Tíminn - 22.04.1978, Qupperneq 1

Tíminn - 22.04.1978, Qupperneq 1
Slðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Stj órnarskrárnefnd verði sett af - Allsherjarnefnd flytur tillögu þess efnis KEJ—Framer kominá Alþingi þingsályktunartillaga um aö fella niöur umboð núverandi stjórnarskrárnefndar nú þegar og skipa nýja 7 manna nefnd, er skili tillögum sinum I tæka tiö svo unnt sé aö leggja þær fyrir næsta þing. Aö sögn Jóns Skaftasonar varaformanns alls- herjarnefndar sameinaös Al- þingis flytur nefndin öll þessa tillögu. Sagöi Jón, aö núverandi stjórnarskrárnefnd heföi veriö skipuð 1972 og allar götur sföan heföi ekkert meiriháttar frá henni komið, en á grundvelli til- vistar hennar heföi hver tillag- an á fætur annarri er varöa kjördæmaskipan, kosningar til Alþingis og starfshætti Alþingis, falliðum sjálfa sig án þess aö fá afgreiöslu. Nefndin og starfs- leysi hennar heföu i raun verkaö eins og til aö drepa niður allar raunhæfar tillögur um aðgerðir i þessum málim. Af þessum ástæöum, sagöi Jón, telur allsherjarnefnd rétt, aö núverandi stjónarskrárnefnd veröi leyst frá störfum og skipuö verði ný nefnd meö ákveönara verksviö, þ.e. aö gera tillögur um breytingar og þá sérstaklega á kjördæmaskip- an og enn fremur á ákvöröun stjónrarskrár og lögum um Al- þingi og á kosningalögum. Jón Skaftason sagöi, aö alls- herjarnefnd stæöi öll aö tillögu þessari,.. en i henni eiga sæti auk hans Ellert B. Schram for- maður, Lárus Jónsson, ólafur G. Einarsson, Jónas Arnason, Jón Helgason fundaskrifari og Magnús T. ólafsson. Þá sagði Jón aö lokum, aö hann vissi ekki til þess aö áöur heföi verið flutt tillaga á Alþingi þess efnis aö setja af þingskip- aöa nefnd. HEl — Sumarið heilsaði meö sólskini og bliðu. Vona eflaust allir að í þvi felist fogur fyrirheit um hlýtt og sólrlkt sumar. Skátarnir hofðu undirbúið mikla skemmtidagskrá i miðbænum og ekki lét fólk á sér standa að taka þátt I gamninu. Hefur Ilklega sjaldan safnazt annar eins fólksfjöldi I bæinn til að skemmta sér viö margs konar leiktæki sem korniö hafði veriö fyrir i Austurstræti og hlýða á marga góöa skemmtikrafta, lúörablástur og hljómsveitarleik. Stundum er talað um að miðbærinn sé að deyja, en það afsannaðist rækilega á sumardaginn fyrsta. Fólkið er tilbúiö aö gera hann liflegan ef eitthvað er þar við að vera. I útflutningsbanni: Beiðnir um undanþágu frá Neskaupsstað og Fáskrúðsfirði Veitt und- anþága til útflutnings á loðnu- mjöli frá Þariákshöfn GV — Við veittum undanþágu til útflutnings á 880 tonnum af loðnu- mjöli á nýjan markað i Libýu og það var gert á þeim forsendum að markaðurinn er nýr og það þótti hættulegt að stöðva útflutninginn að svo stöddu vegna þess, sagöi Þórður Ólafsson, formaöur Verkalýðsfélagsins i Þorlákshöfn i viðtali viö Timann. Undanþágan var veitt T sam- ráði við forystu Verkamanna- sambandsins, en Þórður sagði, að ekki væri til i dæminu að veita undanþágu til útflutnings á fryst- um fiski frá Þorlákshöfn. At- vinnurekendum stæði hins vegar til boba aö semja viö þá um aö gera samningana gilda á ný. — loðnuhrogn flutt til Keflavíkur GV — Frystigeymslur SDdar- vinnslunnar á Neskaupsstað og Pólarsild á Fáskrúðsfirði eru nú óðum að fyllast og hafa forstöðu- menn þessára fyrirtækja sótt um undanþágur til útskipunar til að rýma pláss, að öðrum kosti stöðv- ast framleiðslan innan 5 daga i Neskaupsstað og innan viku á Fá- skrúðsfirði. — Þeir báðu um að fá að skipa út 12 þús. kössum, en við hér höfum lagt til að veitt yrðiundan- þágatilaðskipaút6þús. kössum, en