Tíminn - 06.05.1978, Blaðsíða 15

Tíminn - 06.05.1978, Blaðsíða 15
Laugardagur 6. mai 1978 15 27 MANNA LANDUÐSHOPUR í KNATTSPYRNU VALINN Valur stöðvaði KR-inga Valsmenn stöðvuöu sigurgöngu KR-inga á Melavellinum á f im mtudaginn, þegar þeir mættust i Reykjavikurmótinu i knattspyrnu. Lengi vel leit út fyrir að KR-ingar myndu tryggja sér Reykjavikur- meistaratitilinn með þvi að halda jöfnu, 1:1 — en þegar 13 min. voru til leiksloka náðu Valsmenn að skora sigurmark sitt — 2:1. Það var Atli Eðvalds- son sem skoraði markið — hann átti fastan skallabolta að marki KR-liðsins og skall knötturinn i stöng, en fór þaðan i bakið á Magnúsi Guðmundssyni, mark- verði KR, og i netið. Leikur liðanna var nokkuð jafn og skiptust liðin á um að sækja. Magnús Ingimundarson skoraði mark KR-inga eftir að- eins 4 min. — hann skallaði þá laglega framhjá Sigurði Haraldssyni, sem lék að nýju I marki Vals. Ingi Björn Alberts- son náði siðan að jafna stuttu siðar. A myndinni hcr fyrir neðan sést Ingi Björn sækja að marki KR-inga. i sumar, eins og undanfarin ár. I 27 manna landsliöshópurinn er" skipaður þessum leikmönnum: VALUR: Guðmundur Þor- björnsson, Ingi Björn Albertsson, Dýri Guðmundsson, Albert Guð- mundsson, Atli Eðvaldsson, Hörður Hilmarsson og Guðmund- ur Kjartansson. AKRANES: Jón Alfreðsson, Arni Sveinsson, Jón Gunnlaugs- son, Jón Þorbjörnsson, Karl Þórðarson, Kristinn Björnsson og Pétur Pétursson. KEFLAVÍK: Gisli Torfason, Þorsteinn Bjarnason og Sigurður Björgvinsson. VESTM ANNAEYJAR: Ólafur Sigurvinsson, Óskar Valtýsson og Sigurlás Þorleifsson. ViKINGUR: Róbert Agnarsson og Jóhann Torfason. FH: Janus Guðlaugsson, Viðar Halldórsson og Ólafur Danivals- son. BREIDABLIK: Einar Þór- hallsson. KR : Sigurður Indriðason. Pétur Pétursson, marka- Framhald á bls. 19. PUNKTAR | • Anderlecht Evrópumeistari Anderleeht frá Belgiu tryggði sér sigur i Evrópukeppni bikarhafa i Paris sl. miðvikudagskvöld með því að vinna stórsigur (4:0) yfir Austría Wien frá Austurriki. Rob Rensinbrink skoraði 2 fyrstu mörk leiksins. en siðan bætti Van ‘Binst tveimur mörkum viö. • Góður sigur Gummersbach Gummersbach frá V-Þýzkalaudi varð Evrópumeistari bikarhafa i handknattleik a fimmtudaginn. þegar liðið vann sigur (15:13) yfir Zelezicar frá Júgóslaviu i úrslita- leik keppninnar. sem fór frani I löngu... Arsenal og Ipswich leiða saman hesta sfna á Wembley í Lundún- um i dag, þar sem liöin mætast i úrslitaleik ensku bikarkeppn- iiuiar. Fyrir löngu er orðið uppselt á þennan leik og aðgöngumiðar ganga nú kaupum og sölum á okurverði i London, en þegar liður að leiknum má búast við þvi, að engum takist að ná i miða þótt gull væri i boði. Menn verða að sætta sig viö það að sitja fyrir framan sjónvarps- tæki sin og fylgjast með leikn- um. Terry Neill, framkvæmda- stjóri Arsenal, hefur gert allt sem i hans valdi stendur til aö undirbúa leikmenn sina sem bezt. — „Strákarnir eru ákveðn- ir að leggja hart að sér, til að koma með bikarinn til High- bury. Við mætum til leiks með ákveönu hugarfari — að sigra”, sagði Neill. Bobby Robson, framkvæmdast jóri Ipswich, hefúr heldur ekki setið auðum höndum að undanförnu, — hann hefur lagt leikmönnum sinum lifsreglurnar fyrir þennan þýö- ingarmikla leik. Það þarf ekki að efa að leikur- inn verður mjög fjörugur og skemmtilegur, þvi að bæði liðin leika mjög skemmtilega knatt- spyrnu, þegar leikmönnum tekst vel upp. Bæði liðin eru skipuð bæði reyndum og ungum, góðum leikmönnum. , Gunnar Einarsson, lands- liðsmarkvöröur úr Hauk- um/ er farinn til Danmerk- ur, þar sem hann mun leika með danska 1. deildarliðinu Arhus KFUM næsta vetur. Það er mikil blóðtaka fyrir Hauka að missa Gunnar, sem hefur verið bezti leikmaður Hafnarf jarðarliðsins undanfarin ár. Gunnar var kjörinn Handknattleiks- maður ársins 1978 af iþróttaf réttamönnum á miðvikudaginn í lokahófi H.S.i. og hlaut hann fagra styttu að gjöf frá SPORT- blaðinu/ sem stóð fyrir kosningunni. Gunnar hélt til Danmerkur i gærmorgun með fjölskyldu sina, en Arhus KFUM gerði honum mjög gott tilboð — útvegaði hon- um góða vinnu við trésmiðar, húsnæði og ýmis góð hlunnindi. — „Þegar ég fékk tilboðið frá Arhus KFUM, ákvað ég að slá til, enda langar mig til að reyna eitt- hvað nýtt , fara utan og vikka sjóndeildarhringinn”, sagði Gunnar i stuttu spjalli við Tim- ann, rétt áður en hann hélt utan. — „Auðvitað kem ég til með aö sakna mins góða félags og strák- anna i Haukum, sem eru úrvals félagar, sagði Gunnar, sem er ákveðinn að standa sig vel með sinu nýja félagi. Gunnar er annar tslendingur- inn sem leikur með Arhus KFUM. Bjarni Jónsson úr Val lék með lið- inu fyrir nokkrum árum viö mjög góðan oröstir og var Bjarni einn af lykilmönnum félagsins — varö Danmerkurmeistari með félag- inu. —SOS ^— sagði landliðsmarkvörðurinn úr Haukum Gunnar Einarsson, Handknattleiksmaður ársins ^ 1978, en hann mun leika með Arhus KFUM GUNNAR EINARSSON... lands- liðsmarkvörður. Youry valdi 7 leikmenn frá Val og Akranesi SOS — Reykjavik. — Landsliðs- þjálfarinn i knattspyrnu, Dr. Youri Ilitchev, er nú byrjaður að undirbúa landsliðið fyrir átök sumarsins af fullum krafti. Ilit- chev hefur valið 27 manna lands- liðshóp, sem kom saman á mið- vikudagskvöldið á æfingu. Eins og við mátti búast byggir Ditchev landsliðshópinn upp með leikmönnum úr Val og Akranes- liðinu — tveimur sterkustu félagsliðunum. Hann hefur valið 7 leikmennúr hvoru þessara félaga i landsliðshópinn. Þetta er ekkiendanlegur hópur, því að það verða gerðar breyting- ar á honum og þá munu leikmenn, sem leika með erlendum liðum, einnig koma til greina i landsliðið ooooooo® Gunnar farinn til Danmerkur „Mig langar til Uppselt fyrir að reyna eitthvað nýtt”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.