Tíminn - 14.04.1978, Síða 9
Föstudagur 14. april 1978
9
140 manna hópur söngfólks
og hljóðfæraleikarar frá
Þrándheimi í heimsókn
GV — 140 manna hópur hljóð-
færaleikara og söngfólks kemur
til landsins i dag. Hér eru á ferð-
inni stúdentahljómsveit og
stúdentakórarnir i Þrándheimi og
munu þeir halda margs konar
tónleika á mörgum stöðum nú
næstu daga.
Hljóðfæraskipan stúdenta-
hljómsveitarinnar er sinfónisk
og er efnisskrá tónleikanna i
samræmi við það. Hljómsveitin
heldur miðnæturtónleika i kvöld i
Bústaðakirkju og flytja þar ein-
göngu norska tónlist, m.a. kafla
úr Pétri Gaut eftir Grieg.
Innan hljómsveitarinnar starfa
minni hópar, s.s. blásara-
kvartettar, kammerhópar o.fl.
Þar á meðal er jazzhljómsveitin
Bodega Band, sem heldur jazz-
tónleika i Félagsstofnun i kvöld
og „jammar” i Tjarnarbúð annað
kvöld. Annar hópur innan hljóm-
sveitarinnar er gömludansa-
hljómsveitin Snaustrinda Spele-
mandslag og mun hún t.d. koma
fram á hátið Landssambands
blandaðra kóra nú um helgina.
Hljómsveit þessi hefur starfað i
um 70 ár og kjörorð hennar er
hvorki meira né minna: ,,Vi er de
eneste sem kan blíse i alt og
stryke med god samvittighet”.
Kórarnir
Stúdentakórarnir eru tveir,
karlakór og kvennakór, og á tón-
leikunum syngja þeirbæði saman
og sitt i hvoru lagi, enda hefur að
sögn verið gott samstarf þeirra á
milli.
Fjölbreytt dagskrá
á Borgfirðingavöku
Borgfirðingavaka er að verða
árviss viðburður i félagslifi Borg-
firðinga. Að þessu sinni hefst vak-
an I Logalandi að kvöldi siðasta
vetrardags með tónleikum Sin-
fóniuhljómsveitar Islandi og sið-
an rekur hver samkoman aðra.
A sumardaginn fyrsta verður
opnuð sýning á grafik og teikn-
ingum I Valfelli og verður sýning-
in opin fimmtudag — sunnudag
klukkan 14.00-22.00. Eru mynd-
irnar á sýningunni i eigu Lista-
safnsins i Borgarnesi.
Að kvöldi sumardagsins fýrsta
verður fyrsta kvöldvakan af
þremur og verður hún i Lyng-
brekku. önnur kvöldvakan
verður i Heiðarborg á föstu-
dagskvöldið 21. aprfl og hin þriðja
i Logalandi á laugardagskvöld-
inu.
Dagskráin a kvöldvökunum er
nokkuðmismunandi enaukhelztu
atriðum má nefna að lesið er
kvæði kvöldsins, nemendur úr
Tónlistarskóla Borgarf jarðar
leika á pianó, Gisli Þorsteinsson
og Kristin Jónasdóttir syngja ein-
söng.
Þrir leikþættir verða sýndir.lát
bragðsleikur sem félagar úr leik-
deild U.m.f. Skallagrims eru
með, samlestur úr leikritinu
„Staíin er ekki hér” flutt af félög-
um úr leikdeild U.m.f. Stafholts-
tungna og auk þess sýna nemend-
ur Bændaskólans að Hvanneyri
leikþátt.
Nemendur úr KÍeppjárns-
reykjaskóla sýna látbraðgsleik,
nemendur úr Grunnskólanum i
Borgarnesi sýna jassdans og
Margrét Guðjónsdóttir sýnir nú-
timaleikfimí. Einnig syngur
Bjartmar Hannesson gamanvis-
ur.
Tveir kórar koma fram a Borg-
firðingavöku. Samkór Hvanneyr-
ar undir stjórn Ólafs Guðmunds-
sonar og Karlakórinn sunnan
Skarðsheiðar undir stjórn Ágústu
Ágústsdóttur.
Má af þessu sjá að dagskrá
kvöldvökunnar verður f jölþætt og
ættu allir að geta undið þar
eitthvað við sitt hæfi.
Borgfirðingavöku lýkur með
bilasýningu Bifreiðaiþrótta-
klúbbs Borgarfjarðar i Borgar-
nesi laugardaginn 29. april.
CITROÉNA'
TÆKNILEG FULLKOMNUN
CITROÉN^CX
LUXUSBÍLL
í SÉRFLOKKI
CITROÉN^GS
DRAUMABÍLL
FJÖLSKYLDUNNAR
Kórarnir halda tónleika i sal
Menntaskólans við Hamrahlið i
kvöld kl. 7. Stjórnendur kóranna
eru Per Hjort Albertsson og Else
Marie Lund. Á tónleikunum verð-
ur kynnt norsk tónlist, gömul og
ný.
Kórarnir munubáðir taka þátt i
söngleikum Landssambands
blandaðra kóra núna um helgina,
auk þess sem þeir sækja Laug-
vetninga og Kópavogsbúa heim.
