinga, sem
gangast eiga undir svonefndar
andaskurðlækningar, en sökum
þess að samningar um flugið
voru á mjög viðkvæmu stigi
þegar þotan var keypt var ekki
hægt að greina frá kaupunum
fyrr, þar sem sá möguleiki var
fyrir hendi, að keppinautar
Flugleiða kæmust á snoðir um
hinn nýja markað. Þess má
.einnig geta, að mjög hagstætt er
fyrir Flugleiðir að festa kaup á
þotunni nú, vegna þess að fyrir-
hugaðar erusérstakar ferðir frá
Evrópu til Bandarikjanna með
hópa á Freeport sjúkrahúsið, en
ekkier enn ákveðið hvaða flug-
félag hreppir þá flutninga, þó að
Flugleiðir hafi verið orðaðir
sterklega við þá, sökum heppi-
legrar staðsetningar og þeirra
sambanda sem Flugleiðir hafa.
t þessu sambandi er rétt að geta
þess, að Dr. Frank Herzlin, yfir-
maður Freeport, kemur hingað
til lands n.k. mánudag til funda-
halda og fyrirlestrahalds, og
eru raddir uppi um, að ferð
hans til Evrópu að þessu sinni
standi i sambandi við aukin um-
svif sjúkrahússins.
Hin nýja breiðþota Flugleiða
verður til sýnis á Keflavikur-
flugvelli um helgina,og gefst al-
menningi kostur á þvi að skoða
þotuna i hólf og gólf á milli kl.
13-17 báða dagana. Sætaferðir
verða frá Loftleiðahótelinu á 30.
min fresti, frá hádegi báða dag-
ana.
Gamli söluturninn
aftur á Lækjartorgi
— i næstu viku
var Rögnvaldur Ólafsson arki-
tekt, sem teiknaði söluturninn
árið 1907.
Mjög mikið verk var að endur-
gera garðhúsið, að sögn Leifs
Blumenstein, enda er þar megin-
áherzla lögð á bindingsverk á
hliðum og geysimikið skrautverk
á þaki, sem Einar Erlendsson lét
setja á turninn árið 1912.
FI — tslendingar hafa orðiö fyrir
margt frægari en liúsvernd, og
stundum er haft á oröi, aö þeir
mættu gjarnan varöveita gömul
og táknræn hús sin eins vel og
þeir hafa varðveitt forn handrit.
Þetta hefur viijað bregöast og þvi
var þaö ánægjulegt i gærdag, að
fá aö berja augum tvo ólika
turna, sem geröir hafa veriö upp
á hinn faglegasta hátt og afhjúp-
Efsti hluti gamla turnsins cftir
endurnýjunina.
Timamynd: Gunnar.
aðir munu verða innan skamms.
Hér er uni aö ræöa gamla sölu-
turninn á Lækjartorgi, sem ferö-
azt hefur upp i Arbæ, niður i
Borgartún og er nú á hraðri leiö
niður á Lækjartorg aftur, og
garðhús Thors Jensen aö
Frikirkjuvegi 11, sem þjónaö
hcfur sem vinnuskúr um árabii,
cn verður væntanlega valið verö-
ugt verkefni eftir endurbygg-
inguna.
Bæði voruhúsin illa farin, sölu-
turninn fúinn og með ónýtan botn,
en garðhúsið heldur betur á vegi
statt. Vinnan við endurgerð sölu-
turnsins hefur tekið um eitt og
hálft ár með miklum hléum, enda
var smiðin ekki forgangsverk hjá
borginni. Nú hafa undirstöður
verið steyptar á Lækjartorgi við
opnun Austurstrætis, og mun
turninn tróna þar i framtíðinni —
væntanlega sem húsnæði fyrir
upplýsingamiölun fyrir ferða-
menn.
Yfirsmiður við framkvæmdirn-
ar var Magnús Björnsson bygg-
ingameistari, en yfirumsjón meö
útlitsgerðinni hafði Leifur
Blumenstein tæknideildarstjóri i
byggingadeild borgarverkfræö-
ings. Litavaliðá turninn, grátt og
dökkgrænt, er frá hendi Harðar
Agústssonar listmálara. Til
upprif junar má geta þess, að það
•I wnrr.ww isi \«>s
j i •‘'(í
prpj
i®l '4'
p ggeggj aggi
1 næstu viku er áætlaö, aö gamli söluturninn endurheimtl upphafleg
heimkynni sfn eöa þvi sem næst, og er staösetningartillagan frá Gesti
Ólafssyni skipulagsfræöingi komin. Timamynd: Gunnar.
Aðeins ein ferð
+
með V-Islend*
inga hingað i
sumar
Flugfélagið Viking Travel, sem
undanfarin ár hefur flug V-Is-
lendinga hingað til lands yfir
sumartimann, mun i sumar að-
eins fara eina ferð hingað en
upphaflega höfðu verið ráðgerðar
tvær ferðir. Haldiö verður frá
Winnipeg til tslands 21. júni og
heimleiðis 13. júli. Timinn mun
siðar birta böfn þeirra V-ts-
lendinga, sem hyggjast
heimsækja ísland i sumar.
Loðnuvertið
lokið:
Allflestir
hættir
veiðum
GV— Allflestir loðnubátar eru nú
hættir veiðum, tiðin hefur verið
slæm undanfariö og nokkrir hafa
verið að leita enn ekkert fundiö.
Það er þvi allt útlit fyrir að loðnu-
vertiðinni sé lokið, sagði Andrés
Finnbogason i loðnunefnd i viðtali
viö Timann i gær.
Siðustu loönunni var landaö á
laugardag fyrir páska, en þá var
heildaraflinn frá upphafi vertiöar
orðinn rúmlega 468 þúsund lestir,
en á sama tima i fyrra var heild-
araflinn rúmlega 544 þúsund
lestir. Mestu var landaö á
Seyðisfirði á vertiðinni eða
rúmlega 60 þúsund lestum.