en undanþágunefndin i Reykjavik á eftir að taka afstöðu til þessa, en hún hefur úrskurðar- vald i málinu, sagði Sigfinnur Karlsson, formaður Verkalýðs- félags Norðfjarðar i viðtali við Timann. Þá hefur verið ákveðið að flytja til Keflavikur um 110 tonn af toðnuhrognum, sem nú eru geymd á göngum frysti- geymslunnar i Sildarvinnslunni. Mikið berst nú á land af fiski á Austfjarðarhafnir og eru fram- leiddir um 500 kassar á dag i SDdarvinnslunni á Norðfirði. Um 50 tonn berast á hverjum degi til frystihúss Pólarsild á Fáskrúðs- firði, og hefur verið sótt um að fá undanþágu til að skipa út 3 þús. kössum frá Fáskrúðsfirði, og verður leitað til undanþágunefnd- ar i Reykjavik tU samráðs um hvort að undanþágan verði veitt. Snorri Sigfússon jarð- sunginn Snorri Sigfússon verður jarðsunginn frá Dalvikur- kirkju i dag og jarðsettur á Tjörn i Svarfaðardal, en þar eru hans æskuslóðir. Minning- arathöfn um Snorra var haldin i Dómkirkjunni i Reykjavik I gær. Hans er minnzt á bls. 17 og 18. Sérsamningar í Borgarnesi: Viljayfirlýsing um að launajöfnun- arstefnan nái fram að ganga — segir Húnbogi Þorsteinsson JB — 1 gær var uridirritaður sérsamningur milli Verkalýðs- félags Borgarness og hrepps- nefndarinnar um laun þeirra verkamanna er hjá hreppnum starfa. Er i samningi þessum gengið aö þeim kröfum Verka- lýðsfélags Borgarness, að laun- þegum sé bætt sú skerðing sem felst i lögum rikisstjórnarinnar frá þvi i febrúar sl. Jafnframt kveður þessi samningur á um auknar starfsaldurshækkanir. Til að rekja tildrög samnings þessa þá fór Verkalýðsfélag Borgarness fram á það er það sagöi upp kaupgjaldsliðum kjara- samninganna að þeir yrðu áfram • i gildi og að kjör yrðu ekki lakari miðað við samninga sem gerðir voru i fyrra. Óskaði félagið enn- fremur eftir viðræðum við hreppsnefnd Borgarneshrepps á þessum grundvelli. Það var siðan samþykkt á fundi i hreppsnefnd að fela sveitarstjóra að taka upp viðræður við verkalýðsfélagið i anda þessa bréfs. Er umræddur samningur svo árangur funda þessara aðila. Sem dæmi um það hver áhrif þessi nýi samningur hefur á laun verkamanna má nefna að dag- vinnukaup i þriðja taxta sem flestir verkamannanna eru á eru kr. 710 á timann i byrjunarlaun. Eftir eitt ár hækkar þaö i 735 og eftir 3 ár i 760. Áöur voru hækkanir eftir eitt ár og fjögur ár. Hækka laun i lægsta taxta um 5.185%j7.299% i næsta taxta og 8.727% i þeim hæsta. Fyrsta júni hækkar svo kaup aftur um 32 kr. á kist eða umsamdar 5000 kr. Aö auki bætast ofan á það 9%. Þá hækka allir taxtar tilsvarandi. Jón A. Eggertsson formaður Verkalýðsfélags Borgarness sagði Timanum i gær að þeir Gott fordæmi, — segir Jón E. A. Eggertsson fögnuöu mjög gerö þessa samnings, þvi þarna heföi náöst samkomulag um að hækka kaup þeirra lægst launuðu. ,,Ég tel að hreppsnefndin hafi þarna sýnt gott fordæmi og vona bara aö fleiri fylgi þvi og komi á eftir” sagði hann. 1 viðtali við Timann sagði Hún- bogi Þorsteinsson sveitarstjóri i Borgarnesi að með samningi þessum hefðu þeir verið aö semja um bætt kjör til handa þeim lægst launuöu. — Þetta er viljayfir- lýsing af hálfu hreppsnefndarinn- ar um að launajöfnunarstefnan nái fram að ganga en þrátt fyrir að mikiö sé alltaf rætt um hana virðist hún hafa fallið i skuggann. sagði Húnbogi. Sagði hann að þeir væru nú að vinna að gerð sér- samnings við BSRB og kæmi fram við það að það fólk er þiggur lægstu launin skv. þeim samning- um hefur mun hærri kaup en verkamennirnir.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.