Tíminn - 22.04.1978, Qupperneq 17

Tíminn - 22.04.1978, Qupperneq 17
Laugardagur 22 april 1978 17 Sáttur viö guö og menn, sáttur viö dauðann og þakklátur fyrir gjafir lifsins kvaddi Snorri Sig- fússon heiminn á 94. ári aldurs sins, eftir stutta sjúkrahúsvist og óþrotinn ab andlegum kröftum. Langur var vinnudagurinn orðinn enda var Snorri gæddur óvenju- legu lifsfjöri og hjá honum fór saman áhugi, kapp og iðjusemi i einingu sem aðeins fáum mönnum er gefin. Með honum er horfinn af sjónarsviðinu sá öldungur þjóðar- innar sem haft hafði persónuleg kynni af svo mörgum samferða- mönnum að fátitt mun vera, enda munu nú margir minnast þeirra kynna af þakklátum huga. Bjart og hreint og hressandi var jafnan i návist Snorra Sigfús- sonar, alvara og gaman i góðu samræmi. Hann var mannblend- inn og jákvæður að upplagi og ungur heillaðist hann af vonbjört- um viðhorfum til lifs og manns, sem voru i svo fögru samræmi við eðli hans. Æskuhugsjónum sinum um batnandi mannlif og þjóðlif var hann trúr allt til dauða og vann þeim allan sinn langa anna- dag af heilum huga. Birtan frá vordögum þjóðlifsins i upphafi aldar fylgdu honum til hinztu stundar. Snorri Sigfúson var skólamaður að ævistarfi. An efa var hann þar á réttri hillu, þvi að mannrækt i viðtækum skilningi var honum hjartfólgið áhugamál. Kennari og fræðari hefði hann liklega orðið hvar sem lifið hefði skipað honum á bekk. Kennaraferill hans er glæsilegur og þjóðkunnur. Slikt má segja um marga, enda hitt meira i frásogur færandi að Snorra var gefinn sá fágæti eig- inleiki að leitast ekki aðeins við að koma öðrum til þroska heldur einnig og ekki siður að stefna vit- andi vits að þvi að gera sjálfan sig að meiri og betri manni. Hann hafði sterkan vilja til að láta gott af sér leiða, vera boðinn og búinn til að leggja fram lið sitt þegar þörfin kallaði, vera reiðubúinn til að ljá góðu máli atfylgi sitt, hlaupa undir bagga, finna úrræði i vanda, eiga frumkvæði að þvi sem hann áleit að til góðs horfði. Oft var hann þá brennandi i and- anum og sparaði ekki krafta sina né heldur fjármuni ef til voru, þvi að ekki var Snorri Sigfússon auð- söfnunarmaður um dagana. Einkennilegt er hve fast hið gamla snilldarkvæði séra Björns i Sauðlauksdal sækir á hugann þegar Snorra er minnzt. Ég held að fleirum en mér muni íinnast það og þvi rifja ég kvæðið upp: Ævitiminn eyðist unnið skyldi langtum meir, sist þeim lifið leiðist sem lýist þar til út af deyr; Þá er betra þreyttur fara að sofa, nær vaxið hefur herrans pund, en heimsins stund liði i leti c® dofa. Ég skal þarfur þrifa þetta gesta herbergi, eljan hvergi hlifa sem heimsins góður borgari; einhver kemur eftir mig sem hlýtur, bið ég honum blessunar þá bústaðar minn nár i moldu nýtur. Þetta er frá orði til orðs eins og mælt fyrir munn vors gamla góða vinar. Og betur verður það ekki sagt. Snorri Sigfússon var maður vináttu og tryggðar. Þess naut ég sjálfur og ættfólk mitt i rikum mæli, og hvorki vil ég né má, þótt persónulegt sé nokkuð, láta undir höfuð leggjast á þessum kveðju- degi að minnast ræktarsemi hans, sem ég hygg að hafi verið með fádæmum. A unglingsaldri kom hann á heimili afa mins og ömmu á Tjörn og var með þeim fram á fullorðinsár. Jafnan siðan taldi hann sig fósturbróður föður mins og systra hans. Þau bönd vináttu og kærleika rofnuðu aldrei, þrátt fyrir stopular sam- vistir, heldur þvert á móti styrkt- ust æ þvi meir sem lengri timar liðu. Mér er bæði ljúft og skylt að láta i ljós þakklæti mitt til Snorra fyrir þrotlausa umhyggju hans fyrirgömlu fóstursystkinunum og þá hollu hönd sem hann var æ og alltaf reiðubúinn til að r étta þeim, bæði fyrr og siðar. Jk MINNING S: non F. 31. 