Tíminn - 08.04.1978, Blaðsíða 9
Laugardagur 8. april 1978
9
Nýlega voru ung hjón sem búa
úti á landi, á ferð i Reykjavik.
Þangað hafði konan ekki komið
fyrr, en sagðist hafa gaman af
að lita höfuðborgina augum.
Blaðamaður hitti bónda hennar
að máli og spurði hvort þau
hjónin væru sammála áróðrin-
um, sem rekinn væri gegn
kaupfélögunum. Svarið var ein-
falt en skýrt:,,Kaupfélögin eru
okkur alger nauðsyn. An þeirra
er ég hræddur um að við nytum
litillar þjónustu.”
Rétt er að hlusta á þessa hóf-
sömu rödd. Hún er vitnisburður
frá ungu fólki, sem stendur báð-
um fótum á jörðinni og vinnur
að framleiðslu, ræktunar- og
uppbyggingarstörfum. Slikur
vitnisburður er þyngri á metum
en svartnættisskrif siðdegis-
blaða höfuðborgarinnar. Breyt-
ir þar engu um, þótt andróðar
þeirra gegn kaupfélögum sé
lesinn upp og felldur inn i erindi
i Rikisútvarpinu um „Daginn og
veginn”, svo sem gert var sið-
astliðinn mánudag. Áróðurinn
gegn félögunum fær ekki sér-
stakt gildi fyrir það eitt. Slik
vinnubrögð auðvelda flytjanda
að koma saman hæfilega löngu
máli til að fylla tima þann, sem
hann hefir til umráða, en þau
rýra ekki gildi kaupfélaganna
og starfsemi þeirra eða þýðingu
þeirrar þjónustu, sem var hinu
unga fólki sérstaklega hugstæð.
Ný viðhorf
Til þess að unnt sé að halda
uppi fjölbreyttri atvinnustarf-
semi viðs vegar um land þarf
margt til að koma. Vandinn er
viðast stærri en svo að hann
verði leystur af einstaklingi eða
fáum mönnum. Það þarf sam-
stöðu og samvinnu til að byggja
upp og reka ýmsar þjónustu-
greinar, sem atvinnulifinu og
einstaklingum eru nauðsynleg-
ar. Slikt geristekki af sjálfu sér.
Fróðlegt er að líta á vinnu-
brögð þau, sem viðhöfð hafa
verið i hinum ýmsu byggðarlög-
um. Þau sýna greinilega að
samvinnustarfið einkennist
meðal annars af þvi, að verið er
að leita að og reyna ný form til
lausnar vanda þeim, sem yfir-
leitt fylgir nútima rekstri og
A Hornafirði er blómlegt athafnalif.
var stofnsett. 1 hverju byggðar-
lagi þarf að vera til vel búrn vél-
smiðja. Gengið var til sam-
starfs um lausn þess verkefnis.
Kaupfélagið lagði til 25% hluta-
fjár. Útgerðarfélög, Búnaðar-
sambandiðog einstaklingar sáu
um 75% .Þessu fyrirtæki farnast
vel og er starfsemi þess nauð-
synleg jafnt fyrir bændur, út-
gerðina sem annan atvinnu-
rekstur byggðarlagsins.
Verbúðir h.f.er fyrirtæki sem
til var stofnað með sameig-
inleguátaki þeirra, sem tryggja
þurftu aðkomufólki góðan
samastað þegar vertið stóð og
þörf var mikils mannafla, svo
sem einkennandi hefir verið
fyrir athafnalifið i Hornafirði.
Kaupfélagið lagði til 30% stofn-
fjár félags þessa en útgerðar-
menn það sem á skorti.
Svo sem að framan segir, hef-
ur gott samstarf tekizt um upp-
byggingu ýmissa nauðsynlegra
Breyttir
sem við er aðglímaá hverjum
stað.
Eitt þeirra byggðarlaga, sem
ört hefir vaxið á seinustu árum,
er Höfn i Hornafirði. Þar hefir
fólksfjölgun verið mikil. Þar
hafa risið upp myndarleg ibúð-
arhús á fáum árum. Þar hefir
fjölbreytt atvinnustarfse mi
vaxið og eflzt svo að athygli hef-
ur vakið.
Hvernig hefur verið staðið að
ntáluni á þessum stað?
Fyrir þvi verður hér gerð ör-
stutt grein, en þó aðeins stiklað
á stóru.
