Tíminn - 22.04.1978, Page 24
Sýrð eik er
sígild eign
HUfcCiÓCiIi
TRÉSMIDJAN MEIDUR
SÍÐUMÚLA 30 ■ SÍMI: 86822 ■
Greiðsluafkoma ársins 1977
óhagstæð um 1.764 millj.kr.
skv. ríkisreikningi
Priðjungi útgjalda varið til heilbrigðis og tryggingamál
JB — Rikisreikningur A-hluti
fyrir árið 1977 hefur veriö full-
gerður af hálfu rikisbókhaldsins
og var hann lagður fyrir Alþingi i
gær. Helztu niðurstöður hans eru
þær að gjöld námu 102.821 mill.
króna tekjur námu 100.278 millj.
króna og eru þvi umfram tekjur
2.543 millj. króna. Breyting lána-
reikninga utan Seðlabankans og
viðskiptareikninga ýmssa fól hins
vegar i sér greiðslu i rikissjóð
umfram útgreiðslur að fjárhæð
779 millj. kr. Greiðsluafkoma árs-
ins 1977 varð þvi óhagstæð um
1.764 millj. Lausafjárstaöa rikis-
sjóðs við aðra en bankakerfið
batnaði hins vegarum 2.605millj.
kr. á árinu. Greiðsluafkoma
rikissjóðs skv. rikisreikningi er
339 millj. kr. hagstæðari en
bráðabirgðatalan var i skýrslu
fjármálaráðherra i febrúar sl.
þar sem hann gerði grein fyrir af-
komunni.
Ef litið er á skiptingu útgjalda
rikisreikningsins fyrir árið 1977
eftir verkefnum kemur i ljós að
nálægt þriðjungi þeirra eða 33.6%
er varið til heilbrigðis- og
tryggingamála. Almannatrygg-
ingar taka til sin 24% heildarút-
gjaldanna og þriðju i röðinni eru
menntamál sem taka 15.6%
heildarútgjaldanna. Til verkefna
á sviði félagsmálaráðuneytisins
er varið 4.6% heUdarútgjalda en
það er að meginhluta til hús-
næðismála. Þannig að rúmlega
helmingur rikisútgjaldanna eða
53.8% er varið til þeirrar félags-
legu þjónustu sem að framan
greinir. Eru þetta 55.3 milljarðar
króna. Samgöngumál taka til sin
10.1% rikisútgjalda eða 10.4 mill-
jaröa. Til niðurgreiðsla er varið
6.3%. tU dómgæzlu og lögreglu-
mála 6.4% og tU vaxtagreiðslna
3.3% heildarútgjalda. 14.7%
heildarútgjalda skiptast á önnur
verkefni.
Laun nema 25.3% heildarút-
gjalda,ýmis rekstrargjöld 7.8%
viðhald 2.8% vaxtagjöld 3.3%,
gjaldfærður stofnkostnaður 7.5%
og hverskonar tilfærslur aðrar en
vaxtagjöld 53.3%. Af þessum til-
færslum eru framlög til almanna-
trygginga 24%.
Rfcissjóður aflar 14% tekna
sinna i formi beinna skatta, en
þeir nema 14 milljörðum króna.
84% eða 84.4 milljarða aflar hann
með óbeinum sköttum og 2% með
öðrum hætti. Af beinum sköttum
er tekjuskattur mikilvægastur og
nemur 9.6%. Af óbeinu sköttunum
er sölugjald langmikilvægast og
nemur 36% heildartekna rikis-
sjóðs. Almenn aðflutningsgjöld
eru 16.8% heildarteknanna.
B-hluti rikisreikningsins verður
lagður fram fyrir Alþingi næsta
haust.
vsí;
Treystir sér ekki til að
ræða kauphækkanir
JB— Fundur var haldinn i gær,
með fulltrúum Verkamannasam-
bands lslands og vinnuveitend-
um, og er þaö fyrsti fundurinn
sem haldinn er með þessum aðil-
um frá þvi i lok marz. Litið gerð-
ist á þessum fundi og var annar
fundur ákveðinn n.k. miðvikudag.