8 ti Si . 1884 — ] g D. 1£ fússon 1. 4. 1978. Ekki vil ég heldur láta hjá liða að minnast þeirra tryggðabanda sem bundu Snorra við átthaga okkar beggja, Svarfaðardal, og hvilikur drengur hann reyndist þvi byggðarlagi hvenær sem á þurfti að halda. Hann fluttist það- an ungur, en úr fjarskanum og annrikinu á öðrum landshornum fylgdist hann af vakandi huga með öllu sem þar var að gerast, með mönnum og málefnum, þó að kynslóðir kæmu og færu. Þar stóðu ættir hans aliar djúpum rót- um og enn er frændgarður hans þar með miklum blóma.Og þang- að leitaði hugur hans löngum, til sögunnar, til nútimalifsins, til framtiðarvonanna. Hann geymdi i trúu minni óteljandi mannlifs- myndir löngu liðinna tima, allar götur aftur á fyrri öld, og veit ég nú engan ofar moldu, sem annaö eins svipmyndasafn eigi i huga sér. Mér fannst stundum i seinni tiö að Snorri væri orðinn eins kon- ar vættur dalsins, þó aldrei nema hann ætti heima hér fyrir sunnan fjöll. Snorri Sigfússon haföi fyrir löngu valið sér legstað i kirkju- garöinum á Tjörn. Þar verður hann nú lagöur til hvildar i dag. Vinarhugur og þökk fylgir honum þangað héðan að sunnan. Kristján Eldjárn. t Snemma vissi ég hver Snorri Sigfiisson var. Faðir minn hafði verið einn af fyrstu nemendum hans, og alla tið hélzt með þeim vinfengi. Sjaldan eða aldrei mun Snorri hafa komið svo til Dalvik- ur að hann liti ekki inn hjá for- eldrum minum og stundum dvaldist hann þar i nokkra daga. — Þegar ég man fyrst til var Snorri námsstjóri barnafræðsl- unnar á Norðurlandiogátti þá að baki langa starfsævi sem kennari og skólastjóri. Þegar hann lét af námsstjórastarfi vegna aldurs, gerðist hann forgöngumaður að sparifjársöfnun skólabarna og iðulega i ferðum vegna þeirra starfa. Eftir að þeim lauk kom hann oft i Svarfaðardal að hitta vini sina og sveitunga. Mér þótti alltaf fengur að þvi þegar vinir föður mins komu i heimsókn. Sætti ég þá færi að hlýða á tal manna, þótt sitthvað færi vitaskuld fyrir ofan garö og neðan. Frá þeim stundum minn- ist ég Snorra glöggt. Hann sat aldrei kyrr i stólnum lengi i senn, spratt á fætur, gekk um go’lf og sveiflaði örmum, talaði með miklum áherzlum. Snerpan virt- ist helzta einkenni hans. Á þess- um árum beindist áhugi hans mjög að varðveizlu heimilda úr svarfdælskri sögu. Hann átti frumkvæðiað þvi að hafin var rit- un búendatals i Svarfaðardal, svo langt aftur sam rakið varð.Hann lifði það að verkið yrði tii lykta leitt, og kemur siðari hluti Ut á þessu ári. Eiginleg kynni okkar Snorra hófust ekki fyrr en nokkrum ár- um síðar. Þá var faðir minn lát- inn. En Snorri vildi gjarnan halda tengslum við Svarfdælinga þótt raðir gamalla vina þynntust, og þess naut ég. Við ræddum oft saman siðustu árin, hann hringdi til min eða sendi mér li’nu, og stundum heimsótti ég hann á Stýrimannastiginn. 