Tónleikar i Kópavogi
Kórarnir munu halda tónleika
ásamt h i j ó m s v e i t i n n i
Snaustrinda Spelemandslag, í
Kópavogi á morgun kl. 11, en
Þrándheimur er vinabær Kópa-
vogs. Þessi skemmtun verður i
Félagsheimili Kópavogs og er öll-
um heimill ókeypis aðgangur
meðan húsrúm leyfir. Þá býður
bæjarstjórinn tónlistarfólkinu til
hádegisverðar.
Gömludansahljómsveitin Snaustrinda Spelemandslag, einn hópurinn
innan Stúdentahljómsveitarinnar. Þessi hljómsveit mun spila á tón-
leikunum i Kópavogiog á hátið Landssambands blandaðra kóra, nú um
helgina.
Kvenstúdentakórinn frá Þrándheimi.
KAHNABÆR
vill stækka í
Austurstræti
Ætla að endursmíða framhlið húss
síns í sama horf og 1920
JG — Fimmtudaginn 30.marz s.l.
var lagt fyrir bygginganefnd
Reykjavlkur erindi frá Guðlaugi
Bergmann og fl. (KARNABÆR)
þar sem sótt er um leyfi til þess
að stækka og endurbyggja hús-
eignina Austurstræti 22.
Stækkun þessi felur I sér endur-
byggingu og stækkun á 1. hæð
hússins um 123 fermetra, en 2
hæð hússins myndi stækka um
54.8 fermetra, en alls mun stækk-
unin — ef leyfð verður, nema um
535 rúmmetrum.
Mun stækkunin fást aðallega
með þvi að byggja yfir húsagarð
bak við húsið.
Bygginganefnd frestaði að taka
ákvörðun i málinu.
Framhlið i
fyrra horf
Að sögn Péturs Björnssonar,
sem er annar forstjóri Karnabæj-
ar, er þetta mál þannig til komið
aðeigendur Austurstrætis 22 vilja
gjarnan koma húseigninni i gott
stand.
Bakatil á lóðinni eru nokkrir
skúrar eða kofaræksni, sem
þarna var hróflað upp, en
viðhaldi var litið sinnt. Við erum
að lagfæra þetta núna og koma
þvi I sómasamlegt horf, til þess
að nýta þetta húsrými. Með þvi aö
byggja yfir þröngt sund, myndum
við fá aukna nýtingu.
Þá tel ég rétt að það komi fram,
að við höfum i hyggju aö lagfæra
húsið, eða framhlið þess og færa
hana i sama horf og hún var árið
1920, þegar þetta var virkilega
fallegt hús, þannig að hús-
friðunarsjónarmiðið er i heiðri
haft hjá okkur, sem endranær,
enda sjálfsagt að þetta tvennt fari
saman, varöveizla og notagildi.
Nýja bió vill
lika stækka
En það eru ekki aðeins þeir i
Karnabæ, sem hyggja á breyting-
ar. Eigandi aö sambyggðu húsi,
Lækjargötu 2, Knútur Bruun, lög-
maður, hefur farið fram á hlið-
stæðar heimildir til stækkunar og
framkvæmda (Klausturhólar),
en ekki tókst blaðinu að ná sam-
bandi við lögmanninn til þess aö
inna hann nánar eftir hugmynd-
um hans. Það er vitað að
Klausturhólar munu innan
skamms flytja starfsemi sina I
nýtt húsnæði við Laugaveginn.
Þá hefur það einnig komið fram
i bygginganefnd Reykjavikur að
Nýja bió hefur óskað eftir þvi að
fá að byggja yfir gang norðan við
húsið. Er það allmikil stækkun að
sögn.
Ef samþykkt veröur, má gera
ráðfyrirað þessi húsaþyrping við
Lækjartorg og Lækjargötu taki
nokkrum stakkaskiptum.
ÞEGAR ÁKVEÐIN ERU BÍLAKAUP
ER NAUÐSYNLEGT AÐ VITA HVAÐ FÆST FYRIR PENINGANA
HVAÐ BÝÐUR CITROÉNA YÐUR?
1. Báöir bílarnir hafa veriö valdir bílar ársins.
2. Fullkomiö straumlínulag gerir bílinn stööugri
og minnkar bensíneyðslu.
3. Framhjóladrifið, sem CITROéN byrjaði
fyrstur meö skapar öryggi í akstri við allar aö-
stæður.
4. Vökvastýri, (CX) með þeim eiginleikum aö
átakiö þyngist, því hraöar sem er ekiö.
5. Vökvafjöðrun (aöeins á CITROÉN) skapar
eiginleika og öryggi sem enginn annar bíll get-
ur boöiö upp á. T.d. hvellspringi á miklum
hraða er þaö hættulaust, enda má keyra bílinn
á þrem hjólum.
6. Vökvahemlar sem vinna þannig aö hemlunin
færist jafnt á hjólin eftir hleðslu.
7. Þrjár mismunandi hæðarstillingar, meó einu
handtaki, gerir bílinn sérstaklega hentugan við
íslenskar aöstæður, t.d. í snjó og öðrum tor-
færum.
8. Samkvæmt sænskum skýrslum reyndist
CITROÉN einn af fjórum endingarbestu bílum
þar í landi.
9. CITROÉN er sérstaklega sparneytinn.
10. Miðað viö allan tæknibúnað er verðið á
CITROEN mjög hagkvæmt.
55555I
SAMA HÆÐ OHÁÐ HLEÐSLU -
Globusn
LAGMULI 5. SÍMI81555
SAMA STAÐA ÓHÁÐ ÓJÖFNUM