Tíminn - 14.04.1978, Síða 10
10
Föstudagur 14. april 1978
SAMVINNAN
Annað tölublaðið i ár komið út
Febrúarblað Samvinnunnar er
komið út. Blaöið er tuttugu og sex
siður að stærö og er efni þess
mjög fjölbreytt. Eru þar greinar,
sögur og kvæði auk þess sem
margar myndir prýða blaðið.
í blaðinu er til að
mynda sagt frá Kexverksmiðj-
unni Holti i máli og myndum, en
verksmiðjan tók nýlega til starfa
á vegum SIS. Sagt er frá ritgerða-
samkeppni meðal æskufólks um
samvinnuhreyfinguna á Islandi.
Fjárhús Arna á Eyri er grein eftir
Finn Kristjánsson, kaupfélags-
stjóra á Húsavik. Jón ólafsson
hæstaréttarlögmaður rifjar upp
þátttöku sina i sjálfstæðismálinu
1941-1944 i greininni Hljómurinn
sem átti að kæfa. Rætt er viö
Gunnar Grimsson um skjalasafn
Sambandsins og Haukur Ingi-
bergsson skólastjóri fjallar um
landbúnaðarmál i þættinum Orð
af orði. Þá er i Samvinnunni merk
grein eftir Valgeir Sigurðsson
blaðamann, Greinina kallar Val-
geir A viðsjálum timum og fjallar
um bók Ólafs Jóhanns Sigurðs-
sonar, Seið og Hélog. Ennfremur
er i blaðinu smásagan Saga kaup-
mannsins eftir Leo Tolstoy i þýö-
ingu Jóns Helgasonar.
Samband Islenzkra samvinnu-
félaga er útgefandi Samvinnunn-
ar, en ritstjóri hennar er Gylfi
Gröndal.
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla
íditl
isi
CHEVROLET
TRUCKS
Höfum til sölu:
"egund:
Ooel Kacíett L
.Aazda 929 4o.
Vaaoneer
'0ÍV0 244 DL
~)pel Manta
Scout 11 D.L. siálfsk. skuldabr.
Opei Caravan
. M. Benz250 siálfsk. m/vökvast
Chevrolet Nova Concours2 d.
Ford Broncc V8 beinsk.
Ch. Nova Custom
Chevroief Monza
Skoda Parous
Skoda 110 L
Chevroiet Impaia
','olvo 244 DL
Mercury Cougar XR7
Scout 11 6 cyl beinsk.
/auxhall Chevette
Chevrolet AAaIibu
Chevrolet Nova
Saab96
Bedford CF-J100 d.
Scout Traveller
Scout V8 siálfsk. m/vökvast.
Ch. Nova Coricours2ia d.
Ch. Blazer Chyenne
Ch. Nova Concours 4 d
Peugeoi 540 dísel
Opel Caravan
Chevrolet Cheveile
Chevroiet Nova sialfsk.
Mazda 929 2ia dyra
Datsun Cherry 100 A
Ara.
76
‘7c
16
‘76
'71
'69
'77
'74
"8
'76
76
kr.
'74
74
'74
74
76
'76
73
74
76
71
Veró í bús.
2.4001
2.500
900
3 400
' o00
5 5C0
■-'90
: .900
4.300
2.600
4.300
2.900
'.050
950
3.100
3.000
2.400
2.100
'.900
1.500
.600
5.500
2.900
3.950
5.500
4.200
'700
1.750
' 800
2.200
2,600
850
Samband
Véladeild
ÁRMÚLA 3 - SÍMl 38900
AVINNSLU
ALTKINHEAD
□vinnsluherfi
fyrírliggjandi
Verð aðeins 76.250
SÍMI 81500'ÁRMÚLAII
Traktorar
Buvelar
Þorsteinn Gunnarsson og Valgeröur Dan I hlutverkum sfnum f Skjaldhömrum.
Skjaldhamrar slá fyrri met
í sýningaf j ölda
Ekkert leikrit hefur verið sýnt jafn oft í Reykjavik
Laugardaginn 15. april verður
179. sýning á leikriti Jónasar
Arnasonar, Skjaldhömrum i Iðnó
og hefur þá ekkert islenzkt verk
verið sýnt jafnoft i Reykjavik,
samfleytt. Skjaldhamrar voru
auk þess sýndir fjórum sinnum i
leikferð, sem farin var til Fær-
eyja. —
Þar með er hnekkt meti
sem sett var 1972 með Kristni-
haldi undir Jökli eftir Halldór
Laxness, en það var sýnt sam-
fleytt 178. sinnum I Iðnó. Það
verk, sem næst kemur að sýn-
ingafjölda á fjölum Iðnós, er Hart
i Bak eftir Jökul Jakobsson sýnt
160 sinnum hér i Reykjavik, en
auk þess 45 sinnum á leikferðum
úti um land. Saumastofan eftir
Kjartan Ragnarsson hefur verið
sýnd 135 sinnum i Iðnó og auk
þess 57 sinnum utan Reykjavik-
ur. —
Sýningum á þessum vin-
sælu leikjum, Skjaldhömrum og
Saumastofu, er nú að ljúka.
Litbrigði jarðarinnar
— eftir Ólaf Jóhann Signrðsson á slóvensku
— ásamt sögum eftir nokkra heimskunna snillinga
Nýkomin er út i Bratislava bók-
in Ncsinrtel’ni milenci, sem orð-
rétt mun þýða Ódauðlegar ástar-
sögur. Bókin er gefin út á slóv-
ensku. Hún er i stóru broti, mynd-
skreytt og fagurlega útgefin. 1
henni eru sex sögur og meðal
þeirra Litbrigði jarðarinnar eftir
Ólaf Jóhann Sigurðsson. Það er
Emilia Nemsilová, sem hefur
þýtt Litbrigðin úr tékknesku á
slóvensku, en súsaga kom út i
flokki erlendra nútimabók-
mennta i Prag árið 1964, þýdd af
dr. Helenu Kadecková, og hlaut
frábærlega góðar viðtökur, þvi að
hún seldist upp á einni viku.