011 þau sam- skipti urðu mér til óblandinnar ánægju og fróðleiks. Ég dáðist að þvihvevel þessi háaldraði maður fylgdist með öllu, hve áhugi hans var lifandi og viðfeðmur. Mest hugsaði hann um skólamálin sem vænta mátti og hafði ákveðnar skoðanir á framvindu þeirra. Veit ég aðhann hafði samband við for- ystumenn á þeim vettvangi fram á siðustu ár. Snorri Sigfússon óx upp á þeirri tið þegar tslendingar fóru i raun- inni fyrst að finna til máttar sins. Gamla öldin ar að baki og ný heilsaði með fangið fullt af fyrir- heitum. A þeim timahvörfum orti Hannes Hafstein þetta ákall: Drottinn sem veittir frægð og heill til forna farsæld og manndáð vek oss endurborna. Strjúk oss af augum nótt og harm þesshorfna, hniginnar aldar tárin láttu þorna. Slikri framtiðarsýn helgaðist ungmennafélagshreyfingin sem barst hingað til lands á fysta tug aldarinnar. Snorri Sigfússon gekk heils hugar til liðs viö þá félags- legu vakningu. Heimkominn frá námsdvöl i Noregi gekkst hann fyrir stofnun ungmennafélags á æskustöðvum sinum. Sá félags- skapur varð mörgum æskumönn- um góður skóli og lagði drjúgan skerf til menningarauka i Svarf- aðardal eins og annars staðar um byggðir landsins. Sú „ræktun lands og lýðs” sem ungmennafé- lagshreyfingin hafði að markmiði varð meira en orðin tóm. Og það kom til af þvi að leiðtogar hennar trúðu á að unnt væri að hvetja menn til dáða. Þeir trúðu að þegnskapur og fórnfýsi myndu vekja „farsæld og manndá’ð”. Þar komst engin hálfvelgja að. Snorri Sigfússon var óbugandi bjartsýnismaður alla tíð. Auðvit- að var honum ljóst, að hagsældin sem kynlóð hans keppti að gat snúizt upp i eigingirni og taum- lausa græðgi eins og hvarvetna sjást merki um i samfélagi vorra daga. En samt vildi hann ekki sleppa trúnni á þroskamögu- leika manneskjunnar, vit hennar og dómgreind, þrátt fyrir allt. „Verst finnst mér það að menn eru að verða svo svartsýnir á lifs- ins gang”, sagði hann i bréfi til min um sumarmálin i fyrra. „Það er ófært. Þetta bjargast allt ef menn missa ekki móðinn”. Slik lifstrú getur að visu virzt barna- leg á stundum. En verðum við ekki að halda i hana hvað sem á bjátar? Og hljótum við ekki að viðurkenna að hin bjartsýna lifs- glaða kynslóð Snorra Sigfússonar hafi skilað miklu dagsverki og af ósérplægni búið i haginn fyrir þá sem á eftir komu? Þegar vinur minn og sveitungi snýr nú heim til þeirrar svarf- dælsku moldar sem hann unni, minnist ég hans með þökk fyrir allt sem hann kenndi i orði og verki. Ég þakka honum kynni sem glæddu skilning minn á sögu þeirrar umbrotamiklu aldar sem við lifum. í honum fannst mér ég mæta þeim hugsjónum og hug- myndum sem settu mest mark á islenzkt samfélag fyrsta þriöjung aldarinnar. An þekkingar á þvi mótunarskeiði getum við vissu- lega ekki skilið samtiðina. Þó er mér ekki efst i huga hvernig Snorri Sigúfsson kýpkaði skilning minn á fortiðinni. Ég þakka hon- um framar öllu fyrir að hafa styrkt frú mina á húmanisk verð- mæti, á þrótt og dug mannsins i viðsjálum heimi. Sá arfur má öll- um sem þekktu hann vera rikur i minni á kveðjustund og birtugjafi á veginn fram. Gunnar Stefánsson. t Enn hefir dauðinn höggvið stórt skarð i hóp vina minna og sam- herja þar sem Snorri Sigfússon er nú látinn. Sú er raun okkar hinna gömlumanna og tjáir ekki um að fást. Snorri mun hafa verið elsti kennarinná landi hér, þegar hann