Þáttur og forysta Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga er athygl-
isverð. Traust fylking stendur
að félaginu. íbúar félagssvæðis
þessvoru 1907 i árslok 1976ogaf
þeim voru 510 félagsmenn kaup-
félagsins. Auk þess sem félagið
hefur með höndum almenna
verzlunarþjónustu rekur það
mjólkursam lag, sláturhús,
vöruafgreiðslu, flutningabila,
fiskvinnslustöð. Allt eru þetta
umfangsmiklar starfsgreinar.
Hæst ber þó frystihúsið, sem
jafnhliða annast saltfiskverkun.
Uppbygging hins nýja glæsilega
hraðfrystihúss og annarrar
starfeaðstöðu var mikið átak.
Engu er þó fulllokið þvi ný verk-
efni biða ætið þar sem framfarir
og mannlegar þarfir sitja i
fyrirrúmi.
011 þessi starfsemi lýtur regl-
um og háttum venjulegs kaup-
félagsrekstrar. Félagsmennirn-
ir kjósa stjórn, sem ræður kaup-
félagsstjóra til að annast dag-
lega stjórnun og forystu. Megin-
máli skiptir að leiðsögn þessara
aðila sé farsæl og traust.
Þrátt fy rir öran vöxt félagsins
og viðtæka starfsemi þess, hafa
óleyst verkefni beðið á ýmsum
sviðum sem sinna þurfti strax
til að tryggja atvinnukeðju og
þjónustustörf i hennar og fólks-
ins þágu. Kaupfélagið hafði
fangið fullt við sin verkefni. Það
hafði þó hug á og getu til að
ieggja fleiru lið, enda fullvist að
án þátttöku og stuðnings þess
yrðu hin stærri, aðkallandi
verkefni ekki leyst.
tímar
Efnt var til sérstakra félaga,
sem hvert um sig hafa afmark-
að verkefni. Kaupfélagið var á
vissan hátt i flestum tilfellum
hið leiðandi afl, en fleiri aðilar
bundust málunum.
Fiskimjölsverksmiðja Horna-
fjarðar h.f. var stofnuð. Kaupfé-
lagið á 45% hlutaf járins,
hreppsfélagið um 17% og nálægt
50 einstaklingar um 38%. Þetta
fyrirtæki á og rekur eina af
myndarlegri sildar- og loðnu-
bræðslum landsins og er einna
stærstur sildarsaltandi á land-
inu.
Borgey h.f. sem er útgerðar-
félag, varð til og rekur það 2
báta. Kaupfélagið á 70% hluta-
fjárins, en einstaklingar 30%.
Kaupfélaginu hefur verið falið
að sjá um daglega stórn þessa
fyrirtækis og sama er um Fiski-
mjölsverksmiðju Hornafjarðar
h.f. að segja. En þau tvö fyrir-
tæki, sem á eftir verða nefnd,
lúta hins vegar annarri daglegri
forystu.
Vélsmiðja Hornafjarðar h.f.
þátta á félagslegum grunni,
sem flestir voru ofviða einum
aðila eins og á stóð. Útgerðin er
hins vegar i höndum einstakl-
inga eða félaga, sem sjómenn
hafa i ýmsum tilvikum staðið
saman að, og hefur slik verka-
skipting gefizt vel.
Frásögn þessi sýnir að kaup-
félögin eru ekki steinrunnið
verzlunarform, sem fastbindur
sig við að annast vörusölu eina
saman einsog stundum er látið i
veðri vaka af andstæðingum
þeirra. Breyttum timum fylgja
ný viðhorf og oft er þörf nýrra
viðbragða og starfshátta.
Að vilja félagsmanna sinna
reyna kaupfélögin að verða að
liði við nýskipan atvinnumála á
félagslegum grunni og eflingu
almennrar þjónustu til hagsbóta
fyrir umhverfi sitt og byggð.
Þetta mun hinu unga fólki hafa
verið i huga þegar það gaf kaup-
félögunum vitnisburð sinn, sem
vitnað var til i upphafi þessa
máls.
Sam vinnumaður.
Verkalýösfélag Reyðarfjarðarhrepps
ekki bann
Boða
,IB — Almennur félagsfundur i
Verkalýðsfélagi Reyðarfjarðar-
hrepps, ákvað það i fyrradag, að
taka ekki þátt i yfirlýstum að-
gerðum Verkamannasambands
Islands og boða ekki til útflutn-
ingsbanns. Er þetta eina félagið
til þessa sem það hefur gert.