I stuttu samtali viö Ólaf Jóns-
son, framkvæmdastjóra Vinnu-
veitendasambands lslands, sagði
hann, að málin hefðu verið rædd á
svipaöan hátt og áður. „Viö vor-
um búnir að senda frá okkur bréf
þar sem þaö kemur skýrt fram,
að við erum ekki tilbúnir til að
ræða um kauphækkanir, þar eð
atvinnureksturinn þolir ekki slikt.
Málin voru þvi rædd á breiöum
grundvelli. Formaöur Verka-
mannasambandsins bar fram þá
spurningu, hvort viö værum til-
búnir til aö ræða um kauphækk-
anirfyrir þá lægst launuöu, en við
treystum okkur ekki til þess, þvi
okkur finnst það hljóti að koma til
álita með aðra hópa á svipuðu
stigi. Pólitiska hliðin á þessu
hefur lika komiö fram áður, þ.e.
að þetta er lögbundið atriði, sem
að þeir sem það ákveða geta einir
leyst úr þvi”, sagði Ólafur.
Framboðsfrestur til 24. maiy og
Kjörskrár nú á þriðjudag
og kærufrestur til 3. júní
utankjörstaðar- atkvæðagreiðsla
hefst 28. maí
JS —Dómsmálaráðuneytiö hefur
sent frá sér auglýsingu þar sem
boöaðar eru samkvæmt lögum al-
mennar Alþingiskosningar
sunnudaginn 25. júni næstkom-
andi.
1 auglýsingunni kemur m.a.
fram að sveitarstjórnum er skylt
að hafa langt fram kjörskrár eigi
siðar en næstkomandi þriöjudag,
hinn 25. april, og skulu þær liggja
fram fjórar vikur eða til þriðju-
dagsins 23. mai.
Framboðsfrestur til Alþingis-
kosninganna rennur út miðviku-
daginn 24. mai, en kærufrestur
vegna kjörskrár hinn 3. júni.
Utankjörstaöaatvkæðagreiðsla
hefst sunnudaginn 28. mai, en 10.
júni eiga sveitarstjórnir að hafa
skorið úr öllum aðfinnslum eða
athugasemdum við kjörskrár.
Hér sést yfir EiöislandiO sem Seltjarnarnesbær fær nii en þar er fyrirhugaö aö rfsi miöbær Seltirninga f
framtiöinni. Mynd: Róbert.
SELTJARNARNES
FÆR EIÐISLAND
— Engey, Viðey og Akurey falla
nú undir lögsögu Reykjavíkur
SSt — Nú liggur fyrir Alþingi
frumvarp til staðfestingar á
breyttum lögsögumörkum milli
Seltjarnarnesbæjar og Reykja-
vikurborgar og verður það
væntanlega afgreitt i næstu viku.
Bæjarfélögin undirrituðu hins
vegar samkomulag um þetta i
febrúar 1976 að undangengnum
löngum aðdraganda, þvi um-
ræður um breytt lögsögumörk
milli þeirra hófust 1962.
Breytingin er á þá lund að Sel-
tjarnarnesbær fær nú Eiðisland
sem Reykjavikurborg hafði áður
keypt af eiganda Eiðis, en Sel-
tirningar hyggjast reisa miðbæ
sinn þar i framtiðinni. Eyjarnar
Engey.Viðey og Akurey sem áður
voru i lögsagnarumdæmi Sel-
tjarnarnessbæjar heyra nú fram-
vegis undir lögsagnarumdæmi
Reykjavikur.
Að sögn Sigurgeirs Sigurösson-
ar, bæjarstjóra á Seltjarnarnesi
kemur sér vel fyrir Seltirninfta að
fá Eiðislandið.þar sem það er vel
staösett með tilliti til þess að þar
risi miðbær þeirra i framtiðinni
en skipulagsyfirvöld hafa sam-
þykkt það.
