Tíminn - 06.05.1978, Blaðsíða 1
10% fólks i Sviþjóð
innflytjendur
— Bls. 7
Slðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Stöðvarhiisin vift Kröflu.
Bréf Orkumálastjóra:
Skuldir Orkustofnun-
ar allar vegna Kröflu
— engar óheimilaðar stöður um áramótin
KEJ — Orkustofiiun voru á fjár-
lögum ársins 1977 veittar 543,5
milljónir til rannsókna en varið
var á árinu 546,1 milljón króna i
þessuskyni, sem er 2,6milljónum
kr. meira en fjárlagatalan eða
0,5%. „Verður þetta að teljast
eins nálægt farið og_ með sann-
girni verður krafizt í landi með
30-40% verðbólgu á ári”, segir i
bréfi, sem þingmönnum barst i
gær frá orkumálastjóra i fram-
haldiaf umræðum um þessi mál á
Alþingi 2. mai siðastliðinn.
1 umræðunum á Alþingi sagði
forsætisráðherra, Geir Hall-
grimsson, m.a. að fjárhagsvand-
ræði Orkustofnunar væru i könn-
un hjá embættismannanefnd, en
ljóst væri að stofnunin hefði ekki
haldiðsig innanheimilda f járlaga
og m.a. ráðið starfsmenn i óleyfi.
Um starfsmannahald segir i
bréfi orkumálastjóra, Jakobs
Björnssonar: „Samkvæmt
starfsmannaskrá rikisins 1.
janúar 1978, sem nú er fullgerð
hjá Fjárlaga- og hagsýslustofnun
voru þann dag engar óheimilar
stöður hjá Orkustofnun”.
Þásegir ibréfi orkumálastjóra,
að stofnuninni hafi árið 1974 veriö
falið af Iðnaðarráðuneytinu, að
„undirbúa mannvirki tú vinnslu
jarögufu handa jarðgufuaflsstöð
við Kröflu eöa Námafjall....”
...„Undirbúningur þessi skal unn-
inn i samráð við ráðuneytið eftir
nánari ákvörðun þess”. Segir
orkumálastjóri i bréfi sinu, aö
stofnunin hafi „gætt þess að
fylgja fyrirmælum Iðnaðarráðu-
neytisins i Kröfluframkvæmdum
sinum....” en hér sé um sérstakt,
timabundið verkefni að ræða.
Krafla og
Z í nótt
— þingslit í dag
KEJ — Fundir voru i öllum
deildum Alþingis i gær og boð-
aður var fundur aö nýju i Sam-
einuðu Alþingi klukkan niu 1
gærkvöldi. Meöal mála á dag-
skrá voru skýrsla iönaðarráö-
herra um Kröfluvirkjun og
þingsályktunartillaga um ís-
lenzka stafsetningu, sem gerir
ráð fyrir aö z verði tekin upp að
nýju.
Búizt var viö að fundir stæðu
fram á nótt, enda nokkrir þing-
menn staðráðnir i að koma 1 veg
fyrir að stafsetningarþings-
ályktunartillagan verði sam-
þykkt á þessu þingi.
Arið 1974 lauk Alþingi störfum
með löngum fundum um z-una
og urðu þá nokkrir þingmenn,
m.a. Sverrir Hermannsson, til
aö halda maraþonræður til þess
að freista þess að koma i veg
fyrir að þingsályktunartillaga
um niðurfellingu z-unnar yrði
samþykkt. Það er væntanlega
við hæfi að þetta þing ljúki
störfum sinum meö þvi að aðrir
þingmenn freisti þess að koma i
veg fyrir að z-an verði að nýju
tekin upp.
Þá er fyrirhugaðaö slita þingi
i dag, en nú er aöeins rúmur
einn og hálfur mánuður til Al-
þingiskosninga. Annir hafa ver-
iö miklar á þingi að undanförnu
og mörg lög verið samþykkt.
Væntanlega verða nokkrar
mannabreytingar i þingliði nú á
milli þinga. Einir 6 eöa 7 þing-
menn eru ekki 1 framboöi til Al-
þingiskosninga nú og aörir hafa
færzt til á kjörlistum.
„sem Orkustofnun er sérstaklega
falið .... oger alveg óviðkomandi
hinum almennu rannsóknum
hennar, enda ekki kostað — eins
og þær— af framlagi á fjárlögum
skv. ákvörðun Alþingis.
Um siðustu áramót, segir í
bréfinu, nam fjárvöntun vegna
framkvæmda Orkustofnunar við
Kröflu 228milljónum króna. Ekk-
ert fé hafi verið útvegað til að
mæta þessari fjárvöntun fyrr en'
Iðnaðarráðuneytið tilkynnti
Orkustofnun, að ríkisstjórnin
hefði ákveðið að taka 150 milljón-
ir króna af fjárveitingu Orku-
stofnunar á siðari hluta þessa árs
til að greiöa vanskilaskuldir
vegna framkvæmda Orkustofn-
unar við Kröflu. Mótmælir orku-
málastjóri þessari ráðstöfun,
enda samrýmist það ekki tilgangi
Alþingis með umræddri fjárveit-
ingu að verja henni til Kröflu-
framkvæmda. Er hér er eins og
áður greinir, um aö ræða fjárveit-
ingu til ýmissa rannsókna.