Nesmrtel’ni milenci er 288
blaðsiður,og i bókinni stendur, að
hún sé gefin út i þrjátiu þúsund
eintökum. Fyrir framan hverja
söguer höfundur hennar kynntur
áeinni blaösiöu. Ekki verður ann-
að sagt, en islenzki höfundurinn
sé þarna i góðum félagsskap, þvi
aöhinar sögurnar fimm eru allar
eftir öndvegissnillinga. Þeir eru
Cinzio Giraldi, italskur sextándu
aldar höfúndur, Honoré de Bal-
zac, Jean Giono, Leonard Frank
og Karel Capek.
Tíminn spuröi Ólaf Jóhann
Sigurðsson kvað væri að frétta
af öörumþýðingum á Litbrigðum
jarðarinnar. Hann svaraöi því til,
að auk tékknesku og slóvensku
hefðu Litbrigðin nú þegar birzt á
rússnesku, lettnesku, litháisku og
dönsku. Siðar á þessu ári mun
sagan eiga að koma út á a.m.k.
þremerlendum málum til viðbót-
ar: norsku, þýzku og ensku.
Alþingi O
verið er að byggja upp á Hvann-
eyri og mjög brýnt að tara i veru-
legar framkvæmdir á Hólum sem
eðlilega mundu sitja fyrir með
framkvæmdafé Ef málin færu á
þann veg að húsnæði yrði fyrir
hendi fyrir bændaskóla á Suður-
landi á hentugum stað fyrir slikan
skóla, þá væri álltaf hægt að
breyta lögunum, ef menn þá yrðu
þess sinnis.
Bútækninám er einnig nýmæli,
gert er ráð fyrir eins vetrar fram-
haldsnámi i búfræöi eftir búfræði-
próf. Er þetta i heimildarformi.
1 greinargerð með frumvarpinu
kemur fram að nefndin telur eðli-
legt að ef af slikri kennslu verður
verði hún fyrst tekin upp á Hól-
um, enda er mikilvægt að efla
þann skóla sem er að dómi nefnd-
arinnar of litill.
Landbúnaöarnefnd ræddi
einnig þetta atriði og var sammáia
þvi sjónarmiði, að ef úr sliku
námi yrði, sem eflaust væri nauö-
synlegt, þá ættu Hólar aö verða
fyrir valinu.
Þriðji kaflinn er eins og áður
sagði um búvisindanám, er hann
allur nýr.
4. kafli er um embættisbústaði
og 5. kafli ýmis ákvæði.
Landbúnaðarnefnd sendi Bún-
aðarþingi þetta frumvarp til um-
sagnar, og mælti Búnaðarþing
með samþykkt frumvarpsins
óbreyttu.
Landbúnaðarnefnd háttvirtrar
deildar mælir með samþykkt
frumvarpsins óbreyttu.
Háttvirtur þm. Benedikt
Gröndal var fjarstaddur við af-
greiðslu málsins.”
Klassiskar
teikningar
frá Róm
i FÍM-salnum
Laugardaginn 15 april veröur
opnuð sýning á gömlum teikning-
um frá Rómaborg i FÍM — saln-
um að Laugarnesvegi 112.
Teikningar þessar — og raunar
einnig nokkrar 1 jósmyndir, bækur
og skjöl — hafa verið á ferð um
Norðurlöndin aö undanförnu. Til-
gangurinn er einkum sá að kynna
Skandinaviska félagið I Róm,
sem er meira en aldargamalt og á
rætur sinar i samkomum skandi-
naviskra visindamanna, lista-
manna og annarra Rómarfara
um miðja siðustu öld. Vorið 1860
tókst forráðamönnum þess að fá
stjórnir skandinavisku landanna
til aðveitaþvinokkurnfjárstuön-
ing og um leið fékk danska bóka-
safniö i'borginn fastan samastað.
Margir þekktir visinda- og lista-
menn nutu góðs af húsakynnum
og félagsskap Skandinaviska
félagsins á öldinni sem leið.
Nefaamá þar tilnorska tónskáld-
ið Edvard Grieg, dönsku málar-
.ana Carl Bloch og P.S. Kröyer,
norska málarann Eilif Peterssen
og Svi'ana Bernhard og Emil
Ostermann. Málararnir gerðu
teikningar hver af öðrum en
einnig félögum sinum úr öðrum
starfsgreinum. Nokkrar þeirra
eru á sýningunni i FtM — salnum.
Þetta eru verk I klassiskum anda
og framin af ákaflega mikilli
kunnáttu og leikni höfundanna.
Arið 1975 var starfsemi Skandi-
navíska félagsins i Róm endur-
skipulögð. Hún nýturnú fjárhags-
stuðnings Norrænu ráðherra-
nefndarinnar. Allmargir islenzkir
myndlistarmenn hafa búið þarna
og unniö að list sinni á undanförn-
um árum, og i dag er Norræna
myndlistarbandalagið aðili að
rekstri stofnunarinnar.
Með sýningunni á hinum
klassisku teikningum fra Róm
vill FIM leggja nokkuð af mörk-
um til að kynna starfsemi þessar-
ar gömlu stofnunar, sem oröið
hefur til að hleypa nokkru lifsljósi
inn i tilveru félags félagsmanna
þess með hressandi dvöl i Róma-
borg. Sýningin verður opin til
sunnudags, 23. apríl. Hún verður
opnuð kl. 16.00 næstkomandi
laugardag.