Velta Kaupfélags Þingeyinga
þrír milljarðar árið 1977
ÞJ-Ilúsavik. Aðalfundur Kaup-
félags Þingeyinga var haldinn á
Húsavik dagana 18. og 19. april
s.l. og var 97. aðalfundur KÞ frá
stofnun félagsins. h’undinn sátu
118 kjönir fulltrúar auk kaup-
félagsstjóra, stjórnarmanna og
endurskoðenda. 1 skýrslu for-
manns félagsins Teits Björnsson-
ar, kom fram að helzta fjár-
festing KÞ á árinu 1977 hafi verið
innrétting nýrrar byggingarvöru-
verzlunar við Vallholtsveg, Húsa-
vik.
Finnur Kristjánsson kaup-
félagsstjóri flutti fróðlega skýrslu
um rekstur félagsins á liðnu ári
og útskýrði reikninga þess. Hann
ræddi og allýtarlega um fram-
tiðarhorfur i efnahags- og at-
vinnumálum. Velta KÞ á árinu
1977 var rúmir þrir milljarðar.
Afkoma félagsins var mjög sæmi-
leg á árinu.
Haukur Logason fulltrúi flutti
erindi um verzlun og þjónustu. 1
erindi hans kom m.a. fram að
neytendur á landsbyggðinni þurfa
að greiða allan flutningskostnað á
vörum sem fluttar eru frá
Reykjavik auk söluskatts sem
lagður er á þann flutnings-
kostnað. Reykviskir neytendur
þurfa hinsvegar ekki að greiða
neinn flutningskostnað á fram-
leiðsluvöru sem fluttar eru frá
landsbyggðinni til Reykjavikur.
Á fundinum voru mörg mál tek-
in til umræðu. Meðal ályktana
sem fundurinn gerði var ályktun
um kennslu i samvinnufræðum
við Háskóla Islands. Alyktunin
sem samþykkt var með öllum at-
kvæðum fundarmanna hljóðaði
þannig: Aðalfundur Kaupfélags
Þingeyinga 1978 skorar á islenzk
samvinnufélög og samband
þeirra til málafylgju ef til þess
dugi að upp verði komið öflugum
kennslustóli i samvinnufræðum
við Háskóla Islands.
Árlega er úthlutað nokkru fé úr
menningarsjóði KÞ til ýmiss
konar menningar- og liknarmála.
Aðalfundurinn veitti að þessu
sinni styrki til eftirtalinna aðila
Skógræktarfélags Suður-Þingey-
inga, Héraðssambands Suður-
Þingeyinga, Kirkjukórasam-
bands Suður-Þingeyinga,
Krabbameinsfélags Suður-Þing-
eyinga og til styrktar útgáfu
bókarinnar Frelsisbarátta Suður-
Þingeyinga og Jón á Gautlöndum
eftir Dr. Gunnar Karlsson.
Aö kvöldi fyrri fundardagsins
var efnt til kvöldvöku i Félags-
heimili Húsavikur fyrir fulltrúa
aðalfundarins og gesti þeirra, og
var hún fjölsótt. Kvöldvökunni
stjórnaði Sigurjón Jóhannesson
skólastjóri,Flutt var ýmiss konar
efni til fróðleiks og skemmtunar.
Að venju var brugöið á léttara
hjal undir kaffiborðum i funda-
hléum báða dagana og létu þá
hagyrðingar til sin taka.
Stjórn Kaupfélags Þingeyinga
skipa nú þessir menn: formaður
Teitur Björnsson, Brún Reykja-
dal, Baldvin Baldursson bóndi
Rangá Ljósavatnshreppi, Böðvar
Jónsson bóndi Gautlöndum, Mý-
vatnssveit, Egill Gústafsson
bóndi Rauðafelli, Bárðardal, Jó-
hann Hermannsson fulltrúi skatt-
stjóra Húsavik, Skafti Benedikts-
son ráðunautur, Hlégarði, Aöal-
dal og Sigurjón Jóhannesson
skólastjóri Húsavik. Sigriður M.
Arnórsdóttir situr i stjórn KÞ sem
fulltrúi starfsmanna kaupfélags-
ins og hefur þar málfrelsi og til-
lögurétt. •