Greenpeace samtökin
Ætla að hindra hvalveiðar við ísland
Telja stofninn í N-Atlantshafinu í hættu
Strlðsskip Greenpeace samtakanna Rainbow Warrior lét úr höfn I
London á mánudag til að taka þátt i mótmælum gegn byggingu
kjarnorkuvers I Skotlandi. Næsta viftfangsefnið verftur á hvalveifti-
miftum I N-Atlantshafi vift Islenzka fiskibáta.
Verift er að undirbúa hvaiveiðiskipin undir vertiftina, sem hefst 1.
júnf. Mynd þessi var tekin I gær er verift var aft taka einn hval-
fangarann I slipp I Reykjavik, og sér I stefni annars, sem liggur vift
Ægisgarð. Tlmamynd Róbert.
JB — Greenpeace samtökin,
sem kunn eru af afskiptum sín-
um af ýmsum umhverfis-
verndarmálum, hafa nú ákveðið
að koma i veg fyrir hval-
veiðarnar við ísland. . , ,
En Island
er ásamt með Sovétrikjunum,
Japan, og Noregi ein helzta
hvalveiðiþjóð i heimi. Halda
samtökin þvi fram, og þykjast
geta fært fyrir þvi visindalegar
sannanir, að stofni reyðarhvala
við Island sé hætt vegna ofveiði,
oghafa þau undirbúið aðgerðir i
þvi augnamiði, aö koma i veg
fyrir veiðarnar. Ætla þeirt.a.m.
að krefjast þess af islenzkum
stjórnvöldum, að þau beiti sér
fyrir þvi, að hvalveiðum verði
hætt og þau viðurkenni sam-
þykkt frá umhverfisverndar-
ráðstefnu, sem haldin var i
Stokkhólmi árið 1972.
1 samtali við Susan Brandes á
skrifstofu Greenpeace samtak-
anna i London i gær, kom fram,
að þau hyggjast riða á vaðið hér
með blaðamannafundi, sem Al-
an Thornton, einn meðlima i
stjórn Greenpeace munhalda á
Loftleiðum n.k. mánudag.
Hyggst hann þar veita upp-
lýsingar um hvað fyrir þeim
vakir með mótmælum sinum,
koma með visindalegar sannan-
ir á þvl að hætt sé á ofveiði
hvala i N-Atlantshafi, og sýna
kvikmynd máli sinu til stuðn-
ings. Hann mun og veita al-
mennar upplýsingar um sam-
tökin og svara fyrirspurnum.
Það næsta sem Greenpeace
hyggjast gera i málinu, er að
sigla skipi sinu Rainbow Warri-
or á Islandsmið. Tuttugu og
tveir menn verða um borð, allt
sjálfboðaliðar, að undanskildri
sex manna áhöfn, sem að sögn
Susan þiggja lágmarkslaun fyr-
ir veitt störf. Susan sagði að
félagarnir ætluðu að hindra
veiðarnar með þvi að smábát-
um yrði siglt á milli veiðiskip-
anna og dýranna. Sömu aðferð
hafa þau beitt gegn Sovétmönn-
um og Japönum i Kyrrahafi og
náð góðum árangri i þvi aö
vernda kálffullar kýr. Rainbow
Warrior verður á miðunum hér i
kring þar til i júlimánuði. Susan
kvaðst vera mjög bjartsýn á
árangur af ferð þessari og sagð-
ist gera sér vonir um að al-
menningur á tslandi veiti sam-
tökunum fullanstuðning sinn.
Er blaðið hafði samband við
Jón Jónsson, forstöðumann
Hafrannsóknastofnunar i gær,
vegna þessa máls, lýsti hann yf-
ir furðu sinni á þessum aðgerð-
um, og kvaðst telja eitthvað
annaö standa á bak við þessar
aðgerðir en það sem fram
kæmi. Benti hann á, að Is-
lendingar hefðu oft fengið hrós á
erlendum vettvangi fyrir þaö,
hve vel væri staðið að verndun
hvala hér. Hafa verið lagðar
fram skýrslur við alþjóðahval-
veiðiráðið, þar sem allir helztu
sérfræðingar á þessu sviði hafa
setið og hefur þar verið á það
bent hve vel íslendingar sinntu
þessum málum. Sagöi Jón, að af
þessu mætti sjá aö hvalastofn-
inn væri alls ekki i neinni hættu
nér. Sagði hann það undarlegt,
þegar þessa væri gætt að sam-
tökin hygöust vera með ein-
hverjar aðgeröir hér. En það
kæmi I ljós hvort þeir hefðu ein-
hver visindaleg rök fyrir þeim.
Ennfremur benti Jón Jónsson
á það, aö Greenpeace-samtökin
hefðu ekki borið það viö að hafa
samband við þá aðila hér á
landi, er hvaö gjörst um þessi
mál vita.
Nú er verið að undirbúa hval-
vertiðina. Miðaö er við aö hval-
veiöar hef jist hér við land um 1.
júni og standa þær opinberlega i
fjóra mánuði eöa út september
mánuð. Hefur þeim þó oft verið
hætt i kringum 25. september.
Á EKKl VIÐ RÖK AÐ STYÐJAST
— segir forstöðumaður Hafrannsóknastofnunar, Jón Jónsson