Hjá Bóasi Hallgrimssyni, for-
manni félagsins, fengum við þær
upplýsingar, að þar eð stjo'rn og
trúnaðarmannaráð verkalýðs-
félagsins hafi ekki álitið sig hafa
heimild til að boða slika aðgerð,
var ákveðið að leggja málið fyrir
almennan félagsfund til meðferð-
ar. En stjórn félagsins hafði i lok
marz sl. lagt til, að félagið tæki
þátt i aðgerðum þeim, er verka-
lýðshreyfingin færi út i. Fundur-
inn tók hins vegar þá ákvörðun,
sem fyrr greinir, að taka ekki
þátt i aðgerðunum.
Á fundinum i fyrradag sagði
Bóas, að það hefði verið baráttu-
mál, hvort taka ætti þátt i þessu
eða ekki. Það var viss hópur á
fundinum, sagði hann, sem taldi
SJ-K.B. Andersen utanrikisráð-
herra Dana kemur i opinbera
heimsókn hingað til lands
fimmtudaginn 13. april. Eigin-
þessar aðgerðir of harkalegar
gagnvart þjóðarbúinu, ef þær
stæðu lengi. Sú skoðun manna
mun einnig hafa komið fram, að
aðgerðir af þessu tagi væru sein-
virkar og ekki nægilega mark-
vissar.
1 Verkalýðsfélagi Reyðar-
fjarðarhrepps eru 170 manns.
kona Andersen kemur með hon-
um hingað. Meðan á heimsókn-
inni stendur mun Andersen ræða
við Einar Agústsson utanrikis-
ráðherra og fleiri úr rikisstjórn-
inni. Dönsku utanrikisráðherra-
hjónin fara til Vestmannaeyja,
Egilstaða og þaðan akandi til
Reyðarfjarðar. Sérstök dagskrá
verður fyrir utanrikisráðherra-
frúna. Skoðar hún Barnaspitala
Hringsins, Listasafn íslands og
heimsækir Sigurjón Ólafsson
myndhöggvara. Andersen og
fylgdarlið fara héðan 16. april.
Lögtaksúrskurður
Keflavík, Grindavík, Njarðvík
og Gullbringusýsla
Lögtaksúrskurður vegna ógreiddrar en
gjaldfallinnar fyrirframgreiðslu þing-
gjalda 1978 var uppkveðinn i dag, mið-
vikudaginn 5. april 1978.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum
ásamt dráttarvöxtum og kostnaði verða
látin fara fram að 8 dögum liðnum frá
birtingu þessarar auglýsingar verði þau
eigi að fullu greidd innan þess tima.
Keflavik, 5. april 1977.
Bæjarfógetinn í Keflavik,
Grindavik og Njarðvlk.
Sýslumaðurinn i Gullbringusýslu
Jón Eysteinsson (sign)
K.B. Andersen og frú til Vest-
mannaeyja og Reyðarf jarðar
I
■É
'V-
l 'f
. ‘-4
Borgarspítalinn
Hjúkrunarfræðingar -
Hjúkrunarfræðingar
Til að geta haldið sjúkradeildum opnum i
sumar þurfum við á ykkar hjálp að halda
Hvað getið þið lagt af mörkum?
Morgunvaktir — kvöldvaktir — nætur-
vaktir — fullt starf eða hluta úr starfi?
Vinsamlegast hafið samband sem allra
fyrst við skrifstofu hjúkrunarforstjóra
Borgarspitalanum i sima 81200.
Reykjavlk 7. apríl 1978
Borgarspitalinn
&
te
M
1
I
í/s-
&
- •• K,'
>;ú
S Formannsstarf
VLs'
á hafnsögubátum Reykjavíkurhafnar er
laust til umsólyiar.
Formaður gegnir jafnframt vélstjóra-
starfi og eru þvi skipstjórnar- og vél-
stjórnarréttindi áskilin.
Umsóknir sendist hafnarstjórn fyrir 20.
april n.k. en nánari upplýsingar gefur
y f irhaf nsögumaður.
íÁý
sV<’
|
$
4.
(V"'
& •
1 ,
Hafnarstjórinn i Reykjavik • ’ý
K.B. Andersen utanríkisráfiherra