andaöist 13. þ.m., meira en 93 1/2 árs. Ég ætla mér ekki að rita hér hefðbundin eftirmæli. Það munu aðrir gera og hefir þegar verið gert margsinnis, þvi að Snorri var fyrir löngu þjóðkunnur mað- ur. Og sem betur fer hefir hann sjálfur ritað endurminningar sin- ar i bók sinni Ferðin frá Brekku. Það er fróðleg og stórmerk bók i þrem bindum. Ég mun aðeins rita hér nokkur kveðjuorð. Við Snorri þekktumst ekki i æsku, þar sem hann var norðlenzkur daladrengur, en ég vestíirzkur fjarðarstrákur, 7 ár- um yngri. En við höfum þekkzt siðan Snorri var skólastjóri á Flat- eyri i önundarfirði. Siðar áttum við þátt i stofnun Sambands islenzkra barnakenn- ara og unnum saman i þeim fé- lasskap og svo Góðtemplararegl- unni. Báðir vorum við ungmenna- félagar. En mest urðu kynni okk- ar þegar ég var fulltrúi i fræðslu- málaskrifstofunni en hann náms- stjóri norðanlands. Hann var allt- af hinn sivakandi og eidlegi á- hugamaður um fræðslumálin, si- fellt leitandi nýrra leiða, til þess + Eldhugi er okkur horfinn. Háaldraður hefur kvatt. Eftir lifir öðru fremur minning um mátt viljans. Gneistaði af góðum manni. Frelsi unni framsækinn. Lá aldrei á liði sinu. Hló jafnan hugur i brjósti. Uppfræddi æskulýðinn. Lagði honum lifsreglurnar. Hug lyfti i hæðir bjartar. Ast glæddi til ættarfoldar. Lagið tók löngum glaður. Eggjaði til átaka. Hikaði litt þótt hriö dyndi. Vaskur fór vegferð langa. Svarfaðardal sinum unni. Hlut hans hóf og efldi. Sæmd var og sins héraðs og þjóðarinnar þegn traustur. Vel gerður var Snorri. Birtugjafi börnum landsins Fyrirmynd fjörmikill. Vorsál virtur af öllum Lauk stund. Liðinn er dagur. Hniginn á brá. höfginn þungi. Fjallkonan nU faðmi vefur soninn ágæta, er siungur lifði. Með bestu þökkum fyrir einstæð og ógleymanleg kynni. Eirikur Pálsson frá Ölduhrygg. að auka og bæta uppeldisstörf skólanna. Það var yndi hans að leiðbeina og fræða. Mér fannst hann vera einn þeirra sem lét sér ekkert mannlegt óviðkomandi. Og honum entist andlegt þrek og minni mun betur en almennt ger- ist. Ég hefi það fyrir satt, t .d. að hann hafi nokkrum dögum fyrir andlát sitt farið með kvæðið um Svein dúfu i kunningjahópi. Siðari árin hefir fundum okkar Snorra borið sjaldnar saman en fyrr, þar sem báðum dapraðist flugið, annar varð sjóndapur. en hinn heyrnarsljór. En þá ftindum við upp á þvi að skiptast á ljóða- bréfum til þess að stytta stund- irnar. Þetta höfum við gert rösk- an áratug, að mig minnir, báðum til gamans. Oftast var Snorri fljótari að svara. Hann var mjög góður hagyrðingur. þótt hann flikaði þvi litt. Ég undraðist oft hvað snjallar hugmyndir og ljóð- linur birtust i bréfum Snorra, jafnvel eftir niræðisaldurinn. 1 bréfum okkar mátti oft finna sterk lýsingarorð og allsnarpar ádeilur um eitt ogannað, okkur til mikillar ánægju. Var það allt meira til lofs en lasts. Vegna þessara bréfaskrifta þykir mér hlýða. að kveðja þenn- an vin minn með litlu ljóði, þótt fátæklegra sé en skyldi. Ljóð- kveðju til vina minna hefi ég aldrei birt fyrr i blöðum og mun ekki gera framar. Nóttina eftir að Snorri andaðist vaknaði ég um óttuleytið og mér fannst ég allt i einu standa við lik- börur hins látna vinar. Þá urðu þessi erindi til á stundinni. Þau Framhald á bls. 18.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.